Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 22
maour - segir BirgSr Mogerisen sem spilaði með Killing Joke í Englandi Birgir Mogensen, fyrr- um bassaleikari i hljóm- sveitinni Spilafífl, hefur sögu að segja. Birgir fór fyrir einum og hálfum mánuði til Englands til að spila með þeim Killing Joke mönnum, Jaz og Geordie. Mikið hefur veriö rætt um þessa menn i f jöl- miðlum að undanförnu og ekki sist Jaz sem hefur verið sagður djöfladýrk- andi og að manni hefur fundist snarklikkaður ná- ungi sem kom til íslands í þeim tilgangi að eyðileggja frama hljómsveitarinnar Þeyr. — En Birgir hefur aöra sögu að segja. Við Birgir hittumst í vikunni og Stuðarinn spurði hann fyrst af hverju hann hefði farióti! Englands. Rokk í Reykjavík. „Þannig var að Jaz og Geordie voru á frumsýningu Rokk i Reykjavik og sáu mig þar spila með Spilafiflum. Þeir buðu mér i bandið og við æfðum hér i viku en fórum þá út til London, þaðan til Wales og æfðum þar. Mig langar tii að leiðrétta misskilning sem ég las i HP i siðustu viku, en þar var sagt að á siðustu stundu hefði tekist að afstýra þvi að Jaz hefði tekist að leysa Þey upp. Hann bauð að vfsu Sigtryggi og Guð- laugi i Killing Joke i febrúar og þekktust þeir boðiö þar til i april eða mai en þá neituðu þeir tilboð- inu. Þetta var nú allt og sumt. Jaz kom hingað siður en svo i þeim tilgangi að leysa Þey upp, eins og svo margir virðast hafa túlkað komu hans.” M* Þessi Stonehenge liggja i þri- hyrning og á milli staða liggja mörg hundruð milur, en nákvæm- lega sama milutalan milli þeirra. :: eKkt 9UÖS' Jax — Hvernig náungi er Jaz? „Eins og hann segir sjálfur; ef menn væru dæmdir eftir sköpun- argáfu, — væri umræðan sjálf- sagt á öðru plani og viðhorf til hans önnur. Hann er mjög mis- skilinn maður, ekki bara hér á landi heldur erlendis lika. Hann er enginn djöfladýrkandi, heldur þveröfugt. Hann hefur mikinn áhuga á orkumiklum stöðum s.s. Snæfellsjökli, en hann reynir að ieysa þá orku upp og nota hana sér til góðs. Það kemur engin djöflatrú nálægt þessu. 1 Eng- landi heimsóttum við Stonehenge en það eru staðir sem voru byggð- ir 800 þúsund árum f.Kr. Enginn veit hvernig þeir voru byggðir né i hvaða tilgangi þótt haldið sé að þeir hafi veriö notaðir til trúarat- hafna. Af minni reynslu eru þess- ir staðir ákaflega friösælir. Það er mikill munur að vera þarna inni og að vera fyrir utan þá. ..... . ^ qOV'" úVja\"[V^„."iiM Lorheldor.... — Einhvers staðar kom það fram að Jaz væri að hugsa sér að flytja Stonehenge til landsins. Heilbrigður maður hlýtur að sjá að það er algjör fásinna. Núna er Jaz á tónleikaferðalagi en hefur á engan hátt snúið frá þeirri ákvörðun sinni að setjast að á fs- landi,”segir Birgir.sem andvarp- ar nú og endurtekur: „Já, Jaz er misskilinn maður. Það er alveg furðulegt hve fólk lætur stjórnast af blöðunum. Hefði ég gert það hefði ég sennilega aldrei þorað að fara i K.J. En sem betur fer tók ég minn tima og kynntist honum. Margt af þvi sem hann segir er mjög jákvætt og gott en hann er ekki guðs útvalinn sonur. Hann er mannlegur eins og ég og þú. Það er hálf hlægilegt að vita hvernig Þeysarar hafa notfært sér K.J. sér til framdráttar. T.d. var send spóla til BBC og hún kynnt sem tónlist Þeys og Jaz, eftir að Tryggur og Gulli höfðu ákveðið að vera áfram i Þey og ljóst var að K.J. og Þeyr áttu enga samleið. — Og þessar mystisku pælingar Þeys eru auglýsingaskrum sem koma frá Hilmari Hilmarssyni. Þeir nota þetta einungis i þeim tilgangi að vekja á sér athygli.” ja53!?, aU' onvJ"°' — En hvað með þig sjálfan, ertu ennþá i K.J.? „Nei, ég er ekki lengur i band- inu sjálfu, en það er margt sem við höfum áhuga á að vinna sam- an þegar timi vinnst til. Paul gamli trommuleikari K.J. kom aftur til samstarfs við þá og gerði sinar kröfur og þvi fór sem fór. En á þessum mánuði sem ég var úti lærði ég mikið, en þó mest af vinnubrögðum K.J. Þau eru pro- fessional og mjög ólik þvi sem ég hef kynnst hér heima. En aðstað- an úti er lika mikið betri. Þarna eru peningar fyrir hendi. Þú spil- ar þina músik og færð það sem þú vilt. Og að mörgu leyti eru það peningamálin sem halda hljóm- sveitum hér niðri. Það eru ein- ungis Þursarnir sem virðast vera með sitt á hreinu. Græjuleysi, sándleysi og frumleikann virðist vanta i flestar hljómsveitir. ts- lenskar hljómsveitir eru undir of miklum áhrifum frá erlendum hljómsveitum. Það getur verið erfitt að taka það ab'arlega að vera tónlistarmaður hér. Það vantar tilfinnanlega svona 2-3 klúbba fyrir hljómsveitir til að spila á. Eini möguleikinn er að spila utandyra sem er ekki nógu gott. Mitt álit er að hljómsveitir hér heima ættu að standa saman um að koma upp stað eða stöðum til að koma fram og spila. Það er enginn sem gerir það fyrir þær.” Ætlar aö f lýta sér hægt — En hvað tekur við hjá þér? „Ég ætla að flýta mér hægt. Ég hef áhuga á að fara að spila en það er ekkert ákveðið ennþá. Ég fór ekki úti þetta til að verða heimsfrægur og vonandi er ekki litið á mig sem sllkan. Þegar poppskribentar hérlend- is eru að likja Þeysurum við Kill- ing Joke getur maður ekki annað en brosað. Það hefur engin hljómsveit þann kraft og frum- leika sem Killing Joke hefur.” Hér slúttum við viðtalinu þótt margt fleira hafi verið sagt. Að lokum vonar Stuðarinn að allt gangi i haginn hjá Birgi og að þeim félögum Killing Joke, Jaz og Geordie verði betur tekið næst þegar þeir koma til landsins.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.