Freyja - 01.05.1904, Side 16

Freyja - 01.05.1904, Side 16
220 FREYJA VI. io. ,,Hvað á ég þá að gjör*?“ sagði Karþ sem þekktl ofurstann of vel til að deila við hann um þetta atriði. „Fjandinn hafi það, maðurl Sagði ég ekki að ég vildi láta fœra mér Sam Wilson!“ ,,JÚ, en hvað sýnist yður um aðferðina?“ ,,Mér sýnist ekkert um hana, major. Haldið þér mig þann asna, að senda mann í slíka ferð, sem ekki getur sjálfur ráðið ráð- um sínum. “ ,,Má ég þá gjöra uppástungu?“ ,,Það er einmitt það sem ég œtlaðist til, þó það tæki þig and- skoti langan tíma að komast að því. ‘ ‘ ,,Það er gamalt máltæki, að fant þurfi til að handsama fant, og ég gjöri þá uppástungu að njósnari sé sendur til að handsama njósnara, ofursti Hazel. “ Ofurstinn hló dátt og hallaði sér aftur á bak upp að hæg- indinu. „Haldið nú áfram, major. Þér eruð maðurinn eins og ég vissi, ‘ * sagði hann. ,,Ég sting þá upp á því, að ég, með yðar leyfi fari f njósnar- för við tíunda mann, sem ég sjálfur vel til þeirrar ferðar. “ ,,En hvað um Sam Wilson?“ ,,Ferðin er auðvitað gjörð til að ná honum, en um það meiga menn mínír ekki vita, nema þeir einir, sem ég kann að trúa fyrir því. ,,Þér eruð maðurinn, eins og ég vissi, herra major, annars hefði ég ekki sent eftir yður. Farið þá og Iátið ekki gras gróa í sporum yðar. ‘ ‘ Karl brosti, hann vissi að á bak við þetta hrjóstuga viðmót lá drenglynt hjarta, og þegar hann var að fara,kallaði ofurstinn á hann og sagði: ,,Það er nœgur tími til að fá sér glas áður en þér farið, major. “ ,,Þökk fyrir heiðurinn, ofursti, en ég býst varla við að það skerpti nokkuð vit mitt eða byggi mig að nokkru leytí betur undir starf mitt. ‘ ‘ ,,Hvað! þér neitið þó ekki að drekka glas með mér, “ sagði ofurstinn í þrumandi róm. ,,Ég vildi ekki móðga yður, herra ofursti, en ég inyndi ekki drekka með forsetanum sjálfum þó hann byði mér það.“ ,,Forsetinn er engu berti en ég, ungi herra. “ ,,Auðvitað ekki, og ekki betri en ég, ofursti. “ (Framhald).

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.