Helgarpósturinn - 09.11.1979, Qupperneq 24
—helgarpósturinrL- Föstudagur 9. nóvember 1979
Fjórar
nýjar bækur
UPPREISN FRÁ MIÐJU er þýðing
dönsku metsölubókarinnar
OPRÖR FRA MIDTEN, sem á
erindi við alla sem láta sig varða
samfélagsmál. Þessi bók brýtur
stíflur og hömlur af daglegri
stjórnmálaumræðu.
FUNDARSKÖP, handbók um
fundarstjórn og meðferð tillagna.
Jón Böövarsson aðhæfði og
staðfærði. f bókinni eru
sérstakar lykilopnur með
svörum við öllum
hugsanlegum vandamálum
sem upp geta komið við
fundarstjórn.
OGABÓKIN ÞfN eftir Skúla Magnússon.
Með hundruðum
mynda og teikninga.
Heilsan er dýrmæt og
Hatha-yoga er ein besta
aðferðin til bættrar
andlegrar og líkamlegrar
heilsu.
ÍSLANDSPÓLITIK DANA
1913—18 eftir Per Sundböl
í þýðingu Jóns Þ. Þórs. Hér
er varpað nýju Ijósi á baráttu
íslendinga fyrir fullveldi.
Þetta er bók sem á erindi til
allra sem unna íslenskri sögu.
Óm og Örlygur
Vesturgötu42 s25722
. S^úfi Magi?úss0fí
í
öðföÆR? ?
Q»0S&
i iliéíf æfii?gap úp iíablja -Tsga |
jS'
isianes
roiniK
•w«Bi«a£!fi5v!ar /míSSSa mhh SSSMSM
DANA
191318
1*KK Sl NtXiOL Jun l> |>ur t»ddi
# Ellert B. Schram alþingis-
maður fyrrverandi og formaður
Knattspyrnusambands Islands,
viröist hafa slegið sér upp á þvi
meðal gallharðra Ihaldsmanna
með þvi aö vikja úr sæti af
fúsum vilja fyrir Pétri
Sigurðssyni og taka sjálfur
áttunda sætið á lista Sjálf-
stæöisflokksins i Reykjavik sem
menn eru ekki nema I meðallagi
trúaðir á aö komi i hlut sjálf-
stæðismanna. En það hlýtur að
vera Ellert nokkur huggun að
hann verður varla atvinnulaus, ef
hann missir af þingsætinu sinu. 1
lokahófi KSt á dögunum var Ell-
ert fært simskeyti þar sem stóð
eitthvað á þessa leið: „Náir þú
ekki á þing er þér hér með boðin
vaktformannsstaða á pylsubarn-
um I Austurstræti — Asgeir
Hannes Eiriksson...”
# Nokkrir ungir allaballar og
kratar tóku upp það nýmæli I
siöustu kosningum að fara á
framboðsfundi á vinnustöðum og
þótti það gefast vel, reyndar svo
vel aö fyrir þessar kosningar sem
nú fara i hönd viröist þetta ætla
að verða aöaleinkenni kosninga-
baráttunnar. Þannig sagði Visir
frá þvi að ólafur Jóhannesson
hefði verið á vinnustaöafundi i
Hampiðjunni i vikunni og senni-
lega hefur Geir Hallgrimsson
ekki viljað vera minni maður þvi
að það fréttist af honum á vinnu-
staðafundi á Borgarspitalanum
,,If you can’t beat them, join
them”...
• Það gengur lika fjöllunum
hærra að þeir Jón Sólnesog Egg-
ert Haukdal, þessir tveir klofn-
ingsframbjóöendur úr röðum
Sjálfstæðisflokksins, séu búnir að
mynda með sér kosningabanda-
lag, þannig að framboöslistar
— VI har kommet hetl tra tstand for á se
denne konserten. Noen skulle kjope
billetter tor oss, men de fikk ikke tak i
det. Kan vi ikke fá lov til á jobbe her i
dag, og pá den máten gjere oss /ortjent
til en billelt?
# „Við erum komin alla leið frá
Islandi til að sjá þessa tónleika.
Það átti aö kaupa miða fyrir okk-
ur en það hefur farist fyrir. Gæt-
um við ekki fengiö vinnu hérna I
dag svo við eigum fyrir miöan-
um?”
í norska blaðinu Fremtiden
kom fyrir skömmu litil klausa
sem hófst á þessa leiö. Þar er sagt
þeirra beggja verði merktir sama
listabókstaf. Með þessu móti eiga
þeir möguleika á uppbótasæti, ef
öðrum teks'c að ná kjöri...
