Helgarpósturinn - 09.11.1979, Qupperneq 4
J... - _____
i.. .J
Föstudagur 9. nóvember 1979
NAFN: Þórir Oddsson STAÐA: Vararannsóknarlögregiustjóri FÆDDUR: 19. maí 1941
HEIMILI: Láland 16, Reykjavik HEIMILISHAGIR: Jóhanna Ottesen og eiga þau einn son
BIFREIÐ: Datsun Cherry árgerð '76 ÁHUGAMÁL: Skák, starfið og góð músík
ENGINN PÓUTÍSKUR ÞRÝSTINGUR
VID RANNSÓKN GEIRFINNSMÁLSINS
Lögreglumál eru yflrleitt dularfull fyrirbæri i huga almennings. HvaB gera rannsóknarlög-
reglumenn i vinnu sinni? Er hún eithvaö svipuö þvi sem sýnt er I kvikmyndahúsum. Upp á siö-
kastiö hefur Geirfinnsmáliö margrædda skotiö upp koiiinum I fréttum á nýjan ieik. Ástæöan er
sú, aö Þórir Oddsson vararannsóknarlögreglustjóri hefur undanfariö veriö aö rannsaka hvort
sakborningar f málinu hafa veriö látnir sæta haröræöi vlö yfirheyrslur og rannsókn máisins. Þórlr
hefur nú lokiö þessari rannsókn sinni og meöal annars þurfti hann aö yfirheyra undirmenn sina
hjá rannsóknarlögreglunni vegna rannsóknarínnar.
Starfsaöferöir rannsóknarlögreglunnar, Geirfinnsmáliö og rannsókn þess eru m.a. til umfjöll-
unar i y firheyrslunni I dag. Og þaö er einmitt Þórir Oddsson sem er yfirheyröur.
Getur þaö talist eölilegt, aöþú
sem nánasti aöstoöarmaöur
rannsóknarlögreglustjóra og
yfirmaöur ýmissa þeirra
rannsóknarlögreglumanna sem
stóöu aö rannsókn Geirfinns-
máisins, standirnú aö rannsókn
þar sem skera á úr um þaö
hvort haröræöi hafi veriö beitt
gagnvart sakborningum er unn-
iö var aö þvi máli?
„Ég telað það sé ekki neitt
athugavert viö þaö. Eg skýröi á
sinum tima þær ástæöur sem
leiddu til þess aö ég féllst á aö
taka máliö aö mér. baö er rétt
aö þetta verkefni var ekki þaö
einfaldastasem éghef unnið viö
um dagana. Þetta var
viökvæmt, en ég treysti mér til
þess frá upphafi aö gæta fyllstu
hlutlægni og ég tel aö þessi
rann sókn ha fi bo riö á rangur. É g
vil benda á þaö, aö Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaöur verjandi
Sævars Ciesielski, er eftir þvi
sem ég best veit ánægöur meö
framkvæmd þessarar
rannsóknar.”
Þú talar um hlutiægni. Var
ekki erfitt aö vera hlutlægur er
þú rannsakaöir þátt samstarfs-
manna þinna hér á RLR í þessu
máli?
„Eins og ég sagöi áöan, þá er
þetta ekki þægilegt verk aö
vinna, en ég vil benda á, aö þaö
starfsem éggegni býöuroft upp
á ýmis konar óþægindi. Þar sem
ég gegni á annað borö þessari
stööu þá veröur maöur aö láta
sig hafa þau óþægindi.”
Hefur þú ekki oröiö aö
yfirhevra rannsóknarlögreglu-
menn á þessari stofnun timun-
um saman vegna rannsóknar-
innar?
„Þaö er alveg rétt aö viö höf-
um yfirheyrt fjöldann allan af
rannsóknarlögreglumönnum.
Ég veit ekki hvort hægt sé aö
segja aö þær yfirheyrslur hafi
staöiö tlmunum saman, en þær
stóöu eins lengi og tile&ii var
til.”
Liggur þaö ekki i hlutarins
eöli aö þú getir aldrei sýnt
sömu hörku i yfirheyrslum
gagnvart samstarfsmönnum og
vinum eins og fólki úti I bæ?
„Nei, ég tel þaö ekki vera. Úr
því ég tók þetta mál aö mér, þá
hef ég fariö i þaö eins og önnur
mál og ekki sýnt einum eöa
neinum linkind á einn eöa annan
hátt.”
Hvaö um niöurstööur
rannsóknarinnar?
„Ég get ekki sagt neitt um
niöurstööur þessarar rannsökn-
ar. Eftir aö rannsókn lauk var
máliö sent til rikissaksóknara
til umfjöllunnar og þar er þaö
núna. Ég vil ekki á neinn hátt
tjá mig um hugsanlegar niöur-
stööur.”
Skapa slikar rannsóknir ekki
óvenjulegt andrúmsioft hér á
stofnuninni? Þú ef til viii yfir-
heyrir samstarfsmann þinn
varöandi alvarlega ákæru og
hittir hann sföan I kaffistofunni
stuttu siöar og spjalliö þá um
daginn og veginn.
