Helgarpósturinn - 07.11.1980, Blaðsíða 25
Jielgarpústurinn
Föstudagur 7. nóvember 1980
FCP=kvenrembusvín
Af einhverjum annarlegum
ástæðum virðist ég alltaf finna
hjá mér einhverja hvöt til að
skrifta, þegar ég sest svona við
Hringborðið. Að minu viti hefði
nafnið rétt eins getað verið
„vitnastúkan” eöa „skrifta-
stóllinn”, og kannski stendur
þetta lika i einhverju sambandi
við borölögun. Eða á hringurinn
ekki að vera eilifðartákn og
hundrað og f jörutiu aðrir hlutir?
— En hér er ég komin eina ferð-
ina enn og aftur játandi. Mér er
nefnilega lifsins ömögulegt aö
lita á karlmenn sem fyrir-
vinnur. Fyrir mér eru þeir fyrst
og fremst kyntákn.
Já, ég veit vel að þetta telst
ekki heilbrigð skoðun. A þeim
jafnréttistimum semvið lifum á
er eiliflega verið að hamra á
þvi, að öll séumvið fólk, öll per-
sónur með tilfinningar og tján-
ingarþörf, aö karimenn séu fólk
rétt einsog við. Rökhugsun min
segir mér að þetta sé rétt. Að
þeir geti ekki að þvi gert sem
þeir eru, þettaséu aðmiklu leyti
uppeldisáhrif. En tilfinning-
arnar segja mér allt aðra hluti.
Nefnum dæmi: Ég er stödd i
notalegum húsakynnum þar
sem fjöldi fólks er að buröast
við einhver samskipti. Ég sest
hjá aðlaðandi karlmanni og
reym að halda uppi samræðum
viö hann. Auðvitað veit ég, að
þegar hann hallar sér áfram og
horfir djúpt i augun á mér er
hann bara aö reyna að ná sam-
bandi. Ég veit, að þegar hann
notar hvaða tækifæri sem gefst
til að koma við mig og gerir sér
allt far um að láta það sýnast
tilviljun, er hann bara aö reyna
að segja mér, að hann sé lika
manneskja og að hann hafi hluti
fram að færa, sem ef til vill séu
þess viröi að taka á þeim mark.
Ég veitaö hann er lika mannleg
vera með tilfinningalif, rétt
einsog ég. En finn ég þaö,
skynjaég þaö? Óekki, þvi rétt
einsog ég sagði áðan, þá lit ég á
karlmenn sem kyntákn. Og þaö
er nú það.
En er það min sök, að ég er —
ja , nú vantar mig islenskt orð,
ó, þér nýhönnuðir tungunnar —
female chauvenist pig? Eru það
ekki bara sömu andskotans
uppeldisáhrifin? Var það ekki
bara ágætt hér I fyrndinni,
þegar við áttum enga sálfræö-
inga og þarafleiðandi engin sál-
ræn vandamál, enga félags-
fræðinga og engin félagsleg
vandamál, enga karlmenn —
nei, biðum við. Auðvitað voru
þeir til staðar. Þeir voru bara
hreinlega þar sem þeir áttu
heima. I rúminu. Þeir voru ekki
tilnema á kvöldin og um helgar,
og eftirlétu okkur konunum
allt sem máii skipti þess i milli.
Núna eru þeir hinsvegar farnir
aðskipta sér hreinlega af öllu —
þeireru þama daginn út og dag-
inn inn hvar sem augað litur, á
vinnustað á heimilunum, i
strætó, á götunum — allsstaðar.
Það er hvergi friður fyrir þess-
um ósköpum og aö engu hægt aö
einbeita sér. Maður er ekki fyrr
búinn aö koma sér að verki en
einhver æðisgenginn gæi i niö-
þröngum gallabuxum vippar
sér fyrir augun á manni með
nokkrum eggjandi mjaðma-
hnykkjum, brosir töfrandi og
laumar útúr sér einhverjum
heillandi grófum karlmanna-
frasa. Það er fyllilega nægilegt
til að likamsstarfsemin fari i
baklás (eða svoleiðis) og munn-
vatnskirtlarnir á yfirvinnu-
taxta, ef svo mætti að oröi kom-
ast. — Væri nú ekki nær, að
þessi unga kynvera héldi sig
hreinlega þar, sem hæfileikar
hans koma aö mestum og best-
um notum — nefnilega i svefn-
herberginu? Það væri örugg-
lega margt, sem þá færi betur i
þjóðfélaginu.
Eöa þá sölumennska og aug-
lýsingar. Persónulega kysi ég
ævinlega fremur 'vörumerkið,
semauglýst er með iturvöxnum
og hæfilega vöðvastæltum ung-
um manni, spriklandi sælum i
sólog sumri, heldur en eitthvert
merki auglýst af ábyrgri hús-
móður. Það skiptir engu, þó aö
ég viti að þetta er plott, sérlega
hannaö tilaö ég kaupi meira. Og
ég er ekki ein á báti. Litið til
dæmis á kókauglýsingar, þar
sem gjarna er beitt hdpi ung-
menna til að lokka landsmenn
til drykkju. Imynda kóksölu-
menn sér það, aö stelpurnar I
þröngu gallabuxunum lokki
okkur til að kaupa kókið? Þeir
hljóta að gera sér grein fyrir
þvi, hve margir kvenkyns kók-
istar eru hérlendis. — Það færi
betur, ef einhver tæki að sér aö
gera á þessu könnun. Kannski
fækkaði þá heldur leiðigjörnum
kvenrössum á skjánum og
annaö betra kæmi I staöinn.
