Helgarpósturinn - 02.11.1979, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 02.11.1979, Blaðsíða 5
5 -v_.:___ ___halljarpnc;tl trinn Föstudagur 2. nóvember 1979 Rúrl, sú viö endann á boröinu, átti fyrsta g erninginn af þeim sem haldnir hafa veriö undanfarin fimmtudagskvöld. Meö henni voru þrlr aörir og þau drukku skál Islensku þjóöarinnar. I glösunum voru miöar sem á stóö annarsvegar Bjór, og hinsvegar Sjeniver. Miöarnir voru slöan boröaöir og vatniö drukkiö meö. Fleira var faliö I þessum g erningi. Flipp eða list? eftir Guðjón Arngrimsson Fyrri hluti g'ernings Ólafs Lárussonar var I þvl fólginn aö hann færöi rósir milli tveggja vasa, og dýföi þeim ofan I margar litlar málningar- dósir I. leiöinni. Þetta endurtók hann nokkrum sinnum. Siöari hluta gernings hans eru gerö skil I greininni. Sökum myrkurs var ekki hægt aö festa hann á filmu. „Alit er nú hægt aö kalla list”, heyrir maöur oft sagt. Flestir viröast hafa sinar hugmyndir um hvaö má kalla list, og hvaö ekki. Svoleiöis hefur þetta vist veriö frá upphafi, en kannski aldrei eins áberandi og á siöustu tímum, nú þegar aukins frjálsræöis er fariö að gæta. Nú eru listamenn i auknum mæli farnir aö gefa hug- myndafluginu lausan tauminn, og hin heföbundnu listform, mynd- list, tónlist, leiklist viröast farin aö riölast. Þetta eru nú engin ný sannindi. Mér kom þetta hinsvegar I hug, eftir að hafa farið á gjerning i fyrsta skipti á ævinni. Gerning þann, eöa performance, eins og þaö heitir á fagmáii, fram- kvæmdi ólafur Lárusson eitt - f i m m t u d a gs k v öl diö fyrir skömmu I kjallaranum að Fri- kirkjuvegi 11. Nú er ég enginn áhugamaður um myndlist umfram þaö sem venjulegt getur talist (sýning Errós er aö mig minnir eina sýningin sem ég hef farið á af eigin frumkvæöi). Þaö var þvi fyrst og fremst forvitni sem olli þvl aö ég sat I myrkvuöum kjallaranum og fyigdist meö Óiafi Lárussyni ,,ge ra”. Gerningar éru talsvert annað en hin frægu „Happening show”, sem skutu upp kollinum viða fyrir nokkrum árum. Uppákomurnar eru ekki undirbúnar sérstaklega, heldur leiknar af fingrum fram á staðnum. Gerningar aftur á móti eru vandlega undirbúnír, mis- mikið er lagt i þá að visu, en stundum búin til heilmikil sviðs- mynd, ásamt búningum og hver veit hvað. //Þá er bara að þakka fyrir" Ólafur Lárusson hafði greini- lega undirbúið sig. Hann stóð i öðrum enda litils salarins, á móti áhorfendum, og makaði með höndunum málningu á glerplötu sem hann haföi rammað inn. A miðju gólfi var skuggamynda- sýningavél, og framan á henni skifa, sem geröi ljósið, sem lýsti Ólaf upp, margbreytilegt og dálitið dularfullt. Við hlið sér hafði Ólafur borö með litum og vatni, og þegar hann hafði makað einum lit á glerplötuna tók hann rennblauta tusku og þvoði hann af, og makaði siöan nýjum lit á. Svona hélt hann áfram i góöa stund, og undir hljómaði hamars- högg,«og dálitill væll, af segul- bandi. Um 25 manns voru i kjall- aranum að fylgjast með, ungt fólk að mestum hluta, og greinilega fólk úr myndlistarkreðsum. Eftir svona kortér sló Ólafur skyndilega flötum lófa i gegnum glerið, svo brotin þeyttust frammi salinn. Af þessu kom talsverður hvellur, og fólkinu brá sýnilega. ólafur sté til hliðar, útúr ljósinu, og ramminn sveifl- aðist i rólegheitum. Skýr skugga- mynd hans.var á veggnum fyrir aftan. ólafur gekk út og þurrkaði sér um hendurnar. Fólkið sat og horfði á rammann þar til hann hafði staðnæmst, þá kom ólafur aftur inn, slökkti á sýningar- vélinni, segulbandinu og kveikti ljósin. „Þá er bara að þakka fyrir”, sagði hann kurteislega og hneigöi sig, og við áhorfendur klöpp- uðum. Svo gekk fólkið út. Sýningunni var lokið. Að gera Fróðir menn segja mér aö þessi tegund listar sé svona um 10 ára. Að vlsu hafi uppúr 1960 farið að bera á tilraunum I þessa veru, en það hafi verið hálfgert hálfkák. Hérlendis hefur þetta heldur ekki fengið almenna viður- kenningu, enda er þetta hættu- lega nálægt þvi aö vera hreint flipp. Helst hefur það verið fólk úr nýlistadeild Myndlistaskólans, sem sprellað hefur á þennan hátt. Það er fyrst um þessar mundir sem einhver alvara virðist vera að færast i gerningana. Til að leggja áherslu á það standa nokkrir áhugamenn um gern- inga fyrir nokkrum slikum á fimmtudagskvöldum, og er þá gjarnan aðeins einn á kvöldi eða kannski tveir. Einn performanse á að jafngilda einni málverka- sýningu, og þvi er það talið rýra gildi þeirra að hafa þá „með” öðru. Það hefur lika verið uppgangi gerninga til tafs aö hér á landi hefur þetta