Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 13
hcslrjarpncztl irinn Föstudagur 4. september 1981 13 sem þeir motmæltu þessu. Einn skrifaði m.a. lesendabréf Ut af þessu og sagði að það væri svo sem sök sér að barnavögnum væri ekið á gangstéttum, en hjól það væri forkastanlegt. Sumumgötum bæjarins, sérstak- lega i eldri bæjarhverfum hefur verið þannig viðhaldið að enda- laust er malbikað ofan á gamla malbikið. Fyllt er upp i holur þannig aö gatan veröur eins og fjall og brekkur myndast niður i rennusteinana. Að hjóla á slikri götu er ekki hægt. Er Suöurgatan þá sérstaklega hjá gamla kirkju- garðinum gott dæmi um slikt þvi gangstéttin sem er aðeins öðru megin er þaö mjó að ómögulegt er að hjóla á henni. Borgarpóstur haföi fregnir af þvi' að hiólreiða* áhugamenn hefðu gengist fyrir undirskrifta- söfnun þar sem krafist var að til- lit yrði tekið til hjólreiðamanna i umfa-öinni og að búnar yrðu til hjólreiðabrautir við stærstu göt- ur borgarinnar. Ingi Magnússon gatnamála- stjóri sagði að hjólreiöaáhugi borgarbúa væri það nýtilkominn aö enn sem komið væri hefði gatnamálastjóm lftið spekúlerað i þessu. En þær götur sem væru eins og fjöll i laginu stæöi til að laga. ,,Við erum nú nýlega farnir að vera i stakk búnir til þess að lagfæra þetta, þvi til þess þarf vél sem heitir malbiksfræsari og með henni getum við slétt úr götunni áöur en nýtt lag af malbiki er sett ofaná”. Ingi sagðist lika vilja benda á að hjólreiðar væru leyfðar á gangstéttum þar sem aðstæður leyföu. Ennfremur væri viðsveg- ar verið aö koma upp göngustig- um á milli borgarhverfa og væru þessir stigar upplagðir fyrir hjól- reiðar. Hann sagði og að þar sem væri veriö að gera götur i stand væri enn sem komið væri ekki ráð fyrir hjólreiðarstígum. „En þessi mái eru þegar aö á heildina er litið svo nýtilkomin að enn erum við með þetta i athugun!” sagði Ingi aö lokum. EG gert Það er ekki nóg að eiga flott hjól, það verður lika að vera hægt að hjóia á þvi. ÍSLENSKI FÁNINN ALDREI ÚR TÍSKU Hér á árum áður fylgdi hverri húseign með garöi að hafa fána- stöng á flötinni. Nú orðið sjást flaggstengur og fánar mest fyrir utan opinberar byggingar og á strætó. Hvar fæst islenski fán- inn? Tvær verslanir i bænum selja islenska fánann, það eru verslan- irnar Geysir og Ellingsen. Til eru þrjár stærðir af fánan- um sá minnsti er 1.50 m og sá stærstier2.25m.Stæröfánans fer eftir flaggstönginni sem honum er ætluö . Fáninn á að vera 1/5 af hæð flaggstangarinnar sam- kvæmt islenskum lögum. Hjá versluninni Geysi fengust þær upplýsingar að alltaf væri eitt- hvaö keypt af fánum og kostaði minnsti fáninn þar kr. 275, en sama stærðin hjá Ellingssen kostar kr. 223.15. Áfgreiöslufólkið i þessum verslunum var sam- mála um að miklar sveiflur væru i sölu á fánanum upp á við þegar að eitthvað sérstaklega mikið stæðitilhjáþjóðinni.t.d. áriðsem forsetakosningarnar voru, og alltaf fyrir 17. júni. Ragnar Sigurðsson, hjá Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri tjáði Borgarpósti að fánarnir væru framieiddir á Hofsósi á vegum Sambandsins. Þar hefur Sam- bandið útibú, þar sem framleidd- ir eru nokkrir vöruflokkar. Sagði Ragnar að ástæöan fyrir þvi að fánarnir væru framleiddir þar væru sú að eitthvað þyrfti verksmiðjan þeirra þar aö hafa að gera. Ragnar sagði ennf remur að það væru ekki margar versl- anir á landinu sem seldu fánann, en