Helgarpósturinn - 29.08.1980, Síða 4

Helgarpósturinn - 29.08.1980, Síða 4
„Gengisbreyting virðist mjög eðlileg” Föstudagur 29. ágúst 1980 he/garpásturínn NAFN: Ingvar Gislason STAÐA: Menntamálaráðherra FÆDDUR: 28. mars 1926 HEIMILI: Álfabyggð 18, Akureyri HEIMILISHAGIR: Eiginkona Ólöf Auður Erlingsdóttir og eiga þau fimm börn BIFREIÐ: Chevrolet Nova '74 ÁHUGAMÁL: Bókmenntir, þjóðfélagsmál og mannlífið yfirleitt A ineöan skólastjóradeiluna I Grundarfiröi bar sem hæst, sættu afskipti menntamálaráöherra af deil- unni talsveröri gagnrýni. Þetta er ekki i fyrsta sinn sem skólastjórastööur vefjast fyrir menntamála- ráöherra sama hver setiö hefur í stóinum. Stööuveitingar menntamálaráöuneytisins hafa oft á tiöum þótt bera keim af þvi hvers fiokks menntamálaráöherrann er sem situr i þaöog þaö skiptiö. Þcssi mál eru til umræöu I Yfirheyrslu Helgarpóstsins I dag, ásamt fiéiru sem aö menntamálaráöu- neytinu lýtur og sá sem situr fyrir svörum er aö sjáifsögöu Ingvar Gislason menntamálaráöherra. Menntamálaráðuneytiö þótti bregða seint við i Grundarfjarö- armálinu, það var íeitaö til ykk- ar i mai sl. en lausnin fannst ekki fyrr en þremur mánuðum seinna? „Þaö er misskilningur að máliöhafiekki strax verið tekiö til athugunar. Eg setti strax mina íulltrúa, fræðslustjórann á Vestfjörðum og deildarstjórann hér i grunnskóladeildinni i það að kanna málið. Þeir höfðu við- töl við menn og gáfu mér skýrslu" Þessir fulltrúar þinir höföu allt sumariö fyrir sér til aö leysa þetta mál, þvi þessi seina- gangur? „Þeir höfðu góðan tima til að kynna sér málið, rétt er það. Ég vildi fá fram hvaða sakir væru bornar á manninn og fékk það. En það tók sinn tima að setja sig inn i mál á stað þar sem maður er ekki vel kunnugur.” Þvi var jafnvel haldiö fram að þú heföir kynnt undir illdeilum með afskiptum þinum af mál- inu? „Ég gerði allt sem mér var unnt til þess að reyna að miðla málum. Ég kannaði þær sakir sem á Orn Forberg voru bornar og það kom i ljós aö það var ekki hægt að sanna neitt á hann sem varðaöi brottrekstur. Það var mjög ulvariegt aö bera þetta á manmnn vegna þess að hann var þá úthrópaður í blöðum og annars staðar. En hann réynd- ist ekki hafa brotið neitt af sér og það er ekki á færi ráðherra aö vikja skipuðum embættis- manni úr starfi fyrir engar sak- ir. Þaðer ijóst að mönnum likar mismunandi vel við örn For- berg, en það eitt er ekki brott- rekstrarsök i starfii’ Fulloröinsfræösla f iandinu þykir mjög i molum, hefur þú hugsað þér að gera eitthvaö i því? „I stjórnarsáttmálanum er gert ráð fyrir þvi að settar verði reglur um íullorðinsfræðslu,” Þaöerekkinógaöþaöstandi I stórnarsáttmálanum, hefur verið byrjaö aö gera eitthvaö? „Já, það er byrjað að leiða hugann aö þviý Hafið þiö bara leitt hugann aö þvi, en ekki gert neitt? ,,Jú, umræöur eru hafnar um málið af minni hálfu hér i ráðu- neytinu. Þetta er ekki vanda- laust mál. Tilhögun íullorðins- fræðslu hefur lengi verið á döf- inni. Og það gekk svo langt að fyrir nokkrum árum var samið frumvarp, gifurlega þykkt og mikið, en ég held að Alþingi hafi ekki litist á það. Það var mjög viðamikið og báknlegt. En það er búiö að vinna mikið i sam- bandi viö fullorðinsíræöslúna og það eru ýmis gögn tii um hana. Það þarf að reyna að samræma þær hugmyndir sem fram hafa komið og koma þeim snyrtilega fyrir i skólakerfinu” Er þaö ekki óskapleg sóun á fjármunum og vinnu aö vera aö semja frumvarp, þykkan doö- rant sem ekkert er síöan gert viö? „Þetta er kostnaðarsöm vinna það er alveg rétt. En það er nú svo að það kann að vera kostnaðarmeira að verða við tillögum sem eru óhentugar. Það er aldrei hægt að tryggja það að nefndir skili þannig af sér verki að hægt sé að nota það eins