Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Síða 84
84
Sýnileiki hinsegin fólks mikilvægur
Það var því mikill heiður fyrir Margréti að
vera beðin um að gera lag hátíðarinnar í ár.
„Pride-hátíðin á svo djúpstæðan part af mér
og bara hinseginleikinn að ég gæti ekki verið
montnari og glaðari að fá að gera lag fyrir
hátíðina og fyrir sjálfa mig,“ segir hún og
bætir við að hún sé stolt hinsegin manneskja
sem vilji halda sýnileika hinsegin fólks á
lofti. „Ég ætla aldrei að hætta að vera sýnileg
og hvet aðra til hins sama.“ Margrét fjallar
einmitt um það í laginu hversu erfitt það er
að vera í felum: „Það er svo tætandi að þurfa
að fela sig á bakvið einhverja grímu sem
samfélagið segir þér stundum að setja upp en
kannski ef þú kemur á Pride og sérð fólk eins
og þig, færðu kjarkinn til að taka hana niður.“
Einvalalið kom að laginu
Eins og kom fram hér að ofan hefur Margrét
verið viðloðandi tónlistarbransann í rúman
áratug og því þekkir hún fjöldann allan af
hæfileikafólki sem hún fékk til liðs við sig
við vinnslu lagsins. „Lagið er pródúserað og
samið af mér en ég fékk mörg hæfileikabúnt
til liðs við mig til að hjálpa mér við að klára
það. Það er einfaldlega skemmtilegra að gera
tónlist með öðrum þannig að ég fékk Röggu
Holm, Reykjavíkurdóttur, og Ólaf Alexander,
bassaleikara Hipsumhaps og fyrrum Vök-
meðlim, með mér í textagerð,“ segir hún og
bætir við að tónlistarmennirnir Arnar Ingi,
eða Young Nazareth, og Þormóður Eiríksson
hafi einnig komið að lokavinnslu lagsins með
henni. „Minn besti maður, Friðfinnur Oculus,
sá um að mastera lagið. Svo kemur auðvitað
Páll Óskar með guðdómlegu röddina sína og
tekur þetta lag í hæstu hæðir. Þvílík gleði
þegar hann Páll Óskar sagði já við að vera
með í laginu,“ segir Margrét brosandi út að
eyrum og bætir við: „Oh, my god!“
Að hefja langþráðan sólóferil
Það má segja að það að gera lag Hinsegin
daga í ár hafi haft töluverð áhrif á feril
Margrétar því það veitti henni innblástur til
þess að hefja sólóferil. „Þetta fallega sam
starf milli mín og hátíðarinnar gerði það að
verkum að ég er að láta langþráðan sólóferil
verða að veruleika og þar mun ég koma fram
undir nafninu RÁN,“ segir Margrét en henni
fannst of persónulegt að notast við fullt nafn
og vildi skapa annað sjálf fyrir sólóferilinn.
„RÁN fannst mér spennandi valkostur og
nafnið táknar sjávargyðja en mér fannst of
persónulegt að vera Margrét Rán svo að RÁN
fær að vera svona mitt annað sjálf.“ Með því
að fara af stað í þetta verkefni sé hún að full
nægja sköpunarþörf sinni. „Það er yndislegt
að fá að vera í Vök og GusGus og þar er nóg
framundan en ég þarf að fá að fullnægja
sköpunarþörfinni í mér. Þannig að ég ætla
að gefa út meiri tónlist í haust og vetur og
ég hlakka mikið til að sjá hvert RÁN tekur
mig.“ Aðdáendur GusGus þurfa þó ekkert að
óttast en Margrét er einnig að vinna að nýrri
plötu með félögum sínum þar. „Það stefnir í
þrusugóða plötu. Þess á milli erum við svo
að skreppa í tónleikaferðalög. Við hlökkum
mikið til að troða upp í Hörpu í vetur og
spila Arabian Horse-plötuna. Ég á vissulega
ekki neitt í þeirri plötu og var ekki í bandinu
þegar hún kom út en guð minn góður hvað
hún hafði mótandi áhrif á mig og ég hlakka
mikið til að vera með á þeim tónleikum.“
Hinsegin dagar hafa mótað vinahópinn
Margrét á marga hinsegin vini og segir að
Hinsegin dagar hafi mótað vinahópinn sinn
að vissu leyti: „Ég er svo heppin að eiga risa
vinahóp sem er um það bil 90% hinsegin
þannig að það hafa verið ófá Pride-partý
sem við höfum haldið saman og við höfum
alltaf hópað okkur saman í göngunni eða í
Hljómskálagarði til að fagna fjölbreytileik
anum saman,“ segir Margrét og bætir við
að hátíðin hafi mikla þýðingu fyrir hópinn.
„Pride svona eiginlega mótaði vinahópinn
minn þannig að hátíðin hefur mikla þýðingu
fyrir okkur,“ segir hún. Það er þó ljóst að
hátíðin í ár verður með breyttu sniði fyrir
hana þar sem hún mun flytja lagið í Hljóm
skálagarðinum í lok göngunnar. Hún vonar
að fólki finnist jafn gaman að hlusta á lagið
og henni fannst að gera það og vildi koma
þessum skilaboðum á framfæri undir lokin:
„Gríptu fánann, syngdu með og dansaðu!“
Proud, Queer and Determined to Be
Vocal About It
Margrét Rán Magnúsdóttir, or RÁN as her
stage name as a solo artist is, is the writer
and the performer of this year's Reykjavík
Pride Anthem, “Gleðivíma”, which can be
translated as “Euphoria”. The song also
features Páll Óskar and will be performed
in Hljómskálagarðurinn following the Pride
Parade, but the song itself is inspired by
Margrét’s experience of her first Pride 17
years ago. Margrét has been an active and
prominent member of the Icelandic music
scene since 2013, for example being the
founder of the band Vök and a member of the
legendary GusGus.
Árin þau líða
Ég man svo vel
Gleðivíma
Ég fann mig hér
Gleðivíma
ft. Páll Óskar
Lag: Margrét Rán Magnúsdóttir
Texti: Margrét Rán Magnúsdóttir, Ragnhildur Holm
Magnúsdóttir, Ólafur Alexander Ólafsson
Fór niðrí bæ og hristi mig vel
Með Palla og pride og fólki eins og mér
Tilfinning sem ég geymi
Enn
Árin þau liðu
Á bak við grímu faldir allt
Braust þig niður
En þú þráðir heitt að verða frjáls
Fórst niðrí bæ og hristir þig vel
Með Palla og Pride og fólki eins og þér
Litadýrðin hún er hér
Kannski sérðu það í dag
Meðan þú dansar og syngur þetta lag
Hleyptu nýjum heimi að
Meðan þú veifar fánanum í takt
Fór niðrí bæ og hristi mig vel
Hristir þig vel
Hristir þig vel
Með Palla og Pride og fólki eins og mér
Fólki eins og þér
Fórst niðrí bæ og hristir þig vel
Hristir þig vel
Litadýrðin hún er hér
Kannski sérðu það í dag
Meðan þú dansar og syngur þetta lag
Hleyptu nýjum heimi að
Meðan þú veifar fánanum í takt
Meðan þú veifar fánanum í takt
Kannski sérðu það í dag
Meðan þú dansar og syngur þetta lag
Hleyptu nýjum heimi að
Meðan þú veifar fánunum í takt
Meðan þú veifar fánunum í takt