Helgarpósturinn - 17.10.1980, Page 27
27
___hpp/lJFirpn<?// irinn Föstudagur 17. október 1980
Um það leyti sem síöustu grösin
gulna á Austurvelli og haustnæö-
ingurinn feykir siöustu laufunum
af trjánum, er eins og gróskan
laumist inn um dyr Alþingishúss-
ins og leiti þar skjóls meöan Vet-
ur konungur rikir utan dyra. Upp
spretta þingmenn og blómstra,
munnhöggva mann og annan og
falla kannski i valinn i dag aöeins
til að risa upp á morgun og koma
sér i slaginn á nýjan leik. Og úti
er friður rikisstjórnar til aö fara
öllu sinu fram án þess að þurfa aö
standa jafnóðum þingmönnum
skil á geröum sinum.
Mildur andvari sumarsins hef-
ur lika tekið með sér siðustu leyf-
arnar af timburmönnum tvennra
kosninga, svo að nú er runninn
upp sá timi að menn verða að
Benedikt
Kjartan
Munu brædur berjast?
horfast i augu við staðreyndir og
gera hreint fyrir sinum dyrum.
Flokksþing og landsfundir eru á
næsta leiti, og geta orðið næsta
sögulegir — nema hjá
Framsóknarmönnum. Eins og
góðum búmönnum sæmir höfðu
þeir lokið hreingerningunum af
áður en veislan hófst, svo að þeir
sitja nú aðeins uppi með harð-
sperrurnar. Alþýöuflokksmenn
riða á vaðið með flokksþing um
næstu mánaðamót, en Alþýðu-
bandalagið mun sigla i kjölfarið
með flokksþing sitt litlu siðar.
Sjálfstæðismenn ætla hins vegar
að draga landsfund sinn fram á
vorið, en eru þegar farnir að búa
sig undir tiltektina, enda biður
þeirra mikið verk eins og allir
mega vita.
Það sem við blasir hjá öllum
þessum þremur siðastnefndu
flokkum er að koma forustumál-
um sinum á hreint. Þar er auðvit-
að vandinn mestur hjá Sjálf-
stæðismönnum, sem engan þarf
að undra og ómögulegt er að spá
neinu um hvernig þeim málum
reiðir af. Hjá Alþýðubandalaginu
er formaður flokksins Lúðvik
Jósepsson, sestur i friðarstól nú
þegar og hefur lýst þvi yfir að
hann verði ekki aftur i kjöri. Hins
vegar verða engin átök um eftir-
mann hans i formannssætið og
varla nema formsatriði eftir til að
Svavar Gestsson, félagsmálaráð-
herra, geti tyllt sér i það. En at-
hyglin beinist nú að flokksþingi
Alþýðuflokksins um mánaðamót-
in næstu enda skemmst i það.
Margt er óljóst um hvaða
stefnu flokksþing þeirra Alþýðu-
flokksmanna muni taka. Framan
af var búist við að þingið yrði eins
og hvert annað flokksþing með
hefðbundnu sniði, en upp á sið-
kastið hafa aukist likurnar á þvi
að afgreiðsla venjulegra dag-
skrármála muni falla i skugga
annarra og stærri tiðinda — þ.e.
að Benedikt Gröndal verði ekki
einn i framboði i formannskjöri.
Þetta á sér sinn aðdraganda.
Alþýðuflokkurinn hefur ekki
sterka stöbu i islenskum stjórn-
málum um þessar mundir.
Aróðurslega hefur brotthlaup
flokksins úr rikisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar i fyrrahaust, sem
átti að færa kjósendum heim
sanninn um að þarna færi flokkur
er legði allt I sölurnar til að vera
sjálfum sér samkvæmur, ekki
skilað þeim árangri sem flokks-
menn væntu. Þvert á móti virðist
andstæðingunum hafa tekist að
snúa þessu áróðursvopni i hönd-
um Alþýðuflokksmanna, og kom-
ið þvi inn hjá býsna mörgum
kjósendum að Alþýðuflokkurinn
sé i hæsta máta óábyrgur flokkur
og óhæfur til samstarfs.
