Eir - 01.12.1899, Side 5
181
í þörmum manna (t. d. heybakterían og smjörsýrubaktorian),
en gera þó ekki mein. Menn þekkja yfir 50 tegundir af bak-
teríum, sem að jafnaði eru í munni manna, einkum milli tann-
anna og á þeim, í farða þeim, er sezt á þær. Margar þeirra
eru ósaknæmar, aðrar saknæmar. Ein tegund breytir t. d.
sykri og sterkju, er sezt i tennurnar, í mjólkursýru; sýran
leysir upp kalkið í tönnunum og myndar smám saman holur í
þeim. Aðrar tegundir geta svo fengið gott hæli í þessum hol-
um og haldið skemdunum áfram. Hættulegastar eru þær teg-
undir, sem taka sér bústað lengra inni i líkamanum, i blóðinu,
þörmum, eða öðrum líkams pörtum, svo sem lungum eða vöðv-
um. Þegar þær eru komnar i líkamann, getur þeim fjölgað
ótrúlega fljótt og þær fengið svo mikla yfirhönd, að líkaminn
yflrbugast svo, að dauðinn er óumflýjanleg afleiðing. En oft ber
þó líkaminn sigur úr býtum eftir harða og langvinna baráttu
við hinn ótölulega óvinaher. Þótt nóg só til af þessum
háskalegu baktoríum, og mögulegleikarnir margir fyrir að fá
þær í sig, þá má þó segja það, bakteríufælnum sálum til hug-
hreystingar, að líkami vor er af náttúrunnar hendi gæddur
ýmsum vörnum gegn þessum óvinum sínum, ef hann annars
er hraustur. Sérstaklega mun eflaust mörg efnileg bakterían
láta lífið í magasafanum, ef maginn er annars í lagi. Annars
vil ég viðvíkjandi þessu biðja menn að lesa aftur hinar góðu
ritgerðir Guðmundar Magnússonar: „Likamsvarnir og lifsafl“,
og „öndunin og loftið“ í Júní og April blöðum „Eirar".
Ég skal að eins nefna hér nokkrar hinar skaðvænustu bak-
teríur og taka það fram urn leið, að mikil líkindi eru til þess,
að flestir næmir sjúkdómar orsakist af bakteríum, enda þótt
mönnum hafi ekki enn tekist að finna þær bakteríur, er valdi
sumum þeirra, t. d. bólu, mislingum, hundaæði og skarl-
atsfeber.
Hinar helztu eru:
Berkla- (tæringar-)bakterían (bacillus tuberculosis), er veld-
ur berklasýki hjá mönnum og fénaði (sjá enn fr.: „Um berklasótt",
eftir Guðmund Björnsson, í Septemberblaði „Eirar“ ,áður býtt
út á landssjóðs kostnað).