Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 29. október 1982 jjosturinn. STRIPPAÐ FYRIR Jórunn Sigurðardóttir og Guðjón Petersen Garðveisla Guðmundar Steinssonar: í upphafi verksins. - Mynd: Þjóðleikhúsið THALIU — um nekt á f jöl- um leikhúsanna '' Skilnaður Kjartans Ragnarssonar: Jón Hjartarson og Guðrún Ásmundsdóttir. Mynd: LR, ímynd. Þaö vekur jafnan nokkra athygli þegar ný íslensk leikrit eru frum- sýnd, jafnvel þótt þaö veröi æ tíöara. Og þaö hefur ekki síöur vakið athygli í haust, að í tveimur íslenskum leikritum eru nektaratriði, sem valdiö hafa talsveröu umtali í borginni. Þessi leikrit eru „Skilnaður“ Kjartans Ragnarssonar í lönó og „Garðveisla“ Guömundar Steinssonar í Þjóðleikhúsinu. Þótt nekt á sviöi sé ekkert nýtt fyrirbæri hérlendis - og þá enn síður erlendis - hafa ýmsir orðið til að hafa orð á þessum atriöum í leikritunum tveimur, m.a. gagnrýnendur í leikdómum. Þar hefur verið komist svo aö orði, aö svo virtist sem stripl væri tískufyrirbæri í leikhúsunum í vetur. Þótt manninum sé ekkert eölilegra en nekt eru líklega flestir feimnir viö aö spranga á Adams- eöa Evuklæðunum einum frammi fyrir fjölda fólks. Við leituöum því til þeirra, sem hlut eiga að umræddum leiksýning- um, leikstjóranna tveggja (og þar meö annars höfundarins) og leika- ranna fjögurra, sem „strippa fyrir Thalíu" á fjölunum þegar skamm- degiö færist yfir. „Fólk bjóst við miklu klámi” — segir María Kristjáns dóttir, leikstjóri Garðveislu María Kristjánsdóttir leik- stjóri „Nekt á íslenskum leiksviðum er ekkert nýtt fyrirbæri þótt tilviljun valdi því, að nú séu í gangi tvö leikrit, þar sem nekt fyrirfínnsf1, segir María Kristjánsdóttir, leikstjóri „Garðveislu“ Guðmundar Steinssonar i Þjóðleikhúsinu. „Það er langt síðan ísinn var brotinn. Kannski var það fyrst 1970 í „Hár- inu“, en síðan hafa verið sýningar á borð við Equus, Klukkustrengi, Lysiströdu, Að sjá til þín maður og fleiri“. María segir ekki hafa verið hægt að færa „Garðveislu" á svið án nektar. „Nektin tákn- ar sakleysið, hreinleika og einlægni", segir hún, „í andstöðu við spillta lífernið, sem höf- undurinn sýnir ókkur“. - Nú ímyndar maður sér, að ýmislegt í starfi leikarans kosti átök. Kostaði.það átök, að fá fólk til að leika nakið í „Garðveislu?" „Nei alls ekki. Leikararnir tveir, sem um ræðir í „Garðveislu" eru bæði af yngri kyn- slóð leikara. Þau hafa, held ég, ekki mjög tilfinningalega afstöðu til nektar sem slíkrar, þannig að þeim tókst að gera þetta að engu máli. En svo má auðvitað segja, að þessi þáttur verksins snerti mjög afstöðu allra sem koma nærri sýningunni, til þeirra tveggja. Því var þetta rætt mjög opinskátt á fyrstu æfing- unum. Ég varð aldrei vör við neinn ótta eða hræðslu - og það kom nektinni ekkert við, að tveir leikarar kusu að vera ekki með í verkinu". - Hvað með áhorfendur, hvernig bregðast þeir við? Flissar fólk í vandræðaskap og feimni? „Það er oft mjög skemmtileg tilfinning í salnum en ég hef ekki orðið vör við mikið fliss - nema í einstaka unglingi. En það má heldur ekki gleyma því, að þau leika á bak við svarta grisju, þannig að nálægðin er ekki mikil. - Ég sagði víst áðan, að það hefði aldrei kostað nein átök að færa nektaratriðin á svið. Það er rétt en það er líklega ofsagt hjá mér að það hafi aldrei verið tilfinningamál. Auðvitað hljóta að hafa verið blendnar tilfinningar - en það var aldrei vandamál". - Finnurðu mun á fólki, sem kemur á sýn- ingar nú og því, sent kom á allra fyrstu sýn- ingarnar? „Já, ég er ekki frá því. Á fyrstu sýningunni var ntikill spenningur í loftinu. Ég held helst að fólk hafi búist við einhverju svakalegu - rniklu klámi, hvernig sem á því hefur staðið. En síðan hefur það alveg vikið fyrir eðlilegu andrúmslofti, fólk tekur verkinu með opnum huga til að njóta þess“. „Mjög erfitt" — segir