Helgarpósturinn - 29.08.1980, Side 20

Helgarpósturinn - 29.08.1980, Side 20
20 TVÆfí GÓÐAfí Hljómsveitin Blue öyster Cult var stofnuö f New York áriö 1970 og var þá kölluö Soft White Underbelly. Hljómsveitinni var smalaö sarnan af hljómpiötu- gagnrýnanda tfmaritsins, Agents var gefin út áriö 1976 og síöan hafa þeir gefiö út þrjár plötur, ef sú nýjasta er ekki tal- in meö. Þeir hafa á þeim öllum verið aö leita eftir nýju „hitti” og þvi lagt sig I líma við aö Crawdaddy, Sandy Perlman. Þeir geröu fljótlega samning viö hljómplötufyrirtækiöElektra og geröu fyrir þaö tvær plötur sem aldrei komu út. Seint á árinu 1971 geröu þeir svo samning viö Columbia og var nafni hljóm- sveitarinnar þá breytt i Blue öyster Cult. Siöan hafa þeir gef- iö út niu plötur og eru margar þeirra stórgóöar. Bestar eru þriöja platan, Secret Treaties, hljómleika platan On Your Feet Or On Your Knees og meistara- verk þeirra Agents Of Fortune. A þeirri sföastnefndu er þeirra eina ,,hit” lag, hiö frábæra Don'í Fear The Reaper. reyna aö þóknast ameriskum útvarpsstöövum. Tónlist þeirra hefur þvf sffellt oröiö mýkri og máttlausari og er platan Mirr- ors sem kom út i fyrra þeirra langlélegasta plata til þessa. Þaö er þvi gleöilegt aö heyra nýjustu plötu Blue öyster Cult, sem heitir Cultösaurus Erectus, þvi greinilegt er aö meö henni eru þeir aö halda áfram þar sem frá var horfið á Agents Of For- tune. Tónlistin hefur nú aftur náö sinum fyrrakrafti og á hinn nýi upptökustjóri þeirra Martin Birch, þar áreiöanlega tölu- veröan hlut aö máli. Martin þessi Birch er kunnur fyrir hljóðstjórn hjá ýmsum þekktum þungarokk hljómsveitum, svo sem Black Sabbath, Deep Purple og nú seinast, auk Blue öyster Cult, White-snake. Cultösaurus Erectus er i heild mjög góð og jöfn plata og erfitt er aö segja aö þar sé eitt lag betra en annaö. Þó hef ég einna mestar mætur á laginu Monst- ers, sem er, þó þaö sé ekki jafn gott og Reaper, eitt þeirra besta lag. Nú er sem sé aftur, eftir nokk- urra ára hlé, hægt aö lýsa tónlist Blue öyster Cult á svipaöan hátt og stundum var gert áöur. Nefnilega aö hún væri yfirleitt hröö, alltaf kraftmikil og tær, eins og um vel stillt mótorhjól væri aö ræöa. Fostudagur 29. ágúst i98o helaarpásturinn— Carlene Carter-Musical Shapes Carlene Carter er dóttir country söngkonunnar June Carter, sem «r kannski frægust fyrir aö vera gift söngvaranum Johnny Cashog er Carlene þvi fósturdóttir hans. Nýr tónlistar- meðlimur hefur svo nýlega bæst i fjölskylduna, þvi I fyrra giftist Carlene breska rokktónlistar- manninum Nick Lowe. Hann var einn af frumherjum nýju bylgjunnarsvokölluöu, þar sem hann var nokkurskonar yfir upptökustjóri hjá Stiff útgáfunni og hefur hann til að mynda stjórnaö upptökum á öllum plöt- um Elvis Costello. Lowe hefur einnig gefið út tvær sóló*plötur og er nú meðlimur einhverrar bestu rokkhljómsveitar sem starfandi er i heiminum i dag, en hún heitir Rocpile. Það er einmitt þessi hljómsveit, ásamt Lowe sem eiga stóran þátt 1 þvl aö gera nýjustu plötu Carlene Carter mjög góða. Lowe stjórn- aöi upptökunni og lék á bassa en auk hans eru i Rockpile, trommuleikarinn Terry Willi- ams og gitarleikararnir Billy Bremner og hinn frábæri Dave Edmunds. Efniö á plötunni er hiö fjöl- breyttasta. Þar er að finna Rockabilly lög, Rock and roll og country-tónlist. Flest eru lögin samin af Carlene sjálfri og eru þau góö, auk þess sem hún er hin ágætasta söngkona. Um undirleikinn, þarf ekki aö fara mörgum orðum, þvi hann er alls staðar pottþéttur eins og ég átti reyndar von á frá Rockpile. Þeir spila þó ekki undir I öllum lögunum, þvi aö i tveimur þeirra leika nokkrir meölimir bandarisku hljómsveitarinnar Clover, en það var einmitt hljómsveitin sem lék meö