Helgarpósturinn - 02.11.1979, Side 8

Helgarpósturinn - 02.11.1979, Side 8
8 —helgar pósturinn— Útgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi sem er dótturfyrirtæki Alþýðublaðs- ins, en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð- mundsson. Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf- steinsson. Blaóamenn: Guðjón Arngrímsson, Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund- ur Árni Stefánsson og Þorgrímur Gestsson. Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason. Auglýsingar: Elin Harðardóttir. Gjaldkerí: Halldóra Jónsdóttir Dreifingastjóri: Sigurður Steinarsson Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu- múla 11, Reykjavik. Simi 81866. Af- greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Símar: 81866, 81741, 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr. 4.000.- á mánuði. Verð í lausasölu er kr. 200.- eintakið. Mjólkur- ferð Liklega hefur það ekki farið framhjá neinum að Stayfree er fyrir hressar stúlkur i leik og starfi. Flestir hljóta lika að vita aö allt gengur betur með kók, Ronson minnir hann á mig, og að hjá Guömundi Magnússyni er hægt að fá stól, tveggjasæta og þriggjasæta. Fátt er yndislegra eftir fréttir en að horfa á auglýsingarnar. Við gerð þeirra vinna saman sál- fræðingar, markaðsfræðingar, húmoristar og kvikmynda- fræðingar og hafa það eitt að markmiði að ná til sem flestra. Þessvegna eru þær svo skemmti- legar. Hvaö væri sjónvarpsdag- skráin án auglýsinga? Ef út i það er farið hvaö væru blööin án auglýsinga? og hvar væri þjóðin án auglýsinga? öll fyrirtæki þurfa að láta vita af sér, svo almenningur læri hvar bestu vöruna er að finna. Engin starf- semi þrffst án þessa. Auglýsingar eru þar af leiðandi hornsteinn islensks þjóöfélags. t auglýsingum llðst engin meðalmennska. Þar sjáum við fallegt fólk sem llöur vel, vegna þess að það er I mjólkurferð, eða einhverju annarskonar ástandi. öllum langar að láta sér liöa jafn vel og fólkinu I sjonvarpinu og þar er grundvöllurinn kominn. Auglýsendur hafa lika lag á að fá I auglýsingarnar slnar fólk sem þekkt er af öðrum vettvangi. Birgitta Bardot auglýsir karl- manna -vellyktandi, Warren Beatty gallabuxur, John Wayne eitthvað annað. tslenskir leikarar auglýsa svotil allir eitthvaö, að minnsta kosti dettur mér alltaf eitthvað annað I hug en leiklist þegar ég sé Bessa Bjarnasyni bregða fyrir. Þessu sama súperfólki segja blööin og sjónvarpið frá I hinum þáttunum sinum (Hinn vett- vangurinn) og bilið milli auglýs- inga og ekki auglýsinga veröur mjórra. tslenskir fjölmiðlar eru llka flestir þannig staddir Jjárhags- lega að þeir taka við öllum auglýsingum sem berast. Eitt það versta sem blaöamenn gera er þvi að skrifa andstyggilega um hugsanlega auglýsendur. Eitt það besta sem þeir gera er aö skrifa vel um þá. Og enn minnkar biliö. Ef litiö er yfir blöðin nú I miðri orrahrlð stjórnmálabaráttu kem- ur ennfremur I ljós að þjóðmála- umræða i fjölmiðlum er I beinu sambandi við auglýsingastarf- semina I landinu. Bilið hverfur: Auglýsingar eru hornsteinn þjóð- félagsins og þjóöfélagið er horn- steinn auglýsinganna Engin helgi án Helgarpóstsins! -GA Föstudagur 2. nóvember ^l^l-imlrjpirpÓ^furínn Og meira að segja