Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 9
9
__helgarpósturinn. Föstudagur 6. apríl 1979
Styrjaldarátök á 29
stödum í veröldinni
I öllum heimshornum geisa styrjaldir. Það sem hér
fer á eftir sýnir að i augnablikinu eiga sér stað 29 meiri-
eða minniháttar átök.
Sjálfsagt er talan ennþá hærri. I mörgum löndum
Rómönsku Ameríku er skilulögð andspyrna gegn harð-
stjórn hersins. I Afrfku eru átök milli ættflokka. En
þessar deilur ná sjaldan til vestrænna fjölmiðla.
Ástandið er verst í þriðja heminum, þar sem sjálfstæð-
ið hefur skapað vandamál, sem reynt er að leysa með
vopnavaldi.
Það eru ekki nema frásagnir um stærstu átökin sem ná
til lesenda iðnríkjanna, en í hinum smærri eru líka dag-
legar orrustur með særðum og látnum. Og alltaf kem-
ur það harðast niður á óbreyttum borgurum, konum og
börnum.
1: Guatemala
„Andspyrnuher hinna fátæku”
(E1 Ejercito Guerillo de los
pobres) heldur uppi stöðugri
baráttu gegn hinni afturhalds-
sömu og spilltu herforingjastjórn.
Skæruliöar eru um 1000 talsins.
beir hafa mikið haft sig i frammi
en litt orðið ágengt.
2: Nicaragua
Baráttan gegn varðstjóranum
og einræðisherranum Anastasia
Somosa hefur aukist mikið síöast-
liðið hálft ár. Eftir ósigrana i
borgum Nicaragua i fyrrahust,
héldu „Sandinistar” upp til fjalla
og yfir landamærin til Costa Rica.
Þaðan herja þeir á þjóðvaróiiða
Somosa.
3: Columbia
Columbia kallar sig lýðræðis-
riki, en þar viðgengst valdniðsla,
spilling og pólitisk morð. Þar eru
starfandi tvö skæruliðasamtök.
FAR 2 (Fuerzas Armadas
Revolucionarias de Columbia) og
M 19 (19. april hreyfingin). Það
var 19. aprfl 1970, aö rikisstjórnin
lýsti þvi yfir að hún myndi ekki
sjálfviljug leggja niður völdin. M
19 hefur sætt stöðugum ofsóknum
undanfarin ár, en fregnir herma
að baráttan haldi áfram.
4: Venezuela
Ennþá halda um það bil 200
skæruliöar sig i fjöllunum. Þeir
heyra til samtakanna „Bandera
Riga”, Rauði Fáninn. Þeir herja
á afskekkta bæi og rútur á fjall-
vegum, en vigstaða þeirra fer
versnandi.
5: Norður-irland
Eftir nokkurt hik var N-lrland
tekið með. Þar rikir ekki beint
striðsástand, en stöðugur ótti og
sprengjuherferðir gera það að
verkum að ekki er hægt að tala
um frið. IRA heldur áfram
baráttu sinni fyrir sjálfstæði.
6: Spánn
ETA berst fyrir sjálfstæði
Baskahéraðanna. Samtökin hafa
lýst yfir striði á hendur stjórninni
i Madrid. Fram að þessu hefur
baráttan verið háð með aöferðum
skæruliða, þ.e. morðum á
embættismönnum og lögreglu-
mönnum.
7: Vestur-Sahara
Sjálfstæðishreyfingin Polisario,
sem nýtur stuðnings Alsir, hóf
baráttu sina þegar spænsku V-
Sahara var skipt á milli
Máretaniu og Marokkó.
Uppreisnarmönnum varð nokkuð
ágengt, en mættu mikilli mót-
spyrnu frá Marokkó. Eftir her-
foringjabyltingu i Máretaniu i
fyrra sumar, minnkaði til muna
vilji þeirra til aö berjast viö
Polisario. Reynt hefur verið að
hefja friðarviðræður, en með
litlum árangri hingað til. Eyði-
merkurstriðið heldur áfram.
8: Tchad
Sjálfstæðishreyfingin Frolinat
hefur i þrettán ár barist við her
stjórnarinnar i höfuðborginni
N’Djamena. Frolinat nýtur
stuðnings múhameöstrúarmanna
sem búa i norðurhéruðum lands-
ins. Einn af leiðtogum Frolinat
var gerður að forsætisráöherra i
þeirri von að binda endi á striðið.
Fyrir nokkru hóf hann baráttu við
forsetann Nú litur út fyrir að
Malloum forseta hafi tekist að
bæla niður uppreisnina, en Frol-
inat heldur baráttunni áfram.
