Freyja - 01.12.1909, Síða 36

Freyja - 01.12.1909, Síða 36
FREYJA XII 5 132 öm að. .Fað gengur ekkert að þér. job Taylor, sagði hún, ,Seztu bara niður. Ég hefi nógu lengi hlustað á andlausu margmœlgina þína. Nú er minntímiað tala, þinn aö hlusta. “ Jobsettist niður, auömjúkur eins og lamb. en Salli snerr sér að honum og sagði: ,,Þú ert náttúrlega hrœddur um að ég muni telja upp strákapör þín, og ef nokkuð hindraði mig frá að gjöra það, vœri það helzt það, að þau eru svo mörg að ég vissi ekki á hverjum endanum ætti að byrja. Sérhver kona í þessum söfnuði vissi hvernig hún Marta þín þrœlaði, nurlaði og gekk alls góðs á mis til að eignast nýja húsmuni í stofuna ykkar, og þú fórst með þessa peninga til Cineinnati til að kaupa þá, en komst aftur peningalaus og húsmunalaus. Og þegar hún spurði þig um peningana, sagðirðu að hana varðáði ekkert um það. Þú ættir hana og alt sem henni tilheyrði — jafnvel tuskurnar á kroppnum á henni. tdúsmunirnir hennar móður þinnar væru full góðir handa henni. Konur devja daglega af rnarg*ítrekuðum vonbrigðum, þó lœknarnir kálli banamein þeirra háfleygum, ónefnanlegúm nöfnum. Ég hefi séð margt um dagana og nóttina áður en Marta dó, sagði hún: Ég dcei mikið rólegri, Sally Ann, ef égvissi nýja húsmuni í stofunni, þar sem égá bráðum að vera liðið lík. Nú benti Sally á Jobog hélt áfram: ,,Ég sagði þá og segi enn, að þú hafir myrt hana eins áreiðanlega, eins og þó þú hefðir kyrkt hana í greip þinni. “ ,, A bak við mig heyrðist lágt en alvarlegt: Amen, amen\ Það kom frá Maríu Embroy, tengdasystur Jobs, sem sat og þagði eins og lúbarinn seppi, en Sally hélt áfram og sagði: ,,Ég veit að lögin helga ykkur vinnu.líf og eignir konanna ýkkar og tuskurnar sem þær eru í. Ég hefi æfinlega sagt að Kentucky-lögin , hvetji mennina til að beita sinni verstu hlið gagnvart konunum þeirra, en guð veit að það er þó óþarfi, því þeir eru nógu vondir án þess. Það eru til menn, sem fela sig bak við Pál postula, þegar þeir eru að koma í kring ein- hverju óþokkastriki gagnvart konunum sínum, og aðrir sem hlaupa til laganna, og þú ert einn af þeim. En taktu nú eftir, Job! Sá tími kemur einhverntíma, að þú og þið, sem hafið stolið eignum konannaykkar og svikið þær á allan upphugsan-

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.