Helgarpósturinn - 06.08.1982, Page 7
irinn Föstudagur 6. ágúst 1982
gefi krökkunum trukk i afturend-
ann eða á fingurgómana. En i Le-
flore i Oklahoma hefur það vakið
mikla athygli, að faðir mennta-
skólanema nokkurs hefur verið
kæröur fyrir að hafa tekið eðl-
isfræðikennara dóttur sinnar og
rassskellt kennarann á sjálfu
kennaraborðinu.
Haft er eftir lögreglustjóranum
i plássinu, að pabbanum hafi
gramist það svo mjög, að dóttir
hans var flengd, að hann hafi
ákveðið að svara i sömu mynt.
Pabbinn kveðst saklaus af
ákæru um likamsárás.
Heimsókn í Wyoming
Pabbi
flengir
kennarann
Það er ekki frétt ef hundur bitur
mann en þaðer frétt ef maður bít-
ur hund. Þannighafa ýmsir læri-
feður útskýrt fyrir veröandi
frétta-og blaöamönnum um hvaö
málið snúist.
1 Bandarikjunum þykir viða
ekki tiltökumál þött kennarinn
Frambjóðandi i fylkisstjóra-
kosningunum i Wyoming i Banda-
rikjunum hefur vakið á sér at-
hyglifyrir óvenjulegar hugmynd-
ir um utanaðkomandi öfl.
Pat McGuire heitir frambjoð-
andinn og sækisteftir Utnefningu
Demókrataflokksins. Hann segir
að verur utan Ur geimnum hafi
komið til sm á sveitabæinn, þar
sern hann býr, og gefið sér góð
ráð fyrir kosningabaráttuna. Mc-
Guire segir m.a., að geimverurn-
ar hóti að ráðast á hvern þann,
sem sé á móti ísrael.
Villti trylhi Villi í glæsikerrunni á nýja hamborgaradiskóstaönum,
sem tók slétta tvo mánuði aö gera í stand — og verður opnaöur
formlega annað kvöld. Þá leikur hljómsveitin Egó fyrir dansi.
— Mynd: Jim Smart
VILLTI TRYLLTI
VILLI SELUR
EKKI BRENNIVÍN
,,Ég er ákveðinn i að reyna til
þrautar að reka þennan stað
brennivinslausan. Ég er raunar
klár á að það sé hægt — jafnvel
þótt allt virðist mæla gegn þvi.
En þá er ég iika vanur að gera
allt þveröfugt við aðra”, sagði
Tómas A. Tómasson, Tommi
hamborgarakóngur, þegar tíð-
indamenn Giuggapósts litu inn
hjá honum á veitingastaðnum
„Villta tryllta Villa” við Skúla-
götuna í Reykjavik I vikunni.
Þar voru þá iðnaðarmenn i
kippum við að leggja siðustu
hönd á staðinn — og raunar gott
betur, þvi um verslunarmanna-
helgina var opiöhjá Villa. ,,Það
var eiginlega generalprufa”,
sagði Tommi. „Ég vildi endi-
lega geta leyft starfsfólkinu að
spreyta sig án þess að hér væri
troðfullt hús”.
Villti tryllti Villi er býsna
óvenjulegt nafn á skemmtistaö.
Staðurinn veröur óvenjulegur á
fleiri vegu — þar verður ekkert
áfengi til sölu, aðeins gosdrykk-
ir (bæði kók og pepsi t.d.!) auk
Tommaborgara. Þar á að vera
opið sex kvöldi viku fyrir fólk á
aldrinum 16-20 ára og á sunnu-
dagskvifldum verða unglinga-
dansleikir fyrir 13-15 ára fólk.
Afgreiöslutimi verður hinn sami
og á vinveitingahúsunum. ,,Svo
verður opið hús á laugardögum
og sunnudögum á milli tvö og
sjö, svo pabbar og mömmur geti
litið inn, fengið sér hamborgara
með krökkunum og leyft þeim
að dansa svolitið”, sagði
Tommi.
Hann sagðist hafa verið
staddurá Florida þegar hann ók
einhverju sinni framhjá bar
með þvi þekkta nafni Crazy
Horse Saloon. ,,Þá hugsaði ég
með mér: Af hverju getum við
ekki notað einhver svona villt
nöfn? Og það fyrsta sem mér
datt i hug var þetta, Villti tryllti
Villi”, sagði Tommi. „Og svo I
hefurþetta nafn náttúrlega aug-
lýsingagildi út af fyrir sig”,
bættihann við með breiðu brosi.
Það er mikið rétt, að ungling-
ar og ungt fólk hefur ekki átt sér
samastað til skemmtanahalds I
Reykjavik siðan Tónabær hætti
að vera eiginlegur skemmti-
staður. Nú hefur verið komið
upp glæsilegum stað — og það
má vel nota það orð um Villta
tryllta Villa — og þará aðdansa
sjö kvöld i viku. Aðgangseyrir
verður 50 krónur i miðri viku og
90 krónur um helgar. Það er
Villi sjálfur, sem tekur á móti
gestum i anddyrinu — stojandi i
hvitri glæsikerru af gerðinni
Mercedes Benz árgerð 1928 og
að sjálfsögðu með glæsipiu sér
viö hliö. Villi er annars li'flaus
trúður og litur ekki út fyrir að
vera sérlega villtur, en hvað
gerist þegar diskóið dunar er
aldrei að vita.