fyrir þá sem gerðu það væri fullt að gera og stöðug sala á fán- um. MAÐURINN Á BAK VIÐ NAFNIÐ: Geir H. Haarde, nýkjörinn formaður SUS: Ég er fylgjandi frelsi einstaklingsins og einkaframtaksins Skjót viðbrögð Það er hvimleitt aö þurfa aö biöa lengi meö bilaö rafkerii, leiöslur eöa tæki. Eöa ný heimilistæki sem þarf aö leggja fyrir. Þess vegna settum viö upp neytendaþjónusjluna - meö harösnúnu liöi sem bregöur skjótt viö. ’RAFAFL Smiöshöföa 6 ATH. Nýtt símaniúmer: 85955 Siðustu helgi fór fram á lsa- firði þing Sambands ungra Sjálfstæöismanna GeirHaarde, hagfræðingur var þar kosinn formaður SUS. Þingið lýstiyfir fullri andstöðu við rikisstjórn- ina og hennar gerðir. 1 Þjóðvilj- anum sl. þriðjudagvar sagt frá þessu þingi og hafði blaðið það eftir einum „Gunnarsmanni” að smalað hefði verið á fundinn og átti „Geirsarmurinn” innan llokksins fjöldafylgið. AUt um það.Geir H. Haarde er maður- inn á bak við nafniö að þessu sinni og segir hann að það sé ekki i hans verkahring að sætta Gunnar og Geir. „Ungir Sjálf- stæðismenn standa einhuga saman og munu koma til með að nýta sfna krafta , vinna og sækja fram á grundvelli sjálf- stæðisstefnunnar. Geir H. Haarde er þritugur og vinnur hjá Alþjóðadeild Seðla- bankans. Hann er kvæntur Patriciu Haarde og eiga þau tvö börn. „Ahugamál min tengjast aðallega söng og tónlist. Ég held ég geti sagt að ég hafi á- huga á allri góðri tónlist, kannski þá mest klassiskri.” — En af hverju ert þú Sjálf- stæðismaður? „Ja, alltfráþvi að ég fór fyrst að muna eftir mér hefi ég haft mikinn áhuga á stjórnmálum. Ég er fylgjandi frelsi einstakl- ingsins og einkaframtaksins og þess vegna hlýtég að vera fylgj- andi stefnu Sjálfstæöisflokks- ins.” — Hvernig llður þérsvo þessa dagana? „Ég er ákaflega glaður. Þetta var i fyrsta skipti i langan tima sem formaður SUS hefur verið sjálfkjörinn og sýnir það þann einhug sem rikir innan raða ungra sjálfetæðismanna.” — Ætlar þú að breyta ein- hverju innan SUS? „Einhverju kem ég til með aö breyta. Aþessu þingi kom fram mikill einhugur um að efla Sjálfetæðisflokkinn. Þá erum við að hugsa um næstu sveitar- og borgarstjornarkosningar. Viö stefnum að þvi aö koma borgarstjóraefni okkar að. hon- um Daviö Oddssyni. Viö viljum yngja upp forystu flokksins. Innan okkar raða er margt efni- legt ungt fólk, mikið hæfileika fólk, sem þarf að fá að komast að. Þetta unga fólk þarf að vera reiðubúið til þess að axla á- byrgöina og hinir eldri þurfa að leyfa hinum yngri aö komast að. ” — Heldur þú aö þú eigir erfitt starf framundan? „Nei, ég hlakka til. Innan raða ungra sjálfstæðismanna rikir mikil málefnaleg sam- staöa og góöur andi.” — Þér mun kannski takast að sætta Gunnar og Geir? „Þaö er ekki i mlnum verka- hring”. EG Þann 7. sept. hefst hjá okkur bóklegt námskeið til einka- flugprófs og lýkur 15. nóv. Kennslan fer fram á kvöldin og námsgreinar eru: Siglinga- fræði, flugreglur, flugveðurfræði, flugeðlisfræði og vél- fræði. Athugiö: Engin sérstök undirbúningsmenntun. Ennfremur bendum við á verklegu kennsluna okkar sem er og verður í fullum gangi i vetur. Nánari uppl. í síma 28970. Geir Haarde, nýkjörinn formaður SUS FLUGKLÚBBURINN HF. DATSUN Af hverju hlærðu ekki með? Greiðslukjör: Aldrei betri Datsun ■-& umboðið INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Sírm 33560

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.