og það kemur íyrir.” Lýöræöi i skólum hefur veriö mjög á baugi crlendis, aukin áhrif nemenda og kennara á skólahald, hvaö meö okkur hér? „Það hefur nú dálitið verið framkvæmt hérna hjá okkur” Ilvar hefur það verið fram- kvæmt? „Að visu er það kannski ekki fullkomið lýöræði, en vissulega er margt í starfi skólanna sem bendir til lýðræðis og nemendur eru viða með i ráðum i skóla- stjórn. T.d. i háskólanum, menntaskólum og viðar.” Hvað meö lýðræöi I grunn- skóiunum? „Það hefur að visu ekki borið svo mikið á þvi hér á landi og ég veit satt aö segja ekki hvort þetta er ákaflega brýnt. Það eru uppi um þetta ýmsar hugmynd- ir en ég held að það sé langt i land með að þær verði að veru- leikal' Það hefur gengið ilia aö fram- fylgja grunnskólalögunum frá 1974. „Það átti að taka 10 ár að framkvæma þetta frumvarp.” Reiknaröu þá meö aö eftir 4 ár veröi þaö komið til fram- kvæmda? „Ég veit það ekki. Ég hef litið á þaö sem hlutverk mitt sem menntamáiaráðherra að reyna að koma þessum iögum í fram- kvæmd eftir þvi sem unnt er. Það er hverju orði sannara að stór hluti grunnskólalaganna hefur ekki komist i fram- kvæmd, en við höfum enn þessi 4 ár upp á að hlaupa. En jafnvel þó menntamálaráðherra sé mjög áfram um þessi mál, þá er þetta ráðuneyti eins og önnur háð fjárveitingum Alþingis.” Ert þú ekki vel settur meö fyrrverandi menntamálaráö- herra sem fjármálaráöherra? ,,Ég er mjög ánægður með þaö” Hefur Ragnar Arnalds kannski betri skilning en marg- ur annar á málefnum mennta- málaráöuneytisins? „Ég er ekki i nokkrum vafa um það, þar sem hann hefur reynslu sem menntamálaráð- herra” Þegar þú tókst viö embætti menntamálaráöherra, lýstir þú þvi yfir aö þú myndir leggja sérstaka áherslu á listir og menningarmál, ert þú ánægöur meö árangurinn? „Ég hef verið ráðherra i sex mánuði og ég er ekkert óánægð- ur með það sem ég hef lagt til i þeim efnum.” Hvað er þaö? „Ég hef tekið mikinn þátt i umræðunni um þessi mál og tel að framlög tii lista hafi auk- ist á þessum fjáriögum miðað við önnur. Von min er sú að þau verði aukin enn meira þegar fram liða stundir og það mun ég gera aö tillögu minnii’ Útvarpshúsgrunnurinn i Kringlumýrinni biöur enn eftir aö þar verði reist bygging og Samstarfsnefndin um opinberar framkvæmdir situr enn á Framkvæmdasjóöi Rikisút- varpsins, hefur þú hugsaö þér að gera eitthvaö I þvi máli? „Já, ég er alltaf aö gera eitt- hvað í þvi máli, ég er alltaf að vekja athygli á þessui’ Er nóg að vekja bara athygli á þvi, verður þú sem mennta- málaráöherra ekki aö gera eitt- hvaö róttækt? „Ég held að þaö hljóti að hafa komið fram að hendur ráðherra eru i sumum tilfellum bundnar. í þessu tilfelli er ég bundinn af þeim lögum sem gilda um opin- berar framkvæmdir og þar er gert ráð fyrir þessari Sam- starfsnefnd sem er ákaflega valdamikil. Hún getur sam- kvæmt þessum lögum sett ráð- herrum stólinn fyrir dyrnar.” Getur Samstarfsnefndin gengið á móti lögum? „Nei hún getur ekki gengið á móti löguml’ Þaö eru til lög um þaö að þessir peningar i Fram- kvæmdasjóöi Rikisútvarpsins skuli fara i aö byggja hús yfir stofnunina? „Ég er ekki i vafa um að sú lögskýring er rétt, sem fram hefur komið hjá útvarpsstjóra og fleirum að Framkvæmda- sjóöur Rikisútvarpsins sé til "þess ætlaður að byggja útvarps- hús. Ég held lika að flestir hafi áttað sig á þvi að það verður að byggja útvarpshús, en menn hafa deilt um hvernig það hús eigi að verai’ Hvers vegna kemst Sam- starfsnefndin upp meö aö sitja á Framkvæmdasjóönum i trássi við lögin? „Hún telur sig starfa i sam- ræmi við þau lög sem gilda um opinberar framkvæmdir og tel- ur sig hafa sama rétt til afskipta af framkvæmdum Rikisút- varpsins sem og annarra. Hún gerir athugasemdir við