Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 8
Föstudagur2. júlí 1982 írínn Gestir viö einn baranna i nýja Sjallanum. Til hægri viö barinn er eini fasti punkturinn hjá gömium Sjallagestum — grjótveggurinn, það eina sent stendur uppi af innréttingum Sjáifstæöishússins sem brann i vetur. hafa fengið Sjallann sinn aftur Sjallinn á Akureyri hefur ver- iö endurreistur eftir brunann i desember i vetur. Og nú heitir staðurinn Sjallinn, ekki Sjálf- stæöishúsiö, enda húsið ekki lengur á vegum stjórnmála- flokksins. En þaö eru ekki allir Akureyr- ingar ánægöir með nafnið. „Sjallinn er brunninn og kemur ekki aftur”, segja sumir, en aörir fagna endurreisninni. Flestir uröu þó ruglaðir þegar þeir komu inn i Sjallann i fyrsta sinn.týndu öllum áttum þar til Þórður Gunnarsson sem rak Sjálfstæðishúsið og er nú einn af eigendum Sjailans kom til skjalanna og benti á vegg sem allirkönnuðustvið.það eina sem eftir er af gamla Sjallanum. Þarmeö fundu menn fastan punkt i tilverunni og náöu átt- um. Annan fastan punkt fundu menn siöastliðið sunnudags- kvöld. Þá sat Ingimar Eydal viö orgeliö með nýja hljómsveit og fulltrúa nýrrar Eydalkynslóðar viö hljóönemann. Söngvari hljómsveitarinnar er Inga dóttir hans, efnileg söngkona. Hvort þau feðgin verða f Sjallanum eitthvaö áfram er þó óvist, en forráöamenn hússins hafa mik- inn hug á þvi og sjálfur hefur Ingimar i það minnsta ekki sagt nei. Sjallinn fór i gang aö kvöldi 16. júni, þegar nýstúdentar úr MA héldu þar hóf sitt, en þá var varla liðinn meira en mánuður siöan arkitektar frá Arko i Reykjavik, þeir sömu og teikn- uðu Breiðvang, kynntu sér rúst- irnar. Siðan var unnið dag og nótt og nú er risinn glæsilegur skemmtistaður með glimmer á veggjum að kröfu nútimans. Húsrýmið er orðið stærra en gamli Sjallinn var nokkru sinni, en enn er eftir aö innrétta borð- sal og fundasal. Ög i kvöld, fóstudagskvöld, verður fwmleg opnun. Þá verð- ur komið upp fullkomnasta ljósasjó á landinu aö sögn Paul Raymond frá Great Western Lights sem hefur unnið fram á rauðanótt við uppsetninguna. Þegar þvi verki er lokiö hanga heil þrjú tonn af ljóskösturum yfir sviðinu, og fyrstur til að standa i þeirri ljósadýrö verður Þórskabarett, sem verður á út- opnuðu vigslukvöldið. Annars segir Þdrður Gunn- arsson, að reksturinn veröi - menn fundu fastan punkt og náðu áttum i gerbreyttu húsnæði leikinn af fingrum fram til að byrja með, en stefnt sé aö þvi' aö fá sem mest af skemmtikröft- um. Og fyrsta flokks matur verður að sjálfsögðu á boðstól- um segir veitingastjórinn, Sig- uröurSigurðsson. Þá er bara að skella sér i Sjallann, og fólki er ráölagt að lita til hægri þegar komiö er upp stigann úr fatahenginu. Þá blas- irviðgamalkunnur veggur, sem ekki hefur verið hrdflaö viö, og fastur punktur f tilverunni ætti aö finnast. Þettameð Ingimar Eydal er ekki eins öruggt en menn vona það besta. „Hvort Sjallastemmningin næst upp aftur er erfitt aö segja, en hitt veit ég, að hér verður einhver góð stemmning”, segir ÞórðurGunnarsson sem er him- inlifandi yfir því að áratuga- starfi hans við Sjallann er ekki lokiö — si"ður en svo. ÞG Vinsam- legar ábend- ingar til kvenna Allar vildu meyjarnar eiga hann, var einhvern tfma sagt um einhvern ungan manninn. Þessi orðeru sjálfsagt f fuilu gildi f dag, en spurningin er: hver verður hin heppna? Hér á eftir fara nokkur heilræði til kvenna, heilræði um hvernig konur geti gert karlmenn ánægöa. 