ráðherrar féllu Prófkjörin um siöustu helgi eiga eftir að skilja eftir sig fleiri og dýpri sár en nokkurn grunar, — fleiri og dýpri sár en prófkjör fyrir Alþingiskosningar á undanförnum árum. Annars- vegar er persónulegur biturleiki þeirra sem tóku þátt i prófkjör- unum og náðu þvi sem þeir, eða vinir þeirra og stuðnings- menn ætluðu sér. Hinsvegar er kjördæm arigurinn sem nú blossar upp á nýtt og sér hvergi nærri fyrir endann þá þvi máli. Prinsessa í stað drottn- ingar? Hjá Sjálfstæðisflokknum I Reykjavik var fyrirfram vitað að Birgir tsleifur Gunnarsson fyrrverandi borgarstjóri myndi komast i öruggt sæti, en ekki er vist aö menn hafi gert sér grein fyrir að hann yrði vinsælasti maöur listans. Nú á Birgir ekki langt eftir upp i ráðherrastól, ef flokkurinn myndar rikisstjórn og kannski er styttra i það að hann verði einn af aðalleiðtog- um flokksins. Er ekki þarna kominn næsti varaformaður Sjálfstæðisflokksins? Það var Ragnhildur Helga- dóttir, sem stundum hefur verið kölluð drottningin i liði Sjálf- stæðisflokksins sem fyrst og fremst galt fyrir þaö aö Birgir tsleifur skyldi gefa kost á sér og þannig svikja Reykvikinga eins og sumir andstæðingar hans hafa orðað það. Ragnhildur er nú i 7. sæti á lista flokksins i Reykjavik Hún er i baráttusæti flokksins i desemberkosningun- um. Ef sjálfstæðisflokkurinn vinnur einhversstaðar á, þá hlýtur það að vera i Reykjavik. Við siðustu kosningar fékk hann 6 menn kjörna i höfuðborginni og tapaði einum, þeim sem hann vann I kosningunum 1974. Áður haföi hann haft sex menn á þingi I Reykjavik allt frá 1963. 1 kosningunum 1959 fékk hann sjö menn kjörna samtals I Reykja- vik. Það verður þvi ekki hægt að tala um neinn stórsigur flokks- ins i höfuðborginni, þótt hann komi sjöunda manninum að — sjálfri drottningunni! En þótt Ragnhildur komist ekki að, hafa þeir samt að minnsta kosti eina konu i þing- flokki S jálf stæðism ann a. Salome Þorkelsdóttir úr Mos- fellssveit má heita nær örugg um að að ná inn á þing i næstu kosningum. Hdn er búin að vas- ast i pólitik i mörg mörg ár og uppsker nú loks margra ára erfiöi. Hún hefur veriö prinsess- an i liöi Sjálfstæðiskvenna á undanförnum árum. Nú er það bara spurningin er hún fulltrúi kvenna, er hún fulltrúi Mosfell- inga á þingi eða hvers fulltrúi er hún? Það er alveg furðulegt að heyra yfirlýsingar ýmissa sem ekki náöu eins langt og hugur manna stóð til i prófkjörunum. Þannig mátti lesa mikið væl Sjálfstæðismanna i Reykjanes- kjördæmi. Einn sagði að hlutur Kópavogs hefði verið fyrir borð borinn, annar að hlutur Suður- nesja hefði verið fyrir borð bor- inn og svo framvegis. Það er að visu rétt að Kópavogur er stærsti kaupstaðurinn I kjör- dæminu og þaðan koma mörg atkvæði, en eru menn að kjósa á þing fyrir Kópavog eða Reykja- neskjördæmi. Eru ekki lika þessir 60 þingmenn fulltrúar allrar þjóöarinnar, en ekki ein- stakra hreppa eða kaupstaða? Af ummælum sumra virðist svo sem þingmennirnir eigi aö vera fulltrúar einstakra hreppa. Hlutur Suðurnesja Það skal viöurkennt að hlutur Suðurnesja er ekki mikill i efstu sætunum á lista Sjálfstæöis- flokksins i Reykjaneskjördæmi, en þeir sömu menn geta þá huggað sig við að á lista Alþýðu- flokksins eru tveir þungaviktar- menn