Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 24
Flott skal það vera og ekkert /■ J til sparað. Austur í Japan er 1 álverksiniðja, dótturfyrirtæki Alusuisse, að framleiða álplötur, svokallaða álbala, sem nota á í klæðningu á tvær efstu hæðir Þjóðarbókhlöðunnar miklu á Mel- unum. Er gert ráð.fyrir að heildar- kostnaður við framleiðsluna og ás- etninguna verði nærri tíu milljón- um króna (gamall milljarður!) eða sent svarar verði 3-4 myndarlegra einbýlishúsa. Ákvörðun um þessi flottheit tók ríkisstjórnin að tillögu Byggingarncfndar Pjóðarbók- hlöðu. Samstarfsnefnd um opin- berar framkvæmdir, sem fjallar um byggingamál ríkisins, vildi á sínum tíma láta bjóða verkið út innan- lands og nota ódýrari klæðningu, t.d. trefjaplast, steyptar einingar eða álplötur. Þáverandi formaður nefndarinnar (á miðju ári 1981) var Gísli Blöndal, sem þá var hagsýslu- stjóri. Bygginganefndinni, tindir formennsku Finnboga Guðmunds- sonar landsbókavarðar, leist ekki á tillögur nefndarinnar og því var málinu skotið til ríkisstjórnar- innar, sem veitti samþykki sitt fyrir álbalaaðferöinni. Var á þeim tíma talið, aö hægt væri að fá verkið unnfð innanlands fyrir fimmtung eða fjórðung af þeini kostnaði sem nú er fyrirsjáanlegur. I ár og á næsta ári er gert ráð fyrir á fjár- lögunt að 26-27 milljónum króna sé varið til byggingar Þjóðar- bókhlöðu og þar af fer þriðjungur eða meira í þessa makalausu klæðningu. Segjum svo, að sam- dráttur sé í opinberum rekstri og krepputíð í landinu. .. Fr* "3 Titringur eykst nú stig af stigi / J vegna væntanlegs prófkjörs ’S* Alþýðuflokksins hér í Reykjavík í lok nóvembermán- aðar. Einsog við I lelgarpóstsmenn höfum greint frá, þá eru núverandi þingmenn flokksins, Vilmundur Gylfason, Jón Baldvin Hannibals- son og Jóhanna Sigurðardóttir, þegar komin á fullt í prófkjörs- slagnum. Um síðustu helgi var kos- iö á flokksþing og í fulltrúaráð Al- þýöuflokksfélaganna í Reykjavík og þau þrjú, sem hér voru nefnd, voru þar íframboði til fulltrúaráðs. 190 félagar í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur munu hafa tekið þátt í kosningunni og talsverð barátta fór frarn bakatil milli prófkjörskandí- datanna. A.m.k. urðu lyktir þær, að Jón Baldvin hlaut llOatkvæði í þessum kosningum og Vilmundur 79. Fróðir menn hafa lagt þetta saman og fengið út 189 og segja þarmeð ljóst, að aðeinsörfáir kjós- endur hafi kosið þá báða í senn, Jón Baldvin og Vilmund, enda þótt kjósa ætti eigi færri en 50 manns. Útilokunarherferðin hafi verið svona kraftmikil. Þá mun Jóhanna Sigurðardóttir hafa fengið rúm 100 atkvæði í þessari kosningu. Sigur- vegarar í þessum innanflokksátök- utn í innsta hring Reykjavíkurkrata voru hins vegar „gömlu mennirn- ir“, Eggcrt G. Þorsteinsson, Gylfi Þ. Gíslason, Baldvin Jónsson og Björgvin Guðmundsson...... 1 Það berast fregnir af fleiri 'f' 1 skjálftum frá Norðurlands- kjördæmi eystra en skjálftum frá Kröflu. Við heyrum, að þar séu um þessar mundir líka nokkrir framboðsskjálftar, og framundan séu nokkrar hræringar í fram- tíðarmálum norðlenskra Sjálfstæð- ismanna. Upptök framboðsskjálft- ans eru þau, að meðal sjálfstæðis- manna sem eru óánægðir með skipan listans í kjördæminu vilja koma Birni Dagbjartssyni for- stöðumanni Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins á listann. Hug- myndin er sú, að annað hvort fari hann í prófkjörsslaginn eða hann verði settur í annað hvort annað eða þriðja sæti verði ekki af próf- kjöri. En ýmislegt bendir einmitt til þess að prófkjör fari ekki fram. Ýmsir þeirra sem skipa efstu sæti listans nú eru ekki par hrifnir af þessari uppákomu og neyta allra bragða til að koma í veg fyrir að af prófkjöri verði. Þar