Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 96
96
Viðburðir fyrir börn og ungmenni hafa vakið
mikla lukku undanfarin ár. Mikilvægt er að
einstaklingar á öllum aldri og fjölskyldur
finni einnig eitthvað við sitt hæfi. Hinsegin
dagar leggja áherslu á að fjölskyldur upplifi sig
velkomnar á hátíðarhöldunum. Sömuleiðis er
áhersla lögð á að unglingar og ungt fólk finni
sinn stað á hátíðinni, þar sem þessi hópur fer
hratt stækkandi. Vinsælir viðburðir verða
endurteknir auk nokkurra nýrra sem verða
hluti af dagskránni. Fjölskyldur og ungmenni
ættu því auðveldlega að finna eitthvað við sitt
hæfi á Hinsegin dögum í ár.
Unga fólkið á bak við tjöldin
Stjórn Hinsegin daga er í góðu samstarfi við
unglinga og ungt fólk sem hefur brennandi
áhuga á að skapa, skipuleggja og koma
með hugmyndir að viðburðum og leiðum
til að auka sýnileika ungs hinsegin fólks á
Hinsegin dögum. Mikilvægt er að viðburðir
höfði til sem flestra og því nauðsynlegt að
vera í samstarfi við unga metnaðarfulla
einstaklinga. Í ár var starfandi ungmennaráð
sem kom með hugmyndir og sá um
framkvæmd á nokkrum viðburðum fyrir
ungmenni og unglinga. Þetta samstarf er
mikilvægt til að geta boðið upp á fjölbreytta
og áhugaverða ungmennadagskrá.
Hinsegin handverk
Pride Centre (Iðnó) — Sunnusalur
Mánudaginn 5. ágúst kl. 13:00-15:00
Pride vikan byrjar á notalegum nótum þar
sem hinsegin fjölskyldum er boðið að koma í
Pride Centre og búa til armbönd og listaverk
úr perlum og öðru efni. Skemmtilegur
viðburður til að koma saman, spjalla, hlæja
og föndra.
Kósýkvöld á Loft (18-30 ára)
Loft, Bankastræti 7
Mánudaginn 5. ágúst kl. 18:00-23:00
Notaleg stund á Lofti í upphafi Pride-
vikunnar. Spjall, spil og öll velkomin!
Nú og þá
Pride Centre (Iðnó) — Sunnusalur
Þriðjudaginn 6. ágúst kl. 14:00
Nú og þá er verkefni sem snýst um að skapa
samtal milli ólíkra kynslóða hinsegin fólks
í gegnum gamlar ljósmyndir úr hinsegin
samfélaginu sem hinsegin ungmenni á
aldrinum 15-25 ára hafa valið og endurgert.
Einn, tveir og DRAG!
Pride Centre (Iðnó)
Miðvikudaginn 7. ágúst kl.14:00
Dragsýning fyrir allan aldur og vinnustofur
fyrir 12-17 ára. Glæsileg dagskrá fyrir
dragaðdáendur á öllum aldri. Litríkar
uppákomur fyrir alla, m.a. bókalestur með
dragdrottningunni Starínu, húllahringir
með Bobbie Michelle og andlitsmálning.
Hápunkturinn verður dragsýning á sviði
Iðnó en í aðdraganda viðburðarins verður
boðið upp á vinnustofur fyrir ungmenni sem
eru að stíga sín fyrstu skref í dragheiminum.
Ungar hinsegin raddir
Pride Centre (Iðnó)
Miðvikudaginn 7. ágúst kl. 18:00
Tónlistarviðburður þar sem raddir hinsegin
ungmenna fá að heyrast. Fjölbreytt atriði og
frábær skemmtun.
Regnbogahátíð fjölskyldunnar
Elliðaárdalur, leikvöllur
Miðvikudaginn 7. ágúst kl. 16:30
Hinsegin fjölskyldur ásamt Hinsegin dögum
bjóða upp á skemmtilega dagskrá fyrir börn
á öllum aldri. Leikhópurinn Lotta sýnir
Bangsímon á Lottutúni í dalnum kl. 18:00
og fá gestir Regnbogahátíðarinnar 1000 kr.
afslátt af miðaverði. Frítt er fyrir börn 2
ára og yngri. Vonumst til að sjá sem flestar
regnbogafjölskyldur koma saman, leika sér
og eiga gleðilega stund saman.
#YouthPride
Barna- og ungmennadagskrá Hinsegin daga
Helstu viðburðir
ungmennadagskrár