Helgarpósturinn - 09.11.1979, Side 6
6
Föstudagur 9. nóvember 1979 HÓlrjarpn<=Tfyj/7f7/"L_
Þursaflokkurinn er nýkomin
heim úr lengsta hljómleika-
feröaiagi sem islensk rokk-
hljómsveit hefur fariö á erlendri
grund. Helgarpósturinn baö
Þursana aö greina lesendum
sinum frá þessari reisu, og fékk
þá eftirfarandi bréf um hæi:
ÞURSANNA
Tii lesenda Helgarpóstsins!
Þursarnir eru nú loks komnir
heim til Islands úr fjögurra
mánaöa langri hljómleikareisu.
Viö þvældumst upp og niöur Svi-
þjóö og spiluöum á helstu
músíkstööum þeirra svekiu-
manna. 1 græna bflnum fórum
viö svo um Noröurlöndin öll og
spiluöum fslenska hrynþursa-
harkiö. Viö fórum erlendis til aö
kynna islenska tónlist,þe. til aö
koma frændum okkar I skilning
um aö hún væri til.
A meöan viö geystumst um
Noröurlönd var töluvert spilaö
af plötum okkar i útvarps-
stöövum þarlendum, sem gaf
okkur svo sannarlega meöbyr.
Viö fengum svo og tækifæri til
þess aö gera útvarpsþætti fyrir
sænskt útvarp, finnskt útvarp
ogdansktútvarp. Viö spiluöum i
vikulegum þætti þeirra Svia er
neitir Tonkraft, og aöstoöaöi
Þórarinn Eldjárn okkur viö
gerö hans. Hann setti saman
pursanokksins
hVJómlellta'
reis
stutt ágrip um þaö timabil I
sögu þjóöarinnar sem múslk
okkar spannar. i Finnlandi
héldum viö konsert á torgi I
miöri Helsingfors, og var fyrri
helmingi hans útvarpaö beint,
en seinni helmingnum slöar.
Einnig voru geröir tveir þættir
meö þursum fyrir danskt radló.
islandsbrjóstsykur
Yfirleitt var fólk ákaflega
forvitið, þvl oftast er Island
nefnt I sambandi viö eldgos,
landhelgisstriö, gengisfellingar
eöa stjórnarslit, en aö heyra af
islenskri rokkhljómsveit er
fátltt.
Við fengum góö og gagnleg
skrif I blöö, þar sem gömlu
„miöaö-viö-fólksf jölda-
samúöinni” var sem betur fer
sleppt.
Þaö er furöulegt hve Noröur-
landabúar vita lítiö um island. 1
Finnlandi getur maöur keypt
svokallaöan Islandsbrjóst-
sykur, sem eru Isbirnir vaföir I
blátt bréf. Þetta fannst okkur
einkennandi fyrir hugmyndir
hins almenna Noröurlandabúa
um Island, — þeir héldu jafnvel
aö stór hluti af llfi okkar hér
færi I aö vinna á þessum
skepnum. Margir Sviar héldu
okkur tala dönsku daglig dags,
og værum jafnvel enn undir
Dönum, — notuöum íslenskuna
bara spari, I flnum bókum og
svoleiöis. Danirnir vita þó'.
betur og oft lásum viö Islenska
fyndni I dagblööum þar.
... og við svitnum
Þú varst aö spyrja hvernig
svona feröalag gengi upp fjár-
hagslega... og við svitnum og
erum búnir aö vera sveittir
slöan...
1 janúar siöastliönum fórum
viö meö Islenska
dansflokknum til
Noröurlanda I boði sænsku
leikhúsnefndarinnar. Þá
kynntumst
viö lltillega skandi
navískum áheyrendum.
Viö kynntumst
hinsvegar ekki nema
lltillega kostnaöi samfara
Sigurhreifir
þursar á verö-
'iaunapalli
eftir sundkeppni
Islenskra
og finnskra anti-
sportista.
sllkri ferö. En I þessari ferö
komumst viö I samband við
marga aöila sem vildu greiöa
götu okkar, ef viö kæmum aftur.
