Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 31
31 Helg< 'sturinn. Föstudagur2. júlí 1982 Góöir landsmenn. Astsæl stjórn vor mun einhvem næstu daga hækka söluskattinn um nokkur prósentustig en þaö verö- ur séð til þess aö þeirrar hækkun- ar gæti ekki i visitölunni. Rikis- stjórninni þykir að sönnu miöur að þurfa aö ganga meö þessum hætti á kaup launafólks i landinu en hjá þvi verður bara ekki kom- ist þvi að rikisstjórnin þarf aö skaffa útgeröinni 300 milljónir vegna þess að fiskiskipaflotinn er orðinn of stór og alltof mörg skip þegar aö veiöa alltof fáa fiska og auk þess mörg skip á leiöinni núna á næstunni... u t ljósi ofanritaös er e.t.v. ekki aö undra þo'tt menn séu aö verða sannfæröir um aö Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráö- herra veröi eina verulega kosn- ingamál næstu Alþingiskosninga. Gárungarnir eru amk. þegar komnir I stellingar samanber þá fullyrðingu þeirra, aö aöalástæö- an fyrir því aö Ólafur Jóhannes- son skrifaöi undir efnahags- málasamninginn umdeilda viö Sovét sé sú aö meö þessum samn- ingi fá Rússar lánaðan sjávarút- vegsráöherrann okkar i'staö þess sem þeir skutu... V Kaupmannasamtökin hafa skrifað borgarráöi bréf og óskaö eftir þvi aö borgin afturkalli heimild Sambandsins til reksturs stórmarkaðar i Holtagörðum. Menn biöa spenntir eftir þvi’ hvaö nýi meirihlutinn gerir... V, Allir vildu Lilju Eysteins munks kveðiö hafa og hið sama fer bráðum aö gilda um tillögur forseta borgarstjórnar, Alberts Guðmundssonar, sem þykja einkar heiðskirar aö oröalagi. Nýlegt dæmi: „Borgarráö sam- þykkir að fela borgarverkfræö- ingi aö kanna möguleika á aö leysa bifreiðastööuvandamál miðborgarinnar meö þvi að gera bifreiöageymslu undir eða inni Arnarhóli án þess aö raska ytra útliti þessa náttúruundurs”... 97 8 ■'Ekki er aö sjá aö átakalaust veröifyrir Magnús Hreggviösson, nýjan eiganda aö útgáfufyrir- tækinu Frjálst framtak, aö koma þvi á réttan kjöl. Hvaö þá aö halda fólki i vinnu eða ráöa nýtt. Markúsöm Antonsson, sem ver- iö hefur ritstjóri Frjálsrar versl- unar i mörg ár, hefur nú látiö af þvi starfi. Þá hefur og látiö af rit- stjórn Iönaöarblaösins Jón Birgir Pétursson. Magnús hugðist slá tvær flugur I einu höggi og ráða Sighvat Blöndal, blaöamann á Morgunblaöinu, til að ritstýra báöum blööunum. Sighvatur hafnaöi boðinu þegar honum var gert ljóst, aö hann ætti sjálfur aö skrifa 2/3 af blööunum — og þótti engum mikiö. Þá blasir viö aö rit- stjórastóllinn á tiskublaöinu Lif sé aö losna. Þar hefur Katrfn Pálsdóttir veriö aö undanförnu en er nú sögö vera á förum og fylgir sögunni, aö lausafólk, sem skrifaö hefur i Llf ásamt Kat- rinu, hafi nú neitað aö vinna meirafyrirblaðiðfyrren þaöhafi fengiö greitt fyrir skrif sin i fyrsta og annaö tölublaö ritsins i ár. Þá mun ólafur Orrason skákmaöur og bankastarfsmaöur), sem haföi veriö ráöinn fjármálastjóri fyrir- tækisins, hafa bakkað út úr starf- inu þegar hann hafði kynnt sér stööu fyrirtækisins og kostaöi talsveröa fyrirhöfn i prentsmiöju aöná nafni hans út úr blaðhausn- um... LAUSNIR A SKAKÞRAUTUN- UM: A. Hvitur veröur aö tryggja frelsingjanum leiö upp á borð: 1. Bg5!-fxg5 2. g7 og vinnur, hrókurinn nær peöinu ekki. Svartur gat reynt 1. — Hg3, en þá kemur Bh4 og leppar hrókinn. Þetta er furðu einfalt! B. Hér er hvita peðið ekki einu sinni frelsingi, en hvit tekst þó aö ryöja þvi leiö upp i borö: 1. Bd6+!-exd6 3. f5-Kc5 2. Ra2 + -Rxa2 4. f6 Nú er peðiö á d6 fyrir kóng- inum svo að peðið rennur upp i borð. Ef svartur tekur ekki biskupinn i fyrsta leik, nær hvitur peðinu og vinnur á þvi. Núna fiamreiðum við FmriMurtarann ánýjanmáta! Helgarferðir til Frankfúrt; f lug bílaleigubíll eða gisting. Verð frá 2.680 kr.* „Frankfúrtararnir” okkar þykja sérlega kræsilegir. Aöal- hráefnið, flug, bílaleigubílar og hótel er framreitt á frá- bæru verði alla fimmtudaga í sumar og kryddað með öllu því skemmtilegasta sem Frankfúrt og nágrenni hafa að bjóða. T.d. er miðborgin einstaklega aðlaðandi, þar sem skiptast á skýjakljúfar nútímans og aldagömul meistarastykki byggingalistarinnar. Svo er ekki nema steinsnar að bregða sér út úr borginni niður að Rín eða til hinna rómuðu staða Baden Baden og Heidelberg. Brottför alla fimmtudaga, heim á sunnudögum. flug og bílaleigubíll. Verð frá 3.046 kr.* Vikulöngu Frankfúrtararnir eru ekki síður Ijúffengir. Flugið og bílaleigubílarnir á sama lága verðinu og tæki- færi til allra átta. Vafalaust velja margir Rínarrúntinn fræga, aðrir líta hýru auga til borga eins og Berlínar og Stuttgart og náttúrufólk og fjallafræðingar geta heimsótt Sviss og Austurríki þar sem grösin gróa og fjallrisarnir búa. Brottför alla fimmtudaga í sumar, þú getur verið 1, 2,3 eða 4 vikur. *Sérstakt tilboðsverð í júlí. Flug og VW-Polo bílaleigubíll allan tímann með ótakmörkuðum akstri, miðað við 4 (bíl. Leitið upplýsinga hjá Flugleiðum og ferðaskrifstofun FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi m A Ferdaskrifstofa nTCniVTM( kjartans helgasonar URVAL Samvinnuferdir FERÐAMIÐSTÖDIN FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS ÚTSÝM

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.