Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 27
J-lek sctoH TffiZ+i irinn Föstudagur 2, júli 1982 y 27 lÆIBAKVISIIt HllffMIKKAK ATHUGIÐ! Þeir sem vilja koma á framfæri upplýsingum i leiðarvisi helgarinn- ar, eru beðnir um að koma þeim á ritstjórn blaðsins I siðasta lagi á hádegi á miðvikudögum, eða hringja i sima 81866 fyrir sama tima. skeiiimtisfsiílir Hótel Borg: Diskótekið Disa leikur fyrir venjulega f jörugum dansi á föstu- dag og laugardag. Smápönkarar mæta og skemmta sér. A sunnu-. dag verður þaö þá Nonni Sig og kempur hans með gömlu dans- ana. Hótel Loftleiðir: Blómasalurinn er opinn eins og venjulega. Þar verður hinn vin- sæli salat- og brauðbar, ásamt venjulegum frábærum sérrétta- seðli. Vikingadinner á sunnu- dagskvöld. Sigurður Guðmunds- son leikur á pianóið alla helgina og eykur lystina með góðri list. Óðal: Halldór Arni og félagar halda uppi diskótekinu alla helgina og hafa eflaust einhver leynivopn i pokahorninu. Jón og Ingibjörg mæta, en borgarstjórinn tæplega. Mjög skemmtileg helgi. Skálafell: Jónas Þórir og orgelið hans sjá um stemmninguna alla helgina og fara létt með það. Tiskusýn- ingar á fimmtudögum og smurt brauð framreitt allt kvöldið. Ró- legur staður og gott útsýni yfir Esjuna. Sigtún: Diskótek á föstudag og laugardag á öllum hæöum, jafnvel lika i loft- hæö. Góö stemmning og ég tala nú ekki um á bingóinu á laugar- dag kl. 14.30. ÍITVAItP Föstudagur 2. júlí 7.00 Veöurfregnir, fréttir, bæn. Ja, ekki veitir nú af að biðja fyrir lýðnum á þessum dögum, þegar óminnishegrinn flýgur viöa. 7.15 Tónleikar. Hver er þuiur i dag'? Er það harmonikku Pétur? Er það djassfrikið? Hver er þulur, sá sem velur og kynnir? 8.00 Fréttir. Nú er maöur væntanlega kominn fram úr og byrjaöur að slafra i sig súr- mjólkina. Jógúrtiö er orðið svo dýrt. 9.05 Morgunstund barnanna. Halla heitir sagan og Guðrún Kristin Magnúsdóttir heitir höfundurinn, sem jafnframt les fyrir börnin. Vanur maður. 10.30 Morguntónleikar. Tónlist eftir hinn frumlega andans mann Vivaldi, leikin af blokk- flautu og kammersveit. A eftir kemur hljómsveit og leikur önnur lög. En Gunna var i sinni sveit. 11.00 Mér eru fornu minnin kær. Hann rignir og rignir og grasið grær. Einar frá Hermundarfelli og Steinka Sig (ekki skáld- konan) skemmta Gunnu i sveit- inni. 11.30 Létt tónlist. Jim Reeves, Perry Como og margir fleiri slá á léttari strengi en fiölustrengi. 13.20 ca. A frivaktinni. Hún Sig- rún min Sigurðardóttir kynnir og leikur óskalög sjómannanna á hafinu úti, bláa og græna. 15.10 Laufblað eftir Nostra. Smásaga eftir Tolkien. Einhver Asgeir R. Helgason les þýöingu sina. Furðulegt. 16.20 Litli barnatiminn. Litlu andarungarnir og fleiri góöir vinir barnanna koma i heim- sókn. Heiðdis Noröfjörö fer i broddi fylkingar. Hún er lika að noröan. Minna sjá má. Vá. 19.00 Fréttir. Þorgeir Þorgeirs- Broddvei: Lifandi tónlist á föstudag og laug- ardag, en þá leikur hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar fyrir dansinum. Engin skemmtiatriði, enda Guðmundur sjálfur bió á að horfa. Góða skemmtun. Leikhúskjallarinn: Lokað fram á haust. Hvers eigum við að gjalda, viö gáfumenn borg- arinnar? Hótel Saga: Hin splunkunýja hljómsveit Op- us, ásamt söngkonunni Mjöll Hólm leika fyrir dansi á föstudag og laugardag og verður gaman og kætast allir. Að sjálfsögðu veröur Mimisbar opinn um