einungis verið stundað af myndlistarmönnum i hjáverkum. Erlendis eru til menn sem „gjöra” bara tvisvar til Kristinn Haröarson meö g.erning I fjórum hlutum. Einn hiutinn var I þvi fólginn aö hann sneri baki 1 áhorfendur, var meö bala sér viö hliö, tvo uppstoppaöa þresti á boröinu, og skrúbbaöi stööugt á sér bakiö. Undir hljómaöi svo sjávarniöur. þrísvar a ári og ekkert annað. Þeir þykja lika góðir, og hafa sett standard sem áður var ekki til. Kannski fyrst og fremst þess- vegna hefur myndlistarfólki reynst erfitt að fá fólk til að lita á gýrninga sem list, en ekki sem fiflalæti. Gerningar geta verið misheppnaðir og slappir, alveg eins og aðrar listsýningar geta verið. Ég er ekki frá þvi að gerningur Ólafs Lárusonar hafi verið alveg bærilegur. Ég vissi reyndar ekkert hvaö maðurinn var að fara, og hafði engan samanburð, en athöfnin var fáguð, og skildi eftir sig einhver áhrif, sem engin leiö er að skilgreina. Svipað og þegar maöur kemur af góðri bió- mynd eða leiksýningu. List/ og þá hverskonar list? Mér finnst reyndar vafamál hvort gerningar eiga að teljast til myndlistar. Þetta likist i fljótu bragði meira leiklist, og tónlist kemur einnig inni dæmið. Og eins og leiklistin er gérningurinn bundinn af ákveðnum stað og ákveðnum tima. En svo má lika segja að sviðiö sé ramminn utan um málverkiö. Að minnsta kosti eru það myndlistarmenn sem stunda g eirninga en ekki leik- arar. Einn bandariskur myndlistar- maður ku hafa útskýrt nokkuð vel hvað verið er að fara i að minnsta kosti sumum g;erningum. Hans geírningur var að skjóta byssu- kúlu i gegnum hendina á sér. Hann vildi gera sársaukann raun- verulegan hluta af verki sinu, og sagði sem svo, aö i ljóðum, skáld- sögum, leikritum, kvikmyndum, málverkum og öllum öðrum list- formum væri alltaf verið að fjalla um sársaukann, en hann aldrei upplifaður. Hann vildi bara bæta úr þvi. Vist er að i gérningum er oft leitast við að ganga fram af fólki, að sögn, ekki til þess eins að ganga fram af þvi, heldur til aö stugga við þvi og vekja til umhugsunar. Að þvi leyti getur gérningur verið miklu ágengari en til dæmis myndlistarsýning. Einn ge.rning hef ég til dæmis heyrt um, sem framinn var i Hollandi. Sá var fólginn i þvi að fólk var nánast pyntað. Aðeins einum gesti var hleypt inn i salinn i einu, af filefldum dyravörðum i nasistabúningum. Þegar inn var komið var gestinum varpaö i gólfið, og hann klæddur úr öllum fötum með harkalegum aðferðum. Að þvi loknu var hann settur i búr ásamt hinum gest- unum og búrið troðfyllt af fólki. Siðan var haft i hótunum um lik- amsmeiðingar, sprautað vatni yfir liöið og það niðurlægt á allan hátt. Ekki þarf að taka fram að þessi meðferð hafði áhrif: Fólkið upplifði að nokkru leyti þær hörmungar, sem voru i fanga- búðunum á striðsárunum. Sú spurning vaknar hinsvegar hvort þetta eigi eitthvað skylt við list, og ég læt henni ósvarað. —GA sentimetrar og sekúndubrot Einstakar hópferðir til Moskvu - ævintýraferðir sem aldrei gleymast 19/7 - 3/8 1980 Allir þeir í Moskvu verða bestu íþróttamenn heims bestu saman komnir. Aðeins sentimetrar og uc ‘ sekúndubrot skilja á milli þeirra sem öðlast heimsfrægð á örskömmum tima og hinna, sem endanlega eru dæmdir til þess að vera í skugga betri íþróttamanna. Þú getur orðið vitni að gráti og hlátri, gleði og sorg. Þú getur upplifað og séð með eigin augum þá mögnuðu spennu sem ævinlega hefur fylgt Olympíuleikunum - stærstu og glæsilegustu íþróttakepnni allra tíma. Aðgöngumiðar Við eigum miða á keppni i öllum iþrótta- fvrlr íslenska Qteinum og minnum sérstaklega á að hægt er ' . aðgreiðaaðgöngumiðanaiíslenskumpening- peninga um. Þrír möguleikar Ödýrari en þig grunar ÁkvÖrðun strax Hægt er að velja um þrjár mismunandi ferðir, 20, 11 og 12 daga langar. Innifalið i verði er m.a. flug báðar leiðir (gegnum Kaupmanna- höfn, gisting og fullt fæði, islensk fararstjórn o.fl. Olympíuferðin til Moskvu er ódýrari en þig grunar. Áætlað verð er kr. 337.000 - með fullu fæði. Sparivelta Samvinnubankans getur síðan gert ferðina enn auðveldari og er t.d. hægt að greiða allan kostnað með reglu- bundnum greiðslum í tólf mánuði. Aðeins takmarkaöur fjöldi sæta er til ráð- stöfunar fyrir íslendinga. Pantið því strax - eftir nokkrar vikur gæti það orðið of seint. Ath. að 15. nóvember verður pantanalistum endanlega lokað. Allar nánarl upplýsingar á skrifstofunni. Einkaumboð á Islandi fyrir Olympíuleikana i Moskvu Samvinnuferöir - Landsýn AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.