Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 9
- i—j' f- . -
^£JC^j£fljrÍnn Föstudagur 29. október 1982
Sumir segja það vegna nýrrar
uppröðunar með blásarana mest
fyrir miðju, sem yfirgnæfi hina
enn of fáliðuðu strengi. Þetta
mætti athuga.
Musica Antiqua
Þessi 2ja ára hópur er eitt hið
allra elskulegasta, sem fæðst hef-
ur í Reykjavík uppá síðkastið. Á
laugardaginn fengum við að
heyra hjá þeim nrörg smádýrindi
frá 17. og 18. öld fyrir aðskiljan-
legar flautur, sembal og víóla da
gamba. Þetta gerðu Camilla Sö-
derberg, Helga Ingólfsdóttir og
Olöf Sesselja Oskarsdóttir og svo
sú kanadíska Alison Melville sem
spilaði nú á blokkflautur og tra-
versflautu, en hún heldur um
þessar mundir námskeið í þeirri
list á vegum Tónlistarskólans
með styrk frá sinni ríkisstjórn.
Verkin voru eftir ítalska Prag-
búann Francesco Turini (f.
1589), sama árið og Sálmabók
Guðbrands biskups kom út),
Arcangelo Corelli (1653—1713)
þrjá hirðtónlistarmenn sólkon-
ungsins í Versölum (d. 1715) Pi-
erre Philidor, Marin Marais og
Jacques Martin Hotteterre,
fjórða Frakkann Philbert de La-
vigne sem starfaði á dögum Lúð-
/íks 15. og loks Þjóðverjann Jo-
hann Joachim Quantz (1697—
1773). Alit voru þetta nterkir
framherjar á sínu sviði fyrir og
um daga J.S.Bachs.
Og það er vart hægt að óska sér
notalegri síðdegisstundar en að
sitja undir þessu í hálfan annan
tíma í klassískasta sal Reykjavík-
ur í Lærða skólanum í Bakara-
brekkunni.
Páll Jóhannesson
Þessi lítt kunni tenór bauð til
söngskemmtunar ásamt Jónasi
Ingimundarsyni á sunnudaginn í
öðrum og ólíkum menntaskóla-
sal, nefnilega við Hamrahlíð.
Páll hefur ljómandi falleg hljóð
frá náttúrunnar hendi, enda var
hann víst kallaður „Palli rödd" í
Söngskólanum. Nú hefur hann
numið eitt ár á Ítalíu og fer gæti-
lega með rödd sína; geysist ekki
fram einsog hann sé orðinn al-
skapaður bylmingssöngvari á
Af úthverfariddurum
Einar Már Guðmundsson:
Riddarar hringstigans.
Skáldsaga, 228 bls.
Almcnna bókafclagið.
Reykjavík 1982.
Þeir eru væntanlega margir
sem hafa beðið Riddara hring-
stigans með nokkurri óþreyju.
Þessi skáldsaga hlaut fyrstu við-
urkenningu í bókmenntasam-
keppni þeirri er Almenna bóka-
félagið stóð fyrir á 25 ára afmæli
sínu.
Einar Már Guðmundsson
skaust fram á ritvöllinn 1980 er
urnar í sverð. En í hringstigum
fokheldra húsa felast hætturnar
líka og riddararnir standa í sögu-
lok frammi fyrir svo alvarlegri
lífsreynslu að þeir eiga sér enga
ósk heitari en þá að fá að hverfa
úr sögunni. Óþarft er að rekja’
gang atburða öllu frekar og les-
endum látið það eftir að kanna
strákaheiminn upp á eigin spýtur.
Eins og áður sagði er frásagn-
araðferðin grundvölluð á sögu-
manni og sagan því sögð í 1. pers-
ónu. Sögumaður ávarpar Óla
jafnan beint og verður samband-
ið milli þeirra tveggja því mun
^Mo/cme
hann pundaði frá sér tveimur
ljóðabókum, Sendisveinninn er
einmana og Er nokkur á kóróna-
fötum hér inni? Skömmu síðar
gaf Iðunn út Ijóðabókina Róbin-
son Krúsó snýr aftur. Óhætt er að
fullyrða að Ijóð Einars vöktu tals-
verða athygli enda vinnubrögð
hans fersk, málbeiting nýstárleg
og hugmyndaauðgi takmarka-
laus.
