Eir - 01.12.1899, Síða 9
185
Eldri ráðin, ef svo mætti nefna þau, eiu nærri eingöngu
gegn bakteríum, er valda rotnun, fúa og gerð. Meðal þeirra
má nefna: Þurkun á matvælum (fiski og keti) og ýmsum
öðrum hlutum, er eiga að geymast óskemdir um langan eða
skemri tíma. Þurkunin drepur bakteriurnar og hamlar frjó
kornunum frá að spíra. — Reyking á matvælum. í reykn-
um eru efni, er drepa bakteríur, svo sem karbólsýra og odiks-
sýra. — Söltun með matarsalti, bórsýru o. fl. Saltlögurinn
(pækillinn) drepur bakteríur. — ísgeyinsla á mat/ælum og
öðru er þekt frá fornu fari, en frysting er tiltölulega ný.
Hvortveggja byggist á því, að bakteriur faila í dá í kulda og
geta ekki komið til leiðar þeim breytingum, er þær gera, þeg-
ar þær eru í fullu fjöri. — Bikun með tjöru og koltjöru,
smurning með blásteinsvatni, járnvitrióli oða karbolineum, svo
og börkun, eru gamalkunn ráð, til að verja fúa (eða rotnun)
í við og ýmsum öðrum hlutum. l'essi ýmsu efni, er nefnd
voru, eru eitur fyrir bakteríur
Hin nýrri ráð eru flest gegn ýmsum hættulegum bakterí-
um. Þau eru: Sótthreinsun (desinfektión). Til þess að sótt,-
hreinsa með hús, eru, eins og kunnugt er, höfð ýmis „sótt-
varnar-meðul", efni, er drepa bakteríur, svo sem karbólvatn,
súblímatvatn, klórkalk, kreólín og brennisteinn. Áríðandi er,
þegar sótthreinsa skal hús, að það sé gort rækilega, húsið
helzt þvegið eða stökt með sótthreinsunar-efninu hátt og lágt,
því það er öldungis ónógt, að stökkva því á gólflð að eins.
Að brenna brennisteini er reyndar ekki nýtt. Þegar það er
gert, myndast lofttegund, er nefnist brennisteins-sýrlingur.
Hún fyllir brátt húsið og setst innan í það hvervetna. — 'J’il
þess að sótthreinsa með föt og bækur er hafður hiti. Pau
eru hituð í sérstökum ofnum (föt í vatnsgufu), svo mikið, að
allar bakteríur og fi-jókora þeirra drepist, en ekki meir en svo,
að þau séu óskemd. Föt eru einnig soðin. (Meira um sótt-
hreinsun má lesa eftir landlækni í Maí-blaði „Eirar“).
fað heflr áður verið minst á, að við bakteríu-ræktun eru
höfð bakteríulaus (steril) efni þeirn til næringar, og þau gerð
bakteríulaus með hitun. Að drepa bakteríur í hlutum með