Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.11.1980, Qupperneq 4

Helgarpósturinn - 07.11.1980, Qupperneq 4
Föstudagur 7. nóvember 1980 i NAFN: Ásmundur Stefánsson STAÐA: Framkvæmdastjóri ASÍ FÆDDUR: Mars 1945 HEIMILI: Nökkvavogur 34 HEIMILISHAGIR: Eiginkona Guðrún Guðmundsdóttir og eigaþau tvö börn BIFREIÐ: Austin Mini, árg. '73 ÁHUGAMÁL: Vinnan, enda gefst litill tími til annars „Þekktur fyrir annað en ganga í kjólfötum og hýjalíni" Hver eru mánaöarlaun fram- kvæmdastjóra ASt? „Þau eru rúmlega ein milljón á á mánuði.” Þú ert sem sé á helmingi hærri launum, en hæstu laun, sem um var samið í nýgerðum kjara- samningum atvinnurekenda og Alþýöusambandsins. Er þetta Iaunajafnréttisbarátta ASt i reynd? ,,Ég reikna ekki með þvi, að nokkur maður heyi launabaráttu á þeim grundvelli, að lækka sjálf- an sig i launum. Eg hafði starfað á almennum vinnumarkaði áður en ég hóf störf hjá Alþýðusam- bandinu, og laun min voru lögð til grundvallar, þegar launagreiðsl- ur, til min voru ákveðnar i mið- stjórninni. Eg vil einnig bæta viö, að unnin yfirvinna er ekki greidd nema i sérstökum undantekn- ingartilfellum. Þannig held ég að timakaupið mitt sé ekki eins gifurlega hátt og virðist þvi vinnudagurinn hjá mér er langur og ég mundi hagnast verulega á þvi að -mánaðarkaup mitt væri helmingi lægra en ég fengi greidda alla yfirvinnu. En þykir það ekki óeölilegt, aö hvorki þú sem framkvæmdastjóri ASt, né forseti samtakanna, eruö á iaunatöxtum Alþýöusarnbands- ins? Þiö eruð sem sé aö semja fyrir ailt aöra hagsmunahópa i samningum.en sjálfa ykkur og aöra meö svipaöar tekjur? ,,Ég veit ekki á hvaða launa- kjörum forystumenn verkalýös- félaga almennt eru en það er ljóst, að þeir sem hafa staðið i samningum um rammasamning milli ASl og VSt, eru að semja fyrir heildarsamtök og fjölda starfshópa og þvi er Utilokað að menn hafi eigin iaun, aö leiðar- ljósi. Það verður ekki horft á laun einstaklinga i samingagerö sem þessari, og stefnan i þessum samningum er augljóslega sU að hækka lágtekjuhópana mest. Nú tekur forseti ASt laun, sam- kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Mátt þú þá allt eins búast viö þvi aö lækka verulega I launum, ef þú veröur kjörinn for- seti ASt? ,,Ég held aö það sé fullljóst að menn sækja ekki i störf hjá verkalýöshreyfingunni vegna launanna. Laun til forseta ákveð- ur miðstjórnin og það er meira að < segja möguleiki á þvi, að forseti sem slikur sé ekki i launuðu starfi hjá ASl, þó sU hefð hafi komist á aö forseti sé i fullu starfi og þaö tel ég æskilegt. En hvaöa tilfinningu getur þú haft fyrir launa- og lffsbaráttu Linur hafa nú skýrst nokkuö varöandi frambjóöendur til forseta Alþýöusambands tsiands sem kosinn verður nú i nóvcmber. Asmundur Stefánsson framkvæmdastjóri ASt hefur þegar lýst sinu framboöi og Karvel Fálmason alþingismaöur telursjálfur allnokkrar likurá eigin framboöi. Framboð Asmundar hefur nokkuð veriö gagnrýnt á þeim grundvelli, aö hann sé ekki vaxinn úr rótum hreyfingarinnar, heldur komiofan frá, úr Háskólanum. Þá hefur flokkapólitikin nokkuö spilaö inni þessi framboösmál öll, og er Asmundur Alþýöubandalagsmaöur, en Karvel i Alþýðuflokknum. Asmundur Stefánsson er i yfirheyrslu um framboö hans og önnur skyld mál. Þaö skal tekiö fram, aö Karvel mun einnig sitja i Yfirheyrslu Helgarpóstsins, þegar hans framboö liggur ljóst fyrir. verkafólks, þegar þú hefur haft mun hærri laun i gegnum tiöina og aö auki ekki unniö þau störf sem ASÍ-félagarnir vinna? „Eg þekki af eigin raun þá erfiðleika sem eru þvi samfara að kaupa ibúö og koma fjölskyldu sinni fyrir. Ég held að almennt ráðstöfunartekjur