Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 66

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 66
66 Hefurðu áhuga? Árangursrík gagnræða krefst æfingar. Samtökin ‘78 munu í haust bjóða upp á mánaðarlegar vinnustofur í gagnræðu, þar sem fjallað er um birtingarmyndir hættu­ legrar orðræðu og farið í gegnum æfingar í því að svara henni. Skráning á samtokin78.is/gagnraeda Hefur þú setið í skrítnu partíi og hlustað á fólk segja steikta hluti um hinsegin fólk? Finnst þér óþægilegt að gera mál úr því þegar einhver sem þér þykir vænt um segir van­ hugsaða og jafnvel ljóta hluti? Skrollar þú alltaf fram hjá hatursfullum þráðum á netinu? Værirðu til í að taka þátt í því að kveða niður fordóma? Þá er gagnræða eitthvað fyrir þig! Segjum eitthvað! Áhrif gagnræðu á eldfima og hatursfulla umræðu → Færri sannfærast af fordómafullum hugmyndum → Færri tjá fordómafullar skoðanir → Færri lesa eða heyra ummæli sem ýta undir fordóma Hér á eftir fara nokkrar aðferðir fyrir þau sem treysta sér til að beita þeim og í þeim aðstæðum þar sem það er hægt. Við setjum öryggi okkar og velferð alltaf í fyrsta sæti. Svara beint Þú getur svarað beint, hvort sem það er í raun­ heimum eða á netinu. Svara óbeint Þú getur svarað óbeint með því að koma með innlegg í umræðuna. Annað sjónarmið Ég er ósammála þér. Með því að koma með annað sjónarmið sýnir þú að ummælin eru ekki óumdeild. Leiðréttingar Þetta er ekki rétt. Staðreyndin er sú … Með því að leiðrétta rangfærslur leyfir þú ósönnum fullyrðingum ekki að standa óáreittum. Ákall um stillingu Pössum hvernig við tölum um annað fólk. Með ákalli um stillingu færð þú fólk til að gæta orða sinna. Fólk gerir það frekar þegar það er minnt á samskiptareglur samfélagsins. Best er ef … → Þú þekkir manneskjuna → Þú ert í góðu jafnvægi → Þú notar jákvæðni markvisst → Þú hefur trú á fólki → Þú notar góðar heimildir → Þú forðast fórnarlambsvæðingu Ég treysti mér ekki til að svara Þegar við treystum okkur ekki til þess að svara, hvorki beint né óbeint, er líka hægt að biðja annað fólk um að stíga inn í. Mikilvægi samstöðu þvert á hópa hefur því aldrei verið meira. Það sem skiptir mestu máli er að við látum okkur umræðuna varða og gerum ekki ráð fyrir því að hún lagist af sjálfu sér. Gagnræða (e. counterspeech) er aðferð sem hægt er að nota til að takast á við skaðlega orðræðu án þess að beita ritskoðun. Í raun felst hún í því að taka þátt í umræðunni á meðvitaðan og yfirvegaðan hátt. Tilgangur­ inn er fyrst og fremst að minnka skaðann af hættulegri orðræðu og koma í veg fyrir stigmögnun hennar. Þessa aðferð má nota hvar og hvenær sem er, þegar við metum það öruggt, hvort sem það er á netinu eða í súru samkvæmi. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökunum ‘78 Teikningar eftir Elías Rúna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.