Nýleg skoðanakönnun á fylgi
flokkanna virðist staðfesta þetta,
þvi að samkvæmt henni mundi
Alþýðuflokkurinn tapa enn fylgi
frá þvi sem var i siðustu kosning-
um, þótt færa megi rök fyrir þvi
að flokkurinn geti vænst stærra
hlutfalls af atkvæðum hinna fjöl-
mörgu sem ekki tóku afstöðu i
skoðanakönnuninni. Allt hefur
þetta orðið til þess, að innan
flokksins sjálfs hefur óánægjan
magnast stöðugt með frammi-
stööu forustunnar og skuldinni er
óhjákvæmilega skellt á leiðtog-
ann, sem hefur að auki ekki þótt
nægilega skeleggur kappræðu-
maður né röggsamur talsmaöur
flokksins i opinberri stjórnmála-
umræöu upp á siðkastið, en slikt
er að verða frumskylda manns i
þeirri stöðu á þessari sjónvarps-
öld.
Benedikt Gröndal á þvi undir
högg að sækja jafnt innan flokks
og utan um þessar mundir. 1
flestum skúmaskotum og á lokuð-
um fundum flokksmanna gerast
kröfurnar háværari um að skipt
verði um formann. Benedikt hef-
ur hins vegar lýst þvi afdráttar-
laust yfir að hann muni gefa kost
á sér aftur og er engan bilbug á
honum aö finna. Hann hefur iika i
tvigang eftir aö hann varð for-
maður þurft að berjast upp á lif
og dauða fyrir pólitiskri tilveru
sinni og haft betur i bæði skiptin.
En i þetta skipti er vigstaða hans
sýnu verri.
Meðal flokksmanna er Kjartan
Jóhannsson óumdeildur arftaki
Benedikts. Kjartan liggur nú und-
ir gifurlegum þrýstingi frá fjöl-
mörgum flokkssystkinum sinum
um að setja Benedikt úrslitakosti
— að hann dragi sig i hlé og
Kjartan taki við formennskunni
átakalaust eða skora hann á hólm
Flokksþing Verkamanna-
flokksins breska i Blackpool i
mánaðarbyrjun skildi við flokk-
inn I reiöileysi. Samþykkt var á
þinginu að gerbreyta stefnu
flokksins og umturna vali for-
ingja og mótun kosningastefnu-
skrár. Hins vegar visaði þingið á
bug öllum tillögum sem fyrir lágu
um framkvæmd skipulagsbreyt-
inganna.
NU stendur Verkamanna-
flokkurinn þar á ofan uppi höfuð-
laus. James Callaghan hefur
ákveðið að láta af flokksforustu.
Það þýöir að innan mánaðar
veröur nýr flokksforingi valinn
samkvæmt reglum sem flokks-
þing hefurákveðiö að afnema. En
siöan skal aö ákvöröun flokks-
þingsins heyja aukaþing i janúar
um stefnu flokksins. Þó eru niöur-
stööur flokksþings i stefnumálum
þvi aöeins bindandi, að þær séu
gerðar með tveim þriðju at-
kvæða.
Foringi Verkamannaflokksins
erhins vegar valinn i þingflokkn-
um, og þar þarf til kjörs hans
hreinan meirihluta. Siöan setur
flokksforinginn flokknum
kosningastefnuskrá, þegar að
þingkosningum liður, og það er
hún en ekki ályktanir flokksþinga
sem liggur til grundvallar stefnu
rikisstjórna sem Verkamanna-
flokkurinn myndar.