fjölskyldu minar séu ekki meiri en gengur og gerist. Eg þekki Iifsbaráttuna af eigin raun og einnig vegna samskipta við annað fólk. NU, ég er félagsmaður i Verslunar- mannafélagi Reykjavikur, sem er innan ASt, og vinn störf sem falla aö þvi félagi. Þá var ég i verkamannavinnu á sumrin með námi. Þannig þekki ég vel að- stæður launafólks, bæði i gegnum það sem ég hef lýst og þó fyrst og fremst vegna starfa minna hér hjá Alþýöusambandinu, en á þess vegum hef ég farið viða og haft gott samband við hin ýmsu verkalýðsfélög og félagsmenn þeirra.” Hvenær varstu fullgildur aðili aö Verslunarmannafélaginu og þar meö ASI? „Ég hóf að greiða gjöld til Verslunarmannafélags Reykja- vikur snemma á þessu ari”. Þú hefur semsagt drifiö i þvi aö ganga I aðildarfélag ASt um leiö og hugmyndin aö forsetafram- boöi þinu fór á kreik? „Þetta eru tveir aðskildir hlut- ir. Aöur fyrr hafði ég starfað hjá ASt viö sérfræöistörf og jafn- framt kennslu viö Háskólann, en er ég geröist framkvæmdastjóri Alþýöusambandsins var taliö eðlilegt að ég væri I Verslunar- mannafélaginu. Það sendi mér siðan rukkun um félagsgjöld, sem ég greiði. Ég fór ekki inn um neinar bakdyr i Verslunar- mannafélagið, eins og einhverjar raddir hafa verið að nefna, enda engar bakdyr til á verkalýös- félögum.” En hvaöan kemur þú til meö að njóta lifeyrisréttinda? „Ég og annaö starfsfólk ASl greiði I lifeyrissjóö opinberra starfsmanna og slikur háttur hef- ur veriö haföur á um áratuga skeiö.” Þiö njótiö sem sagt mun trygg- ari lifevrissjóösréttinda en skjól- stæöingar ykkar — almennir félagsmenn ASl? „Það er nú eitt af baráttumál- um ASl að stokka upp lifeyris- sjóðakerfið, þannig að innan tiðar verði einn lifeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Þannig held ég að það skipti ekki máli hvar ég sé i lifeyrissjóði i dag, þar sem ég treysti þviað þessi mál verði leið- rétt og lagfærð áður en ég kemst á eftirlaun eftir nokkra áratugi. Nú gagnrýna margir tengsla- leysi milli forystumanna ASl og hins almenna félagsmanns. Held- urðu aö þú hagfræöingurinn, sért sá maöur sem er best fær um aö bæta þau tengsl og efla á forseta- stóli ASt? „Þaö er erfitt fyrir mig að leggja mat þannig mat á sjálfan mig, en sem framkvæmdastjóri ASÍ held ég að mér hafi tekist að vinna á breiðum grundvelli og náð viðtækum tengslum. Ég hef aldrei starfað með flokkspólitisk sjónarmið að leiðarljósi. Þaö er sagt, aö ástæöan fyrir tlöum feröalögum þinum um landiö sé sú, aö þaö sé aðeins á færi þinu og örfárra manna innan ASÍ forystunnar aö geta skýrt og túlkaö þá samninga sem verka- lýöshreyfingin hefur veriö aö gera. Er þetta rétt, geta formenn félaganna hér og þar ekki lesiö úr flóknum kjarasamningum? „Þetta erofsagt. Ég held að formenn félaga séu aö öllu jöfnu fullfærir um aö skýra þessi mál fyrir sinu fólki. Hitt er svo aftur rétt að samningar hafa i seinni tið orðiö æ flóknari.” En hvernig ganga tjáskiptin. Talar hagfræöingurinn sama mál og verkamaöurinn viö höfnina? „Hvorugur okkar notar oröið tjáskipti og af þessu tagi né held- ur aö bil sé milli min og annarra sem starfa að verkalýðsmálum. Ég er ekki sprottinn Ur neinu yfir- stéttarumhverfi og þó ég hafi meirií skólamenntun en margir þeirra sem ég starfa meö, þá hef- ur þaö ekki valdiö samskipta- öröugleikum. Kvartanir af þess- um toga hafa ekki komiö upp svo ég viti. Þvert á móti held ég að menntun min, geti hjálpað mér til aöeinfalda og skýra ákveöin mál betur en ella.” En er þó ekki affarasælast aö forseti ASl komi beint af þeim vinnumarkaöi sem ASl félagarnir vinna á? Aö hann sé sem sagt úr þeirra rööum? „Ég held að forseti ASI sé fyrst og fremst