Helgarpósturinn - 04.09.1981, Síða 10
Föstudagur 4. september 1981
he/garpósturinrL
aðeins notuð tilránsferða heldur einnig til
verslunar.
Annar þáttur fjallar ma. um strandhögg
Haralds hárfagra á Norður-Englandi. Þar
var mikill auöur samankominn og þvi þótti
vikingunum bera vel i veiði.
A þessum tima voru Danir frábærir
handverksmenn. Þeir gerðu listmuni og
skartgripi sem sóst var eftir allt frá Islandi
og austur til Asiu. Dönsku vikingarnir þóttu
miklir kaupahéðnar en margir voru lika vik-
ingar I þess orös verstu merkingu. í þriðja
þætti er fylgst með villimannlegum
aöförum eins þeirra suður á ítaliu.
f fjórða þætti er reynt að grafast fyrir um
afdrif sænskra vikinga sem settust að i
Rússlandi. Þeir fóru á skipum sinum eftir
ám og fljótum Rússlands allt austur til
Tyrklands. Margir settust að i Kænugaröi.
Fimmti þáttur greinir frá ítökum vikinga
á Englandi en þar stofnuöu þeir m.a.
konungsriki, Jórvik.
Strandhögg vikingaá Englandi og írlandi
varð til þess að þjappa þegnum þessara
landa saman og mynda samstöðu sem
gætir enn. Sjötti þáttur er um konungsriki
vikinga iDyflinniog Jórvik. Til beggja var
stofnað með ofbeldi og bæði töpuðust með
ofbeldi.
Sjöundi þáttur fjallar um vikingalandið
ísland sem er eina eiginlega vikingalandiö.
Þar var stofnað eitthvert athyglisverðasta
lýðveldi sem um getur.
Áttundi þáttur er um frægasta vikinginn,
Eirik rauða. Greint er frá víkingabyggö á
Grænlandi og leitaö minja um veru þeirra á
heimsskautseyjum Kanada.
Niundi þáttur greinir frá þvi hvernig
munaöi minnstu hvað eftir annað að Bret-
landseyjar féllu vikingum i hendur. Lýst er
för Sveins Danakonungs tjúguskeggs og
Knúts sonar hans til Englands að hefna
þeirra Dana sem þar höfðu verið teknir af
llfi.
Það er við hæfi aö lokaþátturinn lýsi
lokum vikingaaldar. Arið 1066 féll Haraldur
harðráði i orrustu á Englandi fyrir
Vilhjálmisigurvegara og hafði þannig áhrif
á gang veraldarsögunnar.
NU er bara spurningin hvor veröur á
undan að sýna Vikingana, sjónvarpið okkar
eða videoiö I Breiöholti.
Víkingarnir
koma!
Athyglisverður
myndaflokkur frá BBC
undir stjórn Magnúsar
Magnússonar hefur
göngu sina i sjónvarpinu
i næsta mánuði
Vetrardagskrá sjónvarpsins okkar hefst
um miöjan október. Og eftir öllum sólar-
merkjum aðdæma ætiar dagskrá vetrarins
að byrja myndarlega þvi aö fyrirhugað er
að sýna fræöslumyndaflokk BBC, Vik-
ingana, sem geröur er i samvinnu við hinn
kunna sjónvarpsm ann, Magniis Magnús-
son, en hann hefur samið handritiö og er
þulur I myndunum.
Þetta eru tiu þættir, hálftimalangir, og
fyrirhöfundi vakir m.a. að varpa ljósi á það
sem aimenningur veit minnst um gömlu
sægarpana.
Vikingarnir settu svip sinn á evrópskt
þjóölif frá lokumáttundu aldar og fram yfir
miðja elleftu. Þeir voru ágætir handverks-
menn og miklir stjórnvitringar. Þeir voru
góðir landkönnuðir og miklir landvinninga-
menn og enginn stóð þeim á sporöi hvaö
varöar verslun.
1 þáttunum er reynt að grafast fyrir um
það hvort víkingarnir hafi verið blóðþyrstir
sjóræningjar og gripaþjófar eins og af er
látið. Viða er leitað heimilda, m.a. á forn-
gripasöfnum og i íslendingasögunum.
Þá er þvi lýst hvernig vikingar gerðu
fýrst strandhögg I nágrannalöndunum en
færöu út kviarnar, fóru i vesturveg til Is-
lands og þaðan alla leið til Kanada. Einnig
er sagt frá feröum þeirra til Asiu.
1 lýsingum sínum styðst Magnús
Magnússon við safngripi, eftirlikingar af
vikingaskipum, smiöisgripi úr málmi og
viði frá vikingaöld, og hann útskýrir
einfaldar myndir af bardögum og sliku,
gerðar af vikingum og samtimalista-
mönnum þeirra.
Einnig er fjallað um verkkunnáttu á
þessum tima, svo sem á sviði skipasmiða,
vefnaöar, myntsláttu og útskurðar.
Þessi myndaflokkur hefur vakiö mikla
athygli þar sem hann hefur verið sýndur
enda mjög til hans vandaö. Mjög mikill
undirbúningur lá aö baki þegar sjálf kvik-
myndatakan gat hafist. Til dæmis voru
búnar til nákvæmar eftirlikingar af
vopnum og verjum vikinganna. Smlðaðar
voru eftirlikingar af fjórum gerðum vlk-
ingaskipa sem tileru IDanmörku og Noregi
og einnig voru notaöir norskir teinæringar
sem eru beinir afkomendur víkingaskip-
anna og fiskimenn nota enn.
Kvikmyndað var i Noregi, Danmörku,
tslandi, Sviþjóð, Færeyjum, Grænlandi,
Rússlandi, Tyrklandi, ttallu, Englandi,
Mön, Orkneyjum, Hjaltiandi, trlandi.
Þáttur Magnúsar Magnússonar i þessum
þáttum er vissulega stór. Hann var viðast
meö kvikmyndatökumönnunum. Hann er
sögumaður þáttanna enda fjölfróöur um
hætti vikinganna. Við sjáum hann sigla vik-
ingaskipi og fara á skautum úr beini.
Og hér er I stuttu máli lýsing á efni
einstakra þátta myndaflokksins.
t fyrsta þætti lýsir Magnús upphafi vik-
ingatimabilsins og leiðir getum að þvi hvaö
rak þessa menn til fjarlægra landa. Einnig
reynirhann að greina staðreyndir frá þjóð-
sögum.
Vikingar voru mestu sæfarar Evrópu og
áttu bestu skipin. En skipin voru ekki