Eir - 01.12.1899, Qupperneq 4
180
að hann verður að edikssýru; en hún er aðalefnið í edikinu.
Hún hefur verið „ræktuð" óafvitanda frá elztu tímum, líktog
gerðarsvepparnir.
Mjólkursýru-bakterían (bacillus lacticas) er ávalt í
mjólk, sem hefur staðið um hríð. Hún breytir mjólkursykr-
inu i mjólkursýru og gerir mjólkina súra. Sýran hleypir aft.ur
ostefnið í mjólkinni. Þessi bakteria er vanálega keflismynduð
og getur myndað keðjur.
Smjörsýru-bakterían (bacillus amylobacter) er mjög al-.
geng og veldur mjög rotnun, eins og áður er sagt; en hún vek-
ur einnig gerð í sykruðum efnum og í mjólkursúrum söltum
og breytir þeim í hina þefillu smjörsýru. 'F’annig myndar hún
smjörsýru í áfum þeim, er verða eftir í illa hnoðuðu smjöri,
og sýrir það. Bakterían hefir keflislögun og getur hreyft Sig.
Súrefni er skaðlegt fyrir hana.
Fegar bakteríurnar taka sér bústað í lifandi verum, vana-
legaímönnum eða dýrum, verða þær einnig að taka næringu
sína úr þeim, lifa af þeim. Fær valda þá oft sjúkdómum,
annaðhvort á þann hátt, að þær „eta“ smám saman sundur
þá líkams-parta, er þær lifa í, eða gefa frá sér eitruð efni,
sem aftur verka á líkamann, eða ef þær þurfa súrefnis með,
taka of mikið af því úr líkamanum, t. d. blóðinu. Sumar geta
að eins lifað í lifandi verum (obligat parasítískar), aðrar gera það
að eins ef tækifæri býðst (fakultativ parasítiskar). Sumar þess-
ar bakteríur velja sér sérstakar dýrategundir til bústaðar, og geta
haft þænvæn áhrif á þær, en eru algerlega ósaknæmar öðrum,
geta ekki þrifist í þeim. Aðrar geta þritist jafn-vel í ýmsum
dýrum (t. d. miltisbruna-bakterian). Einnig er mikill munur á,
hve einstök dýr sömu tegundar, og einstakir menn, eru vel fail-
in til þess, að einhver bakteriutegund geti þrifist í þeim (bítur
á þau). Getur það farið eftir aldri, likamsbyggingu, heilsu-
fari o. fl. Þess má oft sjá ljósan vott, þegar bakteriusjúk-
dómar (t. d. taugaveiki) ganga, sumir menn á sama heimiii
sýkjast, aðrir ekki.
Ekki eru allar bakteriur jafn-háskalegar, þótt þær taki
bólfestu í mönnum eða dýrum. Þannig eru oft ýmsar tegundir