Freyja - 01.12.1909, Síða 35

Freyja - 01.12.1909, Síða 35
XII 5- FREYJA 13* sína, er henni þaS velkomið. En þegar ksnur leyfa sér aö standa upp í húsi drottins og illmœia þjónum hans og kyrkju- stólpum, eins og hún gjörir, óttast ég reiSi drottins, því segir ekki Páll postuli: LátiS konur ySar þegja í söfnu5unum?‘‘ ,,Þegar Petty nefndi Pál var sem eldi slægi í sinu. Sally frísaSi eins og galsafenginn alihestur, teygði úr sér og sagSi: ,ÞaS er of langt síSan Pálisál. dó til þess hœgt sé aS hrœða mig á honum. Ekki hefi ég heldur heyrt þessgetið að hann hafi gjört Petty djákna aS eftirmanni sínum í þessari kyrkju- sókn eða nokkurri annari. Sé Páll postuli óánægður með það sem ég segi, getur hann sjálfur risið upp af gröf sinni, hvar sem hún er, og sagt okkur það. Nú hefiég boðskap að flytja kari- mönnunum í þessum söfnuöi frá guði sjálfum, og hannœtlaég að flytja hvort sem nokkur Páll hefir veriS til eða ekki. Og Silas Petty! ég hefi ekki gleymt laugardagskvöldinu, þegar ég af hendingu kom til konunnar þinnar og sá hana vera að þvo og þurka viö eldinn snjáö nærpils—þaö eina sem hún átti til, svo hún gæti fariö hrein tii kyrkjunnar daginn eftir. Hún haföi dregiö saman nokkur cent fyrir mjólkina og smjörið úr henni Gránugömlu, sem hún ól sjálf upp á roðum og ruðum, en af því hún gat ekki strax og haustaöi keypt fóður handa henni, seldirðu kúna á laun við konuna þína og þess vegna gat hún ekki keypt sér í vetrar nærföt. Ó, ég.gæti gefið heil mikið af llfsreynzlu fyrir Maríu þína, ’Lizabeth, sjálfa mig og margar fleiri konur, sem eru krossfestar milli Páls postula ög mannanna þeirra, þar til alt sjálfstraust og sjálfsvirðing, sem drottinn gaf þeim í fyrstu er nýdd úr þeim. Og hafi postulinn Páll nokkuð nýttaðsegja um konur, sem hafaþrœlaö í 25 ár, en verða samt að vaka á laugardagskvöldin viö að þvo og þurka af sér tuskurnar svo þær komist til kyrkju, þœtti mér gaman að heyra það. Einusinni var sú tíð, að Páll sagðist ekki vita hvort hann væri innblásinn eða ekki. Og ég er viss um að hann var ekki fremur innblásinn þá hann skrifaði þetta uin konurnar, en þú ert, Silas Petty, þegar þú ert að segja henni Maríu þinni að þegja. “ ,,Nú stóð Job upp, þurkaði sér um munninn, mjakaðist inn eftir kyrkjugólfinu, en Sally var ekki á því að sleppa hon-

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.