Helgarpósturinn - 06.08.1982, Síða 16

Helgarpósturinn - 06.08.1982, Síða 16
16 . Föstudagur 6. ágúst 1982 Irinn ”Er du utilfreds meS rollen saa tag og skift kón“ (Bent Jacobsen) ”Þú getur tekið fram að ég er ekki "utilfreds med rollen“, segir annar viðmælenda minna þegar við hlustum á ”Bösse“, plötuna hans Bent Jacobsen. Við sitjum hér þrjú, tveir íslenskir hommar og ég. Þeir eru aðeins lítill hluti þess hóps íslendinga sem flúið hafa á náðir stórborgar- innar við Sundið. Við erum sammála um að básúna hvorki nöfn þeirra né uppruna fjöl- skyldunnar vegna. Við erum Uka sammála um að mynd- skreyta ekki viðtalið með sæt- um paramyndum... Nú, en ég spyr þá fyrst hvemig foreldrar þeirra bregðist við ósköpu- num. Jarðarför - Þeir eru í voðalegum felu- leik upp á umhverfið að gera og svo halda þeir að við höfum það svo slæmt. Þegar mamma var búin að trúa frænkum mínum fyrir þessu mættu þær mér með samúðarsvip; aumingja strákurinn að lenda í þessu! í staðinn fyrir að segja: ”Til lukku að þú skulir meika það!“ - Þetta var eins og meiri háttar jarðarför,, þarna var verið að jarða bílinn, börnin og konuna. Andalækningar - Þetta fólk þarf fræðslu. Samtökin heima ættu að gera upplýsingabækling fyrir for- eldra. Margir foreldrar halda að þetta sé einhvers konar geðveiki. Mér skilst að heima séu tveir geðlæknar menntað- ir í Ameríku með homma sem sérgrein. - Ég hef líka heyrt um strákgrey utan af landi sem var sóttur í bæinn og settur í andalækningar. Foreldrarnir höfðu heyrt um einhverja krafta sem ”höfðu læknað svo marga". Það hefur ekki frést af honum síðan. Þessir strákar uti á landi hafa það verst. Þeir vita ekki hvað er að gerast með þá og einangrunin frá öðrum hommum fær þá til að Málefni islenskra homma og lesbia hafa verið til umræðu hérlendis undanfarið, einkum I tengslum við starfsemi félags þeirra, Samtakanna ’78. En fjöldi islenskra homma hefur einnig „flúið” heimaland sitt og leitað skjóls I umburðarlyndari lönd- um. Ekki sist hafa margir þeirra flust til Danmerkur. 1 þessari grein ræðir blaðamaður HPI Danmörku við tvo islenska homma sem búsettir eru i Kaupmannahöfn. I kellingaleik þoli ekki á íslandi. Það er fólk sem montar sig af því að þekkja homma. Okkur var til dæmis einu sinni boðið í partý, en fundum fljótlega að við vorum nokkurs konar kokteilber. Hommunum var greinilega boðið eins og ein- hverju ”happening“. Við vor- um bara eins og ein stór kjaftasaga. - Það eru sérstaklega eldri vinir manns sem acceptera mann, en þegar þeir eru orðn- ir fullir fara þeir að tala um hvað þetta sé nú óeðlilegt. En unga fólkið, það eru miklu meira afslappað. væri ekki æskilegt að hafa fólk einsoghann inni. (Sjá frásögn es) - Heima á íslandi væri okk- ur ómögulegt að halda vinnu eða leigja íbúð saman. Við gætum kannski keypt íbúð... öðru vísi skapferli en aðrir, hann er svo írónískur, með tvíræðna hæðni, hann lætur ekki smámuni á sig fá. Hann kýs frekar húmor en rökræðu, enda er húmorinn langsterk- asta vopnið. Kaupmannahafnarpóstur finnast þeir vera eitthvað skrýtnir og óheilbrigðir. Opinberum í hvítasunnusöfnuði - Hvers vegna fluttust þið út? - Þetta var orðið svo mikil pressa, maður var í algeru frík ástandi, þorði engu. Maður var orðinn þetta gamall og var hvorki óvenju Ijótur né feim- inn. Stelpur voru að reyna við mann, en mig langaði bara ekkert til að sofa hjá þeim. - Jú, ég var með