# Hún fór ekki vel af stað kosn-
ingabaráttan hjá krötum. Þeir
voru búnir að verða sér sem oft-
ar úti um ágætis húsnæöi á Skóla-
vöröustig, þar sem þeir höfðu
rekið siðustu kosningabaráttu
meö eftirminnilegum árangri. Nú
tókst hins vegar ekki betur til en
svo aö hvernig sem menn leituðu
þá fannst hvergi lykillinn að hús-
inu...
#Samtök alþýöutónskálda og
tónlistarmanna (S.A.T.T.),
þrýstihópur poppara sem viröist
ætla að verða atkvæöamikill I
baráttumálum þeirrar stéttar,
gekkst fyrir tónlistarkvöldi I
Klúbbnum I siðustu viku. Þar
komu fram ýmsar af okkar
fremstu hljómsveitum um þessar
mundir og jafnframt var hóað
saman liðsmönnum „gömlu”
góðu Óðmanna. Mun það vera eitt
af baráttumálum S.A.T.T.s að
hefja lifandi tónlistarflutning á
skemmtistöðum til vegs og virö-
ingar á ný til mótvægis viö diskó-
þróunina. Aðsókn að þessu tón-
listarkvöldi var það góö að þeirri
þróun ætti aö vera unnt að snúa
við, og er jafnframt I bigerö að
hafa framhald á S.A.T.T.kvöld-
um. Ef af verður er rætt um aö á
næsta kvöldi komi m.a. fram
Þursaflokkurinn sem nýkominn
er heim úr frækinni utanlands-
reisu (sjá bls. 6), og liklega verð-
ur haldið áfram að hóa saman
gömlu grúppunum, og Svanfriður
sáluga verði næst I rööinni...
# A fundi Félags Islenskra mynd-
listarmanna I vikunni kom fram
að myndlistarmenn landsins eru
orðnir langþreyttir á þvf hve
afskipt, að þeirra dómi, myndlist
hefur veriö hjá sjónvarpsráða-
mönnum.
Á fundinum var samþykkt að
skrifa ráöamönnunum bréf og
bjóöa tilviðræðna umleiöir til að
bæta úr myndlistarleysinu lsjón-
varpinu. V-ar fariö fram á aö
myndlist yrði gefið „ekki minna
rými I sjónvarpinu en kraft-
lyftingum”...
Halldor Hreinsson og Sigridur M. Hrei-
darsdottir. De hadde lagt norgesbese-
ket sitt til tiden da Supertramp skulle
komme, men hadde altsá ikke klart á
skaffe seg billett. Driftssjef Hákon
Lebach var imidlertid svaert hyggelig, og
sa at det tikk vel bli en ordning tor de to
likevel...
frá Halldóri Hreinssyniog Sigrlöi
M. Hreiöarsd. sem drifu sig
til Noregs til að sjá hina vinsælu
popphljómsveit Supertramp.
Þeim hafði láðst að ná sér I miða
og tóku þvi það ráð að vinna i
hljómleikahöllinni til að komast
inn. Hákon Löbach, fram-
kvæmdastjórinn tók þeim vel, að
sögn norska blaösins...
# Nú hefur fréttamagasin út-
varpsins séð dagsins ljós, og hef-
ur veriö i ýmsu aö snúast hjá
fréttamönnunum. Sagan segir að
I byrjun vikunnar hafi Siguröur
Sigurösson, varafréttastjóri kom-
ið brúnaþungur inn á kaffistofu og
látiö þau orð falla að hann væri
búinn að fá verkefni sitt fyrir
fyrsta magasinið. Hann var
spurður hvaö þaö væri, Jú, Vil-
mundur Gyifason, svaraði
Sigurður. Nú, er ekki ágætt aö fá
aö tala við hann? spuröu sam-
starfsmennirnir. „Nei, ég á sko
ekki aö tala við hann’,1 sagði
Sigurður með háösglott á vör,
„bara boða hann i viðtal...”
# Mikill hvellur hefur nú oröið
út af sjónvarpsþættinum tslenskt
mál siðasta sunnudag. Inn á fund
útvarpsráös sL þriðjudag barst
harðort mótmælabréf frá skrif-
stofu biskups út af þessum þætti
og þvi haldið fram aö umsjónar-
menn hafi niðst á þeim trúnaði
sem þeim hafi verið sýndur með
ósæmilegum hætti. Það sem eink-
um mun hafa sært biskupsmenn
var tilvitnun I Megas I þessum
þætti, þar sem segir ma. að Jesús
hafi selt börnum dóp. Mótmælin
voru bókuð og einhverjir útvarps-
ráðsmanna munu hafa tekið und-
ir gagnrýnina, þar sem þeim hafi
þótt býsna greitt fariö yfir sögu
islensks máls,að hverfa beint frá
uppruna indógermanskra mála
yfir I Megas...