„Ég hef ekki oröiö var viö
þaö, aö andrúmsloftiö hér hafi
breyst á meöan á rannsókninni
stóö. Ég fann ekki fyrir þvi aö
andrúmsloftiö heföi breyst i þá
átt, aöþaö ylli mér óþægindum
á einn eöa annan hátt og hlýt þvi
aö svara þessari spurningu
neitandi.”
Eiga ekki allir lögreglumenn
erfitt meö aö hrinda frá sér
hinni gamalkunnu og óskrifuöu
reglu sem margir ætla aö sé viö
lýöi, þ.e. aö lögreglumenn
standi ávallt saman, hvaö sem á
gangi?
„Ég held aö þetta sé byggt á
misskilningi. Þegar um hugsan-
leg brot einhvers lögreglu-
manns er aö ræöa I starfi, þá hef
ég ekki oröiö var viö aö lög-
reglumenn stæöu saman eins og
þú gefur i skyn meö spurning-
unni.”
Var pólitiskum þrýstingi beitt
til aö ljúka Geirfinnsrannsókn-
inni á sinum tima? Aö máliö
hafi veriö oröiö heitt i hinum
pólitiska heimi og þvi ýtt á aö
,,lausn”yröi fundin?
„Mér þykir ágætt aö þessi
spurning kemur fram. Ég visa
alfariö á bug þeim reginmis-
skilningi sem . hefur komiö
fram hjá ýmsum sem um máliö
hafa fjallaö á opinberum vett-
vangi, aö einhverjum pólitisk-
um þrýstingi hafi á einhvern
hátt veriö beitt viö rannsókn og
meöferö þessa máls. Þetta er
algjör firra. Ég get vfsaö til
þess, aö frá þvi aö ég hóf störf
fyrst i sakadómi Reykjavikur
áriö 1968 og allar götur til þessa
dags, þá hefur þaö ekki f eitt
einasta skipti komiö fyrir aö
dómsmálaráöuneytiö eöa ráö-
herrar hafi nokkurn tima haft
afskipti af máli sem ég hef
fengist viö aö rannsaka.
Aldrei.”
Þú vilt þá ekki faiiast á að f
Geirfinnsmáiinu hafi veriö
skálduö trúieg saga málsins til
aö hraöa niöurstööu þess?
„Ég skil nú ekki alveg þessa
spurningu. Hvaö áttu viö meö
skáldaöri sögu?
Var máiinu hraöaö um of
vegna þrýstings og þar sem
endar voru lausir voru þeir
festirmeö trúlegum tilgátum og
þannig búin til heildarmynd af
máiinu, sem sakborningar voru
siöan fengnir til aö játa?
„Nei, hreint ekki.”
Nú hafa sakborningar dregiö
játningar sinar til baka i
Geirfinnsmáiinu. Sýnir þaö ekki
aö sá möguleiki er ekki viös
fjarri aö þeim hafi veriö
þröngvaö til játninga á sinum
tima?
„Þó sakborningar hafi dregiö
játningar sinar til baka, þá er
þaö ekki á neinn hátt visbending
um aö þeim hafi veriö þröngvaö
til sagna. Annaö hef ég ekki um
þessa spurningu aö segja.”
Telur þú aö sakadómur og
rannsóknarlögreglan hafi unniö
vel aö Geirfinns mál inu og
ööruvisi væri ekki fariö aö ef
máliö væri aö koma upp i dag?
,,Ég vil nú ekki fara aö gagn-
rýna þessa rannsókn sem þegar
hefur fariö fram. Tel mig ekki
vera i aöstööu til þess aö tjá mig
um þaö, hvernig aö henni var
staöiö eöa hvernig hún heföi
mátt vera ööruvisi. ”
Heföi öðruvisi veriö staöiö aö
Geirfinnsrannsókninni ef RLR
heföi veriö tii staöar er máliö
kom upp?
„Um þaö vil ég ekkert segja.
A hinn bóginn hafa veriö teknar
upp nýjar starfsaöferöir hér á
RLR eftir þvi sem kostur hefur
veriö. Nú er reynt aö ganga aö
hverju máli aö meiri ákveðni.
Nú tfökast þaö t.d. i mun rikara
mæli en áöur, aö þegar mál
kemur upp þá er reynt aö skapa
þeim rannsóknarlögreglumanni
sem sér um máliö meiri starfs-
friö en áöur var. Þaö eru einnig
meiri möguleikar á hópvinnu.
Ýmis atriöi skipulagslegs eðlis
hafa oröiö til þess aö hraöa
málsmeöferö.”
Ertu sannfæröur um þaö
persónulega, aö allt hafi veriö
dregiö fram l dagsijósiö I
margnefndu Geirfinnsmáli?
„Ég tel mig ekki geta dæmt
um þaö. Ég var ekki hér á landi
þegar þetta mál fór af staö. Þó
svo aö ég hafi kynnt mér þessa
rannsókn, þá ætla ég ekki aö
fara aö tiunda kosti og hugsan-
lega galla sem á rannsókninni
kunna aö vera.*1
Er ckki ávallt veikurhlekkur i
rannsókn slikra morömála eflik
finnast ekki?
