Helgarpósturinn - 17.10.1980, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 17.10.1980, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 17. október 1980. Elsku óvinur! Eru andstæðingarnir kannski vinir í raun? Almenningur hefur fulla ástæðu til að ætla, að grunnt sé á því góða milli ýmissa einstaklinga í þjóðfélaginu, ef sú mynd sem fjölmiðlar gefa af þeim reynist rétt. Hvað gera menn, þegar þeir hafa kannski rifist í umræðuþætti í sjónvarpinu og slökkt hefur verið á myndavélunum? Halda þeir áfram, eða eru þeir kannski bestu vinir þrátt fyrir allt. Helgarpósturinn hafði samband við nokkra menn, sem á margan hátt eru andstæðingar og spurði þá úm tilfinningarnar, sem þeir bæru til síns and- stæðings. Ólafur Ragnar Grfmsson og Vilmundur Gylfason Gamlir vinir Þingmenn Alþýöuflokks og Alþýðubandalags hafa löngum eldað grátt silfur saman og hafa verið ósparir á aö lýsa vanþóknun sinni á stefnu andstæðingsins. Tveir menn hafa kannski veriö hvað mest áberandi innan þessara flokka, en það eru þeir Vilmundur Gylfason og Olafur Ragnar Grimsson. En hvaö finnst þeim hvorum um annan, þrátt fyrir allar deilur i þinginu? „Mér vitanlega er þetta aldeilis ágætur maður og ég hef aldrei haft ástæöu til aö ætla annað, og það sem meira er við vorum skólabræður úti i Manchester i Englandi. Þaðber aö leggja á það áherslu, aö i svona ágreiningi milli flokka, skipta persónur manna engu höfuðmáli og eiga ekki að gera þaö. Maöur hefur heyrt, að þeim sem fellur ekki við Ólaf, finnist hann montinn og hrokafullur. I fyrsta lagi tek ég nú ekki undir þetta, og i öðru lagi, að jafnvel þó satt væri, finnst mér þaö ekki skipta neinu höfuðmáli”, sagöi Vilmundur um þennan and- stæðing sinn. En hvaða tilfinningar ber Olaf- ur Ragnar til Vilmundar? „Þær eru bara ánægjulegar. Hann er með skemmtilegri mönnum og við erum búnir að þekkjast hátt i tvo áratugi,” sagöi Ólafur. „Vilmundur hefur verið heldur róíegur upp á slðkastiö. Hvort það boöar það, að hann hyggi sér á meiri hægindi en áður, veröur timinn að leiöa I ljós. Það var ólikt meira drama I kringum hann áöur. Hann tók miklum stakkaskiptum þegar hann varð ráðherra, fór aö temja sér virðu- legri umræöustil, og það er ekki laust viö að sá still loði viö hann enn. Ég vona nú að gamli Vilmundur komi fljótlega aftur i ljós, þvi hann var að minum dómi skemmtilegri en ráðherra- Vilmundur.” „Venjulega skiptumst viö á bröndurum, segjum sniöugar fréttir og göntumst við aðra þingmenn”, sagði óiafur um samskipti þeirra utan þingsala. Vilmundur tók mjög i sama streng og sagöist ekki vita annað en aö persónulega væru allir hlut- ir I stakasta lagi. „Hitt er svo annaö mál”, héit Vilmundur áfram, „og þar vil ég alveg skipta á milli, aö mér þykir ákaflega litiö til Alþýöubanda- lagsins koma sem stjórnmála- flokks, og ég er stundum þeirrar skoöunar, aö Ólafur sé á rangri hillu.” Sem dæmi um þaö nefndi Vilmundur vaxtamálin. Þar tal- aði Ólafur gegn eigin viti og visku, að mati Vilmundar, og hann væriekki frekar marxisti en Geir Hallgrimsson. Báöir fullyröa að það hafi varla slest upp á milli þeirra i einka- samræðum. „Við þekktumst áður en við byrjuöum að hafa afskipti af stjórnmálum og ég held að þau vegi þyngra en ágreiningur okkar á