—ÓV.
7
Ahuginn er Olafi
Ragnari að þakka
— segir Sæmundur
Guðvinsson
Sæmundur Guðvinsson unir hag
sinum vel, þar sem hann situr á
skrifstofu sinni I skrifstofubygg-
ingu Flugleiða á Reykjavlkur-
flugvelli og vinnur að kynningar-
störfum fyrir flugfélagið.
„Að sjálfsögöu saknar maður
hasarsins úr dagblaðamennsk-
unni”, segir Sæmundur, fyrrver-
andifréttastjóri á Visi og D&V og
fréttahaukur til langs tima, „en
þó er nú þetta ekki svo óskaplega
óskylt. Maður lærir á þvi að sitja
hérna megin við borðið. Og enn er
þetta i grundvallaratriðum sami
hluturinn: samskipti við fólk.”
Sæmundur er i rauninni ekki að
vinna hjá Flugleiðum heldur fyrir
Flugleiðir. Hann er starfsmaður
OSA — Auglýsingastofu Ólafs
Stephensen og hefur tekið við
hluta af starfi Sveins Sæmunds-
sonar, fréttafulltrúa Flugleiða.
„Sveinn helduráfram á fullu eins
og hann hefur gert með heiðri og
sóma ituttugu ogfimm ár,” segir
Sæmundur. „Það verður breyting
á þessu starfi, ég tek við þeim
hluta er varðar dagleg samskipti
við fjölmiðla, kem á framfæri
upplýsingum og greiði götu
þeirra, sem leita upplýsinga hjá
félaginu.”
Hann segist alls ekki vera
hræddur við að eiga skilið að
verða fyrir gagnrýni, sem aðrir
blaðafulltrúar hafa oft setið und-
ir: að veraeinkum að þvæla mál-
in fyrir blaðamönnum og jafnvel
liggja á upplýsingum. „Ég neita
þvi algjörlega að ég sé i einhverju
varðhundahlutverki hér,” segir
Sæmundurog treður i pipu si'na.
„Það er ekki ætlað siður tii hags-
muna fyrir blöðin en fyrirtækið að
maður sé hér til staðar til að
miðla ipplýsingum eðá hjálpa
fólki að afla þeirra. Það sem
skiptir náttúrlega mestu máli er
að fram komi réttar upplýsing-
ar.”
Sæmundur segist lengi hafa
haft áhugaá ferðamálum og telur
þau spennandi atvinnugrein. ,,0g
svo hef ég mikla trU á þessu fyrir-
tæki, Flugleiðum. Annars hefði ég
aldrei farið aö vinna fyrir það.”
Það minnir á, að Sæmundur sat
stundum undir þvi hjá kollegum
sinum i blaðamannastétt, að hann
væri um of hallur undir það fyrir-
tæki. „Já, það var nU ekki alltaf
vel séð að maður tæki ekki undir
allan sönginn,” segir hann nú og
glottir. „Annars var það eigin-
lega Ólafi Ragnari Grimssyni að
þakka, að ég fór að halda uppi
vörnum fyrir félagið. Það var
þannig, að þegar skýrslan um
fjárhagsstöðu Flugleiða kom Ut
1980, þar sem félagið taldi sig
standa all vel, þá hringdi Ólafur
Ragnar i mig upp á Visi einn
morgun og sagði þetta allt tómt
bull og kjaftæði. NU, þetta var al-
þingismaður, sem hafði kynnt sér
Kunu bárujárnsrokkhljómsveit
vestan hafs, Manowar, lætur sér
ekki nægja eigin þyngsli. Við gerð
nýjustu plötu sinnar fékk sveitin
til liðs við sig engan annan en
kvikmyndasnillinginn Orson
Welles til aðlesa nokkurorð inn á
lagið Dark Avenger.
Það er sagt vera einskonar
sagnakvæði um viking er leitar
hefndar fyrir bæði liféndur og
dauða. Vafalaust er þetta mjög
Sæmundur Guðvinsson: Þegar
Dagblaðið var svo með sömu
fréttina eftir ólafi Ragnari fór ég
að hugsa minn gang.
málin sérstaklega, og þvi sló ég
þessu rækilega upp á forsiðunni.
En þegar Dagblaöiö kom svo út
eftir hádegið meö sömu fréttina
eftir Ólafi Ragnari, þá fór ég að
hugsa með mér: Heyrðu, félagi.
Er ekki eitthvað verið að nota
þig? Er ekki kominn timi til að
fara að skoða þetta mál eitthvað
sjálfstætt?”
spekingslegt — og mögnuð rödd
Welles verður ekki til að spilia
þeim áhrifum er bárujámsrokk-
ararnir leita eftir.
Myndin er tekin af Orson Well-
es og striðsmönnunum i Mano-
war. Þaö er annaö að frétta af
Welles, að hann sést nú helst i
auglýsingamyndum I Bandarikj-
unum og auglýsir allt frá bjór til
skóáburðar.
ORSON WELLES í
BÁRUJÁRNSROKKIÐ
„Standard” lengdir eða sérlengdir, allt eftir óskum kaupandans.
Að auki þakpappi, pappasaumur, þaksaumur, kjöljárn, rennu-
bönd og rennur.
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
ÞAKJARN
í hvaða lengd
semer