Um langan aldur hefur vinstri
armur Verkamannaflokksins
ráðiö flokksþingum en hægri
armurinn þingflokknum. Stjórn-
list tveggja siöustu flokksfor-
James Callaghan
Valdabaráttan magnast
í Verkamannaflokknum
til aö setja þær reglur um val
flokksforingja sem þingfulltrúar I
Blackpool reyndust ófærir um aö
ákveöa. Þar meö er búiö i haginn
fyrir höggorustu um hvort nýval-
inn flokksforingi kjörinn með
gamla laginu, skuli láta af starfi
ogleitakjörsá ný með þeim hætti
sem ákveðinn kann aö verða i
janúar. Hefur margur flokkur
klofnað út af minna.
Skipulag Verkamannaflokksins
er tviskipt. Annars vegar er
flokksþing og hins vegar þing-
flokkur. Flokksþingið sitja jöfn-
um höndum fulltrúar tiltölulega
fámennra flokksfélaga I kjör-
dæmunum og fulltrúar verka-
lýðssambandanna, sem fara með
atkvæöi sem nemur tölu félags-
manna i viðkomandi sambandi,
hvort sem þeir eru fylgismenn
flokksins eöa ekki. Þetta flokks-
þing kýs flokksstjórn og ályktar
ingja, Harolds Wilsons og James
Callaghans, hefur verið i þvi
fólgin að hemja þessi sundur-
þykku öfl þannig aö flokksmynd
væriá.Þaðhefur tekist bærilega i
stjórnarandstööu hingaö til, en
þaö orð liggur á að rikisstjórnir
WilsonsogCallaghanshafi reynst
meö afbrigðum illa vegna stefnu-
leysis og athafnalömunar af þess
völdum.
Svo mikið er víst að stjórnarferli
Callaghans lauk i fyrra meö
herfilegri útreiði þingkosningum.
Þá fékk Verkamannaflokkurinn
lægstu hlutdeild i greiddum at-
kvæöum siöan 1931. og Margaret
Thatcher myndaði siðan ihalds-
stjórn með óvigan meirihluta á
þingi.
Meginástæðan fyrir óförum
Verkamannaflokksins i kosning-
unum var öngþveiti sem rikti i
Bretlandi á útmánuðum 1979 af
völdum stjórnlausra verkfalla.
Verkalýössamböndin rufu sam-
komulag viö rikisstjórnina um
kjarastefnu og háðu innbyrðis
kjarakapphlaup, sem á hörðum
vetri bitnaði harkalega á almenn-
ingi, sem slðan hóf Margaret
Thatcher til valda, meöal annars
af þvi að hún hét þvl aö hafa
hemil á verkalýösfélögunum.
Hafa þau haft mun hægar um sig
siðan járnfrúin settist á valdastól
en meöan Callaghan fór með
völd.
Engu að siður setti Callaghan
traust sitt á foringja verkalýös-
sambandanna I valdabaráttunni
sem braust út i Verkamanna-
flokknum i kjölfar kosninga-
ósigursins I mai 1979. Þá mótaði
vinstri armurinn tillögur þær um
skipulagsbreytingar, sem náðu
fram að ganga á flokksþinginu I
Blackpool. Þær eru þriþættar. I
iharðri kosningu á flokksþinginu.
Kjartan er ekki I öfundsveröri
aðstööu. Það hlýtur að vera allt
annað en skemmtilegt að takast á
við góðan félaga og samherja um
langt skeið, sem helgaö hefur
flokknum starfskrafta sina að
miklu leyti, og er þekktur fyrir
þægilegt viðmót og drenglyndi.
En treysti Kjartan sér hins vegar
ekki gegn formanninum, á hann
það aftur á móti á hættu að liggja
undir verulegu ámæli meðal
flokkssystkina þróist mál á þann
hátt að til kosninga komi, þar sem
flokkurinn biði frekara afhroö
undir forustu Benedikts. Slikt
gæti kostað Kjartan formennsk-
una fyrir fullt og allt.