milli”, sagði Ólafur. Þeim virðist þvi gott til vina og hefur hvorugur neitt á móti þvi að vinna með hinum, þött pölitiskir andstæðingar sfeu, og hafa unnið saman. „Við höfum flutt saman þingmál og höfum staðiö i baráttu fyrir sameiginlegri gagnrýni á margt i okkar stjórnkerfi, og sér- staklega á okkar fyrsta þingi stóðum viö saman I mikilli baráttu viö eldri þingmenn um vinnubrögð i nefndum þingsins. Sú barátta er jafnt og þétt aö bera árangur. Hins vegar harma ég þaö, aö Vilmundur og aðrir skyldu hlaupa úr vinstri stjórninni á sinum tima, og held að sagan eigi eftir að sýna, að þaö hafi verið þeirra stærstu mistök”, sagöi ólafur Ragnar. Vilmundur sagði, aö alveg burtséð frá einstaklingnum Ólafi Ragnari Grimssyni, gilti slik samvinna yfir alla llnuna. „Auövitaö hefur maður mismun- andi þokka á einstakling, það hafa allir menn. En ef þú ert að spyrja um þennan tiltekna mann, þá er það ágætur þokki”, sagði Vilmundur. Davið Scheving Thorsteinsson og Guðmundur J. Guðmundsson. Báðir hafa húmor „Ég ber engar slæmar tilfinn- ingar til hans sem persónu og ber engan persónulegan kala til hans. Hins vegar erum við sorottnir upp úrákaflega ölikumjarðvegiog erum fulltrúar ákaflega óllkra afla.” Þetta sagði Guömundur J. Guðmundsson, formaöur Verka- mannasambands Islands, um Davlö Scheving Thorsteinsson iðnrekanda, en þeir hafa að undanförnu setið saman á. samn- ingafundum, þar sem litið hefur miöað i samkomulagsáft, eins og öllum er kunnugt. En hvernig skyldi Davlð hugsa til Guð- mundar? „Ég ber ákaflega hlýjar tilfinn- ingar til hans. Mér þykir hann skemmtilegur og mér llkar vel við hann”, sagði Davlð. Af fréttum má vera ljóst, að ekki eru þeir félagar sammála á samningafundum, en hvernig fer á með þeim þar fyrir utan? „Það fer vel á með okkur á samningafundum lika”, sagði Daviö, „þó við séum ekki sam- mála. Þau samskipti eru öll heiðarleg og það eru engin högg fyrir neöan beitisstað, sem eiga sér stað. Viö getum sagt það, sem við viljum beint út hvor við ann- an, án þess að það misskiljist. Þaö sama á sér stað fyrir utan karphúsiö.” Guðmundur er sammála og segir, að það fari fjandi vel á með þeim, Daviö hafi húmor og sé glaðsinna. „Við reynum yfirleitt góðlátlega aö koma höggi hvor á annan og vera dálitið fyndnir á kostnað hins. Ég held aö viö séum ákaflega kátir þegar við hittumst fyrir utan samningafundi og eig- um þaö jafnvel til sameiginlega aö reyna aö striða einhverjum öörum, eða gera einhver skemmtilegheit. Það er fjarri þvi aö hann sé leiöinlegur”, sagði Guömundur. Aldrei hefur kastast alvarlega i kekki milli þeirra fyrir utan þref á samningafundum, þó harmar Davið það, að hann hafi aldrei fengið að Ijúka við að skipta kök- unni sinni hér um árið. Guömundur hafi farið að skipta sér af þvi, sem hann hefði aldrei áttað gera. „Það er það alvarleg- asta, þegar hann eyðilagði það fyrir mér”, sagöi hann. Guðmundur sagði, aö hinsveg- ar hefði oft slegið I ákaflega harða brýnu á milli þeirra á samningafundum. Það væri ekkert auðvelt að pakka honum saman, „en sviptingar á milli okkar eru oft ansi harðar”, sagði Guðmundur. En gætu þessir heiðursmenn hugsað sér aö vinna sem einn maður að framgangi einhvers máls, þar sem þeir væru ekki andstæðingar? „Já, ég