Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 22
22 Föstudagur 4. september 1981 irinn, Djass, djump og kosningar Joe Jackson —tekst vel aö endurvekja lífsgleöi þá sem rikti á tim- um Louis Jordan og félaga. Slöasta vika var sannkölluö djassvika. bað var djassað á hverju kvöldi og stundum á tveimur stöðum. A sunnudags- kvöld léku Guðmundarnir og kompani i Stúdentakjallaranum að venju. Á mánudagskvöld lék kvartett Kristjáns Magnússon- ar i Djúpinu, en þar er nú bæði djass á mánudags- og fimmtu- dagskvöldum. Sama kvöld léku Stefán Stefánsson saxisti og Gunnar Hrafnsson bassisti ásamtfélögum á Hótel Esju, en þeir eru nú farnir i djassnámið við Berklee i Bostonborg. A þriðjudagskvöld voru John Tchicai og Askell Másson i Djúpinu og á miðvikudags- og fimmtudagskvöld léku John Tchicai og færeyingarnir i Norræna húsinu, þar að auki lék kvartett Kristjáns Magnússon- ar i Djúpinu á fimmtudags- kvöld. Heljardjamm með fær- eyskum og islenskum djassist- um var i Stúdentakjallaranum á föstudagskvöld og Mezzoforte léku á sama stað á laugardags- kvöldið. Þannig leið vikan og allsstaðar fólk að hlusta. Það voru margir góðir gestir sem djömmuðu með færeying- unum: Kristjáni, Blak, Ernst Dalsgarð og Jóhannesi af Rógvu. Rúnar Georgsson, Viðar Alfreðsson, Alfreð Alfreðsson, Reynir Sigurðsson, Richard Korn og siöast en ekki sist Kristján Magnússon, Friðrik Theódórsson og Guðmundur R. Einarsson. Þegar þremenning- arnir gengu að hljóðfærunum sagði GRE: „Við erum skalla- djassistar með dreifbýlis- sveiflu”. Mikið má það vera góð sveifla ef hún er alltaf eins heit og i Georgiu sem þeir félagar voru með á heilanum þarna undir lokin. Jumpin’jive Allir góðir menn muna Louis Jordan, konung djasshoppsins. Hann lést 1975, en hafði lengi farið sér hægt. Ég var svo lán- samur að ná að hlusta á hann i Montmartre 1973 og var þaö mikil upplifun. Ungur eignaðist ég sjötiuogáttasnúninga hljóm- plötu með honum og Louis Arm- strong og var túlkun þeirra á You Rascal You lengi ofarlega á vinsældarlistanum i Cotton Jazz Club (Reykjavikurdeild). Louis Jordan grundvallaði hinn svokallaða djömpblússtil, sem var sá grunnur er rýþma- blúsinn og rokkið byggðu á öðr- um fremur. Meöal lærisveina Jordans voru Chuck Berry og Fats Domino. Hann var frábær blússöngvari og góður altósaxa- fónleikari i stil Pete Browns og þeirra Kansans City manna og slikur húmoristi að meðal djassista voru aðeins nafni hans Armstrong og Fats Waller hans jafningjar. Nýlega gaf breski söngvarinn Joe Jackson út hljómplötu: Joe Jackson’s Jumpin’Jive (AMLH 68530) og má þar finna sjö Louis Jordan lög, þrjú Cab Calloway þemu og sitthvað úr fórum Basie og Glen Millers. Mér er tjáð af fróðum rokkurum að Joe þessi Jackson sé i hópi merkari nýbylgjumanna en hvað um það, hann hefur greinilega hlustað vel og lengi á meistara djömps og djævs. bað er ekkert frumlegt að finna á þessari plötu, en Jack- son og félögúm tekst vel ætlun- arverk sitt, að endurvekja lifs- gleði þeirra gleðitima er Jordan var og hét. Hann syngur a la Jordan og altistinn Pete Thom- as blæs a la Jordan og sjöffel- rýþminn er allsráðandi. Jack, You’re Dead ,You Run You Mouth (And I ’ll Run My Business og What’s The Use Of Getting Sober (When You’re Gonna Get Drunk Again) eru ágætlega Jordanleg en verr tekst afturá móti með snilldar- melódiuna Is You Is Or Is You Ain’t My Baby. Callowaylögin We The Cats og Jumpin’Jive (muniði þegar Hampton söng það?) eru vel túlkuð i anda meistarans og Jumpin ’With Siymphony Sid er dálitið Hendrickslegt I endann ekki siöur en þau I The Manhattan Transfer i Four Brothers. Kannski má frekar rekja það til höfundar textans King Pleasures, en hann var frum- kvöðull þess að skrifa texta við improvisasjónir og hafði mikil áhrif á Joe Hendricks. King Pleasure lést fyrr á þessu ári 58 ára gamall. Joe Jackson’s Jumpin’Jive er tilvalin plata tilað koma gömlu djömpstemmningunni i sam- kvæmið og ef hún getur vakið að nýju áhuga á tónlist meistara Louis Jordan þá er vel. Hvernig er það annars með