er Halldór Blöndal fremstur í flokki, en hann skipar nú annað sæti listans, næst á eftir Lárusi Jónssyni. Þriðja sætið skipar Vigfús á Laxamýri. En það er einmitt óánægja með Halldór sem er undirrót þess að ýmsir vilja setja Björn í sæti hans. Óánægjan með Halldór er ekki síst vegna þess upphlaups sem varð á sínum tíma vegna símreikninga Jóns Sólnes. Því hafa norðlenskir sjálfstæðis- menn ekki gleymt.... r‘^ Ólafur Jóhannesson, fyrrum / J formaður Framsóknarflokks- S ins og utanríkisráðherra hefur nú gefið endanlegt afsvar við fjölda áskorana um að hann gefi enn kost á því að vera í framboði fyrir flokk- inn í næstu Alþingiskosningum. Hann er víst búinn að fá nóg.... Annar ráðherra og flokks- / J bróðir Ólafs virðist hins vegar S ekki þurfa að kvarta yfir fjölda áskorana um að halda áfram í pólitík. Það er Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra. Nú um helg- ina fer fram önnur umferð í próf- kjöri Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, en í því taka þátt fulltrúar í kjördæmis- ráði flokksins. Niðurstaða fyrstu umferðarinnar var sú, samkvæmt heimildum Helgarpóstsins, að Guðniundur Bjarnason, alþingis- maður varð efstur, annar Stefán Valgeirsson, alþingismaður, þriðji Hákon Hákonarson, forseti Al- þýðusambands Norðurlands en hann var í fimmta sæti á lista Fram- sóknar í kjördæminu við síðustu kosningar. Ingvar Gísla- son, menntamálaráðherra varðsvo fjórði. Þetta þykir herfileg útreið fyrir mann í hans stöðu, en megn óánægja mun innan kjördæmisins, - einsog reyndar víðar -, með frammistöðu ráðherrans. Þykir hann m.a. ekki sýna kjördæmi sínu neina ræktarsemi. Nú um helgina verður enn kosið milli tólf efstu manna í fyrstu umferð og valdir sex sem svo verður raðað niður í efstu sætin í þriðju og síðustu umferð. Niðurstaðan þá verður bindandi. Velta menn nú fyrir sér hvort smöl- un fyrir hönd ráðherrans geti orðið til að bjarga andliti hans eða hvort hætta sé á að hann detti hreinlega út af þingi.... Áfram Framsókn: Kjördæm- / J isþing Framsóknarflokksins í S* Norðurlandskjördæmi vestra var haldinn fyrir skemmstu. Var jafnvel búist við að þar yrði stáða Páls Péturssonar á Höllustöðum og þingflokksformanns nokkuð erfið vegna Blöndumálsins. Annað kom þó á daginn og fékk Páll að mestu að vera í friði. Þarna var ákveðið að láta ekki fara fram prófkjör í kjördæminu, heldur mun uppstill- ingarnefnd annast röðun manna á lista, og mun sú niðurstaða ekki síst vera sigur Páls á Höllustoðum.... w* 1 Vaxandi ókyrrð er innan Söl- / J umiðstöðvar hraðfrystihús- S anna vegna starfsemi dóttur- fyrirtækisins Coldwater í Banda- Fnstiiriamir nktrihnr 'elgar- Nýju vasamýndavélarnar frá Cfliion ekkí sambærilegar við venjulegar vasamyndavélar AFSMELLARI HNAPPUR LJOSMÆLISSTILLIR SJONGLUGGI INNBYGGT LINSULOK AUTO-FOCUSGLUGGI INNBYGGT FLASH LJOSMÆLIR GLUGGI 4RA GLERJA 35 MM CANON-LINSA AUTO-FOCUS GLUGGI Athugíð eftirfarandi eiginleika Snappy-vasam y ndavélarinnar: SnRPPV vasamyndavélarnar nota 35 mm filmu sem skilar ávallt skarp- ari og skýrari Ijósmyndum, heldur en venjuleg vasamyndafilma. vasamyndavélarnar eru meö sjálfvirka filmuþræðingu. vasamyndavélar eru meö sjálfvirka filmufærslu áfram og aftur- ábak. vasamyndavélar eru með innbyggt sjálfvirkt flash. 1 vasamyndavélar eru einfaldar og handhægar en nákvæmar. vasamyndavélarnar sjá um allar stillingar fyrir þig svo aö þú náir rétta augnablikinu áður en þaö er orðiö um seinan. Lítiö inn hjá okkur og skoðið Snappy-vélarnar, þá sannfærist þið um að Snappy er vélin fyrir ykkur. