Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 17.10.1980, Qupperneq 16

Helgarpósturinn - 17.10.1980, Qupperneq 16
Murta úr Þingvalla vatni Magnús Tómasson leggur til helgarréttinn að þessu sinni, sem er murta úr Þingvalla- vatni. Er réttur þessi ágætur sem Iéttur aðalréttur eða sem forréttur. Takið murtu úr Þing- vallavatni, nýja eöa frysta (einnig má nota murtu úr dósum). Fiskurinn er slægöur og þurrkaöur á bréfþurrku. Hún er slöan látin soöna I smjöri viö fremur vægan hita og henni velt til þess aö hún brúnist ekki. Þá er sáldraö yfir murtuna salti eftir smekk, siöan ca. 2 mat- skeiöum af persilju og ööru eins eöa meira af nýrri saxaðri dild og loks einni kúfaöri teskeiö af estragon. í þetta er bætt einu Magnús Tómasson myndlistar- maður. glasi af þurru hvítvini. Látiö þetta malla smástund. Þessi réttur skal snæddur meö glænýju smælki, helst beint úr garöinum i pottinn og löngu franskbrauöi (flautubrauöi). Gott er einnig aö drekka Rlnar- vin meö og munið aö hafa pipar einnig viö höndina. Frá æfingu undir haustskemmtun Fóstbræðra. Eftir fjögurra ára hlé: Fóstbræðrasöngur, grín og gaman Það verður „Söngur, grin og gaman” hjá Fóstbræðrum og styrktarfélögum þeirra I Fóst- bræðraheimilinu viö Langholts- veg næstu fjórar helgar. Kórinn stóð fyrir skemmtunum undir þessu nafni árið 1976, og þóttu þær þá takast svo vel, að fyrirspurn- um um framhald þeirra hefur varla linnt siöan. Þar til þráður- inn var tekinn upp að nýju nú, fjórum árum siöar. Aö sjálfsögöu mun kórinn syngja nokkur lög á skemmt- unum þessum, en auk þess veröur á dagskrá bæöi kvartettsöngur og einsöngur. Slöan veröa fluttir nokkrir stuttir grinþættir undir stjórn fóstbræörakvenna, sem eru eiginkonur fóstbræöra, en þær hafa samið nokkra þessara þátta sjálfar. Stjórnandi skemmtananna veröur Þorgeir Astvaldsson „skonrokkari” meö meiru, en hann er sjálfur einn af fóstbræörum. Aö dagskránni lok- inni veröu dansaö fram til klukkan þrjú. Fyrsta skemmtunin veröur á laugardagskvöldiö, en siöan veröa þær föstudags- og laugar- dagskvöld næstu þrjár helgar. Aögöngumiöar veröa afhentir i Fóstbræöraheimilinu þá daga sem skemmtanirnar fara fram, en tekiö á móti pöntunum daginn áöur og samdægurs. Haustskemmtunum „Söngur, ’grin og gaman” er fyrst og fremst ætlaö aö efla tengsl og samstarf kórsins viö styrktarfélaga, sem aö sögn kórfélaga eru óhemju margir, svo vart verður komiö á töiu. En aö sjálfsögöu er i og meö um aö ræöa fjáröflun til starfsemi Fóstbræöra. j Pizzap\ Heimsendingarþjónusta^ Pöntunarsími 13340. Pizza Bella Italia (M/tómat, osti, sardínum og ólivum) Pizza Calzone (M/tómat, osti og skinku) Pizza Fiorentina (M/tómat, osti og aspas) Pizza Caruso (M/tómat, osti.salami og lauk) Pizza Marinara (M/tómat, osti, krœkling og rækjum) Pizza Pazza (M/tómat, osti, lauk og papriku) Pizza Campagnola (M/tómat, osti og sveppum) Pizza Margherita (M/tómat og osti) Skiðafólk veröur að láta gamla skálann nægja einn vetur enn — en það stendur til bóta með brekkuna sem sést í baksýn. Og stólaiyftan fær aðhvfla sig enn um sinn (mynd: Jim Smart). Ýmislegt á döfinni í Bláfjöllum: Skíðamiðstöð, vegarlagning og upplýst göngubraut Skiðaiðkendur I Reykjavik og nágrenni hefur sjálfsagt kitlað I iljarnar undanfarna góðviöris- daga viö aö horfa á snjóhvit Blá- fjöllin i fjarska. En þau eru bara alhvit tilsýndar. Þegar komiö er nær sést, að þaö er iangt frá þvi að kominn sé skiðasnjór, enda byrjar veturinn ekki formlega fyrr en 2 5. þ.m. — Ég mundi nú ekki treysta á þennan snjö. Til þess er