Helgarpósturinn - 29.08.1980, Síða 35
ISLENSKUR IÐNAÐUR Föstudagur 29. ágúst 1980
VeriO aO vinna aO frágangi á GoOa-pylsum Sambandsins.
Fljótlagaðir Goða
réttir á markaðinn
Kjötiðnaðardeild Sam-
bandsins hefur um nokk-
urra ára skeið haft á
markaðnum svonefnda
Goða-rétti. Réttir þessir
eru seldir frosnir í pökk-
um> tilbúnir til að stinga
beint í ofn og eftir það
tilbúnir á borð neytand-
ans. Fram til þessa hafa
réttirnir að mestu verið
seldir til mötuneyta í
fyrirtækjum og stofn-
ununri/ en með haustinu
stendur til að þeir komi á
almennan markað og
verði seldir í verslunum.
Réttir þessir eru sem fyrr
segir seldir frystir og þurfa
mislanga þfOingu eftir þvi um
hvaö er aö ræöa. Stærstu bakk-
arnir, sem duga aö minnsta
kostifyrir átta manns, þurfa aö
meöaltali um klukkutima i ofni.
Minni pakkningar duga tveimur
og kannski rúmlega þaö, þvi rif-
lega er skammtaö á hvern
bakka og þurfa þeir minni tima
til hitunar. Hér er einungis átt
viö venjulega bakaraofna sem
til eru á öllum heimilum, en
ekki geislaofnana. Séu Goöa-
bakkarnir settir i þá, tekur þaö
aöeins nokkrar minútur aö þiöa
réttina og þá eru þeir tilbúnir á
boröiö. Þessir bakkar eru sér-
lega hentugtiir fyrir þá sem
vinna úti og hafa stundum litinn
tima til matargeröar Fjöl-
breytnin er mikil, alls kyns kjöt-
réttir, svo sem lambasteik, snit-
sel, kótilettur, kálfakjöt, bollur,
bautar og alls kyns pylsur. Þá
eru fiskréttir, eins og soöin ýsa,
djúpsteikt rauösprettuflök, fisk-
bollur, búöingar og fleira. Þá er
einnig hægt aö fá meö öllum
þessum réttum margs konar
meölæti, svo sem hrisgrjón,
spaghetti, hræröar kartöflur,
grænmetisjafning og allra
handa sósur.
A hverjum bakka eru miöar
þar sem á eru leiöbeiningar um
hitunartima. Þá er einnig tekiö
fram hvaöa hráefni er notaö I
matinn og meö hverju helst er
best að bera fram.
Framleiðslan á Goða-rétt-
unum fer fram undir eftirliti
Rannsóknarstofu Búvöru-
deildar, sem fylgist meö
geymsluþoli vörunnar og hrein-
læti á vinnustaö. Geymsluþol
réttanna er gefið upp vera þrlr
mánuöir viö -18 gráöur á
celcius, en i flestum tilfellum
má geyma matinn lengur, þó
æskilegast sé taliö aö hann sé
notaöur innan þessa vissa tima,
sem nefndur er.
Verölagi á réttum þessum
hefur veriö mjög stillt I hóf.
Lágt verö liggur I þvi hve hægt
er aö framleiöa sama réttinn i
miklu magni, jafnvel fleiri en
einn dag i einu og fæst þannig
besta hugsanlega nýting á
bæöi tækjum og starfskrafti.
Þegar réttirnir koma á al-
mennan markað verður einnig
hægt aö fá eins manns bakka.
: Sr þá um aö ræöa annaö hvort
fisk- eða kjötrétti meö kart-
öflum og grænmeti. Þeir veröa i
þriggja hólfa umbúðum meö
loftþéttri lokun. Aður en upphit-
un hefst þarf að stinga gat á
plastfilmuna sem er yfir bakk-
anum. Hægt er að boröa réttina
beint úr bökkunum, þannig aö
litiö þarf aö hafa fyrir öllum
matartilbúningi. Mjög fljótlegt
allt saman.
Eins og fyrr segir er gert ráö
fyrir þvi aö Goöa-réttirnir komi
á almennan markaö meö haust-
inu, liklega einhvern tima i
september, aö þvi er Siguröur
Haraldsson framkvæmdastjóri
Kjötiönaöardeildar Sam-
bandsins tjáði okkur. — AB
VEUIÐ
ÍSLENSKT
Við framleiðum
ytri fatnað á börn,
Falleg snið -Tisku-
litir -Fæst i mörgum
tiskuverslunum
Bolholtl 4 - Póathólf 5253
105 Reykjavlk
7
Framleiða alls nfu tegundir
smjörlikis sem eru á
markaðnum
— og ávaxtasafa að auki
Af innlendum smjör-
líkistegundum sem á
markaðnum eru fram-
leiðir Smjörlíki hf. alls
níu þeirra. Smjörlíki hf.
er stærsta og jafnframt
fullkomnasta smjörlíkis-
gerð hér á landi/ og
margar smjörlíkisteg-
undir þeirra hafa verið á
markaðnum allt frá árinu
1939. Fyrirtækið var upp-
haflega einungis sölu- og
dreifingarfyrirtæki fyrir
fjórar smjörlíkisgerðir f
Reykjavík. Þessi dreif-
ingarmiðstöð var siðan
gerð að sérstöku fyrir-
tæki árið 1945 og hlaut þá
nafnið Afgreiðsla Smjör-
líkisgerðanna hf., en nú-
verandi nafn sitt hlaut
það síðan árið 1967.
