Helgarpósturinn - 09.11.1979, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 09.11.1979, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 9. nóvember 1979 halrjrirpnatl irinn Agnar Kofoed-Hansen framan viö nýju flugvélina Flugmálastjóraembættiö hefur ávallt veriö umdeilt embætti og margir nefnt þaö „rikiö I riklnu” og átt þá viö aö yfirvöld og samgöngu- ráöuneytiö hafi litil tök á rekstri og umfangi flugmálastjórnar. Nokkrir stiröleikar munu og vera á milll flugmálastjóra og starfsmanna sam* gönguráöuneytisins, sem orsakast fyrst og fremst af þvi, aö ráöu- neytismenn telja sig ekki fá nægilega vel aö fylgjast meö gangi flug- mála. Þessi atriöi munu veröa hér tekin til umfjöllunar og einnig lltiö nokk- uö á fjármálaumsetningu flugmálastjóraembættlsins, sem veriö hefur töluvert til umræöu iengi. 1 þvi skyni veröur nokkuö fariö aftur 1 tim- ann og m.a. skoöaöar athugasemdir rikisendurskoöunar viö bókhald fiugmálastjórnar frá árunum 1975 og 1976. Farið beint í ráðherra 1 byrjun skal örlitiö vikiö aö samskiptaöröugleikum sam- gönguráöuneytisins viö flugmála- stjórn. Brynjólfur Ingólfsson ráöuneytisstjóri i samgönguráöu- neytinu sagöi, aö flugmálastjóri heföi venjulega þann háttinn á, aö Pósts og sima, vegamálastjóri og flugmálastjóri eigi aö hafa sjálf- sagöan og lögmætan aögang aö sinum ráöherra meö öll sfn mikil- vægustu mál.” Heimilda aflað þegar ferðum er lokið Eitt af þeim málum sem alloft Flugmálastjóri - ríki í ríkinu? reka sin erindi beint til sam- gönguráöherra, en ekki fara meö þau i gegnum ráöuneytin sjálf eins og þó venjulegast tiökaöist. ,,Ég dreg enga dul á þaö, aö flug- málastjóri er einn af þeim fáu yfirmönnum rikisstofnana sem heyra undir þetta ráöuneyti, sem fer yfirleitt ekki meö sin mál i gegnum ráöuneytismenn heldur beint til ráöherra”, sagöi Brynjólfur Ingólfsson og hélt siöanáfram: „Þetta gerir þaö aö verkum, aö viö hér i ráöuneytinu höfum stundum ekki hugmynd um hvaöa ákvaröanir veriö er aö taka varöandi flugmál, nema ráöherra muni eftir aö segja okkur frá þeim. Hann hefur hins vegar margt á sinni könnu og þaö getur farist fyrir, aö þessi boö komist nokkurn tima til okkar.” Halldór S. Kristjánsson deildarstjóri 1 samgönguráöu- neytinu haföi svipaöa sögu aö segja i samtali viö Helgarpóstinn. Flugmálastjóri var aö þvi spuröur hvaö geröi þaö aö verkum aö hann færi ekki meö sin mál i gegnum sitt ráöuneyti, eins og vaninn væri heldur talaöi beint viö ráöherra. „Þaö eru ýmsar ástæöur fyrir þessu,” svaraöi Agnar Kofoed Hansen. „Þaö fyrsta er aö sam- gönguráöuneytiö er umsvifa- mikiö ráöuneyti og mikiD sem á þvi hvilir. Þegar ég þarf aö bera fram mikilvæg erindi sem þarfn- ast skjótrar afgreiöslu þá er þaö mitt mat aö máliö gangi hraöar fyrir sig ef talaö er viö ráöherra sjálfan. Ég hef þó reynt aö láta afrit fylgja og senda þaö til ráöu- neytismanna. Ég veit aö starfs- mennráöuneytisins og Brynjólfur Ingólfsson ráöuneytisstjóri þurfa ekki aö hafa áhyggjur af þessari aöferö minni. Ég veit aö Brynjólfur er stjórnsamur maöur og vill hafa allt i röö og reglu i sinu ráöuneyti. A hinn bóginn hræöist ég þaö, aö erindi min týnist i kerfinu ef hin venjulega leiö væri farin. Ég tel eölilegt aö forstjórar rikisstofnana eins og hefur veriö gerö athugasemd viö hjá rikisendurskoöun, eru feröir á vegum flugmálastjdrnar. Eru