hann of laus og þaö þarf ekki nema eitt Urhelii til aö hann hverfi allur. En þó er meiri snjór hér en á sama tima og i fyrra, og ef hann rignir ofan i þetta og frýs siöan er komiö gott undirlag fyrir afbragös skiöafæri, sagöi Þorsteinn Hjaltason viö Helgarpóstinn, þegar viö hittum hann þar efra i vikunni. Þorsteinn og menn hans hafa unnið undanfariö aöýmisskonar endurbótum og lagfæringum á skiðalandinu i Bláfjöllum, og ber þar hæst byggingu skiöamið- stöövar. NU er veriö aö leggja siö- ustu hönd á kjallara hennar, en stefnt er aö þvi, aö hUsiö veröi fullbUiðfyrir næsta vetur. Viö þaö batnar aöstaðan i Bláfjöllum til muna, bæöi fyrir almenning og starfsmenn. Um leiö og hUsið veröur tekiöi notkun leysast þau vandkvæöi sem hafa veriö á snyrtiaöstööu. Gerö hefur verið rotþró viö hUsiö, og um tveggja kilómetra löng skólpleiösla lögö Ut fyrir vatnasvæöi fölkvangsins. interRent car rental Bílaleiga Akureyrar Akureyri Reykjavik TRYGGVABRAUT 14 SKEIFAN 9 S. 21715 23515 S. 31615 86915 Mesta úrvallð, besta þjónustan. Vlð útvegum yöur afslótt á bilaleigubilum erlendls. En þaö sem kemur sldöafólki aönotum strax i vetur er lagning vegarspotta aö gamla skálanum og sá umferöarhnUtur sem þar myndaöist oft þannig leystur meö hringakstri, og 2,6 ktlómetra löng upplýst göngubraut. Þaö siöar- nefnda er skiöagöngumönnum einkar kærkomiö. Þaö gefur þeim möguleika á aö skreppa i styttri skiöaferöir á kvöldin eftir vinnu, sem hefur hingaö til aöeins veriö mögulegt fyrir svigfólkiö, og gefur aukna möguleika á göngu- iðkun i skammdeginu. Þá hefur stórvirk jaröýta unniö aömiklum jaröabótum fyrir svig- fólk uppi i brekkunum. Brekkan noröan viö st'olalyftuna, sem sumum þótti I erfiöara lagi, hefur veriö löguö, og hæö þar fyrir ofan sem haföi tilhneigingu til aö standa upp Ur snjónum jöfnuö Ut. Litiö hefur hinsvegar gerst I vegamálum i Bláfjöllum. Eitt- hvað veröur þó slett ofan I verstu kaflana, aö sögn Þorsteins Hjaltasonar. Hinsvegarveröur aö öllum likindum jaröýta staösett uppfrá eins og seinnipartinn i , fyrravetur, en þaö þýöir aö lokist vegurinn tekur mun skemmri tima aö opna en áöur, meöan sækja varö jaröýtu til Reykja- vikur. En þaö hillir samt undir stór- framkvæmdir i vegamálum á Bláfjallasvæðinu. Vegur frá Hafnarfiröi er á fjárlögum þessa árs, og aö sögn Rögnvalds Jóns- sonar verkfræöings h já Vegagerö Galdrakarlar Diskótek rikisins hafa þegar veriö geröar mælingar og athuganir á vegar- stæöinu. Vegurinn mun liklega liggja frá Krýsuvikurvegi, meö- fram Lönguhliöarfjalli og fyrir neöan Kristjánsdalshorn og inn á Bláfjallaveg, eöa vestan Köngs- fells upp aö lyftunum og veröur um 18 kilómetrar. Vegageröin hefur fylgst meö snjóalögum á þessari leiö undanfarin tvö ár, en aö sögn Rögnvaldar þarf aö fylgj- ast meö þám einn vetur enn.Sér- staklega þarf aö athuga nánar snjöalög i Undirhliöum. Fram- kvæmdir viö vegarlagninguna hefjast væntanlega i vor, og reikna má með þvi, aö verkiö taki ein tvö til þrjú ár. Hvenær má svo búast við, aö hægt veröi aö fara á skiöi i Blá- fjöllum? Viö spuröum Þorstein Hjaltason aö þvi. —-Ég þori ekki aö ábyrgjast gott skiöafæri fyrr en i næsta mánuöi, þótt það megi sjálfsagt þegar finna sæmilegar brekkur hérna. En grjótið stendur viöa upp tir, svo þaö væri glæfralegt aö byrja strax sagöi hann. ÞG. Þorsteinn Hjaitason viö kjallara skiðamiðstöðvarinnar I Blá- fjöllum. Ofan á kjallaranum verður reist timburhús, og ætlunin er að það verði tilbúið næsta haust. (Mynd: Jim Smart)

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.