Helgarpósturinn - 06.08.1982, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 06.08.1982, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 6. ágúst 1982 Frá sýningu 7—menninganna í Norræna húsinu - ein fersk- asta samsýning sem haldin hefur verið í sumar, segir Halldór Björn í umsögn sinni. zp'Ssturinrx. 7 / Norræna húsinu ,,7sýna f Norræna hiísinu”, er sýning sem hófstum verslunar- mannahelgina og mun standa til 16. ágUst. Eins og nafnið gefur til kynna, eru þaö 7 listamenn sem standa fyrir þessari sýn- ingu og eru þeir allir nýútskrif- aðir úr hinni „frægu og marg- umtöluðu” nýlistadeild viö eftir Halldór Björn Runólfsson Myndlista- og handiðaskóla Is- lands. Hópinn skipa Daði Guð- björnsson, bræðurnir Pétur og Tumi Magnússynir, Kristján Steingrimur Jónsson, Ómar Stefánsson, Ragna Hermanns- dóttir og Þorlákur Kristinsson. Þetta er fremur samstilltur hópur, sem fæst við málverk i sinni fjölireytilegustu mynd, að Rögnu frátaldri sem gengur út frá ljósmyndum.enda hafði hún stundað ljósmyndun í 10 ár, áð- ur en hUn gerðist nemandi I ný- listadeildinni. Það kemur manni á óvart hve frjálslega menn nálgast listina. Þaðereins og verið sé að bæta fyrir alla þá stifni sem elt hefur islenskt málverk meö örfáum undantekningum, allt frá upp- hafi. Það er greinileg þörf fyrir að láta gamminn geysa i hinu „nýja málverki”. Það hefur tvi- mælalaust sina kosti aö um- gangast tjáningarmiöilinn með alvöruleysi (sem vissulega er ekki réttaorðið, þvinóg er af al- vöru i list hópsins, heldur má segja að túlkunin sé ,,án hátiö- leika”) , en hinu er ég ekki sammála, að hér sé á ferðinni eitthvert marktækt úrtak, sem hægt sé að kalla „islenska nýja málverkið”. Þannig held ég aö ómögulegt sé að dæma um það á þessu stigi, aö hvaða leyti islenska málverkið sé frábrugðið þvi þýska og italska, eins og reynt er að fiska eftir i sunnudags- blaði Timans (viðtal við 7- menningana, 1. ágúst). Þaö er engin reynsla komin á þetta fólk,þannig að hægtsé að leggja einhverjar linur, þótt tilþrifin leyni sér ekki i mörgum verka þeirra. Þaðer t.a.m. einkennandi hve Þorlákur Kristinsson er miklu snarpari I fi'gUrativum myndum sinum en óhlutbundnum og virðast þessir tveir stilar litið eiga sameiginlegt. „Nafnlaus” (3) finnst mér bera af. Daöi Guðbjörnsson er hins- vegar fylginn sér i stilistiskri aðferö. Bæði málverkin og graf- ikmyndirnar benda til þrosk- aöra vinnubragða, án þess að slikt gangí nærri sjálísprottinni tjáningu hans. Ómar Stefánsson er hæpnasti maður hópsins. Það kemur til af karikatúriskum svip málverka hans. Kannski er það ekki grin- myndin sjálf sem veldur þessu (þvi margir hafa notaö slikt með góðum árangri svo sem Georg Grosz), heldur hitt að ómar notar íslensk-ættaða grin- myndagerð sem undirstöðu verka sinna. Hann siglir m.ö.o. á mið „Eden-málaranna”. Kristján S. Jónsson notar i bestu myndum sinum hug- myndrænan bakgrunn til aö byggja á. Syrpa sú sem hann málar kringum skynfæri mannsins, minnir óneitanlega á hugmyndina að baki tepparöö- inni „Stúlkan og einhyrningur- inn” sem hangir i Baöhúsa- safninu i Parls (Cluny). Krist- ján afsannar kenninguna, aö nýja málverkið á Islandi sé ó- intellekuelt. Þeir bræðurnir Tumi og Pétur eru mjög ólikir i afstööu sinni, þótt tvömálverk þeirra séu gerö i sameiningu. Tumi málar hressilegar og einfaldar figúra- sjónir, gjarnan byggðar á hug- myndum um sveitasælu. „Gamli bærinn” (38) er eitt- hvert besta málverkið á sýning- unni. Pétur vinnur hins vegar all— harðsoðnar en hrifandi mynst- urmyndir og notar margfaldan umbúðapappir til að mála á, sem hangir likt og teppi á vegg. Þaö er fremur hugvitssemin i aðferðafræði og skemmtileg útfærsla efniviðarins sem held- ur verkum Péturs á lofti en sjálf mynsturgeröin, þótt hún sé mjög lifandi. Lestina rekur eini listamað- urinn í hópnum, sem ekki er karlmaður og notar ekki mál- verk til að tjá sig með. Ragna Hermannsdóttir sýnir ljós- myndaverk, unnin á mjög ljóð- rænan hátt meö hjálp daufra lita og handmálar hún verk sin. ,,36andlit” (27) er skinandi gott verk fullt af draumkenndum hugmyndum. Sýning 7-menninganna i Nor- ræna húsinu er ein ferskasta samsýning sem hér hefur verið haldin i sumar. Ef tekiö er mið af stuttum ferli listamannanna, má búast við skemmtilegu framhaldi af þeirra hálfu. Það er einföldjausn að lifa í vímu... Ragnar Ingi Aöalsteinsson frá Vaðbrekku: fcg er alkóhólisti