feröir á vegum stjórnarinnar tiöar og stundum hefur þaö brunnið viö, aö heimildir fyrir slíkar feröir frá samgönguráöu- neytinu eru ekki fyrir hendi. Oftast fást þó þessar feröa- heimildir frá ráöuneytinu eöa ráöherra. Brynjólfur Ingólfsson ráöu- neytisstjóri er allt annaö en ánægöur meö framgangsmátann á þessum feröaheimildum til handa mönnum sem feröast á vegum flugmálastjóra. „Þaö er þannig, aö umsóknir um feröalög á vegum flugmála- stjórnar koma stundum alls ekki til okkar ráöuneytismanna, heldur beint til ráöherra. Mér er þó kunnugt um aö þessar um- sóknir um feröaheimildir koma allt of oft ekki nægilega timan- lega frá flugmálastjóra. Viö höfum beint þvi til rikisstofnana, aö slíkar umsóknir komi 2 eöa 3 vikum fyrir áætlaöa brottför, þannig aö ráöuneytinu gefist kostur á þvi aö skoöa máliö. Frá flugmálastjóra koma þessar umsóknir stundum ekki fyrr en sama dag og feröina á aö fara.” Halldór S. Kristjánsson, deildarstjóri i samgöngu- ráöuneytinu sagöi aö i þessum efnum væri pottur of oft brotinn og fyrir kæmi aö vantaöi algjör- lega feröaheimildir og þær ekki fengnar fyrr en aö ferö væri lokiö og ríkisendurskoöun gert sinar athugasemdir. Þessi orö þeirra Brynjólfs og Halldórs viröast fara saman viö athugasemdir rikisendurskoö- unar frá árunum 1975 og 1976. 1 mörgum athugasemdunum er fariö fram á þaö viö flug- umferöarstjórn aö lagöar séu fram feröaheimildir vegna ferða- laga ýmissa starfsmanna stofn- unarinnar. Þessar feröaheimildir viröast þviekki liggja fyrir þegar feröin er farin, en eru fengnar frá samgönguráöherra siöar. 88 dagar erlendis Agnar Kofoed Hansen flug- málastjóri gerir viöreist I sínu embætti.enda ef til vill ekki óeöli- legt þegar litiö er á eöli starfa hans. A slðasta ári fór hann sam- tals 7 feröir til útlanda i embættiserindum og var i allt 88 daga erlendis. Agnar var spurður um þessi feröalög. „Mér er i sjálfu sér dauöilla viö þessar embættis- feröir og er oröinn þreyttur á þeim. Hins vegar verö ég I þær aö farasökumstarfsmins.Égvil þó gjarnan taka fram, til aö koma i veg fyrir þann misskilning aö veriö sé aö bruðla meö peninga i þessum feröum, aö ég feröast ávallt á 2. farrými i feröum minum, enda þótt minir kollegar úti i heimi iáti ekki bjóða sér annaö en þaö 1. Þá er ég einnig á frimiðagrundvelli 'hjá Flug- leiöum og læt hiö opinbera njóta þess á feröum minum. Þú getur séð fullt af feröareikningum sem geröir hafa veriö út vegna feröa minna, þar sem stendur „fargjald ókeypis”.” Flugmálastjóri var þvi næst að þvi spuröur hvort hann teldi eöli- legt aö maöur f hans starfi þægi frimiöa hjá Flugleiöum. Gætu ekki einhverjir litiö á þaö sem óbeinar mútur, þannig aö Agnar yröi i starfi sinu hliöhollari Flug- leiöamönnum en öörum flugfé- lögum. „Þetta væri fráleitt,” svaraöi Agnar Kofoed Hansen. „Ég fæ þessa frimiöa hjá Flugleiðum sem persónulegt þakklæti frá þeim Flugleiöamönnum. Ég nýt þess þar aö hafa komiö Flugfélagi Islands á legg, en þessi þakk- lætisvottur þeirra gerir þaö alls ekki aö verkum aö ég taki ekki hlutlæga afstööu til allra þeirra mála sem upp koma. Ég er hér I þjónustustarfi og held að enginn geti boriö þaö á mig aö hafa tekiö málstaö eins aöila umfram ann- ars I þvi starfi minu.” Lagði fram reikninga fyrir frimiðum Samkvæmt upplýsingum sem Helgarpósturinn hefur aflaö sér, þá mun Agnar hafa