Elvis Costello á hans fyrstu plötu. Hljómsveitin Rockpile hefur hingað til ekki gefiö út plötu undir nafni hljómsveitarinnar. Heldur hafa verið gefnar út plötur undir nöfnum Nick Lowe og Dave Edmunds, eftir þvi hvor þeirra hefur sungið lögin. Þaö er þvi ánægjulegt aö vita aö nú bætist Carlene Carter I hóp- inn og enn fleiri Rockpile-plötur koma þá á markaöinn. Ég get ekki fmyndaö mér aö þær veröi nokkurn tima of margar,- svo góöar eru þær sem á undan eru komnar og svo góö er þessi. RAUÐVÍNSJASS Þá er svo komið aö Reykvfking- ar verða að velja milli djass- bandanna. Djúpið og Klúbbur eff ess bjóða uppá djass og rauðvin flest fimmtudagskvöld og stund- um oftar. ir Sigurðsson á vibrafón, Arni Scheving á rafbassa og Alfreð Alfreösson á trommur. Þeir byrj- uðu að leika Star Fell on Ala- bama, sem Louis, Ella og Jack Jazz eHir Vernharð Linnei A fimmtudaginn i siöustu viku var Jón Páll Bjarnason gitarleik- ari gestur i Djúpinu. Hann geröi hér stuttan stans á ferö sinni austur um haf. Hafði verið i Los Angeles, þarsem Bob Magnússon, ArniEgilsson, Ray Brown og aðr- ir bassasnillingar búa. Þar viðaði hann að sér kennsluefni, en Jón Páll stundar kennslu jafnhliða hljóöfæraleik i Sviþjóð. Gamlir félagar Jóns Páls djömmuðu með honum: Rúnar Georgsson á tenorsaxafón, Reyn- og enduðu i funkýblús. Þarámilli voru standardar, boplinur og Sat- in Doll Duke Ellingtons. Þar var Alfreð Alfreðsson I essinu sinu og satt aö segja er langt siöan ég hef heyrt hann jafn hressan, sama má segja um Reyni og Jón Páll var f banastuöi og hljómaöi hver linan annarri betri frá gitarnum, þaö minnti á hina góöu gömlu daga þegar örn Armannsson og Jón Páll léku við hvern sinn fing- ur. Samt vantaði eitthvað i sam- leikinn. Tónlistin lifnaði aldrei al- Jón Páll var I banastuöi í Djúpinu ásamt Rúnari Georgssyni, Aifreö Alfreðssyni, Arna Scheving og Reyni Sigurðssyni, veg. Gnægð tilhlaupa en aldrei stökkið. Sama kvöld voru þeir Tómas Einarsson og Sigurbjörn Einars- son að músiksera i Klúbbi eff ess. Var það spillemannamúsik i blandi við djass. Tómas hefur verið að læra á kontrabassa i Noregi og vonandi fáum við að heyra hann djassa á næstunni. Klúbbur eff ess hefur staöið sig nokkuö vel i sumar og þar hlust- aði ég fyrir þó nokkru á nýstár- legasta Islandsdjass sumarins. Það var dúó þeirra Rúnars Georgssonar og Askels Másson- ar. Rúnar blés i saxa og flautu en Askell tónskáld sló bongó og kongó og allskyns ásláttarhljóö- færi. Þarna skiptust á frumsamin verk eftir Askel og djassverk ým- issa. Night in Tunisia og Caravan. Það sem var kannski skemmti- legast við leik þeirra Rúnars og Askels var ferskleikinn. Ekki þetta eilifa djamm: laglina, sóló, fjórir, fjórir, laglina, sami hraöi úti gegn ef einhver flýtir ekki um of, sömu þreyttu laglinurnar, sami grautur i sömu skál. Ef þessi veitingastaðir sem sprottið hafa upp að undanförnu halda sinu striki og bjóöa uppá djasstónlist einu sinni tvisvar i viku, þurfa islenskir hljóöfæra- leikarar aö taka á sér tak og brjótast úr viðjum vanans og æfa saman , en þá þarf lika að borga þeim mannsæmandi kaup og þaö er trúlega hægara ort en gert, þrátt fyrir vinveitingarleyfin. Andófsmenn ta/a Búkofski Sakharof Solsénitsyn Frelsisbaráttan i Ráðstjórnar- rikjunum. Ræður og ritgeröir eftir Sakharof, Búkofski og Solsénitsyn. Hannes H. Gissurarson sá um útgáfuna, þýddi og samdi eftir- mála. Almenna bókafélagið, tslenska andófsnefndin 1980. Andófsmenn I Sovétrikjunum hafa veriö mjög umtalaöir á vesturlöndum á siöustu árum. Hafa vestrænir fjölmiölar átt mikinn þátt i aö vekja athygli á þessari baráttu, þannig aö önn- ur andófsbarátta gegn grimm- um valdhöfum I öörum heims- hlutum hverfur i skuggann, sér- staklega ef þessir sömu