Freyja - 01.12.1909, Side 4

Freyja - 01.12.1909, Side 4
FREYJA XII 5- <58 reki. og svo hitt, aS þar voru tvœr heldri manna konur gest- komnar, sem af sjálfsögöu drógu athygli prestsins og konu hans eingöngu að sér, og létu mig óbeinlínis ftnna til þess, að mér var ofaukið í þeirra félagsskap. Enda var mjöglítið tal- að við mig fyrsta kvöldið. Prestkonan var sú eina, sem sá hvernig mér leið. Húnstakk upp á því við mig um kvöldið, að ég skyldi daginn eftir ganga mér til skemtunar um bæinn svo mér leiddist síður, en koma þó heim í tæka tíö til mál- tíða. Ég sá að þetta var óskaráð. Og strax að afloknum inorgunverði, daginn eftir, lagði ég af stað út í bœinn. Ég gekk fyrst niður að sjónum, og hélt svo upp með lœknum, sem rennur úr Dartmouth-vatninn í gégnumnorðurhluta bæjarins. Ég vissi, að við þenna læk stóð gömul og frœg verksmiðja, þar sem búin voru til skotfœri af ýmsum tegundum, og lang- aði mig til að koma þangað. En áður en ég komst alla leið, nam ég alt í einu staðar hjá litlu húsi, sem stóð á blá bakkan- um sunnanmegin við lækinn. Þetta hús var á að gizka 16 fet á lengd og 12 á breidd, og var ílöguneinsog hús þau, er Ameríku-menn kalla,,shant- es, ‘‘ og leit út fyrir að hafa einhverntíma verið skúr við hlið. ina 4 öðru stœrra húsi. Það var hvítt á lit ognýmálað. Tveir gluggar voru á því, sinn á hvorum stafni, og einar dyr, sem vissu að götunni. Kringum það var nýleg rimagirðing. en hún var svo lá, að hver meðalmaður hefði hæglega getað stígið yfir hana. Og beggja vegna við húsið stóðu tvö afar há og gildvaxin álmtré, eins og risar á verði, og teygðu langar og laufprúðar limar út yfir, þakið á því, eins og til að hlífa því fyrir regni, vindi —og sólarhita. Að ég nam þarna alt í einu staðar, kom ekki til af því aö mér þætti húsið svo eftirtektavert, eða rimagirðingin svo af- káralega lá, eða hin laufprúðu álmtré svo óvanalega stórvax- in, heldur var orsökin sú, að ég sá tvö börn (pilt og stúlku) koma út úr húsinu, og heyrði að þan mæltu á íslenzka tungu. Börnin voru á líku reki, á að gizka fimm eða sex ára gömul, með glóbjart hár og rjóðar kinnar, eins og heilsugóð börn,sem alast upp við sjóloft og sólskin- Þau gengu út að götunni og

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.