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI. tyli Sérverzlun með Ijósmyndavórur. Austurslræti 7. Síniar: 1096fi, 26499 Póstsendum UTSOLUSTAÐIR: Filmuhúsið, Akureyri, Fókus, Reykjavík, Ljósmyndaþjónusta Mats, Reykjavík, Týli, Reykjavík, Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík, Verslunin Eyjabær, Vestmannaeyjum. ríkjunum. Á sama tíma sem dótt- urfyrirtæki SÍS, Iceland -Seafood hefur verið í uppgangi og aukið markaðshlutdeild sína hafa erf- iðleikarnir steðjað æ meir að Cold- water og þykir mörgum sem þar sé reksturinn farinn að slappast mik- ið. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for- stjóri SH sagði upp stöðu sinni hjá Sölumiðstöðinni m.a. vegna óá- nægju með afstöðu stjórnar SH til rekstrarins í Bandaríkjunum, þar sem hann taldi þurfa að gera á- kveðnar breytingar. Stjóminni tókst að fá hann til að draga uppsögn sína til baka. En talið er að senn dragi til tíðinda hjá Coldwater og þær radd- ir gerast æ háværari sem telja nauð- synlegt að skipta um menn á toppnum. Þar hefur ríkt um langt skeið Þorstcinn Gíslason og hafa menn m.a. fundið að því hve reksturinn undir hans stjórn hefur fengið æ meiri svip af fjölskyldufyr- irtæki.... fTl Farið er að styttast í að Davíð J Ólafsson seðlabankastjóri S verði að láta af störfum fyrir aldurs sakir. Eru menn þegar farnir að velta því fyrir sér liver muni koma í hans stað, enda um feitt embætti að ræða. Sagt er að Matt- hías A. Mathiesen fyrrverandi fjár- málaráðherra hafi áhuga á stöðunni, og þyki tími til kominn að fara að draga sig í hlé frá stjórn- málavafstrinu, enda er Matthías nú búinn að sitja á þingi í um þrjátíu Búist er við hörðum átökum í / i komandi prófkjörum flokk- anna vegna alþingiskosning- anna, en sennilega verður slagur- inn þó hvergi hatrammari en hjá Sjálfstæðismönnum í Norðurlands- kjördæmi vestra. Litlir kærleikar munu milli stjórnarsinna og stjórn- arandstæðinga innan Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu og líklega hvergi eins skörp skil. TaliðvaTað Pálmi Jónsson ætti nokkurn veginn sigur vísan í slagnum, en fylgi hans mun þó fara þverrandi og eins hafa stjórnarandstæðingar Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu unnið mjög ötullega gegn Pálma um alllangt skeið. Telja margir að Eyjólfur Konráð Jónsson eigi nú öllu meira fylgi í kjördæminu en Pálmi. Vegna þess hve sjálfstæðismenn í kjördæminu skiptast glögglega í fylkingar kann þó svo að fara að hvorugur þeirra Pálma og Eykons hreppi efsta sætið í prófkjörinu. þar sem þeir munu varla fá atkvæði frá öndverðum fylkingum. Kynni því svo að fara að Jón Asbjörnsson á Sauðárkróki sem mun hafa hug á þingmennsku yrði efstur í próf- kjörinu og Pálmi og Eykon sætu eftir með sárt ennið... r'1 Önnur staða er hjá sjálfstæð- / ý ismönnum á vesturlandi en í S Norðurlandskjördæmi vestra. Þar sitja menn að mestu á friðar- stóli og er talið víst að Friðjón Þórðarson muni hljóta yfirburða- fylgi verði efnt til {jrófkjörs. Vænt- anlega yrði baráttan harðari um annað sætið á lista flokksins milli Akurnesinganna Jósefs H. Þorg- eirssonar og Valdimars Indriða- sonar og telja margir að Valdimar standi nú betur að vígi í þeirri bar- áttu en hann er sagður vera meira „Gunnarsmegin" í flokknum... Eitthvað hefur nýútkomin Z' J hljómplata fanganna á Litla Hrauni, Rimlarokk vafist fyrir starfsmönnum útvarps. Var vakið máls á því óformlega á fundi útvarpsráðs í vikunni hvort eðlilegt og rétt væri að ríkisútvarpið styddi það að dæmdir sakamenn yrðu poppstjörnur með því að spila plöt- una í dagskránni. Útvarpsráð mun hafa talið af og frá að þessi plata fengi ekki sams konar meðferð og aðrar plötur í hljóðvarpi. og fer því „spilun" rimlarokks eftir gæðum og vinsældum eins og gildir fyrir hljómplötur almennt...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.