teikn- ingar og byggingaráform og á meðan þær athugasemdir eru til umræðu telur nefndin að ekki sé hægt að hefja byggingunai’ Er þaö ekki i verkahring menntamálaráöherra aö taka af skarið? „Ég get tekið af skarið fyrir mitt leyti, ég get haft mina skoðun og reynt að koma henni fram. Þar meö er ekki sagt að ég geti brotið niður allar hindr- anir sem á veginum verða, en ég mun reyna þaði’ Þú mátt sem sagt hafa skoö- anir, en getur litið gert? „Það er hiutverk mitt að koma minum vilja fram, en það getur kostað talsverðar umræð- ur” Er endalaust hægt aö láta þar viö sitja, aö ræða málin, þarf bara ekki aö berja i borðiö og vera frekur til aö fá sitt fram? „Það getur vel verið að það dugi eitthvað aö berja i borðið en ég er nú ekki viss um að það sé endilega leiðin. Það eru til aðrar leiðir til að koma sinu framl’ Oft hefur staöiö styr um stööuveitingar menntamála- ráöherra og þaö hefur veriö tal- iö aö þeir skipuöu frekar flokks- bræöur sina i stööur en aöra, hvaö vilt þú segja um þaö? „Ætli þetta sé ekki nokkuð likt með ráðherrana yfirleitt.” Aö þeir ráöi sina flokksbræö- ur fremur en aöra? „Það mætti segja mér að hægt væri að sýna fram á það svona i gegnum söguna. Hins vegar er það ofsögum sagt að þaö sé rauðúr þráður i öllum stöðuveitingum. ” Finnst þér ekki rangt aö láta sina flokksmenn ganga fyrir um stööuveitingar? „Ég tel að það eigi ekki undir neinum kringumstæðum að láta óhæfan flokksmann ganga fyrir hæfum manni sem ekki er i sama flokki” En er i lagi aö láta hæfan flokksmann ganga fyrir hæfum utanflokksmanni? „Það er mat ráðherra hvern hann velur i embætti og ekkert er óeðlilegt viö það þó hann velji sinn flokksmann. Ég hef reynt að velja hæfa menn til starfa og mér er alveg ókunnugt um að það séu flokksbræður minir sem ég hef nú nýveriö skipað Istöð- ur. Nýlega var t.d. auglýst skólastjórastaða i minu kjör- dæmi, þar sótti um ágætur flokksmaöur minn, en ég skip- aði hann ekki, ég skipaði meira aö segja mann sem var áreiðan- lega ekki i minum flokki.” Þú sagöir áöur aö þaö mætti örugglega sýna fram á aö ráö- herrar skipuöu sina flokksmenn frekar i embætti en aöra, held- uröu þá að þú sért þar undan- tekning? „Ennþá er ég það.” Ert þú ánægöur meö stjórnar- samstarfið þessa stundina, þaö eru ýmsar blikur á lofti? „Ég er ekkert óánægður með stjórnarsamstarfið, siður en svo. Ég held að það gangi alveg ágætlega” Eruö þiö Framsóknarmenn sammáia Steingrimi Her- mannssyni i þvi aö gengisfelling sé nauösynleg til þess aö rétta viö hag fiskiiðnaðarins? „Steingrimur hefur nú ekki sagt það fullum fetum að geng- isfelling sé nauösynleg, heldur hefur hann bent á að það þurfi augljóslega að gera tilteknar ráðstafanir til þess að tryggja rekstrargrundvöll frystihús- annai’ Hann hefur talaö um gengis- fellingu i þvi sambandi. '„Hann hefur talað um að gengisfelling sé meðal þeirra ráöa sem leiða eigi hugann að, en það er ekki alveg ljóst hvort þaðer það eina rétta. En ég viö- urkenni það fúslega að gengis- breyting virðist vera mjög eðli- leg i þessu sambandi og bendi á aö gengissig hefur veriö tals- vert mikiö siðan 1. mars” Alþýöubandalagiö hefur sagt aö ekki komi til greina aö felia gengiö. Ef þið teljiö hins vegar gengisbreytingu óumflýjan- lega, á þá stjórnarsamstarfiö ekki eftir aö springa á þessu? „Ég hef reyndar ekki heyrt það að Alþýðubandalagið sé svo forstokkað að það geti ekki rætt gengislækkun ef það stendur frammi fyrir þvi að kostnaðar- hækkanir eru orðnar það m iklar að við getum ekki selt okkar vöru erlendis.” Attu von á aö þú eigir eftir að sitja lengi i ráöherrastólnum? „Ég vona það, en ég veit það ekkii’ eftir Ernu Indriðadóttur

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.