Freyja - 01.12.1909, Page 15

Freyja - 01.12.1909, Page 15
XII 5« FREYJA 111 Rebekka frænka átti kjól eins og pjatlan þarna með hvítu hríslun - um á svarta grunninum og var í honurn á sýningunni, þegar ég tók fyrst verðlaun fyrir brauð,og kökugerð. þessa með hvítu hrísl- unum gaf Sally mér um það leyti sem svörtu berin eru móðnuð. Eg hafði veð að ritína ber og kom við hjá henni til að fá að drekka, og þá var hön að sníða kjól úr þessu. Hör hætti Jana í miðju kafi og hló eins og krakki, ,.//efi ég nokkurntíma sagt þér Lífsreynzlu Sally frænku/“ sagði hún og tók nú að sauma saman hyrnurnar sem hún hafði klipt, Að hitta Jönu í þessu ástandi var ákjósanlegt, Eg neitaði spurningu hennar og bað hana í öllum bænum að segja mér hana, Jana þagði urn stund. Það var siður hennar þegar hún ætlaði að segja sögu og þá fanst mér hún vera að tilbiðja minnisgyðjuna. ,,Síðan’eru Jfi ár. Kvrkjan okkar þurfti að fá nýtt þak, gólflð var slitið og nokkrir gluggar brotnir, Piltarnir komu þakinu á og gluggunum í, en kvenfélagið ,Mite,‘ ákvað að láta teppi á gólflð. Við áttum þá §12. í sjóði og ég man enn umtalið sem varð út af þessu, því sumar vildu láta peningana í heiðingjatrúboðssjóð, en aðrar fyrir teppi á kyrkjugólflð. Sally gerði út um þetta eins og annað. Þegar allir voru búnir að tala sig uppgefna urn þetta stóð hún upp og sagði: ,Ef einhverjT heiðingjar heyra ekki náðarboð- skapinn af því við kaupum gólfteppið, verða þeir samt hólpnir því séra Page segir, að þó við sendum peningana og þeir heyri náðarboðskapinn, sé ekki víst þeir iðrist og trúi, ogverðurþað þá þeim til dómsáfellis. Svo mér finst nær að leggja peningana í gólf- teppi en senda þá í slika óvissu. Eg hefl hvort setn «r aldrei séð neitt gott stafa af að leggja voðann upp í hendurnar á þeim, sem eru vissir að skaða sig á honum, eða sáluhjálparmeðal f hendurnar á þeim, .sem áreiðanlega fara til hel...., fyrir þau.“ ,,Svo það var samþvkt að kaupa dúkinn og nefnd kosin til að gjöra það næsta mánudag, Þá sagði ’Lisabeth Taylor, gjaldkerinn okkar, að enga nefnd þyrfti að kjósa, peningarnir væru farnir, hún hefði geymt þá í efstu kommóðuskúffunni sinni og saknað þeirra í morgun. Ilún skyldi borga þá hvenær sem hún gæti, — nú gæti hún það eki. Hún hálf hreytti þessu út úr sér og var svo farin af fundi löngu áðuren víð gátum áttað okkur. 0g hvað sem hver kann að hafa hugsað, þögðu allar, þangað til prestskonan, sem var ein af beztu konum, sem ég hefi kvnst, sagði: ,Dæmið ekki hart.“ (Framhald á bls. /129.)

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.