Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 74

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 74
74 Ljón Land: Frakkland Ljónið, dragdrottning hinsegin samfélags­ ins jafnvel þegar þú vilt ekki vera í dragi. Þú elskar fátt meira en að sýna þig upp á sviði í þínu fínasta pússi. Jafnvel þegar þú hagar þér eins og feimin skólastúlka þá reynir þú að sýna hæfileika því innst inni viltu að fólk taki eftir þér og þú vilt njóta birtunnar hvaðan sem hún kemur. Það er nota bene ekkert að því að njóta sviðsljóssins. Þar er heitt og gott eins og á sól­ ríkum degi á Benidorm. Þannig leyfðu fólki að sjá þig og njóttu hins andlega D-vítamíns sem þú færð út úr þessu. Lífið er þitt og þetta er allt stór söngleikur saminn fyrir þig. Strunsaðu því eins og Frank-N-Furter yfir allt sviðið og láttu heyrast í þessum risaháu hælum sem halda þér uppi. Því þú ert erki-slöttið og þar er engin skömm. Bara njóttu birtunnar meðan þú færð tækifæri til þess. Hræddur við skömmina? Út með hana eins og hvert annað sorp og baðaðu þig í sólinni. Meyja Land: Grikkland Í gegnum árin þá hef ég gert grín að þér, elsku Meyja. Það er samt meira út af því að mér þykir svo rosalega vænt um þig jafnvel þó þú kvartir yfir öllu og að ekkert sé nógu gott fyrir þig. Því innst inni veit ég að þú ert allt af vilja gert og vilt að allar Excel-formúlur séu réttar svo að þú fáir ekki magasár. Ástæðan fyrir því að mörg okkar elskum þig er út af því að þú ert jafn fastur í þínu eigin rassgati og versti klepri. Það breytir ekkert þinni skoðun og fólk lærir annaðhvort að elska það eða vill ekkert með þig hafa. Það er þinn styrkur því með því að vera bara þú í gegnum súrt og sætt þá tryggir þú að annað fólk sem hefur svipaða sannfæringu. Þú ert eins og klettur í brimsjó hinsegin samfélagsins: óhreyfanlegt Svo er það bara þitt karma að sjá um skriffinskuna núna. Hélstu virkilega að þú gætir brotið og allt og bramlað í þínu fyrra lífi sem hrútur án þess að þurfa að borga fyrir það? Núna er komið að skuldadögum og sjáðu til að þetta stemmi allt. Mundu bara að skilja þessa andfélagslegu hegðun eftir heima og þetta verður allt glimrandi. Vog Land: Japan Vogin er að mínu mati alltaf smá Diet-ljón, en það er meira bara derringur í mér. Vogin er í eðli sínu rosa diplómati sem vill alltaf að allir séu sáttir og vinsældir þeirra eftir því. Í venjulegum heimi myndi það teljast fyrirtak hæfileiki en þetta er ekki venjulegur heimur. Samt, þú þarft að læra af mistökum þínum og því ætla ég frekar að styðja atferlið þitt. Nýttu þessa kurteisi og virðingu sem þú býrð yfir og byggðu brýr. Tengdu saman ólíkt fólk og ólíka heima og sjáðu til þess að heim­ urinn verði betri en hann var áður. Þetta er eitthvað sem ég treysti þér nefnilega alveg til að gera og það eina sem þú þarft að gera er að byrja verk þitt. Jú, jú, Steingeiturnar munu þurfa að framkvæma það en þú hefur alla burði til að koma þeim saman. Hins vegar mæli ég með að þú leyfir þér að finna fyrir tilfinningum þínum. Hleyptu reiðinni og erfiðum tilfinningum út þegar þú getur því annars munu þær tvístra hjarta þínu. Því eins og eitt uppáhaldsskáldið mitt skrifaði eitt sinn á japönsku og ég þýði illa: „Jafnvel þó við gerum okkar besta í að setja aftur saman það sem áður glataðist þá mun það aldrei verða eins og það var.“ Sporðdreki Land: Spánn Ég er alltaf smá hrædd við að skrifa um sporðdrekann. Aðallega því þið eruð alveg líkleg til að kveikja í húsinu mínu þegar ég á síst von á því. Reynum því að halda þessu á ljúfu nótunum. Ég finn nú þegar hvernig tilfinningar þínar magnast og innri rödd þína að segja „djöfuls kjaftæði“. Hlýddu samt á orð mín um stund. Ég er stundum grimm en ég reyni að vera aldrei vond. Þú ert svolítið eins Fönix stjörnuþokunnar. Mitt á milli stríðs og friðar og eins og er þá er hvorug ströndin í sjónmáli. Svolítið eins og hinsegin manneskja í skápnum, tilbúin í að annaðhvort skella dyrunum opnum eða halda þeim lokuðum. Því þú ert eins og er að umbreytast og rísa úr öskunni af því sem þú varst. Það sem eitt sinn einkenndi þína persónu er að brenna í burtu og það sem rís mun vera þitt sanna sjálf. Gallinn er sá að það tekur bara tíma. Leyfðu þér að taka þann tíma sem þú þarft. Leyfðu þér að finna allar þær tilfinningar sem bærast í huga þínum þangað til storminum slotar og þú finnur jafnvægið aftur. Það er nefnilega ekkert að því að finnast eins og þú sért á ólgusjó, eina sem skiptir máli er að þú umberir hann um sinn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.