Eir - 01.12.1899, Qupperneq 7
183
Rannsólcnir. Það heflr verið tekið fram áður, að bakterí-
urnar eru svo smáar, að það er langt frá, að þær verði séðar
með berum augum hver út af fyiir sig, en það ber oft eigi
svo lítið á þeim, þar sem þær eru margar saman, því þær
mynda oft stórar skánir á efnum, sem þær lifa af. Þannig
kemur litlaus hinna á vatn og sjó, sem látið er standa nokkra
daga með dýra- eða jurtaleifum i. Bakteríur taka sér þar bú-
stað og fjölgar fljótt og safnast þæi' smám saman við yflrborð
ið, ásamt með ýmsuin frumdýrum og myndast af þeim hinn-
an. Einnig er mikið af bakterium í skáninni á mjólk, sem er
að súrna. Á rotnandi þara og þangi í sjó myndast oft stór-
ar hvitar eða rauðar skánir af bakteríum. Vilji menn sjá
einstakar bakteríur af þessum tegundum, þarf ekki annars en
að láta litla ögn af þessum skánum undir smásjá, er stækkar
um 200 sinnum (skánina á að láta inilli tveggja þunnra glera).
Má þá vel greina ýmsar bakteríur og eru þær auðþektar á
iögun sinni frá ýmsum frumdýrum, sem kunna að vera sam-
an við þær. Sórstaklega er gaman að taka á hnífsodd litla
ögn af tannafarða og fara með eins og skánina áður. Má
þar oft sjá krökt af ýmsum bakteríum, þráðmynduðum, prik-
mynduðum eða gormmynduðum. Hinar siðast nefndu eru mjög
smáar, en hreyfast mjög, fara til og frá með allmiklum hraða.
Þó má geta þess, að hraðinn virðist vaxa jafn-mikið og stækk-
unin er margföld.
En það er langt frá því, að allar bakteriurnar verði
greindar með svona lítilli stækkun. Til þess að greina hinar
minstu, er menn þekkja, þarf að minsta kosti þúsundfalda
stækkun; og það er oft ekki nægilegt, því að margar bakteríur
eru svo samlitar efnum þeim, er þær eru í, að ómögulegt er
að greina þær, hve mikil stækkun sem við er höfð. Til þess
að sjá þær, verður að lita efnið, sem þær eru í. Bakteríurn-
ar taka þá litinn í sig, litast, og verða sýnilegar. Ymislitar-
litarefni lita ýmsar tegundir á ólíkann hátt og sumar tegund-
ir taka í sig eitt litarefni öðru fremur. Þessar litanir eru mjög
mikilsverðar, þegar þekkja á eina tegund frá annari, jafn-
-mikilsverðar og góð smásjá.