Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 6
6 Æskan 4 Eldskirn i blaðamennsku Þá haföi Grimur raunar feng- iöeldskirn sina i blaðamennsku. Hann læröi prentiönina i Guten- berg og var meöal annars Finn- boga Rút Valdimarssyni til aö- stoöar á sinum tima, þegar hann flutti heimspressustilinn inn i islenskan blaöaheim meö alþýöublaösbyltingunni hinni fyrstu áriö 1933. En eldskirn Grims var þó fyrst og fremst hans eigið póli- tiska fréttablaö, Lýövinurinn, sem hann gaf út i fjögur ár og seldi niöri á Lækjartorgi. Þaö var i byrjun fjóröa áratugarins, á fyrstu valdaárum Adólfs Hitl- ers i Þýskalandi, og fyrstu afrek Grims i fréttamennsku voru frásagnir af þingkosningum þar i landi. Fréttir skrifaðar fyrirfram — Þaö voru stöðugar kosn- ingar i Þýskalandi á þessum árum, og venjulega uröu óeiröir i kjölfar þeirra, og fleiri og færri létu lifiö. Þar sem ekkert blaö kom út á mánudögum nema Visir, greip ég til þess ráös aö skrifa fréttirnar á sunnudags- kvöldum og setja þær, en skilja eftir eyöur fyrir kosningatölur og fjölda þeirra sem létu lifiö. Snemma á mánudagsmorgnum hlustaöi ég svo á Berlinarút- varpiö og bætti þessum töium inn i satsinn. Þannig komst Lýö- vinurinn á götuna meö nýjar fréttir á undan öllum öörum blööum. Þaö endaöi með þvi eftir f jög- ur ár, að ég fékk berkla og varö aö liggja á Vifilsstööum i fimm mánuöi, og byrjaði eftir þaö hjá Gutenberg. En ég frétti það seinna, að þegar þýski sendi- herrann var tekinn, hafi mitt nafn veriö á lista yfir þa áem átti aö handtaka þegar Þjóö- verjar tækju völdin, segir Grim- ur Engilberts, sem eftir þessa orrahríö f fréttamennsku og blaöaútgáfu snéri sér aö „m ý k r a ” a f b r i g ö i blaöamennsku, umsjón meö elsta barnablaöi landsins, og liklega einu af elstu barna- blööum i Evrópu. Og nú fer að styttast i dvöl hans á kontórnum aö Laugavegi 56, þar sem hann situr innanum forsiöur Æskúnnar, sem þekja alla veggi. Nokkrar prýddar teikningum eftir bróður hans, Jón Engilberts listmálara. — Mér finnst afskaplega þægilegtað hafa þessar forsiöur i kringum mig. Þær minna mig á þaö sem ég hef gert og upp- örva mig, þegar ég er þreyttur og andlaus, segir Grimur Engil- berts, ritstjóri Æskunnar, að lokum. NÝÍUNG_______VAUKIN ÞJÓNUSTA Nú geta allir fengið Helgarpóstinn heim um hverja helgi IÁSKRIFT Loksins er unnt aö koma til móts viö óskir fjoimargra lesenda, jatnt i borg sem sveit, um aö fá Helgarpóstinn i séráskrift. Spariö ykkur sjoppuferöirnar og fáiö lesefni helgarinnar heimsent. Áskriftarsíminn er 81866 Áskriftarverðið er 24 kr. á mánuði Hringið eða fyllið út áskriftarseðilinn hér að neðan og póstsendið: Helgarpósturinn, Siðumúla 11, box 320, Reykjavik Fjölbreyttasta og vandaöasta helgar- og vikublaö landsins Föstudagur 4. september 1981 he/garpústurinn Loksins byrjar skólinn Þaö er komiö haust og loksins, loksinsbyrja skólarnir aftur. Þaö gleöur mig meira en normalt getur talist, einkum þegar aö er gáö, aö ég er löngu hættur i barnaskóla og kemur skólaáriö ekki mikiö viö. Enhvers vegna gleöst mitt gamla geö svo mjög? Svar: Sumarfrikennarannaer loksins liöið. Nú veröa þessi helv.... aö fara aö vinna, og sveit- ast frammi fyrir erfiöum bekkjum, þola striöni, háö og spé og horfast i augu viö þá staöreynd, aö starf þeirra ber takmarkaöan árangur. Svona er ég. Þegarég