hljómplötu- innflytjendur á Islandi hafa þeir aldrei rekist á nafn Louis Jor- dans i katalógnum? Kosningar Þá eru allir djassgeggjar- arnir búnir að fá ágústheftið af down beatþarsem úrslit 29. al- þjóölegu gagnrýnendakosning- anna liggja fyrir. Það sem gladdi undirritaðan mest var að vinur vor Niels-Henning hlaut loks þann sóma sem honum ber og var kosinn besti bassaleikari ársins.timi kominn til að ame- rikanar viðurkenndu staðreynd- ina, aðrir Islandsfarar i efsta sæti voru Dexter Gordon á tenórinn og Dizzy Gillespie á trompetinn. Billy Hart var efstur trommara i flokki hæfi- leikamanna sem eiga skilið meiri viðurkenning og þar voru Philip Catherine og Doug Raney lika ofarlega. Djassplata ársins var kjörin Trouble In Mind með Archie Shepp og Horace Parlan (ásamt Full Force með Art Ensemble of Chicago og One Too Many Salty Swift... með Cecil Taylor) og er það mikiö gleðiefni að nafn Horace skuli komið i sviðsljósið að nýju.Nils Winther hjá Steeple Chase var i öðru sæti sem hljóðstjóri og Bob Magnússon komst á blað sem bassaleikari og George Mraz lika. Iður ti/ sóma Þeyr— Iður til fóta Þó að frekar hafi verið rólegt yfir hljómplötuútgáfu erlendis þaö sem af er árinu, þá verður ekki sama sagan sögð af inn- lendri hljómplötuútgáfu, þvi hún hefur verið með eindæmum blómleg, aö minnsta kosti hvað titlafjölda varöar. Gallinn er hins vegar sá að mikill meiri- hluti þessara platna er hreinasti öskuhaugamatur og aðeins ör- heild miklu betri. Það ber t.d. mun meir á gitarnum hjá Steina, sem er gott jafnvægi við hinn siúklega stil Gulla. Tribal- isminn hefur einnig greinilega náö talsveröum tökum á hljóm- sveitinni og birtist hann einkum I því hversu framarlega bassi og trommur eru nú hljóðblandað- ar, á meöan aö söngurinn kem- ur aftar og virkar bara eins og eitt hljóðfærið i heildarmynd- inni. fáar plötur standa uppúr. Af þessum plötum dettur mér i hug að nafna Purrk Pilnikk, Live Transmission meö Þey, plötu Baraflokksins ogekkilangt þar undan 45 rpm. Utangarðsmanna og Pláguna hans Bubba. Einni plötu er nú óhætt aö bæta við lista þennan, og það Fyrstu þrjú lögin Bás 12, Maggasýn og Tedrukkinn, eru öll mjög góð og erfitt aö segja þar eitt ööru betra. Hinsvegar finnst mér Ariareaggae ekki eins gott, þó i þvi séu góðir punktar. tslendingum ferst nefnilega margt betur úr hendi en að spila reggae-tónlist. Þeyr — það besta sem fslensk hljómsveit hefur sent frá sér á þessu ári, segir Gunnlaugur Sigfússon m.a. f umsögn sinni. liklega á topp hans, en þaö er fjögurra laga platan löur til fóta, sem Þeyr hafa nú sent frá sér. Það er greinilegt á tónlistinni á þessari nýju plötu Þeys að hljómsveitin er enn i mikilli framför. Þó svo aö þessi nýja plata innihaldi ekki, svona I fljótu bragði heyrt, neitt lag sem er eins gott og Live Trans- mission, þá er hljómsveitin I Iður til fóta er aö minu mati þaö besta sem islensk hljóm- sveit hefur sent frá sér á þessu ári og ég get aöeins sagt að nú bfð ég enn spenntari eftir stórri plötu en áöur. Bob Dylan— ShotOf Love Þá hefur Bob Dylan sent frá sér ársskammtinn þetta árið á hljóm plötumarkaðinn. Það þykja alltaf nokkuð merkileg tið indi þegarþetta stórskáld folk- rokktónlistar lætur frá sér fara nýja hluti, en heldur hafa menn þó orðið fyrir vonbrigöum nú á seinni árum, þvi óneitan- lega er glansinn farinn að mást allnokkuöaf stórstirni þessu. Ef undan er skilin platan Self Portrait, þá eru sjálfsagt fáar Dylan plötur sem hafa þótt jafn ómerkilegar og tvær siöustu plötur hans, Slow Train Coming og Saved. Dylan varö nefnilega fyrir þeim ósköpum að frelsast fyrir örfáum árum, sem sjálf- sagt heföi veriðallt ilagi ef bara hann hefði ekki tekið sig til og reynt að kristna allan heiminn lika. Tvær siðustu plötur hans eru þar af leiðandi ekkert annað en trúarþrugl og þess konar boöskapur á heldur litið upp á pallboröið hjá mér. Þaö eru þvi góð tiðindi að hann skuliað mestuhafa látið af þessum hvimleiða áróöri á nýju plötunni Shot Of Love. Að visu höfum við ekki alveg endur- heimt gamla góða Dylan, þar sem margir textanna fjalla um ástina og vissulega hefur hann ekki glataö trúnni alveg, en þessirtrúarlegu textarhans eru mun hófsamari en áður. Þó að kjarni þeirra tónlistar- manna sem leika meö Dylan á Shot Of Love hafi einnig veriö á Saved.