I riddurum hringstigans er les-
andinn leiddur áfram af sögu-
manni, Jóhanni Péturssyni, og
fylgist einkum með honum og fé-
lögum hans. Ytri tími sögunnar
er líklega fyrstu ár 7. áratugarins
og sögusviðið er úthverfi í
Reykjavík sem er að byggjast
upp.
„A dagiim þegar mótatimbrið
hrynur utan af luístmum vex stolt
þjóðarinnar með hverrispýtu sem
hrynur. Pað vex í blöðunum á
hagskýrslum, það vex og húsin
dreifast um borgina og allt flýtur í
fólki. " (178)
Sagan spannar 2-3 daga í lífi
úthverfariddaranna, en einkurn
er þó dvalist við afmælisdag Óla,
besta vinar Jóhanns Péturssonar.
Reyndar leit illa út með afmælis-
boðið unt tíma vegna þess að Jói
hafði slengt klaufhamri í haus
Óla og hinn síðarnefndi því aftur-
kallað boð sitt. En Jóhann lætur
sig hafa það að mæta í óþökk af-
mælisbarnsins enda hefði annað
jafngilt því „að reka heila þjóð úr
sameinuðu þjóðunum" (17).
Höfundur lýsir síðan afmælis-
veislunni ýtarlega, einnig kvöldi
þessa merkisdags sem drengirnir
enduðu á því að heimsækja eina
fokheldu nýbygginguna. I því
umhverfi breyttust hvitbotna
gúmmískórnir í vakra gæðinga,
peysurnar í brynjur og naglaspýt-
nánara en annarra persóna. En
sögumaður ávarpar lesendur
einnig beint og er því oftlega tah-
vert ágengur.
„Pú hlýtur að skilja mig, lesandi
góður, þegar ég byrja að pœla í
þvíhvernig ég geti klekkt á afmœl-
isbarninu. “ (19)
„Eg skal segja ykkur það; ef ég
héldi áfrant að þylja upp öll nöfn-
in sem velta innum útidyrnar yrði
þessi kafli jafn leiðinlegur og skip-
atalið i Illionskviðu. Já sérlu
veikur fyrir nöfnum skaltu bara
lesa skattskrána." (64)
Dæmin tvö hér að ofan eru val-
in af handahófi svipuð atriði er
víða að finna. Einar Már verður
þó ekki sakaður um að ofnota
þessa tækni, en lesandinn fær
aldrei frið til að gleyma sér og
hverfa inn í atburði sögunnar því
höfundur kallar hann stöðugt til
ábyrgðar. Sögumaður vísar einn-
ig oftlega aftur til atburða eða
atriða sem komið hafa fyrir fyrr í
sögunni. í lO.kafla segir: „...,
tuttuguogfimmkrónaseðill eins-
og ég stakk á milli járntannanna í
sparibauknum í kafla sjö, ...“
(66) Það má segja hið sama um
þetta bragð og önnur sem krydda
frásögnina að það verður aldrei
leiðigjarnt vegna ofnotkunar.
Einar Már fellur aldrei í þá gryfju
að gera tilbreytingaríka frásagn-
araðferðina að aðalatriði.
Frásögnin er bundin huga Jó-
hanns og hlýtur því jafnan að
taka mið af hugarástandi hans.
Jóhann Pétursson er stundum
kátur, stundum leiður. Hann
verður ofsahræddur og hann
verður þreyttur og syfjaður. Öllu
þessu finnur lesandinn fyrir í frá-
sögninni og stíll höfundar mótast
af þessum aðstæðum.Þegar sögu-
maður erskýríkollinumgengur
ýii «*«*»
MAÍKÓRINN
verttfllýAssöngvnr og
erttjarAarsongVBr
6»itvnwinn Masnúwn
Mynd af plötuumslaginiíá „Við
erum fólkið": Þessi mynd átti að
birtast með pistli Á.B. í síðustu
viku um plötu Maí-kórsins oq
MFA.
stundinni. Það jaðrar jafnvel við.
að hann verki stundum einsog
smámæltur í íslenskum lögum.