varungur (en eftir þvisem sonur minn heldur fram, þá mun þaö hafa veriö á dögum risaeölanna (dinosaurusa)) stundaöi ég barnaleiki og knattspyrnu sumariö langt. Og þegar ég stálpaöist, fór ég i sveit og átti þroskandi samskipti viö greinda fer- fætiinga og velviljað fólk. Um haustiö bvriaöi skólinn. Þeear dró nær fyrsta skóladegi haustsins, hvolfdist dauöansangistin yfir mig og ég hætti aö vera „áhyggjulaust og þægt barn á eðlilegri þroskabraut” eins og fjölskyldulæknirinn sagöi. Ég breyttist i kennslufræöilegt vandamái. Þaö var eins og allt stifnaöi og stoppaöi. Hin undursam- legu fræöi sem skólinn hefur boöiö upp á gegnum aldirnar, festust ekki i höföi mér. Hylki mitt sat sem lamaö i skólastofunni, en hugurinn sveif á skýi út um gluggann og gekk i gegnum spennandi ævintýri einhvers staöar viösfjarri. Leikfélagar minir í þess- um dagdraumum, voru hin viröulegu hjón Tarzan og Jane, hiö snjalla par Hrói höttur og Marion ásamt ýmsum afarskemmtilegum mönnum, t.d. Basil fursta, Hjalta litla og Sólon Islandus. Maöur var þjóölegur á stundum. A dögum risaeölanna, en þaö voru árin beggja megin viö nitján hundruö og sextiu, höföukennararminir ekki hugmyndaflug, tii aö skilja þau ævintýrsem ég gekk I gegn- um meö Hjalta iitla hans Stefáns Jónssonar og hinum unga Sölva Helgasyni. Og þegar ég eltist, gátu þeir ekki svaraö spurningum sem stóöu I samhengi viö hinn spennandi raunveruleika. Það voru spurningar sem vöknuöu á þvi timabili ævinnar, þegar maður fer aö velta þvi fyrir sér til hvers Tarzan var aö dragast meö Jane á eftir sér, og hvaö Hrói höttur eiginlega vildi með Marion. Vikupóstur frá Gunnari Gunnarssyni Nei. A minni tiö voru kennarar andlega skotheldur rasi sem fátt kunnu annaö en þennan stóra mun á „réttu” og „röngu”. í barnaskólanum gengu þeir i liö meö pisk- andi smástelpum, sem stööugt piskruöu um mig. (Smástelpur piskruöu ævinlega um mig. Nú eru þessar sömu stelpur orðnar sorglega stórar og halda áfram aö piskra. Þvi miöur piskra þær ekki lengur um mig — að ég held). A unglingsárunum, þegar maöur vildi spyrja kennarana um Tarzan og Jane. Um þjóöfélagslegan veruleik. Þjón og herra. Skiptingu auösins. Smáþjóöog herraþjóö. Rétt og rangt, vildu kennararnir helst tala um eitthvaö sem þeir kölluöu „rétt mál” og „rangt mál”. Nemendur voru vegnir og metnir eftir einkunnum á stafsetningarprófum. Ég losnaöi ekki viö stafsetningarpláguna og þessa áráttu um „vandaö mál” fyrr en ég læröi utanbókar og skilningslaust þessi aulakver islenskufræöinganna, sem héldu þvi fram aö það bæri vott um heimsku, ef maöur sagöi „mér hlakkar” og „honum langar” eöa talaöi á gamaldags sunnlensku og sagöi „anskcdans beljunnar skida mer en þær mjólga”. Ég haföi marga kennara sem suðuöu sifellt I manni um „Vandaö mál” og „vandaöa framkomu”. Þetta voru einhverjir andlegir hreinsunarmenn, sem vildu tosa öllu um- hverfisínu inn i hina hversdagslegu meöalhegöun lútherskrar miöstéttar, sem reyndar er hvergi til, nema kannski siðustu árin I Skandinaviu og Þýskalandi. Þær voru oft dapurlegar þessar kennslustundir hjá islenskufræðingunum og landafræöikennurunum sem gengu á burstuðum skóm meö háu braki og hljóta aö hafa notað hallamál, þegar þeir hnýttu á sig slaufuna dag hvern. Og höföu engin alvörusvör, þegar maöur spuröi, hvort Laxness væri vondur i réttritun. Ég