9: Eritrea
Ibúar Eritreu berjast fyrir
sjálfstæði sinu innan Eþiópiu.
Sjálfstæðishreyfingunum gekk
vel, þar til Sovétrikin og Kúba
veittu stjórnarhernum stuðning.
sinn. Sjálfstæðishreyfingarnar
ELF og EPLF berjast við-
stjórnarherinn i fjalla-
héruðunum. Loftárásir hafa
leikið óbreytta borgara hart.
10: Ogaden, Eþíópia
Vopnahlé rikir opingerlega i
Ogaden — landsvæði sem Sóm-
alia gerir kröfur til á hendur
Eþiópiu. Sómalia lagði land-
svæðið undir sig i fyrra vor, en
voru hraktir á brott af kúb-
önskum hermönnum. Forseti
Sómaliu hefur lýst þvi yfir, að
„frelsisöflin haldiáfram baráttu i
Vestur-Sómaliu”. Mikið mannfall
varð i liði Eþiópiumanna og
Kúbana.
11: Uganda
Idi Amin hefur fengið ráðningu
fyrir að hafa ráðist inn i Tanzaniu
i fyrra haust. Hermenn frá Tanz-
aniu, með stuðningi uppreisnar-
manna frá úganda, hafa byrjab
sókn að höfuðborginni Kampala.
ógnarstjórn Amins riðar til falls.
12: Zaire
1 Zaire er sjálfstæðishreyfing
sem berst fyrir sjálfstæði héraðs-
ins. 1 fyrra var gerð uppreisn,
sem brotin var á bak aftur af
frönskum og belgiskum her-
mönnum, eftir aö skæruliðar
höfðu framiö fjöldamorð á
óbreyttum borgurum. Skæruliðar
hörfuðu, en hafa haft sig i frammi
aftur að undanförnu.
13: Angola
Frelsishreyfigin MPLA situr að
völdum i Luanda. Kúbanskir her-
menn eru enn i Angola og tryggja
(stöðu MPLA. Unita-hrevfinflin
heldur uppi baráttu i suðurhluía
landsins. Með stuðningi frá
hvitra hermanna S-Afriku. Kurt
Waldheim hefur lagt til að vopna-
hlé verði frá 15. mars.
16: Líbanon
Friðarsveitum S.Þ. miðar hægt
áleiðis i að halda uppi friði i
landamærahéruðum Libanons við
Israel. Kristnir falangistar, með
stuðning frá tsrael, eru i stöðugu
striði við PLO. Það er barist á
hverjum degi.
17: Jemen
„Þjóðernissinnaða lýðræöis-
fylkingin”, sem nýtur stuðning
Suður-Jemen á i baráttu við her |
N-Jemen. Rikin ásaka hvort
annað um að eiga upptök á
vopnaviðskiptunum. Baéir Jv
suöurhluta N-Jemen munu vera
umsetnir af hersveitum frá S*
Jemen.
18: Oman
1 Oman geisar „gleymt” strið.
Uppreisnarmenn frá héraðinu
Dhofar hófu baráttu gegn sóldán-
inum i Muscat árið 1965. Eftir að
hafa fengiö stuðning frá Iran, gat
Soldáninn lýst þvi yfir árið 1975,
aö skæruhernaðinum va;ri hætt
Þjóðarfylkingin til frelsuna
Oman hörfaði upp til fjalianna við
landamæri S-Jemen. Þaðan
hafa þeir haldið uppi árásum á
stjórnarherinn, og samtimis
reynt að styrkja stöðu sina. l'rain
að þessu hefur soldáninn Qabós
notið stuðnings frá lran, en nú
hafa irönsku hersveitirnar verið
dregnar til baka. Skæruliðar hafa
þvi tækifæri til að ná írekari
árangri.
19: Irak
Ósk Kúrda um sjálfstæði hefur
hingaö til ekki náð fram aö
ganga. Þeir guldu mikið afhroð
fyrir þremur árum Ekki alls
fyrir löngu, lýsti hinn nýi leiðtogi
Kúrda yfir þvi að baráttunni
skyldi haldið áfram. Kúrdar lifa i
norðurhluta trjak. i Tyrktandi og i
tran.