þá er hljóöfæraleikurinn þó mjög ólikur og mun skemmtilegri. Breytingin er helst sú aö heildarsvipurShot Of Love er mikhi hrárri og ef ekki væru þessar kvenraddir, sem hann hefuralltof lengi notaö, þá væri árangurinn áreiöanlega betri. Shot Of Love er spor i rétta átt og hægt að kaupa hana til að hlusta á,en ekki bara til að fylla upp I safnið eins og tvær siðustu plötur hans. Pat Benatar— Precious Time Pat Benatar er einhver skær- asta rokkstjarna Bandarikj- anna idag.SIðasta plata hennar Crimes Of Passion er þreföld platinu plata i söluog fyrir lagið Hit Me With Your Best Shot hef- ur hún fengið gullplötu. Þar að auki fékk hún Grammy verð- launin og þaö telja Bandarikja- menn hinn mesta heiður. Það er nú samt svo aö til að geta oröiö þessa heiðurs aðnjótandi veröur viðkomandi að framleiða iðnað- artónlist af verstu gerö. Og svei mér þá ef Pat Benatar er bara ekki með þeim skárri sem feng- ið hafa þessi verðlaun nú á seinni árum. En Pat Benatar er ekki ein um f ramleiöslu þessa, þvi henni viö hlið stendur eiginmaðurinn og gitarleikarinn Neil Geraldo, en saman semja þau og útsetja mestalltefni hljómsveitarinnar. Nú hefur ný plata frá þeim lit- iö dagsins ljós og ber hún nafniö Precious Time. Salan á þessari nýju plötu hefur heldur dckert látið á sér standa og á tveimur vikum var hún komin inn á topp tiu I Bandarikjunum. Sjálfsagt eru margir til sem telja tónlist Pat Benatar til villtrar rokktónlistar, en I raun- inni er hér um steindautt geril- sneytt rokk að ræða. Tónlist sem aldreikemurá óvartog git- arsólóin eru t.d. sum hver alveg eins og þau hafi verið tekin beint af Crimes Of Passion. Nýja platan er þó heldur f jölbreyttari og þvi skömminni til skárri. Pat Benatar er þó ágæt söng- kona meö góða rödd og á meðan hún getur malað gull meö þess- ari framleiöslu sinni er ósköp skiljanlegt að hún haldi sig við þessa formúlu. Þetta er bara eins ogBretinn mundi segja not my cup of tea. LeoSayer— Bestukveðjur Þaö má segja að velgengni Leo Sayer eigi rætur sinar að rekja til ársins 1972 þegar hann komst ikynni við umboðsmann- inn og söngvarann David Courtney og söngvarann og leikarann Adam Faith. Sá sið- amefndi gerðist umboðsmaður Sayers og Courtney samdi lög og texta hans. Fyrsta platan, Silverbird, var tekin upp I stúdiói sem Roger Daltrey, söngvari Who, átti og hreifst hann svo af tónsmiöum þeirra, að þegar hann ákvað að gera sina fyrstu sólóplötu þá notaði hann einungis lög eftir þá. Lagiö Giving It All Away varð svo vinsælt með honum að þar með hafði isinn veriö brot- inn fyrir Sayer. Um haustiö 1973 sló hann i gegn með laginu The Show Must Go On. A eftir fylgdu Just A Boy, One Man Band og Long Tall Glasses en það siöar- nefnda varfyrsta hittiö i Banda- rikjunum. Éftir það lauk samstarfi þeirra Courtneys og Sayers fór að sem ja lög meö Frank Farrel fyrrum Supertramp-meölimi. Arið 1975 kom útplatan Another Year og lagið Moonlighting af henni náði miklum vinsældum. Siöan hefur gengi Leo Sayer verið svona upp og niður og þá kannski aöallega niður. Hann hefur þó engu að siöur af og til komið með góð lög sem náö hafa þokkalegum vinsældum. Steinar h.f. hafa nú sent frá sértvöfalda samsafnsplötu sem nefnd hefur verið Bestu kveðjur og hefur hún hvergi komiö út áður. Reyndar var fyrir nokkr- um árum gefin út með Sayer einföld Best Of plata og ég held að siðan hafi hann tæplega gert svo mörg lög vinsæl að þau fylli aöra plötu. En hvað um það Sayer flytur ágætis húsmæöra- rokk sem engan meiðir i eyrun og sum lögin eru jafnvel svo gripandi aö þau leggjast á mann og láta mann ekkif friði. En tvö- föld plata. Það er allt of stór skammtur fyrir mig. Ég þoli ekki meiren svo sem eitt tvö lög i einu og min vegna mega liöa nokkur ár á milli þess að ég heyri þau.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.