þekki ungan mann, sem þessa haustdaga, töltir I fyrsta sinn á vit fræöslukerfis rikisins. Þessi vinur minn er i hópi þeirra einlægustu og gáfuöustu manna, sem ég hef kynnst. Andlegur fóstbróöir og leikfélagi hans, heitir Súperman. Súperman þessi heitir hversdagslega Clark Kent og starfar á ritstjórn dagblaös i Ameriku. Þegar hætta steöjar aö og hinir jarðbundnu, dauölegu lögreglumenn og almennir siöapostular standa ráöþrota, stekkur Clark Kentút af ritstjórnarskrifstofunum og breytist I sinn innrimann: Superman. Eins og allir vita, flýgur svo Superman, kiæddur bláum, gulum ograuöum búningiofar borgum og ofar skýjum, ef á þarf aö halda og bjargar fólkinu frá hverju sem hafa vill. Ég hef meira aö segja séö hann bjarga jöröinni frá þvi aö rifna I tvo jafna parta. Hann geröi þaö meöþvi aö fijúga svo hratt umhverfis hnöttinn, aö hit- inn sem myndaðist i kjalsoginu bræddi saman skorpuna. Vinur minn, sem nú er aö byrja skólagöngu, hefur sagt mér, að hann sé eiginlega uppeldissonur, Súpermannsins og heiti þess vegna Súperdrengurinn. Hann á sams konar búning og Súperman og fullyrðir, aö hann fljúgi hvert á land sem er eftir aö dimma tekur á kvöldin. Ég suðaöi lengi vel istráksa, og baö aö fá aö skreppa meö i eins og eina flugferö einhverja nóttina. En þaö var ekki viö þaö komandi. Vinur minn sagöi, aö hannúeysti mér ekki til feröarinnar. Þú ert of gamall sagöi hann, þú verður bara hræddur og ferö að grenja og ég verö að fara með þig heim. Um daginn fékk ég mér frakka. Þegar ég kom i frakkanum til Súperdrengsins, horföi hann á mig ánægöur og sagði: Clark Kent. Viö athugun kom I ljós, aö Clark Kent blaöa- maöur, átti sams konar frakka og ég. Þegar ég setti svo gleraugun á nefiö, kom I ljós aö ég var svo aösegja eins og Clark Kent blaöamaður.Hafi Súperdrengnum áöur fundist ég vera smáskrýtinn vinur, þá breyttist ég nú i áhrifamikiö átrúnaöargoö. Um daga störf- um viö I kyrrþey og hvor á sinu sviöi, látum á engu bera. Um nætur fljúgum viö um himinhvolfiö og björgum þeim sem eru i nauðum. Þaö getur vel veriö aö sjáist til feröa okkar i myrkrinu, ef einhver nennir aö vaka og horfa upp i stjörnubjartan himin. Vetrarstarf islenskufræöinganna er aö hefjast. Sonurminnsegir aö kennararnir hljóti aö hafa lagast siöan I fornöld. Hann er jafnvel svo jákvæöur aö halda þvi fram, aö þeim hafi veriö vorkunn hér áöur. Hann segir aö þeir hafi veriö svo hræddir við risaeölurnar og aörar ófreskjur fornaldarinnar, aö þeir haíi stlfnað á öllum liöamótum og frosiö á sálinni. Nú er þetta allt annaö, segir sonur minn, fornöldiner liöin, eölurnar útdauðar, kennararnir eru ekki eins hræddir og þeir voru. En ég er vantrúaður. — Timarnir eru breyttir, segir sonur minn. — Ég trúi þér ekki, segi ég. — Þú ert aö breytast i eitthvert fornaldarskrimsli, segir hann. — Hvers vegna segiröu þaö? —Um daginn, þegar viö fórum aö horfa á fótboltann, þá rausaöir þú bara eitthvaö um einhverja gauraúr Islendingasögunum, RikkaJóns og Donna og Þórð Þóröar og sona. — Maöur dauðskammast sin, sagöi unglingurinn. Bráöum veröuröu algjört skrapa- tól. — Jæja, sagðiég. Ég er feginn aö skólinn skuli loksins byrja. Kannski lendiröu á ein- hverjum ófétis kennara sem getur útskýrt fyrir þér hvar Daviö keypti öliö. Gunnar Gunnarsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.