á Suðurnesjum. Annars- vegar Karl Steinar Guðnason formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og hinsvegar Olafur Björnsson út- geröarmaður og fiskverkandi. Það er broslegt aö sjá þá þarna hlið viö hlið fulltrúa verkalýös- hreyfingarinnar og atvinnurek- enda. Þaö væri skiljanlegt ef þetta væri á lista Sjálfstæðis- flokksins, en norrænu toppkröt- unum sem voru hér i vikunni mun hafa þótt þetta skrýtið þegar þeim var sagt frá því. Þá geta Suðurnesjamenn verið ánægðir með hlut sinn á lista Framsóknarflokksins i Reykja- neskjördæmi. Þar er enn annar þungaviktarmaðurinn úr liði þeirra Suðurnesjamanna, Jóhann Einvarösson bæjarstjóri hákarl með meiru i Keflavik. Hann á mikla möguleika á að komast á þing — ef allir framsóknarmenn I kjördæminu standa saman um hann eins og raunin virðist vera. Jóhann er að visu „aðkomu- maður” á Suðurnesjum ef hægt er að tala svo, kom þaðan úr sæti bæjarstjóra á Isafirði, en er annars innfæddur Reykvikingur meira aö segja Vesturbæingur og KR-ingur. 1 öðru sæti á þeim lista er Hafnfirðingurinn Markús A. Einarsson og i þriðja sæti Kópavogsbúinn Helgi H. Jónsson fréttamaður. Framsókn hefur alltaf átt mikil itök i Kópavogi og lögðu full- trúar þeirra þar þvi mikla áherslu á aö fá veröugan full- trúa á listann — og höfnuðu þvi Leo Löve eftirminnilega — en þeir heföu gjarnan viljað hafa sinn mann i öðru sæti að minnsta kosti. A móti þvi að missa Jón Skaftason af Alþingi fá Kópa- vogsbúar nú að öllum likindum Alþýðubandalagsmanninn Benedikt Daviðsson formann samtaka „uppmælinga- aðalsins.” Erbestaðvera aðkomumaður? Mikil spenna var rikjandi um úrslitin i prófkjöri Alþýðu- flokksins i Norðurlandskjör- dæmi eystra. Þar var hart barist, en vonandi drengilega. Segja má að aðkomumaðurinn Arni Gunnarsson hafi rassskellt gamla toppkratann Braga Sigurjónsson eftirminnilega. Þarna voru það ekki aðeins Arni og Bragi sem börðust heldur lika Jón Armann Héðinsson sem á stóran hóp vina og skyld- menna i kjördæminu. Þessi glæsilegi sigur Arna Gunnars- sonar i prófkjörinu nyrðra vekur þá spurningu hvort ekki sé bara eftir allt saman best, að vera aðkomumaður I kjördæmum. Þá sjá menn hlutina i réttara ljósi og það sem meira er, þeir eru ekki taldir fulltrúar Akureyrar eða Húsavikur svo dæmi séu nefnd. Það er annars hlægilegt þegar til dæmis Akureyringar eru að iala um Reykavikurvald. Þeir ættu að heyra hvernig Húsvik- ingar tala um Akureyrarvald, það er sko ekkert barnahjal. Einn ráðherra þegar fallinn Samkvæmt þessum úrslitum i norðurlandskjördæmi eystra er einn af sex krataráðherrunum þegar fallinn i kosningaslagnum en liklega lafa þó hinir, þótt hart sé barist. Nú er komin upp sú staða, að þegar þing kemur saman aö loknum kosningum þá er Bragi Sigurjónsson liklega enn ráð- herra, nema hann segi af sér, eins og forsetastörfum I efri deild i fyrra. Sem ráðherra hef- ur hann málfrelsi og tillögurétt á Alþingi og getur þessvegna haldið áfram að vinna að áhugamálum sinum á jólaföst- unni svo sem eignarrétti á jarðhita og afréttum landsins. Það er aldrei að vita upp á hverju hann kann að taka þegar hann er fallinn og á sér varla viðreisnar von i pólitik. Hákarl.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.