Já, ég veit að ég er öfgasinni
— ég hef iðulega haft þá til-
hneigingu rika. Auðvitað er
ýmislegt, sem karlmenn geta
unniö ef þeir fá nægilega til-
sögn. Þeir eru til aö mynda
ágætir uppvaskarar, ef þeir
ekki þurfa aö þurrka og raða i
skápa, þvi flesta skortir þá illi-
lega skipulagshæfileika. Margir
eru þeir prýöilegir barþjónar,
en það kann einhver að kenna
um bældri drykkjufýsn, og við
skulum ekki fara nánar úti þá
sálma. Svo eru ýmsir auðvitað
fyrsta flokks kokkar, ekki sist
viðhafnarkokkar, þvi þeir eru
slikar tilfinningaverur, að það
ererfitt fyrir þá að halda sér við
efnið ef innblásturinn skortir.
Eða þá skemmtanaiðnaðurinn
— leikararnir poppstjörnurnar
þessir skemmtikraftar, sem
höföa til dýrslegra hvata okkar
meöan þeir leika listir sinar. En
þarerum við náttúrulega komin
hringinn og aftur að kyntákn-
inu. Ég er ansi hrædd um að
framhjá þvi verði ekki horft —
þannig er þetta bara. Karlmenn
eru bestir þar sem þeir eiga
heima — i rúminu á kvöldin og
um helgar. Og mér finnst timi
til kominn aö þeir viðurkenni
þaö.
Með þessum linum er ég auð-
vitað ekki aö sneiða að einstakl-
ingum, sem margsinnis hafa
lýst þvi yfir opinberlega aö þeir
séu ekki kyntákn. Ég er fylli-
lega sammála ákveðnu og
ónefndu tilfelli I leðurbuxum.
Hann er ekki kyntákn — hann er
kynbomba.
Innanhústalkerfi
'XW' --
sm Wk
■ m
ISI
1§§§
iJlpiSí iilliiiSii
SIMPLEX:
(hátalandi) hentar fyrir
minni fyrirtæki, allt að
10 númerum.
Hundruð kerfa í
notkun í landinu.
TRIDEX:
Það nýjasta frá
RING MASTER
Tölvustýrt.
Tvímælalaust
fulikomnasta innanhús talkerfi
í heiminum í dag.
DUPLEX:
(hátalandi og lágtalandi) 2-100 númera
möguleikar. Allskyns aukabúnaður
fáanlegur t.d.
beint samband
við talstöðvar
í bílum.
Radíóstofan h/f
Þórsgötu 14,
sími 14131
Lausn síðustu krossgátu
V L Æ fí 5 R R V S
> L fí S T fí £> J fí F N V Æ G / 5 5 T ö N 6
3 '/ L fí R N / R fí U L / • K fí 5 fí 'fí N fí fí
Ö /V D fí 6 N fí R fí Ð H f) F / 5 T /Yl U N
u 3 / /V N G L £ R / L L N Ö L fí T fí
z> fí 5 T £ K N / K N fí L / N fí fí G fí T>
3 fí Ð fí U F 5 fí R fí U N fí R u /< K fí R /
/V fí R R J fí R P U R fí R m /E Ð fí R R
5 n 6 fí R O R 6 fí Ð u L T u m Ö m
3 L F 3 íi ö R N u m £ Ð L 3 N fí U /w r
ú R T £ /< T S T fí R fí N D / L fí u G fí R
■ / 5 T / L L / R £ N £ /Yl /n fí /< L 'O /<
Ö /V /Y fí N <3 fí t) £ T fí N s n D / F) L fí
BILASALA-BÍLASKIPTI
BORGARTÚNI 29-SÍMI 28488
Lada 1600
árg. 1978.
Ekinn 40.000.
Verð: 3,2
Chevrolet Nova
árg. 1976.
Ekinn 80.000.
Glæsivagn.
Verð aðeins: 5,2.
Subaru
árg. 1978.
4x4, glæsivagn
Verð: 4,9.
Mercury Comet
árg. 1974.
Fallegur bill.
Ekinn 110.000.
Verð: 3,5.
Mazda 929
árg. 1979.
Ekinn 16.000.
Góður bíll.
Verð: 7,8.
Oldsmobil Toronata
árg. 1974.
Ekinn 53.000.
Glæsivagn.
Verð: 7,5.
Góð kjör.
Fullur salur og
af bílum
Bílar og kjör
við allra
Heimir Pálsson — Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J.
Matthiasdóftir — Páll Heiðar Jónsson —Steinunn Sigurðardóttir —
Þráinn Bertelsson
Hringborðið
I daq skrifar Maqnea J. Matthiasdóttir