Hann sýndi það hinsvegar á
nokkrum stöðum, að.hann getur
tekið hressilega á einsog í Bikarn-
um og Hamraborginni og komst
alveg þokkalega frá strembnum
arium einsog Una furtiva lag-
rima. Heyrum hann seinna.
Einar Már - fer býsna vel af stað
sem skáldsagnahöfundur í Ridd-
urum hringstigans, segir Sigurður
m.a. í umsögn sinni.
frásögnin hratt fram en þegar
hann er þreyttur eða ruglaöur
verður meira um útúrdúra og fíl-
ósóferíngar.
Jóhann Pétursson er sex ára
þegar atburðirnir gerast (á að
fara að byrja í tímakennslu hjá
prestinum), en sagan er sögö af
fullorðnum manni. Höfundur
skoðar hlutina stundum stráks-
augum en nýtir sér jafnframt lífs-
reynslu sína og þær viðmiðanir
sem aldurinn gerir mögulegar.
Við þessar aðstæður nýtur frá-
sagnargáfa Einars sín mjög vel.
„Pó þú lesandi góður hafir
kannski haldið það erum við Oli
ekki einsog stjórnmálamennirnir
sem faðmast og takast í hendur á
stmsendum ap-fréttuljósmynd-
um, á meðanþeir íhuganum bíta í
jaxlana hvor á öðrum. Nei við
förum bara í btlaleik og keyrum
yfir brýrnar sem brotnað hafu
milli okkar." (55)
Einar Már Guðmundsson fer
býsna vel af stað sem skáldsagna-
höfundur og það er raunar ekki á
Riddurum hringstigans að sjá að
þar sé um fraumraun að ræða.
Styrkur hans sem rithöfundar
ligguref til vill fyrst ogfremst íþví
hversu gott vald hann hefur á ó-
líkum stíltegundum. Frásögnin er
blæbrigðarík og öguð. Einar nýt-
ur þess örugglega í þessu verki
sínu að hafa fengist við ljóðagerð
og raunar er þar að finna kafla
sem vel gætu sómt sér í einhverri
ljóðabók hans. Mig langar að
enda þessa umfjöllun á einum
slíkum kafla og hvetja jafnframt
sem flesta til að kynna sér verk
þessa unga rithöfundar.
„Kúl-itt-beibí segir vindurinn
sent blœs án þess að blása, segju
Ijósin í gluggunum sem lýsu án
þess að lýsa, segja fjöllin um-
hverfis borgina, kúl-itt-beibí á
meðan skósólarnir snarka i möl-
inni, tyggjókúlurnar springa, kúl-
itt... tilfinningar þínar eru
leyndarmál sem enginn má vita,
kúl-itt þú gefur skít í tárin sem
ósýnileg streyma, kúl-itt-beibí
segir vindurinn segja húsin segja
mennirnir þú ert fceddur til að
verða maður kúl-itt..." (139-140)
SS
llíóill
'★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
0 léleg
Bíóhöllin
★ ★ ★
Atlantic City. Bandarisk. Árgerð 1981. Leik-
stjóri: Louis Malle. Aðalhlutverk: Burt Lanc-
aster, Susan Sarandon, Michel Piccoli.