Til fróðleiks má geta þess aö
smjörliki var upphaflega fundiö
upp I Frakklandi áriö 1869 af
þarlendum efnafræöingi. Upp-
finning hans varð fljótlega kunn
viöa um heim og hér á landi
hófst smjörlikisgerð fyrst 1919 i
Hf. Smjörlikisgeröinni.
„Smjörliki getur haft ýmsa
eiginleika.” segir Daviö Schev-
ing Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Smjörlikis hf.
„Viö reynum aö hafa á boðstól-
um smjörliki sem er llkast þvl
sem viöskiptavinurinn vill hafa
þaö, hvort sem um er aö ræöa
bakara sem þarf smjörliki til aö
hnoöa deig úr, eöa húsmóöur
sem þarf þaö til aö smyrja. /'
„Smjörllkisframleiöslan hefst
eiginlega á loðnumiðunum”
segir Daviö ennfremur. „Þaöan
berst okkur loðnulýsi, sem er
hert hér á landi. Loönulýsið er
sett I vetni og kemur I gegnum
pipur I sjó frá Aburöaverk-
smiöjunni. Hingaö til Smjör-
likisgeröarinnar berst þaö siöan
daglega I tönkum”
Allt smjörliki, hvaöa nafni
sem þaö nefnist, er siöan litaö
meö gulrótarsafa og vitamln-
bætt. Þessu ásamt öörum efnum
sem I smjörlikisgeröina eru not-
uö er siöan dælt gegnum lokaö
kerfi, gegnum alls kyns leiðslur
og tanka, og kemur siöan út
pakkaö og fer beint á lager.
Mannlegar hendur koma aldrei
nálægt sjálfu smjörllkinu, fyrr
en það er komiö I umbúöir.
En Smjörliki hf. framleiöir
annaö og meira en smjörllki.
Tropicana ávaxtasafinn er
framleiddur á sama staö, en
undir ööru fyrirtækisnafni,
nefnilega Sól hf.
Tropicana er ekki ýkja gam-
alt á markaönum, en óhætt er aö
fullyrða aö flestir eru drykknum
kunnugir. 1 dag eru framleidd i
kringum 300 þúsund kg á mán-
uöi af Tropicana.
„Upphaf Tropicana var það,”
sagði Davíö Scheving, ,,að ég
var á ferðalagi I Sviþjóð og bjó i
Lundium tima. Þar bragðaði ég
mjög góðan appelsinusafa og
gat ekki skilið hvernig Sviar
færu að þvi aö framleiöa svo
góöa vöru. Það kom lika á dag-
inn aö flaskan var merkt Tropi-
cana fyrirtækinu bandariska.”
Næsta skref Davlös var aö
hafa samband við framieiöend-
ur Tropicana ytra og fara slöan
fram á innflutning á safanum til
Islands. Tropicana var fluttur
inn á glerflöskum I þrjú ár, en
áður haföi, aö sögn Daviös, „al-
mennilegur appelsinusafi veriö
óþekktur hérlendis”.
„Eftir þrjú árin var salan orö-
in þaö mikil aö þróunin varö sú
aö viö fórum að pakka og geril-
sneyöa safann sjálfir. Fram-
haidiö vita vist flestir. Hann
hefur selzt mjög vel” sagöi
Daviö.
Viö inntum Daviö eftir þvi
hvort hægt væri aö treysta þvi
aö engum sykri eöa bragöefnum
væri bætt út i Tropicana?
„Já, þaö er rétt, aö engum
rotvarnarefnum, sykri né
bragöefnum er bætt úr i” sagði
hann. „Framleiðslan hér heima
fer fram undir ströngu eftirliti
frá verksmiðjunum erlendis.
Einu sinni til tvisvar I viku eru
sendar út prufur til þeirra, og
viö vitum aldrei fyrirfram hve-
nær þessar prufur eru sendar.
Einnig koma menn aö utan 2-3 á
ári til aö skoöa verksmiöjurnar
°g fylgjast meöal annars meö C-
vitamininnihaldi framleiösl-
unnar.”
Sól hf. er nú aö senda á mark-
aöinn nýjar álklæddar fernur
utan um Tropicana ávaxtasaf-
ann. Geymsluþol safans I gömlu
umbúðunum er um þaö bil 3-4
vikur, en meö tilkomu nýju um-
búöanna á hann aö haldast
ferskur mun lengur.
Tropicana er nú framleitt úr
þremur mismunandi ávaxta-
tegundum, appelslnum, eplum
og grapealdin. Ekki er á döfinni
að hefja framleiöslu á nýjum
tegundum, alveg á næstunni
a.m.k. aö sögn Daviðs, þar sem
yfirdrifiö nóg er aö gera i fram-
leiöslu og sölu á þessum þremur
tegundum sem þegar eru á boö-
stólum.
— AB
Séö yfir hluta framleiöslusals Smjörlikis h.f.
THOMAS HJÓLASKÓFLA
Frá 350 kg til 125 okh - Margs konar aukabúnaður
fáanlegur, svo sem staurabor, götusópari, gafflar o. fl.
— Leitið upplýsinga
Vélaverkstæði Sigurjóns Jónssonar —
Bygggörðum 1 — Seltjarnarnesi — Simi 2-58-35