Freyja - 01.05.1910, Qupperneq 6
246
FREYJA
XII 9.
Hvernig ég vandi manninn minn.
Þýtt af J. S.
Svo þig langar til að vita hvers vegna ég giftist Caleb, sem
var svo vondur við Nancy sál. fyrri konuna sína. Eg skal nú
segja þér það, Hanna. Eins og þú vissir var ég nœrri allslaus
þegar fyrri maðurinn minn dó, með tvö börn á höndunum.
Hálft annað ár fór með það sem ég dró út á landið okkar og
ég stöð uppiráðalaus
Ég sendi börnin til Jóns bróður míns svoþau gætugengið
á skóla. Jón vildi að ég gœfi sér börnin og kvaðst skyldi reyn-
ast þeim vel. En mér fanst hart að gefa þau þó ég soei fá ráð
til að hafa þau. Ut at þessu leið mér illa, eins og þú getur
nœrri.§ Það drólíka að því að ég misti landið alveg ogvoru
þá öll mín bjarg-ráð þrotin. Nokkrum viknm áður en þessisíð-
asta þruma dyndi yfir mig, var ég úti í garði að moka upp
að blómabeði,rétt við girðinguna sem aðskildi lönd okkar Cal-
ebs. Égvaríþungu skapi og mokaði mér til afþreyingar. Alla
æfi hafði églifað úti á landi og landbúnaður var það eina sem
ég kunni. Ég sá því engin íáð til að vinna fyrir mér ogbörn-
unum á nokkurn annan hátt.
,,Mérþykirþú moka rösklega,'* var sagt handan yfir
girðinguna. Ég leit upp og sá að það var Caleb sem talaði.
,,Ó já, þetta átti nú að vera búið, ég hefi ekki svo sjald-
an þurft að gjöra það síðan ég varð einstæðingur. Neyðin
kennir naktri konu að spinna, var eitt af máltœkjunum, sem
við vorum látin skrifa í skrifbœkurnar okkar, “ sagði ég og
stundi ósjálfrátt við.
„Þaðvirðast nokkuð líkar kringumstœður okkar, “ sagði
Caleb alvarlega. „Þigvantar mann til að moka upp að blóm-
abeðunum þínum og gjöra önnur útiverk, og mig vantar konu
til að annast húsverkin. Ég er orðinn sárleiður á þessum ráðs-
konum, sem aldrei tolla, og mér finst nú að við gœtum slegið
saman og unnið saman. Engin af þessum ráðskonum hefir
jafnast á við Nancy mína sálugu. “
Hér þagnaði hann og horfði í gaupnir sér og mér fanst