1. Sjáðu honum fyrir spennu og ævintýrum á hans eigin heimili. 2. Spurðu hann um eftirlætis dægradvöl hans. 3. Hlustaðu á hann tala um eftir- lætis dægradvöl sina. 4. Dáðstu að sama tigrinum og hann sér i speglinum. Heila málið er að sjá aðra manneskju eins oghún sér sig sjálf. 5. Segðuhonum hvað angrarþig, en vertu ekki að minna hann á það. Gerðu ráð fyrir, að hann hafi heyrt i þér. Taktu á púlsi hans, ef hann hreyfir sig ekki i tvær klukkustundir. 6. Einhvern laugardagsmorgun- inn skaltu færa honum morgunverð og sjálfa þig i rúmið (ekki endilega i þessari röð). 7. Vertu til taks. 8. Biddu fyrir honum. Konungleg- ur þorsti Stundum getur orðið ansi heitt suður I Afriku, og þegar slikt ger- ist, verða menn þyrstir. Hvaö er þá betra en að drekka eitthvaö svalandi i forsælunni? Ekki eru allir á einu máli um hver sé besti drykkurinn i slikum tilfellum. Sumir vilja bara vatn, aðrir kalt te, eins og fina fóikið i Suðurrikj- um Bandarikjanna á biómatima þrælahaldsins, og enn aðrir — lik- lega eru f lestir islendingar i þeim hópi — vilja ekki heyra á annaö minnst en að fá sér bjór (séu þeir á annað borð i siviliseruðu landi). Prinsinn Nadim i vesturafriska rikinu Sierra Leone er einn af þeim siðastnefndu. A dögunum sendi hann Cerer brugghúsinu i Arósum simskeyti, þar sem stóð eftirfarandi: Sendið mér tiu gáma með bjór. Skömmu siðar kom svo ávisunupp á tæpa milljón króna og gámarnir tiu voru fylltir með 312 þúsund flöskum. Prinsinn lét á sama tima i ljós þá ósk sina að fá á tveggja vikna fresti sama magn af bjórflöskum fram i sept- ember mánuð. Danirnir eru að vonum hæst ánægðir, og ekki kæmi mér það á óvart, að þeir ættu sér þá ósk heitastaað hita- bylgjan næði alveg fram á næsta ár. Ég ætla alla vega ekki til Si- erra Leone fyrr en undir áramót. Ég þoli ekki hitann og mér finnst bjór vondur. Frekar dollara en petródollara Moammar Kadhafi, þjóðarleið- togi í Lýbiu.er ekki besti vinur vestrænna valdamanna, sist af öllu valdhafanna i Hvita húsinu vestur í Washington. Karlinn hef- ur samt mikinn áhuga á aö finna sér „sérlegan sendiherra” þar vestra til að skýra pólitík hans fyrir Bandarikjamönnum. Nýlega hafnaði lögfræðingur nokkur i Dallas, Bill McKenzie- Þrjár litlar • Bandarikjamenneru nú larn- ir að senda smábörn i ieikíimi. t Kaliíorniu og fleiri rikjum hala opnaö nokkrir „baby-gym” fyrir börn frá fjögurra mánaöa aldri. Leikfimi þeirra lelst i þvi aö skriða yfir litaða kubba, klifra og rólasér. Sérhvert aldursskeið lær prógram viö sitt hæfi. Tilgangur- inn meö þessum klúbbum er aö þroska hreylihæíileika barnanna, jalnvægisskyn og fleira. • Og enn erum viö i