Ljóö (48 bls.) Ljóöhús 1981. Ragnar Ingi Aöalsteinsson hefur áður gefið út tvær ljóöa- bækur, Hrafnkelu (1974) og Undir Hólmatindi (1977). Þess- ar bækur hafa nokkra sérstöðu meöal verka yngri skálda að þvi leyti að nærri öll ljóðin eru ort undir hefðbundnum háttum. Reyndar er töluvert mikið i þessum bókum af kersknis- og háðskveðskap, en til sliks brúks hafa hinir hefðbundnu hættir mjög verið notaöir á siðustu árum. En þar er einnig að finna alvarlegar tilraunir til þess að yrkja marktæk ljóð undir hefö- bundnum háttum. Þessar bækur sýna vel aö Ragnar er bullandi hagmælskur, en hagmælskan verður honum oft að fótakefli þegar hann fellur ofan i þá gryfju aö láta meira og minna sjálfvirka tjáningarhætti hefö- arinnar ná valdi yfir sér. Þessi nýja bók, Ég er alkóhól- isti, er frábrugöin fyrri bókum Ragnars á fleiri en einn veg. Hann notar aö sönnu hefðbundið bragform, en beitir þvi á miklu agaðri og markvissari hátt en áður. Orðfærið er einnig að mestu leyti laust undan fargi ljóðhefðarinnar og orðið per- sónulegt. Ennfremur er ljóða- bókin einn ljóðaflokkur sem fjallar um atmarkaö efni i þremur köflum. Hver kafli bókarinnar er með sinn sérstaka bragarhátt. Þó að þessir bragarhættir séu ólikir innbyrðis þá hafa þeir það sam- eiginlegt að vera ekki dauð um- gerð um orð heldur eru þeir not- aðir markvisst til þess að auka áhrifamátt oröanna. Ljóö- stafasetningu og rimi er þannig fyrir komið að það falli hvort- tveggja á orð sem eru merking- arlega mikilvæg, mikilvægari en orðin sem i kring eru. Með þessum hætti er bragarháttur- inn notaður markvisst til að vinna með og auka á merkingu oröanna. Annað einkenni á ljóðunum i þessari bók er aö öll mælska er skorin niður i lágmark. Þaö væri nær aö segja að stillinn sé samþjappaður og fáorður. Skáldiö hefur á allan hátt beitt sig verulega meiri ögun en finna má dæmi um i fyrri bókunum. Eins og nafnið bendir til fjall- ar bókin um alkóhólista og alkohólisma. Er hér um að ræða nærgöngula persónulega tján- ingu á ástandi og fyrstu skref- unum til þess aö ná valdi á þessu ástandi. Fyrsti hluti ljóðaflokksins heitir Reynsla og er hann eins og nafniö bendir til lýsing á ástandi alkóhólista og þó öllu fremur hugarástandi hans. Hefst flokkurinn á þessu ljóði: Ég er alkóhólisti, — miskunn, ég get ckki meir, máttvana ligg ég i höggdofa skjálfandi nekt. Svört liður nóttin, — bugast hinn brákaði reyr. Komdu i dögun og leystu mig ljáberi kær, lif mitt er stia mörkuð af áfengisþörf. Svört kemur nóttin nær, — nær, — öll ljóöin i fyrsta kaflanum ’hefjast á orðunum: Ég er alkó- hólisti, og siðan kemur knöpp útlistun á þvi hugarástandi alkóhólistans. Ekki er þvi að leyna að andrúmsloftiö og sum- ar lýsingar minna mann tölu- vert á bölsýni nýrómantisku skáldanna i upphafi aldarinn- ar,en yfirleitt veldur það ekki mikilli truflun. Ljóðin i fyrsta kaflanum eru 12 eins og reyndar einnig i hin- um tveimur. Annar kaflinn heitir Spor. Eru þar i stutt fimmlinuljóð. Ljóðin eru einskonar innri sjálfsskoð- un, innhverf athugun skáldsins á huga sinum, upphaf aö þvi að slita þann vitahring sem lifiö hefur fallið i: Andlegan vanmátt gcgn áráttu holdsins er erfitt að skiija. Ég get ckki gctað, ég vil ekki viljað. (I) Ragnar Ingi - nærgöngul persónuleg tjáning, segir Gunnlaugur í umsögn sinni. Það er einföld lausn að lifa i vimu. Leystur er vandinn þcgar höfuðið hverfur í sandinn. (IX) Þriðji kafli ljóöabálksins heit- ir Ganga. Þar er eins og nafnið ber meö sér glímt við gönguna miklu, gönguna út úr vita- hringnum, en sú leið liggur i gegnum sálardjúpin myrku út undir bert loft, út i frelsið: Ég cr aikóhólisti undir minni skel er ýmislegt scm þjakar mina sál. Mér er byrði að bera þessa dul, mér ber að gera i ævireikningsskil og vinna vcl. Læra að þekkja það sem helst ég vil og þá er aftur gottað vera til. Vert er að benda sérstaklega á ytra form þessa ljóðs, sem er eins og allra hinna i þessum kafla, en það sýnir glöggt hvernig Ragnar fer með hina hefðbundnu þætti islenskrar ljóðagerðar. Með þessari bók hefur Ragn- ari Inga Aðalsteinssyni tekist aö ná valdi á aö nota hefðbundið bragform til þess aö tjá hug sinn án þess að falla að ráði i freistni sjálfvirkrar orðanotkunar hag- mælskunnar. Er það meira en sagt veröur um flesta yngri menn sem reynt hafa i seinni tiö að yrkja i hefðbundnu formi.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.