Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 7
7 -pfk%ti irínn Föstudagur 2. juli 1982 „Er ekki betra að segja Evr- ópu? ” skýtur Þórður Arnason i og litur upp úr reikningahrúgu og tékkhefti. (Það er útlit fyrir út- borgunardag eða eitthvað i þá veruna.) „Jú,” samsinnir Jakob. „Þegar maður tekur Þjóðverjann með.” Tveimur timum siðar: t fjölbýlishúsi við Tjarnargötu er verið að kvikmynda i litlu her- bergi. Þar inni eru Agúst Guð- mundsson leikstjóri, engilsax- neskur kvikmyndatökumaður, Ari Kristinsson kvikmyndatöku- maður, Július Agnarsson hljóð- karl, Egill Ólafsson yfirþurs og Stuðmaður, Ragnhildur Grýlu- mamma og fleira fólk. I ibúðinni er allt á rúi og stúi. Við heyrum ekki betur en að meira af svo góðu standi til — Agúst er að leggja á ráðin með þeim Ragn- hildi og Agli um hrikaleg slags- mál. „Smávægilegar heimiliserj- ur,” segir hann til skýringar fyrir forvitna aðkomumenn. Duldar meiningar og felumyndir Daginn eftir: — Yfir disk af skyri i hádegis- verðarhléi i mötuneyti i Iðnskól- anum talar Agúst meira um myndina. Hún er rétt að komast i gang, i rauninni ekki búið að kvikmynda mikið meira en upp- haf og endi. Hann færist þó undan þvi að lýsa söguþræðinum. „Vissulega er söguþráður en hann erekki þannig, að við viljum tala mikið um hann,” segir Ágúst. „Þaðeruof mörg útskottil aðþaðverði nokkuðgagn iþannig frásögn. Þetta er nefnilega ekki unnið á sama hátt og til dæmis Útlaginn. Þar var hvert einasta smáatriöi ákveðið fyrir fram og siðan handritinu fylgt Ut i æsar. 1 þessu tilfelli hefur fölk meira svigrúm til að leika af fingrum fram!” — Er þetta þá ekki miklu erfið- ari vinna? „Nei, í rauninni ekki. Þvert á móti, eiginlega. Þetta fólk var að visu ekki ráðið i sinar hljómsveit- irfyrir leiklistarhæfileika sfna en mér hefur þótt hreint ótrúlegt hvaðkemurút úrþvi'. Hérleynast ýmsir hæfileikar.” Hann er rok- inn um leið og hann hefur strokið skyrið úr skegginu, matarhléi er lokið. Stuðmenn, Grýlur og annaö stuðfólk hendist i ýmsar áttir. Þaö á að taka kvikmynd og taka upp músik. Ymsu þarf að redda ogsitthvaðað laga. „Jæja,” segir Jakob MagnUs- son þegar gengið er fram gang- inn. „Heldurðu að þú getir eitt- hvað sagt um þessa óperasjón?” — Það hlýtur aö vera. Ég er þó ekkertvissum að ég sé miklu nær um hvað þessi mynd á að fyrir- stilla. Hann verður dularfullur á svip- inn. „í þessu eru duldar meining- ar og felumyndir, eins og af þess- um hópi er að vænta. Aðalatriðið er að fólk komi i bió um jólin og skemmti sér. Þvi þaðerum við að gera núna — þótt þetta sé tekið grafalvarlega á meðan á þvi stendur.” rmuáTR étjtcr *HfC PVA« ► f rwo** »5X0«» !!!!!!! 7DAYS/ 1PROGRAM ??:3a .OH I m<** laWlll:! Verð VBS-7000 12.800.- VBS-7500 14.450.- VBS-9000 18.350.- Beta ra VIDEO CASSETTE RECORDER VBS-7500 [F CCP LAGMÚLA 7 REYKJAVÍK SÍMI 85333 SJÓNVARPSBÚMN ifð BETA MYNDBANDALEIGAN | Bafll Barónsstíg 3, við hliðina á Hafnarbíói. Opnað næstu daga. Geysilegt úrval af 1. flokksefni. UPPLYSINGARum komu- og brottfarartíma fiugvéla innanlandsflug millilandaflug 26011 27800 Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju númerin á bls. 78 í símaskránni. FLUGLEIÐIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.