Guðrún Asmunds p/* jl dóttir 'Qhm. Guðrún Ásmundsdóttlr: Nektaratríðin eru smá- atriði. „Það verður að viðurkennast að mér þykir mjög erfitt að koma fram nakin fyrir fullu húsi fólks“, segir Guðrún Ásmundsdóttir leikari, sem fer með aðalhlutverkið í „Skiln- aði“ Kjartans Ragnarssonar í Iðnó. í leikrit- inu eru tvö atriði, þar sem leikarar koma fram naktir. „Ég myndi alls ekki gera þetta ef mér væri ekki ljós sá listræni tilgangur sem í þessum atriðum felst", segir Guðrún. „Ég hef sjálf leikstýrt verkum og myndi ætlast til, í þeim sporum, að hver sá, sem léki hlutverk Krist- ínar, tæki sömu afstöðu og ég hef gert núna“. - Þú hefur ekki viljað færast undan? „Nei, það hvarflaði ekki að mér. Mér fannst mjög spennandi að fá að leika þetta hlutverk, takast á við það, og þá voru þessi nektaratriði algjör smáatriði. Ég sá að þau voru nauðsynleg í því, sem höfundur verksins vildi segja og koma á framfæri og vildi taka þátt í því. Nú, svo er það með mig eins og margar miðaldra konur, að við erum ekkert sérstakt augnayndi. Hlutverkið segir hins- vegar: Hér er ekkert falið. Hér er þessi kona, Kristín, hér eru kostir hennar og gallar, aumingjaskapur og uppreisn og allt annað. Hún stendur nakin og berskjölduð gagnvart því, sent hún er. En svo kom auðvitað að því, að ég hugsaði með mér: ég hlýt að deyja áður en ég kem fram allsnakin. Nú, auðvitað dó ég ekki...“ - Hvernig finnst þér áhorfendur bregðast við? „Áhorfendur hafa sýnt okkur mikla tillits- semi og trúnað. Þeir eru ekki með fliss eða fuss - ég hef a.m.k. ekki fundið fyrir neinni hneykslun í salnum. Vitaskuld finnur maður, að það kemur á fólk - nekt er ágeng gagnvart áhorfandanum. En eftir fyrsta „áfallið", eða hvað við viljum kalla það, er líka eins og áhorfendurnir komi meira með manni inn í sýninguna. Þeir skilja tilgang þessara tveggja atriða og taka þátt í þeim með okkur". - Nú er þetta í fyrsta skipti, sem þú kemur nakin fram í leikhúsi. Hefur það komið til álita áður? „Já, það hefur nú gert það. En það er afskaplega langt síðan og þá sá ég engan til- gang í því, svo ég sagði bara nei takk". „Nektin kallar á afstöðu áhorfenda” — segir Kjartan Ragnarsson,höfundur ogleikstjóri Skilnaðar „Nektartíska í Ieikhúsunum?“ segir Kjart- an Ragnarsson, lcikstjóri og höfundur „Skiln- Kjartan Ragnarsson leikritaskáld og leikstjóri: Ekkert sjálfgefiö að það væri i lagi aö sýna fólk á nærbuxunum. aðar“ í Iðnó, og glottir. „Það held ég ekki. Það er tilviljun að bæði atvinnuleikhúsin eru að sýna verk þar sem nakið fólk kemur fyrir. Nekt er vitaskuld ekki annað en hluti af tungumáli leikhússins. Hún er notuð eins og annað. Það er einnig alltaf afstætt hvað er tabú í leikhúsi. Það þótti til dæmis hneykslun lengi í ensku leikhúsi ef sást í ökkla á konu. Ég man líka eftir því, að þegar við sýndum Saumastofuna í Færeyjum urðu af því nokk- ur vandræði, að í einu atriði sást maður á nærbuxunum. Það var ekkert sjálfgefið þar, að það væri í lagi að sýna fólk á nærbux- unum“. - Eru nektaratriðin í „Skilnaði“ bráðnauð- synleg? „Já, mérfannstþað. Leikritiðfjallar um og sýnir í innri skilningi konuna standa nakta gagnvart heiminum. Nektin kallar á afstöðu áhorfenda með henni. Leikritið byrjar nokk- uð bratt tilfinningalega og ég vissi það frá upphafi, að ég gæti ekki byrjað svo bratt nema með því að negla niður bæði leikarana og áhorfendurna. Konan er nakin í sólar- lampa í upphafi leiksins. Lampinn er eins og flatningsborð eða líkkista, nektin og um- komuleysið er algjört". - Og finnst þér að þér hafi með þessu tekist að negla báða hópana, leikendur og áhorf- endur? „Já, ég held að þetta sé áhrifarík negling. Þessi sýning er sú, sem ég ætlaðist til. Viðbrögðin eru, ja, þau eru á ýmsa vegu, en fyrst og fremst eru þau afgerandi.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.