vald- hafar eru nú bandamenn Bandarikjanna og annarra friö- elskandi lýöræöisþjóöa. En þó aö maöur hafi á tilfinningunni aö margir þeir sem tala hæst um andófsbaráttuna I Sovét geri þaö ekki af hreinni og fölskva- lausri frelsisást þá kastar þaö á engan hátt rýrö á gildi og mikil- vægi andófsins, þó það kunni aö koma óoröi á þaö. Aö minnsta kosti fara alltaf um mig hálf- gerö ónot þegar ihaldshlunkar af ýmsu tagi eru aö upphefja sjálfa sig meö andófinu og not- færa sér þaö stnum aftur- haldsviðhorfum til framdráttar. Okkur er tamt aö tala um andófsmenn sem eina heild og samstæöan hóp, en þvi fer fjarri aö svo sé. Kemur það glöggt fram i þessari bók sem hér er til umræðu, þó þar sé sleppt einum mikilvægum hópi, þeas. þeim sem telja endurbætur eftir leiö- um sósialismans einu færu leiö- ina. (Hversvegna er þeim sleppt??) Fyrsti hluti þessarar bókar er frásögn Andrei Sakharof af þvi hvernig hann varö andófsmaö- ur. Er þessi grein formáli sem hann skrifaöi fyrir greinasafni sinu á ensku 1974; Fyrir utan aö lýsa þróunarferli eins af þekkt- ustu andófsmönnunum, þá er þessi grein fyrst og fremst merkileg vegna þess, aö þar segir frá hvernig þekktur og vel metinn kjarnorkuvisindamaöur vaknar til vitundar um ábyrgö sina og reynir aö afstýra þeim ógnum sem hann hefur átt þátt I aö skapa. En á hann er alls ekki hlustaö, hann er einungis not- hæfur meöan unnt er aö notfæra sér visindaþekkingu hans. Minnir þetta nokkuö á örlög vis- indamanna annarsstaöar þar sem pólitiska valdiö hlustar aö- eins á þá meöan þaö hentar. Svipar sögu Sakharovs til þeirra örlaga sem biöu Einsteins og fleiri feðra kjarnorkusprengj- unnar en sá er munurinn aö á öörum staönum mega menn rifa kjaft en á hinum ekki og munar þar vissulega miklu. Onnur greinin er ræöa sem Alexander Solsénitsyn hélt á fundi bandar'skra verkamanna. Þessi grein er býsna fróöleg um viöhorf Solsénitsyns, en hann er greinilega ihalds- samastur þeirra þremenninga. Kennir vægast sagt margra furöulegra grasa i málflutningi hans. Hatur hans á stjórnvöld- um Sovétrikjanna viröist eiga sér andhverfu i blindri aödáun á valdhöfum i Bandarikjunum. Hann viröist telja aö hver aftur- haldsskúrkur og bandarikja- leppur i einræöisherrastétt sé langtum betri en hver sem er þeirra stjórnvalda sem meö ein- hverjum hætti kenna sig til sósialisma. Annaö sem stingur i augun er aö hann virðist lfta til keisaraveldisins rússneska meö mikilli eftirsjá og telur aö það ástand sem nú rfki sé langtum verra. Þó að maöur lesi Morgunblaöiö nokkuö reglulega er sjaldan sem maöur sér viö- horf jafn skorinorös afturhalds- manns. Þriöja greinin er ræða Vladi- mir Búkofskfs á fundi hér á landi á siðasta ári. Þessi grein fjallar um mannréttindahreyf- inguna og er mjög fróöleg lýsing á þróun hennar og greining á þvi hvernig þessi hreyfing er saman sett. Þaö er svo stutt siöan fjall- aö var ftarlega um þessa ræðu i blööum hér að ástæöulaust er aö rekja hana frekar. En af þess- um greinum finnst mér mest á þessari aö græöa. Hannes H. Gissurarson ritar eftirmála þar sem hann rekur hinar venjulegu útleggingar hægrimanna á þvi af hverju kúgunin I kommúnistarikjunum stafi og hvaöa lærdóma menn skulu draga af þvi. Ég gat ekki séö aö neitt nýtt væri i þeim málflutningi, en þarna er hann aðgengilegur, i tiltölulega stuttu máli, fyrir þá sem áhuga hafa á. Þýðing Hannesar er yfirleitt bærilega læsileg þó leiöist mér sá ofvöndunarlegi tepruskapur aö kalla Kommúnistaflokk Sovétrikjanna Sameignarflokk Ráöstjórnarrikjanna, hiö fyrra hefur dugaö vel til þessa. Einnig er hér aö finna nokkra óþarfa stafsetningarsérvisku einsogt.d. aö kalla Krústjoff gamla alltaf Hrústsjof. G. Ast.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.