20: Iran
Heimkoma Khomeiny til tran
hefur ekki á neinn hátt komið á
friði i landinu. Hinir ýmsu skæru-
. liðahópar hafa komist yfir vopn
'-:í;pg enginn virðist hafa sitjórn á þf%
sem gerist i landinu. t norð-vestur
Suður-Afriku er Unita til stöðugra hluta landsins hafa kúgaðir ætt-
vandræða fyrir MPLA og Neto flokkar Kúrda notað tækifærið og
rikisleiötoga. gert uppreisn. Kúrdar hafa lengi
^ ,d barist fyrir sjálfstæði sinu, bæöi i
14: Zimbabwe Irak og tran.
SWAPO berst gegn óiöglegum
yfirráðum Suöur-Afríku i 21: AfganiStan
Nur Mohammed Tariki komst
til valda með byltingu i Kabul i
april i fyrra. t fjallahéruðum
landsins hafa ýmsir herskáir ætt-
Namibiu. Eftir að Suður-Afrika
kom i veg fyrir áætlanir S.Þ. um
sjálfstæði Namibiu, hafa orðið
auknir árekstrar milli SWAPO og
flokkar ekki viljað viðurkenna
hina marxisku stjórn Tarikis. A
mörgum stööum er hart barist.
22: Burma
Burma er eitt af lokuðustu
löndum heims. Fáir vita hvað þar
er aö gerast. Landið er tekið með
I þessum lista vegna frásagna
flóttamanna, sem hafa komist til
Bangladesh. Þeir hafa sagt frá
manndrápum, ofsóknum og
átökum, Þaö er erfitt fyrir
utanaðkomandi aðila aö henda
: æeiður á ástandinu. en minni-
hlutahópar hafa#alla tið háð
vopnaða barátlu gegn stjórn
landsins.
23: Thailand
Skæruliðar kommúnista ráða
yfir noröaustur landamæra-
héruöunum, að minnsta kosti að
nægurlagi. Skæruliðarnir erp vel
þjáifaðir og vopnum bunir. Dag-
lega berast fréttir af falli lög-
reglu- og herstöðva, en það er að
öllum likindum það litið, aö
stjórnarherinn er engan véginn
að lúta i lægra haldi.
24: Malaysía %
Sama skæruliðahreyfing og
berst i Thailandi á einnig i
baráttu við stjórnarhermenn i
Maysiu, m.a. frá stöövum viö
landamæri rikjanna. Löndin tvö
hafa komið sér saman um mikla
herferð gegn skæruliðum undir
dulnefninu ALFA 792. Það má þvi
búast við auknum átökum á
þessum slóðurn.
25: Kampúchea
Uppreisnin. með stuðningi
Vletnama gegn Rauðu khmerum
Pol Pots hefur ekki gengiö eins
vel og uppreisnarmenn gerðu sér
vonir um. Rauðu khmerarnir
hafa komið sér vel fyrir á
mörgum|stöðum. Þeir hafa jafn
mikla reynslu og Vietnamar i
slikum hernaði. Það er þvi ekki
auðvelt verkefni som nýju vald-
hafarnir i Hnom Penh standa
frammi fyrinp
26: Víetnam j|
Nokkrum árun|e|tir að striðinu
við Bandarikjamenn iauk, eru
Vietnamar enn komnir i striö. I
þetta sinn gegn Kina, stóra
nágrannanum i norðri Daglega
berast fréttir um hörö átök Og
mikiö mannfall á báöá bóga.
27: Laos
Meo ættflokkurinn, sem býr á
háslettunni i norður hluta lands-
ins, hefur aldrei viljað viður-
kenna stjórnina i Vientiane. Þeir
velta stöðugt harða mótstöðu, en
megna litils vegna fjölda viet-
namskra hermanna i landinu.
28: Austur Timor,
Indónesía
Sjálfstæðishreyfingin Fretilin
berst stöðugt gegn innlimun
Austur-Timor i Indhesiu. Eftir
mannskæðar orrustur á árunum
1975-77, hörfaði Fretilin undan
Indónesum. Hreyfingin hefur enn
á valdi sinu nokkur fjallahéruð,
og er ekki á þvi að gefast upp,
jafnvel þótt fjöldi hermanna
hennar sé mjög litill, að öllum
likindum ekki nema nokkur
hundruð.
29: Filippseyjar
Frá 1973 hefur frelsishreyfing
múhameðstrúarmanna barist
fyrir að koma á fót eigin riki I
suður hluta Filippseyja Harðir
bardagar hafa verið háðir i Mind-
anao og i Sulu héraöi. Múhameðs-
trúarmenn eru 10% af ibúafjölda
Filippseyja og hafa barist af
hörku fyrir eigin riki Tölur um
mannfall segja að 50000 óbreyttir
borgarar og 4000 hermenn hafi
fallið.
—GB