Helgarpósturinn - 29.01.1982, Qupperneq 21
hnlrjaripri<=rh irinn Föstudagur 29. janúar 1982
alls ekki ab ráðast á Rauðsokka-
hreyfinguna!
Konur þroskaðri
fiifinningaverur
Svo hef ég samið texta sem
fjallar um viðbrögð foreldra þeg-
ar upp kemst að sonur þeirra er
hommi. Það er svo mikil hræsni
rikjandi i viðhorfum til hómó-
sexúalisma og þó hafa þeir fyrir
löngu bundist samtökum. Mér
finnst lika skritið að lesbiur virö-
ast ennþá hræddari við umtal.
Mér finnst samt miklu „eðli-
legra” að konur sofi saman en
karlar. Ég meina, þeir eru svo
andlega bæklaðir að það er ótrú-
legt, að þeir geti sofið saman.
Maður er bæklaður niöri rass sem
tilfinningavera. Konur eru miklu
þroskaðri. Ég vil gjarna taka
þetta til meðferðar.”
Þorleifur og Jói samsinna.
„Við viljum tittlingafrelsi.
Þetta hljómar karlrembulega en
ég meina það samt ekki þannig.”
Dökku hliðarnar
fleiri
— En svo við förum yfir i aðra
sálma. Eruð þið að höfða til sér-
staks aldurshóps?
Bubbi: „Þaö er úti hött að
greina fólk niöur i hópa eftir
aldri. Fólk er ósjálfstætt sem ein-
staklingar en verður sjálfstætt
sem hópur og það er þjóðfélaginu
að kenna.”
Þorleifur: „Ég hugsa samt að
við höfðum meira til yngra fóiks,
þótt það sé litil reynsla komin á
það.”
Bubbi: „Textarnir ættu frekar
aö höfða til þeirra sem eru depr^
meraöir og langt niðri.”
— Af hverju segirðu það?
„Ég er farinn aö hrifast af'
dökku hliöunum. Þær eru lika
fleiri. Myrkrið dregur mig til sin.
Það er fullt af skemmtilegum
hlutum i myrkrinu þegar þú ferð
að pæla i þvi. Það liggur viö að
sannleikurinn sé i klóakinu, i ræs-
inu. Toppurinn i samfélaginu er
miklu spilltari en ræsið. I felum
bak við sléttan og felldan,hvitan
hjúp.
Þetta minnir kannski éitthvað á
E.A. Poe”, segir Bubbi og hlær,
„hann er lika i uppáhaldi hjá
mér.”
— Hvernig eru aðstæöur til að
koma tónlistinni á framfæri?
„Hótel Borg er siðasta vigi
rokksins, Krypplingarnir i F.S.
sýndu sina réttu hlið meö lokun
NEFS. Það var algjört hneyksli!
Þetta liö fattar ekki að músikin er
miklu sterkari miðill en mánaðar
ræöuhöld. Og útvarpið ignorerar
mig algjörlega út af textunum,
þeir^jagga svona i rólegheitunum
niðri mér.”
Ekkert sniff!!
— Hvað segja Egómenn um
sniffið, að lokum??...
Jói: „Það er eins og þeir séu
fyrst núna að fatta sniffið; þetta
hefur verið stundað i mörg ár.”
Bubbi: „Ég mundi nú segja að
unglingarnir ættu frekar að
reykja gras og láta lim og gas
eiga sig. Þá er nú eins gott að
setja kúlu i gegnum hausinn
strax. Og ekkert helvitis brenni-
vin. Allur þjóöfélagsbömmerinn
er út af brennivini.”
Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir-
-og Maria Gisladóttir-
r-PÓSTUR OG SÍMh
Kæri Stuðari!
Föstudaginn 8. jan. siðast lið-
inn birti Stuðarinn viðtal við
diskófrfkurnar Jónas og Her-
mann. Við viljum bcnda þeim á
sem hafa sama hugsunarhátt og
þessir tveir t.d. að á Borginni
skcmmta sér allar tegundir af
fólki. allt frá diskófrikum til
pönkara. Margir aðrir en diskó-
frikur klæða sig sómasamlega
og cru hrcinir eða hvað kallið
þið að klæða sig sómasamlega?
Kaupa fötin dýrum dómum i
ti'skuvöruversiunum? Og á
Hlemmi hanga fleiri daginn út
ogdaginn inn cn pönkarar! T.d.
forfallnar diskófrikur! Og er
hægt að kalla Thin Lizzy pönk?
Það er amerisk graðhestatón-
list, sem örugglcga er skyldari
idiskói cn pönki. Er citthvað
betra að sýna turistum diskó-
frikur? Og áður cn þið dæmið
pönk á þennan hátt skuluð þið
kynnast þvi ofurlitið betur. Við
viðurkennum að pönkarar cru
ruddalegir i' framkomu, en þeir
eru örugglega ekki verri en
diskófrikur. Að lokum adlum við
að biðja ykkur Jónas og Her-
mann úr þvi þið hafið svona
mikið vit á þessu að taka að
ykkur aðskipta þjóðinni niður i
pönkara og diskófrikur. Getur
hundurinn þinn hlegið Jónas?
HG.S.og B.B.
P.s. Stuðarinn gæti kannski tek-
ið viðtal við venjulcgar
manneskjur næst?