stelpum þegar ég varð. Einn vinur minn ýtti hreinlega stelpu upp á mig í partýi, hann ætlaði greinilega að hjálpa mér við veiðarnar. - Þetta var nú kannski hálf- fáránlegt. Maður var búinn að þekkja vini sína í kannski 3 - 4 ár og svo var þetta eins og að opinbera í hvítasunnusöfnuði. Jú, vinirnir hafa tekið þessu mjög vel yfirleitt. Ég kom öll- um mínum vinum á óvart. Þeir hafa ekkert breyst í við- móti, það er kannski öðru vísi að hitta suma. Kokteilber - Það er visst fólk sem ég Hommahattur - Maður gengur alltaf um með hommahattinn. Ég sit kannski og tala við einhvern sem veit ekki enn að ég er hommi, en fréttir það lík- legast á morgun eða eftir viku og þá er eins gott að koma vel fyrir. Vera voða næs, vera ekkert að rífa kjaft og flippa, því ég veit að hann dæmir homma út frá mér, eða hann á eftir að velta mér fram og aft- ur í þessu nýja ljósi. - Þó að hommar séu jafn ólíkir innbyrðis og aðrir er hommahatturinn alltaf á þeim. Svo þegar þú ert að gera eitthvað þá er sagt: Jón Jóns- son arkitekt, hann er hommi, en aldrei td. Jón Jónsson arki- tekt sem lemur eiginkonuna Friðhelgi skemmtistaðarins - íslenskir hommar í Kaupmannahöfn umgangast misjafnlega mikið innbyrðis. Hér er hópkenndin ekki eins nauðsynleg og heima þar sem allir eru í kh'kum. Heima fara þeir á Óðal og Hótel Borg ef þeim er þá hleypt inn. Einum vini okkar var hent út af Óðali, honum var sagt að það Hluti af íslandssögunni - Þetta er náttúrulega fá- fræði fólks, enda ekkert kennt um þetta í skólum. Það er ekki það að íslendingar séu svo vont fólk, heldur er það fá- mennið sem gerir hommum erfitt fyrir. Við erum heldur ekki fyrstu íslensku homm- arnir sem flytjast til Kaupmannahafnar; hér lifa enn sögur af íslenskum hommum sem bjuggu hér fyr- ir 120 árum. En við skulum alls ekki nefna nein nöfn því þá yrði allt vitlaust heima. Hér býr líka einn íslenskur hommi sem fæddur er um aldamótin, svo þetta er ekk- ert nýtt. Hvor er frúin? Ég spyr þá hvort þeir viti hvers vegna þeir séu hommar og þakka fyrir að þeir spyrja mig ekki á móti hvers vegna ég sofi hjá karlmönnum (góð spurning). - Ég held að ég sé fæddur svona, enda er hægt að sjá í dýraríkinu að þar eru alltaf 10% sem sækja í eigið kyn. - Nei, ég held ekki að þetta sé meðfætt. - Það er náttúrulega svo lítið búið að rannsaka mann- lega náttúru. - Já, en ég held frekar að þetta sé þroski manns og að maður hafi bara ekki meikað að vera kaldur karl og því af- neitað þessu stífa og tilfinn- ingasnauða karlhlutverki. - Já, þetta er líka fyrst og fremst tilfinningasamband og síðan kemur kynlífið en ekki öfugt eins og margir halda. Það er líka algjör fjarstæða og mjög ruglandi að segja að í hommasambandi sé annar konan og hinn maðurinn. Húsverkin skiptast svo til jafnt, fyrirvinnuhlutverkið er líka breytilegt, við erum bara eins og hverjir aðrir strákar sem búa saman. - Homminn er líka með Frelsunin - Eins og við sögðum áðan var þetta svo mikið ruglástand áður, maður var aldrei með kvenfólki, það var depression og ekkert var á hreinu. Loks- ins þegar maður nær að við- urkenna þetta fyrir sjálfum sér er eins og maður öðlist nýjan kraft. Þú finnur út að þú ert ekkert öðru vísi, þú hefur meira álit á sjálfum þér, þú hættir flótta og verður frjáls- ari manneskja. Maður fer að meta hluti öðru vísi, maður þroskast og finnur til með þeim sem eru órétti beittir. En pólitiskur