get þaö ákaflega vel”, sagði Guðmundur. „Það er atorka I honum, hann er áræðinn. Við höfum kannski ólíkan vinnu- stil, en þar sem við værum sam- mála, gæti ég vel hugsaö mér að vinna meö honum aö ýmsum málum.” „Ekki sæi ég neitt á móti þvl aö eiga i fyrirtæki meö Guðmundi og stjórna þvl meö honum. Þaö held ég aö gæti gefist mjög vel. Hann mundi þá kynnast þvi hvernig það er aö reka fyrirtæki á Islandi undir skilyröum óðaveröbólgu. Ég gæti vel hugsaö mér þaö”, sagði Davið Scheving Thersteins- son. Hreinn Haildórsson og Óskar Æfa saman Mörkin milli andstæöinga i Iþröttum eru kannski hvergi skýr ari en I einstaklingsgreinum frjálsra iþrótta, þar sem það er undir hverjum og einum komiö hveraig árangur hans er. Hreinn Halldórsson og Óskar Jakobsson hafa aö undanförnu verið hvaö harðastir keppinautar i kúluvarpi og voru þeir spuröir að þvi, hverj- ar tilfinningar þeir hefðu til sins höfuð andstæöings. „Ég ber eingöngu góðar tilfinn- ingar til hans, viö erum engir óvinir”, sagði Hreinn. „Ég held að okkur komi vel saman, en eins og gengur og gerist, þegar menn eru komnir I keppni, eru þeir ekki beint vinir á meðan á henni stendur, heldur andstæðingar. En fyrir utan það erum viö mjög góðir félagar.” Óskar tók mjög I sama streng og sagði, að hann bæri góðar til- finningar til Hreins. „Við erum góðir félagar og engir óvinir. Viö ýtum undir hvorn annan og hann hefur hjálpað mér mikiö i keppni, bæði hér heima og erlendis”, sagði Óskar. Hreinn sagði, að það væri mjög misjafnt hvaö menn geröu til aö ná sem bestum árangri. „Mér finnst það ekki slður gott aö hvetja þann, sem er við hliðina á mér, heldur en að niöurlægja hann, eða eitthvað þvlumlikt”, sagði hann. Óskar sagði að þótt þeir ýttu þannig hvor undir annan 1 keppni, liti hann alltaf á Hrein sem keppi- naut. „Þegar ég fer I keppni, er það takmark mitt að vinna hann og ég er ekkert aö leyna þvi. Ef hann er með betra kast, reyni ég mitt besta til að ná þvi kasti. Og ef ég er meö lengra kast en hann, gerir hann örugglega það sama. Til gamans má geta þess, aö við kepptum 13 sinnum i sumar og vann Hreinn sjö sinnum, en ég sex, svo það hefur eitthvaö gengið á", sagði hann. En hvernig skyldi þá fara á með þeim fyrir utan keppni? „Ég held að við séum persónu- legir vinir”, sagði Óskar. „Það fer mjög vel & með okkur. Við erum eins og venjulegir menn, sem hittast, góðir félagar. Til dæmis um það hve okkur kem- ur vel saman, tók óskar það á sig að lofa mér að liggja inni hjá sér i tvo mánuði erlendis I fyrra og það kom ekki upp neitt deilumál allan þann tlma, þannig aö fyrir utan keppni, kemur okkur vel saman”, sagöi Hreinn. Aðspurður um hvort einhvern tima hefði kastast alvarlega 1 kekki á milli þeirra, svöruðu þeir þvl báðir neitandi. „Eins og gengur og gerist, koma upp ágreiningsmál, en þau eru aldrei þaö djúpstæö, að þaö verði neitt úr því”, sagöi Hreinn. Þeir voru að lokum spurðir að þvl hvort þeir ættu þá auövelt að vinna hvor meö öðrum. Þeir svöruðu þvi báöir játandi og Hreinn sagði, að þeir æföu saman eins og þeir gætu og þeir kæmu til meö að æfa enn meira saman, þegar árangurinn væri orðinn þetta jafn hjá þeim. „Viö höfum æft mikið saman”, sagði Óskar.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.