H.G.S. og B.B. Við þökkum
bréfið og vonum að Hermann og
Jónaslesiþað. Það er gaman að
fá viðbrögð við þessu viðtali og
gaman væri lika að heyra álit
fleiri diskara! Það er góð hug-
mynd hjá ykkur að við töluðum
við venjulegar manneskjur, þó
það sé kannski erfitt að finna
þær, en við ætlum að reyna. A11-
ar ábendingar eru vel þegnar.
Heill og sæll Stuðari góður
Ég, sem þetta skrifa,er mikill
TALKING HEADS-aðdáandi.
Þessi frábæra hljómsveit er nú
liætt störfum þvi miður. Fyrir
þá sem ekki vita um hverja er
verið að ræöa vil ég benda á
plötuna REMAIN IN LIGHT
sem er i alla staði mjög góð.
En hvað um það þá hef ég
heyrt þvi fleygt að David Byrne
og Jerry Harrison ætli eða séu
að gera hvor sina sólóplötu. En
þvi miður fæ ég hvergi staðfest-
ingu á þvi.
t örvæntingu minni skrifa ég
ykkur i von um að þið getiö eitt-
livað grennslast um svör fyrir
mig. Einnig langar mig að vita
hvort von sé á kveðjuplötu frá
TALKING HEADS.
Ég vona að þið launið mér
„þolinmæðina” við lestur
Stuðarans sem ég les nær alltaf
með þvi að finna svör við fyrr-
greindum spurningum og með
þvi að afsaka vélritunarkunn-
áttu mina.
„Kólfur”
Takk fyrir bréfið „Kólfur”.
Stuðarinn er þér sammála um
gæði hljómsveitarinnar TALK-
ING HEADS og okkur þykir lika
fyrir þvi að samstarfi þeirra sé
nú lokið;eða svo gott sem.
En við höfum þær gleðifréttir
að færa frá sérfræðingi okkar i
tónlistarmálum að von sé á
plötu frá þeim í vor en hvort það
erkveðjuplataerekkivitað. Við
skulum bara vona að svo sé
ekki. Við fengum lika þær fréttir
að David Byrne og hljómborðs-
leikari TALKING HEADS
(sennilega Jerry Harrison) hafi
báðir gefið út sólóplötur nú þeg-
ar.
Við vonum þvi að þú takir
gleði þi'na aftur og finnir þessar
plötur einhversstaðar
Kær kveðja
Stuöarinn
Rafmagns-
píanóið er sjálf-
stætt hljóðfæri
Og þá er komið að rafmagns-
pianóinu. Stuðarinn náði sam-
bandi við Eyþór Gunnarsson,
rafpianista i Mezzoforte og fékk
hann tilað segja okkur undan og
ofan af þessu fyrirbæri.
— Hver er helsti munurinn á
rafmagnspi'anói og þvi hefð-
bundna?
,,Það eru til ýmsar tegundir
rafmagnspianóa. Bæði eru tíl
þau sem byggjast upp á litlum
málmpinnum sem klingja og
svo rafeindapianó. Hefðbundið
pianó hefur aftur á mótistrengi.
(Sjá 1. þátt um pianó, innsk.
Stuðarinn) Svo eru til raf-
magnsflyglar meðstrengjum en
i þeim eru „pick-up” sem
magnar upp hljóminn. Þeir eru
reyndar minni en venjulegir
flyglar en eru kröftug hljóðfæri
og rándýr”.
— Já, það er þetta með
verðið, eru rafmagnspianóin
ódýrari?
„Þaö er nú upp og ofan. Yfir-
leitt eru þau ódýrari,en það fer
að sjálfsögðu eftir tegund. Þau
eru til dýrari lika”.
— Býöur rafmagnspianó upp
á fleiri möguleika?
„Algengasta tegund raf-
magnspi'anóa er Fender
Rhods— Það er pinnapianó
sem hefur sitt ákveðna sánd.
Það er ekki beint hægt að segja
að það bjóöi upp á fleiri
möguleika en það er allt öðru
visi. Venjulega pianóið er meira
karakterhljóðfæri”.
— Hvort hljóðfærið finnst þér
skemmtilegra?
„Það er eiginlega ekki hægt
að gera upp á milli, bæði eru
mjög skemmtileg. Það fer bara
eftir þvi sem við á i hvert
skipti”.
— Viltu segja eitthvað um
rafmagnspianó að lokum?
„Já, ég vil undirstrika að raf-
magnspianóið er sjálfstætt
hljóðfæri.Það er ekki verið að
reyna að apa eftir venjulegu
pianósándi heldur hefur það sitt
eigið”. Stuðarinn þakkar Ey-
þóri fyrir greinargóð svör.
Þetta er hljómsveitin Mezzoforte, en Eyþór Gunnarsson sérfræö-
ingur Stuðarans i rafmagnspianói er lengst til vinstri á myndinni.
rBALEWIN-
tvnr atvinnuraenn,
sem DYrjenaur
Bæði atvinnumenn, byrjendur og allir aðrir geta
treyst því að BALDWIN uppfyllir allar þeirra
kröfur — og meira til.
Slyle 914
Hér er um eigulegan grip að ræða.
Kassinn er úr hickory og bekkur fylgir.
BALDWIN píanó hafa fyrir löngu
sannað yfirburði sína.
Skyline 450KT
Ný gerð aforgelifrá BALDWIN. Afar
fjölhœft hljóðfæri, á verði sem allir
ráða við.
Hljóöfæraverslun
mmm
dlWiHf Grensásvegi 12 — Sími 32845.