Franski leikstjórinn Louis Malle legg ur hér öðru
sinni til.atlögu við ameriskan etnivið. Honum
þótti takast*vel upp við soitpornó úr hóruhúsa-
kúltúr New Orleans um aldamót i myndinni
Pretty Baby. Og í Atlantic City bregður hann
upp næmlegri skoðun á mannliti í þessari nötur-
legu spilaborg. Burl Lancaster er ekkert minna
en stórbrotinn í hlutverki aldurhnigins smáKrim-
ma sem sestur er í helgan stein og dedúar mest
við karlaega kerlingu i næstu jbúó uns hann
verður bergnuminn af ungri þjónustustúlku.
er Susan Sarandon leikur einnig afbragðsvel, í
íbúðinni á móti. Pau kynni leiða þennan
gamla mann útí glæpastarfsemi og skilja hann
ettir í lokin sem blöndu af sigurvegara og sigr-
uðum manni, mðurlægðan en þo á undarlegan
hátt með fullri reisn. Petta er óvenjuleg mynd,
spennandi, mameskjuleg og býsna ettirminni-
le9' Ab
- AP
Félagarnir frá Maxbar. Bandarisk. Leik-
stjóri: Richard Donner. Aðalhlutverk: John
Savage, David Morse, Diana Scarwind.
Richard Donner er sá hinn sami og gerði mynd-
irnar Superman og Omen. Þessi mynd fjallar
um nánunga sem koma saman á Max bar og
þar er nú ýmislegt brallað.
Porky’s. Bandarísk. Árgerð 1982. Handrit og
leikstjórn: Bob Clark. Aðalhlutverk Dan Mona-
han, Mark Herrier, Wyatt Knight.
Porky's hefur ekkert nýtt fram að færa. Hún er
stæling á American Graffiti: baldin menntaskóla-
æska. prakkarastrik, kynlifstitl, smávegis andóf
við fullorðinsheiminn og slatti af gömlum dægur-
lögum. í heild eins og gamall slitinn slagari.
— AÞ
Hvernig sigra á verðbólguna. (How to beat
the High Cost of Living) Bandarisk. Árgerð
1980. Aðalhlutverk: Susan Saint James,
Jane Curtin, Jessica Lange.
Sérdeilis leiðinleg gamanmynd, sem fjallar um
ungar konur, þreyttar á verðbólgu og blankheit-
um, sem ræna verslun. Ollu í þessari mynd er
forklúðrað. Því miður, þvi að þessu mætti sjáll-
sagt vel hlægja.
Dauðaskipið. (Deathship). Bandarisk. Aðal-
hlutverk: George Kennedy, Richard Crenna.
Nalnið ætti að segja eltthvað til um elni þessar-
ar hrollvekju.
Fram i sviðsljósið (Being There). Bandarisk,
árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, ettir
eigin skál dsögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Dcuglas, Shirley MacLaine. Leik-
stjóri: Hal Ashby.
Stjörnubló **
Absence of Malice. Bandarísk. Árgerð 1981.
Handrit: Kurt Luedtke. Leikstjóri: Sidney Poll-
ack. Aðalhlutverk: Paul Newman, Sally Field,
Bob Balaban.
Hér er rannsóknarblaðamennskan sjálf tekin til
rannsóknar og bæna. Handritshöfundurinn,
Luedtke, hefur sjálfur drjúga reynslu af blaða-
mennsku og vinnubrögðum amerískra stórblaða
og veit þvi hvað hann syngur i þessari trásögn
sinni af rannsóknarblaðamennskunni. Þetta er
skemmtileg mynd, sem Sidney Pollack rekur
áfram af sinni alkunnu fagmennsku. En hún er
ekki mikið dýpr. t-n obbinn af amerisku sjálfsgagn-
rýnimyndum uppá síðkastið.
* -Ál>
Stripes. Bandarísk. Árgerð 1982. Handrit: Har-
old Ramis o.fl. Leikstjóri: Ivan Reitman. Aðal-
hlutverk: Bill Murray, Harold Ramis, Warren
Oates.
Regnboginn o
Fiðrildi (Butterfly). Bandarisk. Árgerð 1982.
Handrit: Matt Cimber, John Goff. Leikstjóri:
Matt Cimber. Aðalhlutverk: Stacy Keach,
Pia Zadora, Orson Welles, James Fra-
nciscus.
Afspyrnu sloj útgáfa af skáldsögu James M.
Cain um námuvörð einn í auðnum Ameríku
(Stacy Keach) sem leiðist út í blóðskömm sem
ekki er svo blóðskömm með dóttur sinni sem
ekki er svo dóttir hans (Pia Zadora). Myndin er
hægfara og stefnulaus, og einna helst er dvalið
við hina „umtöluðu kynbombu" Pia Zadora.