Af einskærri ævintýramennsku
lögöum viö I sjálfstæöa hljóm-
leikareisu.
I byrjun geröum viö lauslega
kostnaöaráætlun og fundum út
aö þetta myndi hafast ef viö
fengjum styrk fyrir fargjöldum.
Islenski , menningarsjóöurinn
veitti 100 þúsund krónur. Þá féll
allur ketill I eld. — En þá buöust
Færeyingar til aö kosta ferö
okkar til Danmerkur, ef viö
spiluöum I Þórshöfn.
Nú, viö lögöum I hann,
slógum lán fyrir bllnum,
komum okkur upp græjum og
helltum okkur I skuldir I nafni
Islands. Margir voru okkur
hjálplegir, lánuöu tól og tæki, og
feröin var þegar planlögö:
Austfiröir, Færeyjar, Danmörk,
Svíþjóö, 'Noregur, Finnland,
Alandseyjar, Frlsland, Holland.
Fjölskyldur okkar fylgdu
okkur úr garöi til Reyöarfjarðar
og svo Seyöisfjaröar, þar sem
viö spiluðum á fjölmennum tón-
leikum — þökk sé Aust-
firöingum. Viö lékum tvisvar I
Sjónleikarahúsinu I Færeyjum
þar sem stiginn var Islensk-
færeyskur dans.
Við vorum í:
Arósum, Kaupmannahöfn,
Halmstad, Lundi, Gautaborg,
Osio, Norrköbing, Stokkhólmi,
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi,
Uppsala, Alandi, Helsingfors,
Tam merfors, Stokkhólmi,
Kaupmannahöfn, Arósum og
svo Hollandi, þar sem viö
spiluöum ma. i Amsteriam,
Enschete, Rotterdam,
Abeldoorn, Delft, Voorburg og
Haag, já og svo Frlslandi. I
Hollandi spiluöum viö mest á
stööum sem reknir eru af þvi
opinbera, og er ætlaö þaö hlut-
verk aö vera vettvangur fyrir
ungt fólk.1 þessum húsum voru
tónleikar, leiksýningar, kvik-
myndasýningar og alls kyns
uppákomur.
Hass til sölu
I Hollandi er margt meö ööru
sniöi en viö eigum aö venjast.
Þar drekka menn sinn bjór og
gjarnan tár af ungum sjénever
meö og veröur bara gott af...
Margir þessara staöa sem viö
spiluöum á voru meö marijuana
eöa hass til sölu. Markmiöiö
meö þessu er aö foröa' fólki frá
þvi aö kaupa sllk efni á götum
úti, sem þá eru gjarna útþynnt
meö skaölegum efnum svo sem
eins og bilaoliu eöa llmi sem
gerir þaö aö verkum aö lungu
þeirra sem neyta veröa illa út-
leikin. Hollendingar vilja
meina, aö ef framboö á
marijuana eöu hassi sé tak-
markaö, þá aukist neysla sterku
efnanna eins og heróíns og kóks.
Hann er dálitiö framandi
kúltúrinn I Hollandi og annaö
yfirbragö á „sollinum” en hér á
Islandi. Miklu opinberu fé er
varið til menningarmála og
Hollendingurinn er vlösýnn og
meövitaöur, — þar myndu
stjórnmálamennirnir varla fá
300 milljónir (af almennu fé) til
þess aö ryöja snjó af frama-
brautum sinum, án þess fólkiö
mótmælti.
Upp skal á kjöl klifa
Aö lokum viljum vö koma
þökkum til þeirra sem Iögöu
okkur liö.
Feröalagiö heföi á engan hátt
veriö kleift, án ómetanlegrar
aöstoöar og sjálfboöavinnu
Færeyinga og Islendingar er-
lendis og svo styrksins frá
Menningarsjóöi, sem hrökk
fyrir fernum skópörum á þursa.
— En nú dugir enginn barlómur,
upp skal á kjöl klifa. Þegar
okkur hefur tekist aö losa okkur
undan þvi skuldafargi. sem
nú plagar okkur, munum viö hiö
snarasta hætta störfum.
Meö kveöju.