„Jú, þvi er ekki aö neita, þaö
er miöur aö likamsleifar
Guömundar Einarssonar og
Geirfinns Einarssonar hafa ekki
komið i leitirnar.”
Ogveikir þaöekki niöurstööur
og rannsókn málsins f heiid?
„Jú, óneitanlega gerir þaö
þaö.Sönnunarstaöa málsirsværi
sjálfsagt mun auöveldari ef lik-
in heföu fundist.”
Eru islenskir rannsóknariög-
reglumenn óhæfir >til aö leysa
flóknar giæpagátur og þurfa þá
sifeilt aö ieita til erlendra koll
ega, eins og geröist meö Karí
Schiitz i Geirfinnsmálinu?
„ööru nær. Ég tel einmitt aö
Islenskir rannsóknarlögreglu-
menn hafi sýnt þaö og sannaö að
þeir eru starfi sinu fyliilega
vaxnir. Þútalarum aö þaö þurfi
sifellt aö leita til erlendra saka-
málasérfræöinga og nefnir
Schötz sem dæmi. Ég man ekki
til þess aö leitaö hafi veriö til
annarra erlendra sakamálasér-
fræöinga. Ég visa aöeins til
þess, aö hlutfall upplýstra brota
ermargfalthærrahérá landi en
i nágrannalöndunum.”
Mætti opna rannsóknarlög-
reglu rikisins meira en nú er og
veita t.a.m. fjöimiölum greiöari
aögang aö stofnuninni?
„öllu jöfnu fer best á þvi aö
lögreglan starfi aö rannsóknum
i sem mestri kyrrþey. ótima-
bær fréttaflutningur hefur mjög
oft skaöaö rannsóknir aö veru-
legu leyti. Ég ætla ekki aö nefna
dæmi i þvi sambandi”.
Eru gæsluvaröhaldsúrskuröir
ofnotaöir af rannsóknarlög-
reglu?
„Nei, ég tel einmitt aö sú
gagnrýni sem kom fram af
hálfu lögmannafélags Islands i
þessa átt eigi ekki viö rök aö
styöjast. Þaö sést svart á hvitu
aö gæsluvaröhaldsúrskuröum
hefur stórum fariö fækkandi.
1976 voru kveðnir upp 135
úrskuröir, 1977 eru þeir 106 og
1978 eru þeir komnir niður I 69.
Þessar tölur tala sinu máli.
Jafnframt þessu hefur gæslu-
varöhaldstimi i hverju einstöku
máli öllu jöfnu styst verulega.”
Eru islenskir rannsóknarlög-
reglumenn aö kafna I rútfnu og
pappfrsvinnu?
„Ég held aö þeir séu ekki aö
kafna I rútlnu i sjálfu sér. Þaö er
mikill pappir hér á öllum
boröum. Þaö fylgir þessum
málum. Mál ganga þó mun
hraöar nú en áöuri’
‘ Hefur rannsóknarlögreglan
nokkurn tima frumkvæöi aö
uppljóstrun mála, eöa biöur hún
aöeins eftir þvi aö mái séu kærö
til hennar?
„Þaö eru fjölmörg dæmi um
þaö, aö rannsóknarlögregla
rikisins kemst á snoöir um
einhverja brotastarfsemi aö
eigin frumkvæði.”
Eru þaö þá einstaklingar inn-
an rannsóknarlögreglunnar
sem þefa þessi mál uppi úti í
bæ?
„Þaö er meö ýmsum hætti
sem slikt fer af stað.”
Hafa rannsóknarlögreglu-
menn tiltölulega frjálsar hendur
viö rannsóknir? Geta þá
kannski notaö viöurkenndar aö-
feröir sem sjást á kvikmynda-
tjaidinu?
„Þeir hafa allfrjálsar hendur
viö sinar rannsóknir. Yfirmenn
deilda fylgjast þó náiö meö öll-
um starfsmönnum sinum.”
Hvaö segir þú um þær hug-
myndiraö rannsóknarlögreglan
færi út kviarnar og tæki upp
simahieranir og neöanjaröar
aöferöir ýmiskonar til aö ljóstra
upp um sakamenn?
„Þessar hugmyndir sem þú
nefnir harna eru mjög fjarri
okkur. Ég vil benda á að til
simahlerunar þarf mjög rikar
ástæöur og yröi ekki komiö á
nema samkvæmt úrskuröi. Ég
vil fullvissa lesendurum þaö, aö
þeir þurfa ekki aö óttast aö ekki
sé fariö aö lögum i meöferö
sakamála. Og simhlerunaraö-
geröum er þar á meöal ekki
beitt.”
Lesendur fá sem sé aö vita ef
rannsóknarlögreglan hyggst
fara aö hlera sima þeirra?
„Nei, ef simi væri hleraöur
eins og lagaheimild er fyrir, og
aö fullnægöum öllum skilyröum
þá segir þaö sig náttúrlega
sjálft aö hleranir geröu litiö
gagn af jafnframt væri tilkynnt
um aö slikar hleranir stæöu
yfir.”
eftir Guömund Árna Stefánsson