Hún er nú ekki annað en frekar sjúskuð lítil
budda sem hefur doblað millann eiginmann
sinn til að fjármagna þessi leiðindi. Þetta er allt
út i Hróa hött og Marian, eins og Gulli myndi
segja.
- ÁÞ
Roller Boogie. Bandarísk. Árgerð 1981. Leik-
stjóri: Mark Lester. Aðalhlutverk: Linda Blair,
Jim Bray, Beverly Garland.
Þetta ku vera diskómynd eins og þær gerast best-
ar. en er e.t.v. svolitið seint á ferðinni. Hún fjallar
um diskódans á hjólaskautum og baráttu dansar-
anna við ósvifna glæpamenn.
Ásinn er hæstur (Ace is High). Bandarisk. Að-
alhlutverk: Eli Wallach, Terence Hill, Bud
Spencer.
Grimmdarlegur vestri í spagettistilnum. Endur-
sýnd.
Sunburn (Sólbruni) Bandarisk. Aðalhlutverk:
Art Carney, Charles Grodin, Farrah Fawcett.
Mynd um tryggingarsvik og mannrán og sólbruna
væntanlega. Endursýnd.
Laugarásbíó
Karateglæpaflokkurinn
Gömul og klassisk karatemynd með tilheyrandi
sveillu. Endursýnd.
Nýja bíó:
Lúðrarnir þagna (Taps) Bandarísk. Ár-
gerð 1981. Gerð eftir skáldsögu Devery
Freemans: Father Sky. Handrit: Darryl
Toniscan Leikstjóri: Harold Becker. Að-
alhlutverk: George C. Scott og Timothy
Hutton.
Leggja á gamlan og viröulegan herskóla
niöur, en'skólastjórinn og nemendurnir eru
nú ekki á því. Endar meö því aö yfirvöld
senda þjóðvarðlið á vettvang. Og þá verður nú
liklega hasar.
Tónabíó o
Hellisbúinn (The Caveman) Banda-
risk. Árgerð 1980. Handrit: Rudy DeL-
uca og Carl Gottlieb. Aðalhlutverk:
Ringo Starr og Barbara Bach. Leik-
stjóri: Carl Gottlieb.
Hvaö er sosum haegt að segja um
mynd eins og þessa? Hún er gerö af
fullkomnu metnaöarleysi i öllum deildum
- leikurinn er afleitur, tæknibrellur fyrir
neðan meöallag, handritið gloppótt og
leikstjórinn hefur augljóslega engar á-
hyggjur haft af öllu þessu. Þessi mynd er
eiginlega samansafn af bröndurum um
þróun mannsins (þarna er skýrt hvers-
vegna hann fór aö ganga uppréttur,
hvernig eldurinn fannst, ofl) sem tengdir
eru saman í frásögn af basli Ringós viö
aö ná fallegri eiginkonu af beljaka nokkr-
um. Sumir brandaranna eru þokkalegir,
en flestir eru þeir samt óttalega lágkúru-
legir; ganga einkum útá prump og piss
og kúk. -GÁ
Síðsumar (On Golden Pond). Bandarisk
kvikmynd, árgerð 1981. Handrit: Ernest
Thompson, eftir eigin leikriti. Leikendur:
Henry Fonda, Katherine Hepburn, Jane
Fonda. Leikstjori: Mark Rydell.
Allt leggsl a eilt með að qera þessa mynd góða.
leikuunn. handritiö. kvikmyndatakan og
leikst|órnin.
Austurbæjarbíó
Blóðhiti (Body Heat) Bandarisk. Árgerð 1981.
Handrit og leikstjórn: Lawrence Kasdan. Aðal-
hlutverk: William Hurt, Kathleen Turner, Ric-
hard Crenne, Ted Danson.
