Helgarpósturinn - 30.04.1982, Síða 12
12
Eykur bónusinn misréttið?
Um það spyr Vinnuverndarhópurinn
í nýrri jafnréttiskönnun
Föstudagur 30. apríl 1982 helgarpÓsturínn
Þessa dagana er að hefjast
könnun á jafnréttismálum f
frystihiísum iandsins. Það eru
fjórmenningar sem nefna sig
Vinnuverndarhópinn sem gera
könnunina en hún á nánar tiitekið
að beinast að „afkastahvetjandi
launakerfum og tengslum þeirra
við stöðu kvenna á vinnumark-
aðnum og á heimilinu með tilliti
tíl jafnréttis”.
Einn fjórmenninganna, Einar
Baldvin Baldursson ,er búsettur f
Danmörku og ætlar hann að vinna
samskonar könnun meðal starfs-
fólks f fiskiðnaði þar i landi, f
samráði við dönsk verkalýðsfé-
lög. Reyndar tekur íslenska könn-
unin til fleiri starfsgreina en
frystíhúsa, þvf ætlunin er að taka
með starfsfólk f fata- og matvæla-
iðnaði.
í viðtali við Helgarpóstinn
sögðu þau þrjú sem hér vinna —
Gylfi Páll Hersir, Jónas GUstafs-
son og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir
— að frumkvæðið að þessari
könnun væri komið frá Svövu
Jakobsdóttur fyrrverandi alþing-
ismanni en ákvörðunin hefði ver-
iö tekin f Jafnréttisnefnd Nor-
rænu ráðherranefndarinnar.
— Er talið að bónusinn hafi nei-
kvæð áhrif á stöðu kvenna sem
við hann búa?
— Það er ekki vitað, en þær
raddir hafa heyrst frá Norðmönn-
um að ákvæðisvinna leiði ekki til
aukins launajafnaðar milli kynja
heldur þvert á mdti. Hér á landi
má benda á að grunnkaupi verka-
kvenna í frystihúsum hefur verið
haldið niðri sfðan bónusinn kom.
Svo hefur það lika gerst viða að i
stað þess að vinna 8 stundir á dag
vinna konur aðeins 4 tima og fara
svo heim að gæta bús og barna.
Þessa hluti ætlum við að kanna
og til þess að það sé mögulegt
þarf að spyrja um ýmis önnur
atriði sem snerta vinnuumhverfi
verkafólks, þvi bónus og jafnrétti
eru ekki einangruð fyrirbæri.
— Eru verkalýðsfélög ekki óð-
um að snúa baki viö ákvæðisvinn-
unni á hinum Noröurlöndunum?
— Það er upp og niður. í Dan-
mörku er það alls ekki á dagskrá,
enda gerir kreppan verkafólki
erfitt um vikað knýja fram mikl-
ar breytingar. En i Noregi hafa
verkalýðsfélögin hafið umræður
um grundvallarbreytingar á
launakerfinu. Það má segja hð
þessi mál séu til umræðu viða á
Norðurlöndum.
En i þessu sambandi er rétt að
geta þess aö könnun okkar er ekki
ætlað að kveða niður bdnusinn.
Okkar hlutverk er aðeins að safna
upplýsingum sem verkafólk og
aðrir sem áhuga hafa geta not-
fært sér. Það er ekki i okkar
verkahring að kveða upp endan-
legan dóm yfir bónuskerfinu.
— En hefur bónusinn ekki oröið
til að stytta vinnutimann?
— Jú, það hefur viða gerst.
Okkur er sagtað i BÚR heyri það
orðið til undantekninga að unnið
sé lengur en til 5 og það er erfitt
að fá fólk til að taka á sig meiri
vinnu. Það er einfaldlega of
þreytt til þess.
íslensk fyrirtæki
tJt er komin árbókin tslensk
fyrirtæki fyrir áriðsem er að liða.
Þetta er mikið rit að vöxtum, um
þúsund blaðsiður, og hefur að
geyma upplýsingar um 10 þúsund
fyrirtæki hér á landi.
Skráin skiptist að vanda i fimm
kafla: fyrirtækjaskrá er pláss-
frekust en þar er að finna upp-
lýsingar um öll fyrirtæki, félög,
sveitarfélög og stofnanir á land-
inu, umboðaskrá geymir nöfn 4
þúsund erlendra fyrirtækja sem
eiga viðskipti við tsland, vöru- og
þjónustuskrá, skipaskrá og loks
er kafli á ensku, Iceland today,
sem ætlaður er útlendingum og
hefur að geyma upplýsingar um
islenskar útflutningsvörur og út-
flytjendur þeirra, sendiráð ts-
lands og ræðismannsskrifstofur.
Útgefandi er Frjálst framtak.
Bor6a-
pantanir
Sími M220
•5660
Veitingahúslö í
GLÆSIBÆ
Goldrokariar
Diskótek
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reykjavik
TRYGGVABRAUT 14 SKEIFAN 9
S. 21715 23515 S. 31615 86915
Mesla úrvalið, besta þjónustan.
Við útvegum yöur afslátt
á bílaleigubiluin erlendis.