Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Qupperneq 73
Krabbi
Land: Holland
Þú ert sú sem ert líklegust til að finna maka
þinn á fyrsta deiti á Kiki. Þú hefur nefnilega
litla stjórn á tilfinningum þínum og þessi
eggjandi dans sem tælir þig hjá verðandi
maka er bara að æra þig. Á einu augnabliki
sérðu þig fyrir þér með maka þínum og
börnum, og kannski ketti eða hundi, í
einhverju góðu og hýru hverfi. Manneskjan
sem greip athygli þína sér það ekki en það
sem skiptir máli er að þú sérð það.
Því innst inni ertu svo full af væmni og
ást sem fær þig til að sjá fyrir þér alls konar
líf og veruleika með fólki. Ég myndi jafnvel
segja að þú hafir átt hundruð líf með þínum
núverandi (eða verðandi) maka í huga þínum
áður en þið fóruð að vera saman. Sumir
myndu kalla það þráhyggju, en ég kalla það
bara fólk með draumóra um betra líf.
Mundu bara að slaka á ef draumarnir
rætast ekki. Það eru margir fiskar í sjónum
og eins og hver annar krabbi þá þarftu bara
að fara að veið … Ah, ég sé að þú ert búin að
finna þér annan maka. Sleppum þessu bara.
Líf okkar eru ótal mörg og í gegnum hundruð
lífa tökum við hverju andliti og persónu eins og
hlutverki í leikriti. Þótt sál okkar sé alltaf sú sama
þá getur tjáning okkar verið jafn mismunandi og
stjörnurnar og hvert líf er sitt eigið leikrit með
sína eigin karaktera. Þú getur reynst hetja í einu
lífi en fól í því næsta.
Það getur samt reynst erfitt að taka að sér
nýtt hlutverk. Þegar við höfum eytt ótal mörgum
lífum í sama hlutverki getur nýtt hlutverk í
næsta lífi reynst erfitt fyrst um sinn. Þess vegna
hef ég ritað hér örstuttan pistil um hvernig þú
átt að njóta þess hlutverks sem þér hefur verið
úthlutað. Því þótt sólarmerkið sé bara eitt af
mörgum stjörnumerkjum sem skilgreina þig þá
er það þín æðsta gjöf og frelsi.
Stjörnuspeki
Hrútur
Land: Bretland
Ef ég ætti að lýsa þér í einu orði þá væri
það „táningur“. Nota bene þá er ekkert að
því að vera táningur. Það er fullkominn tími
til að prófa sig áfram og uppgötva hvaða
manneskju þú hefur að geyma. Þú þarft bara
að gefa sjálfu þér frelsi. Þú þarft að stíga upp
á svið og ráðast á næsta hól og ekki hætta
fyrr en þú hefur fengið fylli þína. Því þú
hefur gífurlega þörf fyrir að lemja frá þér á
alla vegu og prófa þolmörk veruleikans.
Þú munt eignast karmíska óvini með
þessari aðferðafræði en það er seinni tíma
vandamál eða eins og við Íslendingar segjum:
„þetta reddast“. Það sem skiptir máli er að þú
finnir út hver þú ert og hvað kveikir í þér og
reyna svo á þau þolmörk þangað til þau slitna
næstum. Það er á mörkum þessa heims sem þú
uppgötvar hvert þú ert og hvaðan þú kemur.
Það er þitt hlutverk þessu lífi að sjá hversu
langt þú getur stokkið með djöfulinn í
eftirdragi. Því í sakleysi þínu trúir þú því
að þú sért söguhetjan og munir alltaf sigrast
á þeim drekum sem standa í vegi fyrir þér.
Mundu bara að bólfélagar þínir eru bara ekki
nærri eins æstir í einhvern „slag“ og þú.
Naut
Land: Bandaríkin
Þú ert lítið nautnadýr sem sötrar Prosecco
því þér finnst heimurinn vera til að þjóna
þér og þínum (en fyrst og fremst þér). Því
lystisemdir heimsins eru margar og þér
eruð eins og konungur á stærsta hlaðborði
heims. Hvort sem það er matur, fólk eða
nýjar upplifanir, þá er það eitthvað fyrir
þig að prófa. Þú ert áhorfandinn í dragleik
veruleikans og þú elskar það.
Hvernig veistu annars hvað þú vilt ef þú
leyfir þér ekki að prófa allt? Hvernig veistu
hvaða blæti, fólk og matur höfðar til þín ef
þú hefur ekki leyft þér að „smakka“ bara
smá? Jú, jú, stundum áttu til að vera aðeins
of mikið „vanilla“ til að byrja með og fylgja
„prógramminu“ en svo áttar þú þig á því að
„prógrammið“ er bara gildra. Þægileg gildra
en samt gildra.
Leyfðu þér þess vegna að njóta. Við lifum
í svo bölvuðu samfélagi, svo uppfullu af alls
konar skömm að við gleymum stundum að
það er allt í lagi að setjast niður og njóta. Því
líf okkar er bara augnablik í eilífðinni.
Þannig að njóttu. Njóttu eins og þetta sé
þinn síðasti dagur og þegar næsti dagur
kemur þá nýtur þú þess bara aftur.
Tvíburi
Land: Ítalía
Þú ert Skilaboðaskjóðan. Því eðli tvíburans
er að vera sendiboði sem þarf að tjá sig á
eins fjölbreyttan hátt og hægt er. Það er þitt
karma í þessu lífi, að tjá þig og læra hvernig
þú getur nýtt þá hæfileika til fulls sama hvort
það er í vinnu eða einkalífinu. Þökk sé þessu
áttu eftir að skapa alls konar karma sem þú
bjóst ekki við, enda ekki sjálfgefið að fólk
skilji alltaf hvað þú átt við. Það er samt seinni
tíma vandamál og þangað til þarftu að tjá
þig og læra af mistökum þínum. Áður en þú
lærir að ganga þarftu að læra að standa og á
meðan þú lærir að standa þá muntu detta oft
og mikið. Hins vegar, með þrautseigjuna að
vopni, muntu finna röddina og orð þín munu
svífa með vindinum eins og lauf að hausti.
Þannig að talaðu við kvárið sem þú hefur
verið að spá í á Kiki. Farðu í keilu með breska
parinu sem leist svona vel á þig meðan þú
sötraðir samósur í fríinu þínu. Vegna þess
að tjáning er alls konar, bæði orð og verk.
Mundu bara að láta aldrei tjóðra þig við jörðu
og dreifðu hjarta þínu eins og hýrflugan sem
flýgur á milli regnbogablóma.
Hel Ada