valinn með tilliti til þess hvernig hann hefur starfað fyrir samtökin og hvaða traust fólk ber til hans. Hver starfshæfni hans er og hvaða starfsreynslu hann hefur yfir að ráða. Ég tel að þröngar menntunarforsendur komi ekki til með að ráða Urslit- um i þvi vali, heldur hitt hvernig maðurinn komi til með að nýtast Alþýðusambandinu best I starfi. Er þetta ekki stefnubreyting frá fyrri tið? „Hagfræðingar voru ekki marg- ir til hér á árum áður, en ég get t.d. nefnt það að Héðinn Valdi- marsson sem var formaður Dags- brúnar á annan áratug var hag- fræðingur og lærði meira að segja i sama skóla og ég, Hannibal Valdimarsson er einnig vei menntaöur og Björn Jonsson er stúdent. Þannig hafa ASI félagar ekki sett sig gegn mönnum, ein- vörðungu vegna þess að þeir hafa notið menntunar heldur valið samkvæmt yfirsýn þeirra og starfshæfni.” Er ástæöan fyrir þvi hve verka- lýöshreyfingin hefur fariö sér hægt i kröfugeröinni, sl. ár, aö Alþýöubandalagiö hefur setiö i rikisstjórn? „Það hefur ekki verið ágrein- ingur innan verkslýðshreyfingar- innar um vinnubrögð. Þar hafa menn ekki skipst eftir flokks- pólitiskum linum og þá ekki með eða á móti Alþýðubandalagi. Samstarfið innan ASI hefur verið breytt og grundvallað á faglegum sjónarmiðum. Fólk Ur öllum stjórnmálaflokkum hefur þar unnið saman og verið sammála um vinnubrögð.” Nú getur hins vegar enginn neitaö þvi aö stjórnmálaflokkarn- ir eru komnir á fullt vegna for- setakosninganna á ASI þinginu. Engin fagleg samstaöa þar? „Ég veit ekki hvað flokks- pólitiskir aðilar eru að bralla i þvi sambandi, enda ekki mjög flokks- pólitiskur sjálfur þótt Alþýðu- bandalagsmaður sé. Þyki ekki rekast mjög vel i flokki og vinn ekki samkvæmt flokkspólitiskum linum innan Alþýðusambands- ins.” Þú veist ekki hvað stjórnmál- aflokkarnir eru aö bralla segir þú, en hvað ert þú þá aö braila þessa siðustu daga fyrir Alþýöu- sambandsþing? „Það er ekki flókið brall. Ég sinni starfi minu sem framkvæmdastjóri Alþýðusam- bandsins og þar er i nógu að snúastþessa dagana, Éger ekki á neinum kosningafundum”. Hefurðu þá cnga til aö bralla meö vegna forsetakosninganna? Ekki stendurðu einn I þessum slag? „Það var leitað til min af fólki Ur öllum stjórnmálaflokkum um að ég gefi kost á mér til forseta- kjörs i ASÍ. Ég hefði aldrei gefið kost á mér ef slikar áskoranir hefðu ekki komið fram. En vegna þessa þrýstings og áhuga mins á verkalýðsmálum, linnst mér ekki rétt að skorast undan”. Hvaða aöilar voru þaö sem skoruöu á þig? Nefndu örfá nöfn? „Mér þykir ekki rétt aö nefna nöfn”. Helduröu aö fólk trúi þvi þá, aö þaö hafi veriö fólk úr öllum flokk- um sem hafa skorað á þig? „Fólk innan verkalýðshreyf- ingarinnar verður að meta það, en hins vegar held ég að ég sé ekki þekktur fyrir ósannsögli I störfum minum. Kemur þú til íneö að láta þér verkalýösmálin nægja i framtiö- inni, eða stefnir þú einnig út á flokkspólitiska sviðiö? „Ég hef áhuga á verkalýðs- pólitikinni og tel þann starfsvett- vang ólikt betri en hinn flokks- pólitiska. Tel að ýmislegt það sem fer fram i flokkapólitikinni sé fráhrindandi.” Nú litur út fyrir aö þú komir til meö aö slást viö Karvel Pálma- son um forsetatignina, og ef til vill fleiri. Myndir þú halda áfram sem framkvæmdastjóri ASI, ef þú yröir undir i þcim slag? „Slikt yrði ég að meta.” Viltu meta það núna? Myndiröu t.d. verða framkvæmdastjóri hjá Karvel Pálmasyni? „Slikt myndi ég meta aö leiks- lokum.” Aö lokum Asmundur: Ertu blúndubolsi? „Ég er liklega þekktari fyrir annað en ganga klæddur i kjólföt- .um og hýjalini”. eftir Guömund Árna Stefánsson

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.