leið og Grilliö er alltaf opið fyrir þá, sem vilja góöan mat. Klúbburinn: Pónik og söngvasveinarnir glöðu leika fyrir dansi þessa helgi, auk diskótekanna á hæðunum. Yngra fólkiö skemmtir sér vel, en gaml- ingjarnir hrista hausa. Góö blanda. Glæsibær: Glæsir og diskótek aftur ein á báti, söngkonan farin. En það kemur ekki að sök, þvi strákarnir syngja svo vel. Nú svo syngja gestir kannski með, svona til til- breytingar. Þórscaté: Dansbandið heldur áfram aö vaöa uppi með mikið fjör og læti og stuð. A föstudag og laugardag. Diskótekið með nýja gólfinu og nýju græjunum verður lika á staðnum og gerir sitt besta. son gerði fréttunum góð skil i kvikmyndinni, sem hann gerði um árið. Allur óþverrinn fer beint ofan i súpupottinn. 19.40 A vettvangi. Hvar var Sig- mar? Var hann hjá nýja kóng- inum? Fékk hann lika... eins og hinir? Velkominn sértu. 20.40 Sumarvaka. Gagga Lund gaggar fyrir hljóðnemann. Presturinn minn rekur minn- ingar og Palii Bergþórs, áróðursmaðurinn mikli,les ljóð. Skyldi þaö vera um veðrið? Hann má ekki tala um annað. Svo segir Mogginn. 22.35 Samstæður. SAM les þýð- ingu sina á þessari smásögu, sem er eftir vitleysinginn James Joyce, uppáhaldsskáld Sigmars. 23.00 Svefnpokinn. Jæja Palli minn. Núna veit ég loksins hvaö þú ert aö bauka þarna niöri. Þú ert besta skinn, þaö vantar ekki. En kannski vantar eitthvað annað. Laugardagur 3. júli 7.00 Veöurfregnir.Og allt heila galleríiö. Hvilik armæða. 9.30 Óskalög sjúklinga. Loks- ins, loksins. Eitthvað með viti. Svona á að kynna þætti. Asa Finnsdóttir er lika vön. Skemmtileg lög. 11.20 Sumarsnældan. Helgar- þáttur fyrir krakka. A nú aö kenna börnunum á helgarnar? Eins og þær séu eitthvaö frá- brugðnar öðrum dögum? 13.35 iþróttaþáttur. Sæll Hemmi. Hvar hefurðu haldið þig alla þessa viku, ég hef bara ekkert séð þig? Alveg maka- laust góður útvarpsmaður. Ég meina þaö. 13.50 Dagbókin. Ég átti afmæli um daginn og Sigga frænka átti afmæli i gær. Minntust menn- irnir eitthvaö á þaö? Ég er hræddur um ekki. Snobb. Gunnar Salvarsson og Jónatan Garðarsson sjá um dægurlaga- þátt meö afmælisbörnum. Naust: Fjölbreyttur og skemmtilegur matseðill alla daga og alla helg- ina, og hefur aldrei verið betri. Jón Möller leikur lystaukandi tónlist fyrir gesti á föstudags- og laugardagskvöldum. A pianóiö. Svo er það barinn uppi á lofti, þar sem mörg spekingsleg umræöan fer fram. Hollywood: Opið alla helgina, opið upp á gátt, ég hristi úr mér velgjuna og öskra ofsa hátt. (úti alla nóttina). Diskótek og dúndrandi dans. Hollywood topp tiu valin á hverju kvöldi. Þá er sko gaman. Komið öll og verið þátttakendur i þessu mikla vali. Snekkjan: Marsbandiö og Halldór Arni skemmta göflurum alla helgina. Heröablöðin eru alltaf söm viö sig. Passið ykkur. leikliús Tónabær: Dagana 5. til 10. júli kl. 21 veröur leiksýning á hverju kvöldi. Þarna er á feröinni sænskur leikhópur, Teater Sargasso, og flytur hann leikritið Pá flykt frán den tid. Hópur þessi er atvinnuhópur og hefur aðsetur sitt i Stokkhólmi. Leikritiö fjallar um nokkrar 16.20 1 sjónmáli. Sigurður Einarsson heldur áfram að reyna að þóknast allri fjölskyld- unni. Heldur maðurinn, að hann geti brúað kynslóðabilið i einum þætti? 16.50 Barnalög.Loksins eitthvaö fyrir börnin i okkur. Ómar Ragnarsson syngur um lokað riki og fleiri sterka stráka. 