Hingað til hefur Kjartan látið
sem hann hafi ekki gert upp hug
sinn i þessu efni, og á opinberum
vettvangi hefur hann svaraö þvi
einu til aö hann hafi aldrei skor-
ast undan þvi að taka á sig ábyrgð
innan flokksins, hafi samherjar
hans æskt þess. Þegar þetta er
skrifaö eru hins vegar vaxandi
likur á þvi að Kjartan muni láta
undan þessum þrýstingi og gefa
kost á sér i formannsembættið á
flokksþinginu. Þá stefnir allt i að
kjósa verði milli Benedikts og
Kjartans á þinginu, og eftir öllum
sólarmerkjum þessa stundina að
dæma mundi Kjartan hafa þá
kosningu.
Þar með mundi flokksþingið
jafnframt þurfa að kjósa sér
nýjan varaformann flokksins.
Þar koma ýmsir til álita en
nokkrir eru sigurstranglegri en
aðrir. Óhjákvæmilega eru þeir
nefndir, Vilmundur Gylfason og
Sighvatur Björgvinsson, en hvor-
ugur stendur nægilega vel innan
flokksins þessa stundina að þeir
geti talist liklegir til að hljóta
þennan frama. Mun sennilegra er
að baráttan geti staðið milli
Magnúsar Magnússonar og Jóns
Baldvins Hannibalssonar. Hinn
siðarnefndi er liklega sá af
áhrifamönnum Alþýðuflokksins
sem mestrar lýðhylli nýtur, jafnt
meðal almennra kjósenda og al-
mennra flokksmanna og er
manna liklegastur til að höfða til
lausafylgisins sem flokkurinn á
svo mjög undir komið. Styrkur
hans innan þessarar 160 manna
samkundu sem flokksþingiö er
telst hins vegar óljós. Margir
INNLEND
YFIRSÝN
ERLEND
fyrsta lagi er val flokksforingja
tekiö úr höndum þingflokksins
eins og flokksstjórn og forustu
verkalýössambandsins veitt hlut-
deild i þvi. I ööru lagi er flokks-
foringinn sviptur úrslitavaldi um
mótun kosningastefnuskrár og
hún falin nefnd sömu aöila og
fjalla um foringjakjöriö. 1 þriöja
lagi er framboðsnefndum flokks-
félaga í' kjördæmunum veitt vald
til aö afsegja þingmenn á miöju
kjörtimabili og velja aðra til
framboös i næstu kosningum.
Þessar skioulagsbreytingar
skulustanda i þrjú ár að minnsta
kosti, og veiröa því enn viö lýöi
árið 1984 þegar yfirstandandi
kjörtimabil breska þingsins
rennur út.
Þótt Callaghan færi framá per
sónulegar ástæður fyrir afsögn
sinni, er enginn vafi á aö ósigur-
inn d flokksþinginu veldur mestu
um að hann hefur ákveöiö að
draga sig í hlé. Og nú kemur til
kasta þingflokksins eins að velja
nýjan flokksforingja, af þvi
flokksþingið gat ekki komiö sér
saman um skipun nýju stofnunar-
innar, sem það ákvað að fram-
vegis skuli faliö að velja leiötog-
ann.
Atkvæöagreiöslur I þingflokkn-
um geta oröiö þrjár ef enginn fær
hreinan meirihluta atkvæöa i
tveim þeim fyrri. Orslit fyrstu at-
kvæöagreiöslu munu liggja fyrir
4. nóvember, en þurfi þrjár at-
rennur dragast úrslit fram til 13.
nóvember, þingsetningardags I
Bretlandi.
Mestar sigurlikur hefur Denis
Healey, foringjaefni hægri arms
þingflokksins. Stafar það meðal
annars af þvf hve foringjaefni
vinstri armsins eru mörg. Þar
hafa ekki gleymt þvl aö Jón er
flokkaflakkari, eiginlegur ný-
græöingur i flokknum og gæti átt
þaö til að vera brokkgengur, eins
óghann ákyn til. Þá telja margir
hann hægri krata og litlir kær-
leikar eru meö honum og verka-
lýöshreyfingunni. Eins þykja þeir
Kjartan hafa nokkuð svo
svipaöan bakgrunn, báöir upp-
teknir af efnahagsmálum og þvi
velta einhverjir þvl fyrir sér
hvort svo svipað þenkjandi menn
séu heppilev samsetning flokks-
forustu.