# Af þvi að útvarpsráð er til
umræöu þá heyröum við
skemmtilega sögu um klókindi
ólafs R. Einarssonar formanns
útvarpsráös. Fyrir fundinum lá
að taka afstöðu um tillögu þess
efnis aö Fylkingin fengi aðild að
hringborösumræöum stjórnmála-
flokkanna I sjónvarpi. Þegar bera
átti upp tillöguna fór Ólafur alveg
öfugt að miðaö viö venjulega af-
greiðslu; hann spurði fyrst hverj-
irútvarpsráðsmanna væru á móti
tillögunni en ekki hverjir væru
henni meömæltir. Fjórir útvarps-
ráösmenn voru þegar mótfallnir
og þá sáu alþýöubandalagsmenn-
irnir Ó’afur R. og Jón Múli að þeir
gátu óhræddir greitt atkvæöi
með tillögunni.
# Margir Reykvikingar tóku boöi
Þorkels Valdimarssonar um að
koma og skoða Fjalaköttinn I
Aðalstræti. Þorkell er sagður svo
ánægöur með undirtektirnar að
hann mun nú hafa ákveöið að
bjóða sig fram til forseta....
# Svolitið um listina. Nýlistin
fer nú sigurför um mörg lönd
Evrópu og einn af öndvegismönn-
um þessarar skemmtilegu teg-
undar myndlistar er auðvitað
Dieter Rot, sem viö íslendingar
getum eignað okkur að stórum
hluta, þótt hvorki sé hann hér
borinn né barnfæddur. Er
skemmst frá þvi að segja aö hon-
um var nýveriöj meö öðrum
höfuöpaurum Fluxus-stefn-
unnar eins og greinin kall-
ast vist á flnu máli, boðið
áð sýna á Modernasafninu i
Vin og þarna voru ásamt Dieter
Rot meðal sýnenda kappar á borð
við Robert Filliou, Daniel
Spoerri, R. Hamilton, George
Bracht.og Josef Boys.sem þarna
átti forláta verk úr smjöri sem
blandað hafði verið vaxi svo aö
það bráðnaöi siður. Nokkur gleð-
skapur var viö opnun sýningar-
innar, eins og gerist og gengur við
slik tækifæri, og vissu menn þá
ekki fyrr en Dieter Rot var lagst-
ur I gólfiö og farinn aö velta sér
upp úr smjörinu hans Josef Boys.
Þetta þóttu helgispjöll mikil og
segir orðsporiö að málinu hafi
lyktað með þvi að Dieter Rot þarf
að borga tryggingu verksins, litil
500 þúsund mörk....
# Við sögöum einhverntima frá
þvi að þeir Gunnar Þórðarson og
Björgvin Halldórsson hafi haft i
hyggju að gera sérstaka plötu
saman fyrir jólin, en þetta var
siöan boriö til baka. Nú heyrum
viö enn staðhæft að þeir Gunnar
og Björgvin séu siöur en svo af
baki dottnir i þessum efnum — aö
visu komi þeir ekki plötu út fyrir
jólin vegna timaskorts — en strax
á næsta ári ætli þeir að koma
saman og gera plötu I anda
Visnaplatnanna tveggja sem
hvað vinsælastar hafa oröið hér
um slóöir....
# Og meira fyrir poppistana.
Akveöiö mun aö endurreisa
hljómsveitina Tivoli sem naut
hér mikilla vinsælda ekki alls
fyrir löngu og er þar fremstur I
flokki Sigurður Sigurðsson Kjöt-
súpusöngvariásamtýmsum fleiri
góðum spilurum....
#Jazzvakning hefur staöiö fyrir
mjög blómlegu jazzlifi hér i borg
undanfarin ár, og m.a. fengið
hingað til lands marga
heimsþekkta erlenda jazzleikara.
Ekki hefur þaðreynst neinn dans á
rósum, þar sem slikt er mjög
kostnaöarsamt, einkum þegar
það er haft i huga, aö rikið hirðir
stóran hluta aðgangseyrisins I
skemmtanaskatt. Það hefur þvi
oftsinnis verið tap á þessu
hljómleikahaldi og ef ekki verður
breyting á, er tvisýnt um
framhaldið. Forráðamenn Jazz-
vakningar vilja að jazzi sé gert
jafn hátt undir höföi og klassiskri
tónlist, en samkvæmt lögum eru
tónleikar með klassiskri tónlist
undanþegnir skemmtanaskatti.
Mun ætlunin vera að fara á fund
menntamálaráðherra og fá hann
til að beita sér fyrir þvi, að jazz
verði viðurkenndur sem klassisk
tónlist, þannig að ekki verði ein-
ungis hægt að hlýða á slika tónlist
á tveggja ára fresti á Listahátíð.
Fra Island til
Drammen for S
se Supertramp
Disse bsnnfallende ordene kom fra
u