Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 23
"x/Tð hverju býstu? i Hljómsveitin ComSat Angels er eins og flestum er kannski kunn- ugt um, væntanleg hingað til landsins. 1 bigerð er að hún haldi tvenna tónleika, þann 10. og 11. júli.Þeir fyrri verða haldnir i Fé- lagsstofnun stúdenta en hinir seinni, að öllum likindum i Gamla biói (Operunni). S'-ék' ,besta aldri ð/-• Og hvað með það? Jú. Sjáiði til, ComSat Angels er nefnilega hin ágætasta hljómsveit (og ég er ekki að plata þvi ég hef hlustað á hana, — að visu bara af segul- bandi en ekki á tónleikum). Nema hvað að i ComSat Angels eru fjór- ir strákar: Kevin John Bacon, kallaður Kev fæddur 30. mars 1959. Kev leikur á bassagitar. Stephen Andrew Fellows er einn- ig fæddur i mars nánar tiltekiö þann 8. árið 1955. Hann er kaliað- ur Steve og leikur á gitar auk þess sem hann tekur oftast að sér aöal- sönghlutverkið. Michael John Glaisher er fæddur 29. desember 1954, en Mick eins og hann er kall- aður leikur á trommur. Andrew Philip Peake eða Andy hljóm- borðsleikari er fæddur 21. ágúst 1955. Erum við einhverju nær? Tja, ekki eru þeir gamlir strákarnir þeir eru þetta frá 23ja upp i 28 ára. Þegar þeir hlusta á plötur 1 hlusta þeir gjarnan á Pere Ubu, Marvin Gaye, Television, the Kinks og Bruce Springsteen á- samt fleirum. ComSat fá góða dóma fyrir plötursinar sem eru a.m.k. orön- ar átta, þ.e.a.s. tvær stórar: Waiting For A Miracle og Sleep No More ásamt 6 litlum. En þó eru hljómplötur þeirra sko ekkert miðað við þegar þeir halda tón- leika. T.d. segir gagnrýnandi nokkur um tónleika sem þeir héldu i næturklúbbi við Charing Cross Road i London, að þeir hefðu verið gjörsamlega ógleym- anlegir. Hann átti nánast ekki orð til að lýsa þeim. Svo hverju á maður að búast við þegar ComSat koma hingað? Púff, já maður svitnar bara viö tilhugsunina. Flakkarar? Annars viröast þeir Kev, Mick, Steve og Andy ekkert vera fyrir að troða sér áfram, né reyna að skapa sér einhverja imynd enda mundi (einsog segir i Melody Maker) hljómsveitin Spandau Ballet lýsa þeim sem „flökkur- um”. Hmm. S!k"ri,0a h°y»7 er sögu Nú en hvað öllum lýsingum lið- ur er vist best aö minnast þess svona i lokin aö sjón (og heyrn) er sögu rikari. (Og það sakar alls ekki neitt að reyna að verða sér úti um hlustun á ComSat áður en þeir mæta og áöur en fólk fer að kaupa sér miða). Nú og svo liggur enginn á liöi sinu á tónleikunum. Ha? /A~ ERU- A0 — KOMA TIL ISLA NDS t r Orð- A opnunni hér á undan bis.21 og 22 er fjallað um erlendar friðar- hreyfingar og ýmsa hópa hér- lendis sem berjast fyrir friði. Stuðarinn minnir á fundinn á morgun á Miklatúni sem hefst kl. tvö en það er FRIÐARFUNDUR GEGN KJARNORKUVOPNUM, GEGN KJARNORKUVIGBON- AÐI. P.S. Purrkur Pillnikk mætir á staðinn og heldur uppi stanslausu fjöri. Svo verður Pæld’iöi hópur- inn meö lögin úr leikritinu BAN- ANAR og fleira og fleira. sinna Fagurkerar ifa Þegar fegurö og friösæld feröamannastaða er annars vegar eru fagurkerar flestir sammála: SVISS er sigurvegarinn! Svissnesku Alpafjöllin, gróöursælir dalir, dimmblá vötn og glaðlegir fjallalækir - allt eru þetta dæmigeröar myndir sem Sviss getur öörum fremur státað af. Hótelgisting í stórborgum, sumarhús í sveitinni, bílaleigubíll eöa hvaö annaö sem hentar stendur þér til boöa í Sviss. Og á landakortinu finnuröu auðveldlega út aö þú getur ekiö til annarra landa allt um kring á örfáum klukkustundum. Áetlunarflug til ZURICH alla sunnudaga Flugfélag með ferskan blæ jTarnari-lug m. Lágmúla 7, sími 84477

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.