Magnús Magnússon nýtur á
hinn bóginn mikillar virðingar
margra traustra flokksmanna —
einkum þó þeirra sem töldu
rikisstjórnarbrotthlaupið frum-
hlaup — og er vinsæll vei innan
verkalýðsarmsins. Félagsmálin,
hinn forni hornsteinn jafnaðar-
stefnunnar, eru hans ær og kýr og
hann gæti þannig myndað vísst
mótvægi við Kjartan i forustunni.
Magnús er hins vegar fulltrúi
dreifbýliskjördæmis og það getur
orðiðhonum fjötur um fót, þvi að
Reykjavíkurliðið mun trauðla
vilja láta úr greipum sér ganga i
fyrsta sinn öll þrjú höfuðembætti
flokksforustunnar, þar sem rit-
arinn er einnig Reyknesingur —
Karl Steinar Guðnason. Þvi má
vel vera að upp komi mála-
miðlunarkandidat — þriöji þing-
maður Alþýðuflokksins i
Reykjavik, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, vinnusamur stjórnmála-
maður með tengsl inn i verka-
lýðshreyfinguna og þar með yrði
Alþýðuflokkurinn fyrstur flokka
hér til að leiða konu til hásætis
islensks stjórnmálaflokks á þess-
um dögum kvenfrelsis.
En allt eru þetta vangaveltur
um óorðna hluti, sem ekki skýrast
fyrr en næstu daga. Vel má vera
að ekkert af þessu komi á daginn
og flokksþingið verði eins og
hvert annað vinnuþing, þar sem
rætt verði um flokksstarfið,
islenska atvinnuvegi i fram-
tiöinni, um stjórnarskrármálið.
stjórnskipun á Islandi og stjórn-
málaviöhorfið — og Benedikt
verði einn i l.jöri til formanns. En
það mim ðlga nndir niöri.
eftir
Björn
Vigni
Sigurpálsson
koma til greina Michael Foot,
Tony Benn, Peter Shore og John
Silkin að minnsta kosti, þótt enn
sé óvlst aö þeir gefi allir kost
á sér.
Verði Fealey fyrir valinu I
þingflokknumi, stefnir i haröa
rimmu á aukaþinginu i janúar,
sem setja skal nýju reglurnar um
framkvæmd foringjakjörs. Ekki
er vafi á aö vinstri armurinn mun
krefjast þess aö flokksforinginn,
sem þingflokkurinn velur á næstu
vikum, gangist undir kjör að nýju
eftir breyttum reglum. Jafn víst
er að ekkert knýr nýkjörinn
flokksforingja til aö verða viö
slikri kröfu. Hann er valinn eftir
réttum reglum á þeim tima sem
kjör fer fram og getur þess vegna
setið út kjörtímabilið.
Horfur eru þvi þær, aö valda-
baráttan i Verkamannaflokknum
eigi enn eftir að magnast. Það
gerist samtimis þvi að fylgi við
ihaldsstjórn frú Thatcher fer
stórum rénandi samkvæmt skoö-
anakönnunum. Þessari þróun
spáði Roy Jenkins, fyrrum
Verkamannaflokksráðherra og
nú formaður framkvæmda-
stjórnar Efnahagsbandalags Ev-
rópu, þegar hann lét i ljós fýrir
nokkru áhuga á að hefja á ný
þátttöku 1 breskum stjórnmálum
að liönu ráöningartimabili hjá
Efnahagsbandalaginu á næsta
ári. Kvaðst Jenkins hafa hug á að
mynda nýjan miðflokk i Bret-
landi, sem aðstööu hefði til aö
safna um sig fylgi þeirra sem af-
huga væru að ljá stóru, gömlu
flokkunum atkvæði sitt.