Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Síða 75
75
Steingeit
Land: Þýskaland
Steingeitin, eða einræðisherra stjörnu
þokunnar eins og ég kalla það. Þú átt nefni
lega til að vaða yfir aðra í krafti hæfni þinnar
sem getur skapað þér óþarfa óvini. Mundu
að temja þér hætti Vogarinnar og allar dyr
eru þér opnar, hvort sem það er Kiki eða
forsetaembættið.
Það eru fá merki jafn dugleg og þú og það
er alveg rík ástæða fyrir að þú telur þig oft
betri en aðra. Því á meðan aðra dreymir þá
framkvæmir þú. Leyfðu þér að framkvæma,
byggðu eitthvað fyrir þig og þína nánustu,
hvort sem það er betri heimur eða betra hús.
Mundu bara að ekki öll tól þurfa að vera
oddhvöss og stundum er betra að nýta sér
mjúkar hliðar.
Þótt margt sé byggt á sterkum grunni þá
endist það með mýkt tímans. Þess vegna
þarft þú að temja þér þetta tvennt svo það
endist.
Vatnsberi
Suður-Kórea
Lífið er súrrealískt leikrit sem virðist
engan endi ætla að taka þar til skyndilega dag
einn þá endar þetta allt. Þú veist þetta og ert
því eins og lauf í vindi á ferð um veruleikann.
Eins og Sir Richard Attenborough þá sérð þú
hversu hjákátlegt leikritið er og þú nennir
varla að pæla í því. Öll lönd hafa þegar verið
numin og það er lítið annað hægt að gera en
að skemmta sér smá á elliárunum.
Ég vil bara segja þér að það er í lagi að
njóta sín og það er í lagi að brjóta upp formið,
hvort sem það er að innan eða utan. Það
halda þér engin bönd og fólkið sem vill binda
þig niður getur það einungis ef þú leyfir það.
Valdið hefur alltaf verið í þínum höndum þó
að það hafi tekið þig ótrúlega langan tíma að
átta þig á því.
Nýttu tímann í að vera þú. Talaðu við það
fólk sem þú vilt tala við og deildu árunum
með þeim sem þú elskar, því þótt þér
finnist sál þín vera talsvert eldri en flestra,
þá eru þessar yngri sálir svo einstaklega
skemmtilegar og hressandi. Svona eins og
gott freyðivín á góðum eftirmiðdegi.
Fiskur
Land: Ástralía
Þú ert búin að upplifa svo margt og kynnst
þeim fjölbreytta farsa sem veruleikinn er.
Núna ertu að stíga þín síðustu skref. Þú
ert gömul sál sem hefur upplifað margt og
í fjarska sérðu vel troðinn veg sem var eitt
sinn þinn. Þú hefur rifið í sálir og byggt og
upplifað hið sama frá öðrum. Eins og vel
nýttur og dáður nálapúði þá situr þú hér í lok
tímans og horfir á sólarlagið verða rautt og
fjólublátt þegar það kastar léttum skugga yfir
líf þitt.
Störfum þínum er ekki lokið enn því
eins og margar gamlar sálir þá hefur þú svo
mikið að gefa. Þú hefur þekkingu og visku
sem þú getur gefið næstu kynslóðum og þar
af leiðandi byggt betri heim. Ekki fyrir þig,
heldur fyrir öll hinsegin ungmennin sem eru
að stíga sín fyrstu skref í hinum stóra heimi.
Þú ert eins og eldra kvár sem situr í
ruggustól á veröndinni sinni. Þú situr þar og
segir sögur af drekum sem þú hefur barist
við og veislum sem þú hefur notið. Þú situr
þarna á síðasta skeiði ævinnar og segir sögu
sem verður aldrei sögð aftur í þeirri einlægu
von að fólkið sem þú elskar læri af mistökum
þínum.
Bogmaður
Land: Ísland
Ég veit að það er klisja en enginn ferðast
eins mikið og þú. Munurinn er bara sá að fólk
hefur svo einhliða skoðanir á hvað „ferðast“
þýðir. Flestir hugsa um að hoppa upp í næstu
flugvél og leggja af stað til fjarlægra landa
en að ferðast er svo miklu meira en það. Það
er nefnilega hægt að ferðast um alls konar
heima, hvort sem það er þessi raunheimur,
bækur og sögur, einhver fræði eða jafnvel
andleg málefni. Þar erum við eins og
geimfarar í villta vestrinu á fjarlægri plánetu
að uppgötva ný lönd, einungis til að deila því
með fólkinu í kringum okkur.
Innst inni þarftu að breiða úr þér. Þú þarft
að sigrast á ókunnugum slóðum og öðlast
visku og þekkingu, því eins og gaman það er
að fara á Kiki þá er heimurinn bara svo miklu
stærri. Leyfðu þér að uppgötva heiminn og
vertu boðberi hins fjarlæga því þessi þörf er
þér í blóð borin.
Mundu samt bara að vera ekki fáviti. Þó
aðrir geti ekki fylgt þér eftir gerir það þau
ekki minna virði en þig. Það að þér var
gefin gjöf þýðir að þú þarft að þjálfa með
þér umburðarlyndi svo þú getir kennt þeim
sem á eftir koma svo þau geti staðið í björtu
sólskini við hlið þér og notið hlýjunnar sem
þú hefur að gefa.