leikur, að strjúka skeggið á nefndarfundum er svo innihaldslaus, enda er um að ræða miklu öflugri öfl, þar sem maður sjálfur er algert peð. Maður verður frjáls manneskja þegar maður við- urkennir fyrir sjálfum sér að maður er hommi og það eru fleiri en hommar sem þarf að frelsa. Ég er enginn Lúlli hommi - Það er erfitt að kýla á í fyrsta skiptið. Þú ert búinn að heyra brandara um homma og setningin glymur í hausnum á manni: Þú ert hommi! Ég er enginn Lúlli rakari og get ekki hugsað mér að vera einhver Lúlh hommi og að maður eigi eftir að skera sig úr. - Og svo var það hræðsla við foreldra og vini mína og hvernig það væri að vera hommi á virkum dögum. En svo er maður bara miklu meira normal en áður, ég er duglegri að vinna og með hressari heila. - Það hjálpar mikið til dæmis að krakkar hér í Dan- mörku fá alhliða kynferðis- fræðslu í skólum og umræða og atburðir sl. fimmtán ára hafa gert það að fólk þorir meira að rífa kjaft og vera öðru vísi. Áttunda skilningarvitið - Homminn er mikill mannþekkjari. Það er talað um áttunda skilningarvitið hjá hommum. Hann sér mikið í gegnum hjá fólki, enda hefur hann sjálfur prófað að leika. í hundrað manna hóp getur hann séð hverjir eru hommar. - Ég myndi aldrei þora að reyna við mann nema ég væri viss um að hann væri hommi. Sumir gefa mjög stíft undir fótinn, en eru svo ekki til í neitt þegar á hólminn er kom- ið. Ef mér lfst vel á einhvern strák í partýi, þá reyni ég ekki opinskátt við hann, heldur reyni að lokka hann fram í eldhús. Ef þú gerir það opið, þá er sagt að þú reynir við allt og alla. Það er notað sama orð um homma og konur: þeir eru lauslátir. Ungir og gamlir hommar - Ef ég þarf að verja mig get ég verið með kvenlega stæla, sem brjótast út eins og aggression. En þessi kvenleiki er meira einkennandi fyrir eldri kynslóðina. Áður var miklu erfiðara að brjótast fram, fáir vissu að hommar voru til og því hafa þeir notað kvenleikann til að ná kontakt. - En í dag finnst mér allir karlmenn vera að mætast í einum punkti. Strákar eru al- mennt að losna við karla- rulluna og orðnir kvenlegri. Ungir strákar á venjulegu diskóteki eru ekki síður kven- legir en karlar á homma- börum. í dag lætur fólk líka frekar undan bisexual löngun sinni (þ.e. að vera með báðum kynjum). Þetta lið er laust við kynjahlutverk, þökk sé þeirri fræðslu sem það fær hér í skólum. - Hvort að hommar sukki meir en aðrir? Neeei, ég myndi frekar segja að homm- ar væru meira „gay“ (sjá ensk- ísl. orðabók). Þeir drekka sig ekki ofurölvi, en þeir eru kannski meir í skemmtanalífi enda ekki eins bundnir og barnafólk. Þeir eru meira lifandi. ísland farsældar frón — Búist þið við að fiytja heim? - Eg yrði æðislega smeykur við að flytja heim og það ger- ist alls ekki í nánustu framtíð. Þar er náttúrulega hópur sem snobbar fyrir þér, en hinn hópurinn er stærri. Þér er ekki hleypt inn á skemmtistaði,þú getur verið laminn og jafnvel drepinn. Þegar ég kom hingað út var ég orðinn leiður á gæj- um sem næstum ráku mann út eftir nóttina og kvöddu með þessum orðum: „Svo þekkjumst við ekkert næst þegar við hittumst". Ég veit að einn af þessum mönnum er kominn í hjónaband. - Ég held að ísland verði aldrei skárra í þessum efnum, ekki af því að fólkið sé svo slæmt heldur vegna þess hve það er fátt. Kaupmannahöfn 18. júlí 1982 Erla Sigurðardóttir.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.