Helgarpósturinn - 29.08.1980, Side 41

Helgarpósturinn - 29.08.1980, Side 41
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR Föstudagur 29. ágúst 1980 13 Nýjar gerdir púströra frá Fjödrinni: Eykur endinguna um 70-80% við aluminiseringuna Sólning h.f.: SÓLUÐ DEKK JAFN GÓÐ OG NÝ SÉ HRÁ EFNIÐ GOTT Bila vörubúðin Fjöðrin er löngu kunn fvrir þjónustu sina við bifreiðaeigendur, i sam- bandi við púströra og hljóðkúta- sölu og viðgerðir. Fjöðrin á á þessu ári 25 ára afmæli. Hún var stofnuð árið 1955 og hefur allt til þessa smám saman verið að stækka við sig og bæta þjónustu sina við viðskiptavini. Sem nafnið bendir til var Fjöðrin i upphafi aöallega i sölu á fjöörum I bifreiöar, en fljót- lega var hafinn innflutningur og smiði á púströrum og hljóðkíit- um. Hjá Fjöörinni smiöa þeir púströri allar tegundirbifreiöa, enhljóökúta smiöa þeir aöeins i einstakar tegundir aöallega ameriska bila, svo og nokkrar tegundir jeppa og japanskra bila. Að sögn eins forráöa- manna fyrirtækisins þykir þaö hentugra, og ódýrara, að smiöa púströr hér heima, þar sem inn- flutt, koma þau áföst viö hljóö- kútana, og eru þar af leiöandi dýrari, heldur en hægt er aö framleiða þau i landinu. Nú i sumar flutti púströra- og hljóökútaverksmiðja fyrir- tækisins i nýtt og rúmgott hús- næöi I Skeifunni. Um leið var hafinn innflutningur á aluminiseruðum plötum i hljóö- kúta og aluminiseruöum rörum i púströrin. Við þessa aluminiseringu eykst endingar- timi pústkerfisins, og þaö ryög- ar mun seinna en áöur. Þessi framleiðsla er alveg ný af nál- inni hér heima, og er Fjöörin fyrsta fyrirtækiö sem býöur þessa þjónustu. „Þaö sem við erum að gera hér, er að við endurvinnum dekk sem orðin eru slitin og aukum þannig endingu þeirra' sagöi Gunnsteinn Skúlason forstjóri Sólningar hf. i Kópa- vogi er viö litum inn hjá þeim fyrir skömmu. Eins og fram kemur I oröum hans vinna starfsmenn Sóln- ingar að þvi að endursóla, og edurvinna að mestu leyti, gömul dekk sem oröin eru úr sér gengin. Þangað getur fólk leitaö meö dekk sem þaö vill fá sóiuð fyrir sumarið eða sumardekk sóluð fyrir veturinn. En hver eru gæði þessara hjólbaröa, sem einu sinni er búiö aö slita út? Gera þau sama gagn og nýir hjólbarðar? Viö inntum Gunnstein eftir þvi. ,,Ef viö náum i góö dekk, þar sem striginn er heill og óskemmdur undir, þá eru þau jafngóð og ný eftir endur- vinnslu. Fyrir utan þaö aö verðið er 100% lægra” sagði Gunnsteinn. „Einn þriöji hluti af hjól- barðaverðinu”, sagði hann enn fremur ,,er sólningin. Við höfum hér sérstaka kaldsóln- ingu, og útkoma úr henni er ekki verri en ef um ný dekk væri aö ræða. Til aö mynda má geta þess aö öll stærri bifreiöafyrir- tæki á landinu láta endursóla dekk bila sinna tvisvar til þrisvar á ári, i staö þess aö kaupa ný. Þetta hlytur aö vera geysilegur gjaldeyrissparn- aöur.” Hjá Sólningu hf. vinna aö meöaltali I kringum 20 manns, og er afkastagetan á dag á annaö hundraö fólksbiladekk, 12-14 vörubiladekk og 1-2 af vinnuvéladekkjum. Hjá þeim er hægt aö fá sóluö dekk á allt frá Austin Mini til stærstu vinnu véla. Fyrirtækiö hefur yfir aö ráöa sérstakri tölvustýröri endursólningarvél, sem sólar allarstæröir hjólbaröa. Þetta er eina vél sinnar tegundar hér á landi, mjög fullkomin og af- kaltamikil. Aö sögn Gunnsteins, eru aöal „sólningarvertiöirnar” tvær. A vorin þegar sumardekkin eru sett undir og svo á haustin þegar vetrardekkjatíminn kemur. En þá er lika nóg aö gera, þvi aö viö pössum okkur á þvi aö setja vetrardekkin ekki undir fyrr en fyrsti snjórinn er kominn á götrnar, en