18.00 Söngvar i léttum dúr. Þeir voru fyndnir i blaðinu. Ég ætla að sofa i löngum x-dúr. 19.35 Rabb á laugardagskvöldi. Haraldur Ólafsson mannfræð- ingur segir okkur frá fólki, hug- myndum, bókum o.fl. Mikið veit maöurinn mikiö. Mikið vildi ég vita jafn mikiö. 20.00 Tónleikar. Selló, pianó og Beethoven. Góð blanda það. 20.30 Kvikmyndagerðin á ls- landi. Hávar Sigurjónsson flytur fyrsta þáttinn af ég veit ekkihvaö mörgum. Hver er máðurinn? Hefur hann eitthvert vit á málinu? Vonandi talar hann viö ...æ, þiö vitiö. 21.15 Jón Múli kynnir.-Guömund Ingólfsson og félaga. Þeir ætla að leika djass. 22.35 Tveir kavalérar. SAM enn á ferö, og Joyce lika. Skritnir fuglar þetta. 23.00 Fyrr var oft f koti kátt. manneskjur, sem hafa leitað hæl- is i byrgi og biða sins dóms. Þær spyrja sjálfar sig af hverju þær hafi hafnað þarna og hverjum sé um að kenna. I leit sinni að svari feröast þær aftur i timann, i gegn- um sögu okkar og menningu, en lenda aftur og aftur i blindgötu. Hver er leiðin út? Verkiö veröur flutt bæöi á islensku og sænsku og er það leikið á miðju gólfinu meö áhorfendur i kring. Þaö byggist mjög á myndum og likamlegri tjáningu leikaranna. Hópurinn verður svo i Festi i Grindavik þann 11. júli. sÝninjiarsalir Galleri Langbrók: Langbrækur sýna eigin fram- leiðslu, keramik, grafik, textil og fleira skemmtilegt. Opið virka daga kl. 12-18. Árbæjarsafn: Auk heföbundinnar sumarsýning- ar, opnar á laugardag sænsk sýn- ing, sem nefnist Dalarósir úr Sviariki, og er þaö alþýöulist úr Dölunum, svokallaðar Dala- myndir. Myndir þessar voru mál- aðar af sjálfmenntuöum málur- um á timabilinu 1780-1870. Upphaf þessa málverks voru rósamyndir, sem málaðar voru á húsgögn i héraðinu. Sýning þessi kemur hingað frá Dalarnas museum og er hún i Eimreiöarskemmunni. Hún er opin á sama tima og safnið sjálft, kl. 13.30-18 alla daga nema mánudaga, júli og ágúst. Þetta likar mér, gömlu lögin sungin og leikin. 00.00 Uin lágnættið. Hvar er . móteitrið? Arni Björnsson hefur striö á hendur rokkgarginu, sem kemur á eftir. Ekki beint. ' 01.10 A rokkþingi.Skjól i tyggjó- kúlnahriðinni. Hvað meinar maðurinn? Ég held hann sé gal- inn. Ég missti algjörlega af sið- asta þætti, var löngu sofnaður. Sorry kid. Gangi þér betur með aö halda þér vakandi. Sunnudagur 4. júlí 8.00 Morgunandakt. Já, hann er góöur og blessaöur þessi sunnudagur, en mikiö ferlega er erfitt að vakna. Sérstaklega viö hanagal i sveitum. 9.00 Morguntónleikar. Svona nú, reyndu nú aö opna augun og eyrun og meötaka þessa dá- samlegu tónlist eftir Discogli, Mozart, Beethoven og þig (hrotur). Allt i d,b og g dúr. Vaknaðu. 10.30 Biskupsvigsla. Jæja, þá er veriö aö vigja séra Sigurö Guö- mundsson sem vigslubiskup i Hólastifti hinu forna. Margt stórmenna var þarna saman- komið og voru flestir hempu- Mokka: Ný sýning. Kristján Jón Guöna- son sýnir kiippimyndir. Galleri Háholt: Jón Gunnarsson sýnir málverk i hinum nýja sýningarsal Hafnfirð- inga viö Dalshraun. Sýningin er opin daglega kl. 14—22 og lýkur 11. júli. Djúpið: A laugardag opnar Pétur Stefáns- son sýningu á grafik, teikningum og málverkum. Frábær sýning. Sjá spjall viö Pétur i Gluggapósti. Norræna húsið: Danski myndhöggvarinn John Rud sýnir tilhöggna steina fyrir utan húsiö, en i anddyri er sýning frá Alta i Norður-Noregi, þar sem sýnd er alþýðulist ýmiss konar. Henni lýkur á sunnudagskvöld. Kjallarasalurinn er lokaöur vegna viðgerða á tröppum. Kjarvalsstaðir: >1 Kjarvalssal heldur áfram sýn- ing á verkum meistara Kjarvals, sem Gylfi Gislason hefur sett saman, auk þess, sem ferill gamla mannsins er rakinn á skemmtilegan hátt. I forsölum sýnir Magnús Tómasson sýniljóð sin, þar sem m.a. má sjá fugla og alls kyns skorkvikindi. 