feröast nokk- uö I embættiserindum og þá á f ri- miöa hjá Flugfélagi lslands, en jafnframt lagt fram reikninga fyrir feröinni. Þetta geröist fyrir allmörgum árum, en var stöövaö áriö 1969. Agnar Kofoed Hansen var beöinn um skýringar. „A feröum minum erlendis — löngum og ströngum — vildi ég gjarnan hafa konu mina meö mér þannig, aö ég flaug sjálfur á frimiöagrundvelli i þessar embættisferöir en lagöi jafnframt fram fargjalda- reikninga sem greiddu þá feröa- lög konu minnar. Ég taldi þetta ekki óeölilegt, þar sem ég persónulega nyti þess aö fá frimiöa, en gæti siöan notaö þá peninga sem fengjust ef ég væri ekki á frimiöagrundvelli. Þá peninga notaöi ég til aö greiöa fargjald konu minnar. Þetta þótti þó ekki rétt og var stöövaö 1969. Agnar vildi i framhaldi af þessum feröalagaumræöum taka skýrt fram, aö hreint ekki væri verið aö bruöla meö fé skatt- borgara þegar þessar feröir væru farnar. Þær upphæöir sem i þessar feröir færu væru óveru- legar miöaö viö margt annaö, svo sem stjórnunarkostnaö. ,, Veisla aldarinnar” Skalnú vikiö aö ööru. í athuga- semdum rikisendurskoöunar frá 1976, er vikiö aö þingi flug- umferöarstjóra Evrópu. Nokkur blaöaskrif uröu um þetta mál á sinum tima og þótti talsvert lagt I þinghaldiö og þau veisluhöld er fylgdu. Rikisendurskoöun gerir athugasemdir viö þetta þinghald og segir a ö svo viröist aö ekki hafi veriö gert ráö fyrir þingkostnaöi á f járlögum. Ekki skal á þessum vettvangi fariö nákvæmlega ofan I athugasemdir rikisendur- skoöunar vegna þessa þings, en ekki er ofsagt um þá 40 gesti sem hingaö var boöiö á þingiö, aö vel hafi veriö gert viö þá. Þessadaga var ströng dagskrá fyrir þing- fulltrúa og fariö meö þá víöa um land, auk þess sem veisluhöld voru tlö. Kostnaö af þessu þing- haldi báru auk flugmálastjórnar, ýmsar aörar rlkisstófnanir, ráöu- neyti og embætti. Agnar Kofoed-Hansen var á sinum tima gagnrýndurallharka- lega fyrir bruöl á almannafé i þessusambandi. Helgarpósturinn spuröi Agnar hvort sú gagnrýni hafi veriö réttmæt. „Ef sHkt þing yröi haldiö hér á nýjanleik á morgun, þá myndi ég fara nákvæmlega eins aö og geröist áriö 1976. Sannleikurinn er sá aö þingiö ’76 var byggt upp á mjög svipaöan hátt og geröist 1956 þegar sambærilegt þing var haldiö hér. Þá heyröist engin gagnrýnisrödd.” Þaö má rifja þaö upp i þessu sambandi aö gagnrýnt var aö þingfulltrúum voru gefnar morgungjafir á hverjum morgni, þá daga sem þeir dvöldust hér og aö blikkandi lögreglumótorhjól hafi fariö fyrir þingfulltrúum allan þingtimann, er þeir þurftu aö færa sig úr staö á jöröu niöri. Agnar sagöi i samtali viö Helgar- póstinn, aö þessi atriöi tvö væru auövelt aö skýra eins og reyndar allt varöandi þinghaldiö. Hann sagðist hafa tekiö þá ákvöröun, aö frekar en aö gefa fólkinu minjagripi viö brottför, þá heföi þvi veriö gefnar ýmsar smágjafir, bækur og annaö þess háttar daglega. I þessum gjöfum heföu engar stórfúlgur legiö. Varöandi. mótorhjólalögreglu- Heillbunkiaf skjölum kemur árlega frá rikisendurskoöun meö athuga- semdum viö rekstur Flugmálastjórnar • Stöðugt strið hefur um langt skeið verið milli embættis flugmálastjóra og utanrikis- og samgönguráðuneytanna • Jafnframt hefur rekstur embættisins lengi verið umdeildur • Helgarpósturinn hefur athugað nokkra þætti málsins

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.