þá koma lika allir i einu. Sólning hf. er til húsa við Smiöjuveg i Kópavogi. Fyrir- tækiö er i eigin húsnæöi, og stendur til að stækka þaö fljót- lega. „Viö horfum fram á betri aöstööu i stærra húsnæöi með haustinu , og þar meö bættri þjónustu viö viöskiptamenn okkar” sagöi Gunnsteinn aö lokum. —AB „Endursóluð dekk eru jafngóð og ný sé hráefnið gott”, segja þeir í Sólningu h.f. Hér er verið að vinna að sólningu á gömlu dekki. Framleiddu yfir 11 milljónir skyr- og jógúrtdósa Þegar viö kaupum nauðsynja- vörur til daglegra nota, svo sem sápulög, tómatssósu, krydd- vörur, skyr, jógurt og fleira, hugsum við sjaldnast út f um- búðir þessara vara. Við tæmum plastumbúöirnar og hendum þeim sfðan. Sigurplast hf. er fyrirtæki sem framieiðirpiastumbúöir, flöskur, brúsa og þess háttar sem við sjáum og notum dag- lega. Þekktustu og mest notuöu dósirnar frá þeim eru líklega jó- gúrt- og skyrdósir Mjólkursam- sölunnar. En hjá þeim eru framleiddar allt frá litlum kryddglösum til stórra málningarbrúsa. Allt hráefni i dósirnar er inn- flutt frá Þýskalandi. Efnið er litlar plastkúlur, litiö stærri en hrisgrjón. Þær blandast saman i vélum og bræöa saman hinar ýmiss konar löguöu flöskur og glös. Hitinn við bræösluna er allt aö 200-250 gráöur á celcius. Framleiöslan er mikil hjá Sigurplasti og á siöastliönu ári framleiddi fyrirtækiö alls 3.3 milljónir glasa og flaskna undir vökva og hvorki meira né minna en 11.2 milljónir dósa undir skyr og jógúrt. „Þaö má segja aö vélar fyrir- tækisins séu i gangi allt áriö,” sagöi okkur Knud Kaaber for- stjóri Sigurplasts. „Það er unnið dag og nótt, á tólf tima vöktum. Okkur finnst það koma best út þannig, þar sem vél- arnar eru hannaðar meö þaö i huga að framleiöa mikiö magn I einu. Við notum stálmót til aö laga hin ýmsu glös og þau eru svo dýr að þaö er hag- kvæmara fyrir okkur aö hafa vélarnar gangandi allan sólar- hringinn” sagöi hann. Mótin sem Knud minntist á, eru lika framleidd hjá Sigur- plasti. Þaö eru eins og áöur segir stálmót, smíöuö á renni- verkstæði fyrirtækisins og er eitt mót fyrir hverja dós, flösku og brúsa sem framleidd eru. Sem dæmi um hver dýr þessi mót geta veriö, má nefna aö eitt mót fyrir jógúrtdós kostar úr 1 þessum vélum eru „soðnir saman” allra handa plastbrúsar og dósir, sem við notum daglega. stáli um 2-2.5 milljónir króna. Aðeins eitt mót. „Þetta dýra verö liggur i ná- kvæmnisvinnunni sem er á mótunum,” sagöi Kristján Sigurösson.,,Allt er svo hárfint og nákvæmt og þaö má ekkert fara úrskeiöis.” Sigurplast hf.- á viö sömu örðugleika aö striöa og önnur iönfyrirtæki i landinu. Þaö er framleiönin. Samkeppnin viö innflutninginn er afar hörö, aö þvi er Knud Kaaber forstjóri tjáöi okkur. Erlend fyrirtæki i þessari grein eru eins og i fleiri þeim kostum búin aögeta fram- leitt i mun stærra magni en fyrirtæki hér heima og þvi boðið vöru sína á hagstæöari kjörum. — AB Tilkynning frá Iðnlána- sjóði um breytt lánskjör Með samþykki ríkisstjómar hefur uerið ákveðin breytxng á lánskjörum nýrra íána Iðnlánasjóðs og tekur hún gildi 1. september 1980. Lánskjör Iðnlánasjóðs uerða þannig: Vélalán Lánstími 5-7 ár, vextir2,5%, lántökugjald 1%. Lánin eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu. Byggingarlán Lánstími 12—15 ár, vextir4%, lántökugjald 1%. Lánin eru verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu. Lánskjör eldri lána verða óbreytt. Reykjavík, 8. ágúst 1980. Iðnláiiasjóður Iðnaðarbankinn Lækjargötu 12 101 Reykjavík ! Sími 20580

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.