Þetta er alveg prýðilegur, stemmningsþrunginn
þriller, iðandi af erótík, stigmagnaðri spennu og
neikvæðum mannlegum tilfinningum, eins og
peningagræðgi, undirferli, samviskuleysi, og al-
hliða skepnuskap. Afbragðsvel farið með marg-
notað efni, og leikarar eru sem sniðnir i hlutverkin,
ekki síst Ted nokkur Danson í hlutverki sér-
kennilegs saksóknara. Sem sagt: Gaman ,
gaman.
ÁÞ
Laugarásbíó:
Rannsóknarblaðamaðurlnn (Continental Di-
vide) Bandarísk. Árgerð 1981. Handrit: Lawr-
ence Kasdan. Leikstjóri: Michael Apted. Aðal-
hlutverk: John Belushi, Blair Brown.
Ég veit að þeir snillingarnir, Steven Spielberg,
Lawrence Kasdan og Michael Apted verða gasa-
lega domm þegar þeir lesa þetta, en þvi miður:
Continental Divide er flopp. Kasdan, sem hermdi
svo vel eftir „svörtu myndunum” frá fimmta ára-
tugnum i E3ody Heat, reynir hér að herma eftir
rómantiskum gamanmyndum af
Hepburn-Tracy-sorlinni, en hann er hvorki fynd-
inn né tekst að spinna sannfærandi ástarsögu um
rannsóknarblaðamann frá Chicago og fuglafræð-
ing i Klettafjöllunum sem fella hugi saman. Þetta
er hrákasmið. Sorrí strákar.
-ÁÞ.
Gamla bíó
íslenska Hljómsveitin mun koma fram i fyrsta sinn
á laugardagskvöldið kl. 21. Miðasala föstudag og
laugardag Irá kl. 14.
1 Háskólabíó: ***
Venjulegt fólk (Ordinary People). Bandarisk. Ár-
gerð 1981. Leikstjóri: Roberl Redford. Aðalhlut-
verk: Donald Sutherland, Mary Tyler Moore, Ti-
mothy Hutton.
Þessi frumraun Roberts Redfords sem ieikstjóra
er ákallega greindarleg, þó ef til vill vanti dálítinn
safa í þetta hnitmiðaða drama um upplausn amer-
iskrar millistéttarfjölskyldu. Ordinary people er
fyrst og fremst dæmi um mynd þar sem leikarar
blómstra undir nærfærnislegri leikstjórn. Þó
væmnin sé að sönnu stundum skammt undan og
sálfræðingaspekin ameriska of yfirgnæfandi er
lika nóg af húmor og innsæi. Þetta er mynd sem
aðstandendur geta i heild verið stoltir af og áhor-
tendur þakklátir fyrir að njóta.
— ÁÞ
Bíóbær
Frankenstein. Bandarisk.
Andy Warhol á sér nokkra aðdáendur hér sem
annarsstaðar og þeir fá hér tækifæri að skoða
eina afurð hans. Þetta ku vera með allra blóð-
ugustu og svæsnustu myndum, og þeir sem I
áhuga hala á sliku fá þvi einnig sitt. A sjösýning-
um komast tveir inn á einum miða.
Háskólabíó
S.Á.Á. er 5 ára og í því tilefni verður haldin afmæi-
isfundur á iaugardaginn kk*14. Þar munu koma
fram: Gunnar Thoroddsén forsætisráðherra,
Signý Sæmundsdóttir, Guðriður Steinunn Sigurð-
ardóttir, Björgólfur Guðmundsson, Ómar Ragn-
arsson, Pjétur Þ. Maack, Ullen dullen doff, Joseph
Pirro, Biskup íslands, Bryndís Schram, og Horna-
flokkur Kópavogs. Eftir fundinn verður afmæli-
skaffi á Hótel Sögu og þar munu Sigfús Halldórs-
son, Snæbjörg Snæbjarnardöttir og Graham
Smith spila undir borðum,
Stúdentakjallarinn
Á sunnudagskvöldið verður léttur djassmórall, og
munu þeir Tómas Einarsson, Friðryk Karlsson,
Gunnlaugur Briem og Sigurður Flosason sjá fyrir
því.