1 vestursal er svo sýning Listmálarafélags- ins, þar sem allir helstu fulltrúar islenska málverksins eru saman komnir. Rauða húsið/ Akureyri: A laugardag kl. l6opnar Hollend- ingurinn Jan Voss sýningu á verkum sinum. Sýningin er opin daglega kl. 16-20 og stendur til 11. júli. Annars býr Voss á Hjalteyri, þar sem hann dregur bein úr sjó og liður bara vel, að sögn. klæddir. Margir biskupar og aörir prelátar. En hvar er út og suður? Nema þetta sé út og suður. 13.20 Sönglagasafn. Trausti er draumaprinsinn og hinir eru aðrir utansvigamenn. Eöa var það ekki þannig meint? Skemmtilegur þáttur um þekkt lög og höfunda þeirra. 14.00 Aldarafmæli Samvinnu- hreyfingarinnar. Þaö munar ekki um það, en aðeins tæp min- úta á hvert ár. Brúnstakkurinn P.H.J. og listunnandinn skeytir saman atriöin, sem hljóörituð voru um daginn fyrir noröan og kynnir. Ekki sem verst. Þeir segja, að ég sé i Framsóknar- flokknum. 15.30 Kaffitiminn. llollenska sveifluskólabandið leikur létt lög meö vinarbrauöinu. Aörir koma lika við sögu. 16.20 Það var og. Já, það var og Þráinn Bertelsson, sem hjalar við mosatá, litla lipurtáin, sem hann er. 16.45 Geng ég yfir gróin svörö. Skáldlega mælt, enda ljóð eftir Jórunni ólafsdóttur frá Sörla- stöðum. Sigga Schiöth les af mikilli snilld. Ég sem hélt aö verið væri aö skopast. 16.55 A kantinum. Umferöar- þáttur, en hvar er óli H? Hann er bestur. En Birna Bjarnleifs- dóttir og Gunnar Magnússon eru ekki sem verst. óli er samt bestur. 17.00 Siðdegistónleikar. Mann alveg lifandi að drepa. Annað er vist ekki hægt. 18.00 Létt tónlist. Islenskir kraftar. Fislétt. 20.30 Eitt og annað um ástina. Þórdis Mósesdóttir og Simon Jón Jóhannsson sjá um þáttinn. Vita þau hvað ást er? Ha, vita þau þaö? 23.00 A veröndinni. Jibbi, jeehhe! Tannlausir kallar og kellingar. Halldór Halldórsson 'slær sér i hópinn og kynnir frumbyggjatónlist hvita manns- ins i Amriku. Útvarp á laugardag: Kvikmyndagerðin gegnumlýst Kvikmyndagerðin á tslandi . heitir flokkurfimm þátta, sem hefur göngu sina i útvarpinu á laugarda gskvöld kl.20,30 og verður á sama tima út júli. Umsjónarmaður þátta þess- ara er Hávar Sigurjónsson, og sagði hann I samtali við Helg- arpóstinn, aö meiningin væri að taka fyrir eitt ákveðið efni i hverjum þætti. Fyrsti þátturinn verður stutt sögulegt yfirlit yfir kvikmyndagerðina fram að sumrinu 1979, þegar hjólin tóku að snúast á fullu, eins og öllum er kunnugt. Hávar sagöi, að aðallega yrði fjallað um leiknar myndir, sem gerð- ar voru fram aö þeim tima, og gluggaö i blöð og aðrar heim- ildir þar að lútandi. Þátturinn annan laugar- dag veröur hins vegar helgaö- ur kvikmyndasjóði og rætt við aðstandendur um hann og hin nýju lög um kvikmyndasjóð og kvikmyndastofnun, sem ráð- herra hefur lofað að leggja fram á Alþingi strax næsta haust'. Lengra sá Hávar ekki fram i timann, en eitt er vist, aö þessir þættir verða þarft inn- legg i umræöuna um stöðu og framtiðarhorfur þessarar við- kvæmustu listgreinar hér á landi.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.