Bandarikj- unum. Þar hafa læknar fundiö upptæki til aö berjast gegn höfuð- verkjum. Tæki þelta likist einna helst vasadiskóunum svonetndu og gengur fyrir rafhlööu. Þaö not- ar hljóðmerki til að stjórna spennu i vöðvanum, sem laiinn er eiga sök á krankleikanum. Ekki þykir tækiö neilt sérstaklega ele- gant en þaö mun vist kenna heil- anumaðslaka á vöövunum,sem orsaka sársaukann. • Til Bretlands. Frellamaður nokkur lijá BBC hefur nylega skrifað njósnaskáldsögu þar sem Magga Þatsér er ein af aöal per- sónunum. Segir þar frá baráttu járnfrúarinnar gegn ÍRA, irska lýðveidishernum. Núna spyrja menn sjálfa sig hvenær vænta megi breiðrar skáldsög u um Falklandseyjar og atburöina þar. þessari ágætu nafnbót. Hann vildi frekar annast hagsmuni fótbolta- liðs. Hann kom þó þeim skilaboð- um áleiðis til Washington, að Kadhafigengi gott eitt til i pólitik sinni. Við skulum vona, að Kad- hafi takist að finna einhvern heið- arlegan mann, sem tekur svarta- gullið og fótbolta. Kadhafi gengur illa að fá menn í vinnu fyrir sig. Ég er íff seni Pétur Stefánsson opnar 4 mynd- listarsýningar Pétur Stefánsson heitir ung- ur teiknari og nýútskrifaður grafiker. Um helgina opnar hann hvorki meira né minna en fjórar myndlistarsýningar i höfuðborginni. Sú fyrsta, sem er einkasýning, verður i Djúp- inu við Hafnarstræti, önnur i Listmunahúsinu, þar sem hann sýnir með öðrum, 3. i galleriinu á bak við bókaskáp- inn og loks ætlar hann að sýna i glerkassa utan á húsinu i Austurstræti 8. Á sýningunum verður grafik, ásamt heljar- stórum teikningum og mál- verkum. „Ég er séni, arftaki Jóhann- esar Kjarvals og Jóns Engil- berts og þessara stráka, og get ekkert að þvi gert”, sagði Pét- ur i samtali við blaðið. „Það voru kosmisk lögmál, sem leiddu mig út á þessa braut. Ég var að útskrifast úr myndlistarskólanum, en ég gutlaði við þetta i nokkur ár, áður en ég fór i hann og náði vissri tæknilegri fullkomnun,'- sem ég reyndi siðan að vinna betur úr. Ég er orðinn besti myndlistarmaðurinn á land- inu.” Pétur hefur áður haldið tvær sýningar á verkum sinum, en vildi ekki láta uppi hvar það hefði verið. Menn ættu ekki að miklastaf verkum sinum, eins og hann sagði. Um viðfangsefni mynda sinna sagði Pétur, að þau væru figúrativur súrrealismi, þar sem sköpunargleðin væri látin fjúka yfir fjöll og firn- indi, mannlif og sálir. Hann lætur sér þó ekki nægja að gera eingöngu myndir, þvi á meðan á sýning- unum stendur, ætlar hann að gefa út ljóðabók með teikning- um, meistarastykki. „Ég hugsa, að útgefendur fengju glýju i augun ef þeir sæju hana.Hún er of góð. Þeir eru fastir i stöðnuðu hug- myndakerfi um hvernig bæk- ur eigi að vera. Það má segja það sama um myndir lika; fólk er svo illa upplýst. Það skilur ekki þegar ofurmenni fara af stað. Þess vegna verður að nota fjöl- miðla og segja þvi frá og benda þvi á hvert það getur farið til að leita sér andlegrar upplyftingar og ánægju i lif- inu, ekki á einhverjar graut- fúlar, venjulegar sýningar.”

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.